Dagur - 27.04.1990, Page 2

Dagur - 27.04.1990, Page 2
2 - DAGUR - Föstudagur 27. apríl 1990 2. áfangi Giljahverfis: Lóð undir raðhús á þessu ári Útlit er fyrir að í vor verði hægt að úthluta lóð undir eitt raðhús í 2. áfanga Giljahverf- is á Akureyri. Á funcii Skipulagsnefndar Akureyrar 4. apríl er bókaö að arkitektarnir Páll Tómasson og Gísli Kristinsson hafi komið á fundinn og kynnt frumdrög að 2. áfanga deiliskipulags Gilja- hverfis. Freyr Ófeigsson, formaður skipulagsnefndar, sagði á síð- asta bæjarstjörnarfundi aö hægt yrði aö úthluta einni lclö undir raðhús í hverfishluta þcssum, án þess að til frekari gatnagerð ar þyrfti að koma á þessu ári. í Giljahverfi verður hægt að velja milli lóða fyrir einnar og tveggja hæða raðhúsaíbúðir, auk lóða fyrir 15 til 20 einbýlishús. EHB Húsavík: Fiiran tilboð í skólabyggingiraa Fimm tilboð bárust í 1 áfanga viðbyggingar við grunnskólann á Húsavík. Um er að ræða jarðvinnu auk uppsteypu á kjallarn og hljóðaði kostnaðaráætlun upp á 10.855.331 kr. Tilboðin voru opnuð á þriðjudag, og i’ékst heimild til að hirta þau með fyrirvara, þar sem ekki var lokið við að fara yfir þau í gær. Trésmiðjan Rein í Reykja hverfi var meö lægsta tilboðið 10.514.183 kr. en Fjalar hf. Húsavík bauö 10.590.055 kr. Naustavör hf. og Eggcrt og Jón- as buðu 11.437.966 kr. í verkið, tilboð Norðurvíkur hf. nam .672.850 kr. og tilboö frá Trésmiðjunni Borg er 11.975.457 kr. Verkinu á að vera lokið 15. sept. nk. í síðari áföngum verða byggðar tvær hæðir ofan á grunninn. IM Illugastaðir í Hálshreppi: d fréttir H- Við bíðum sumars með sól og yl“ - segir Jón Óskarsson, forstöðumaður Að Illugastöðum í Hálshreppi eru 31 orlofshús sem eru mjög vinsæl til sumardvalar. Einnig hafa húsin verið leigð yfír vetrarmánuðina en þó mun minna mæli. Dagur hafði sam- band við Jón Oskarsson for- stöðumann og spurðist fyrir um notkunina í vetur og útlitið fyrir sumarið. Virðisauki af snjómokstri: Reglugerðar er að vænta í næstu viku Gert er ráð fyrir að í næstu viku verði sett reglugerð um endurgreiðslur á virðisauka- skatti til sveitarfélaga. Fjár- málaráðherra lýsti því yfir í umræðum á Alþingi 5. apríl sl. að reglugerðin yrði gefín út fyrir páska, en hún hefur ekki enn litið dagsins Ijós. Samkvæmt heimildum Dags hefur ágreiningur um ýmis atriði reglugerðarinnar milli ráðuneyt- isins og sveitarfélaganna tafið útgáfu hennar, en þó mun vera eining um þann kafla er lýtur að endurgreiðslu á virðisaukaskatti af snjómokstri. Reglugerðin gerir ráð fyrir að ríkið endurgreiði hann að fullu frá og með síðustu áramótum. Af skiljanlegum ástæðum hafa sveitarfélög á Norðurlandi borg- að hlutfallslega mest í ríkiskass- ann í formi virðisaukaskatts af snjómokstri. Setning reglugerð- arinnar verður þeim því kærkom- in. óþh „í vetur höfðum við 12 hús til útleigu. Aðsókn í húsin var mjög lítil. Erfiður og grimmur vetur með ófærð á vegum varð þess valdandi. Yfir páskana var hér fólk í húsunum tólf og pestarnir í Háls-, Laufás- og Staðarfells- prestakalli nýttu sér húsin fyrir þau börn sem ferma á nú í vor. Að öðru leyti voru húsin ónot- uð,“ sagði Jón. Hann sagði ennfremur að sum- ardvalargestirnir kæmu í júní og að mikið væri bókað í sumar, fram í september. „Á staðnum er sundlaug sem var upphituð með rafmagni, en nú ineð olíu. Rafmagnsstrengur- inn þoldi ekki álagið. Hér um slóðir er gott rjúpnaveiðiland og Fyrsta uppboð á eignum þrotabús Mánavarar: Landsbankinn bauð 500 þúsund í húsið Landsbankinn bauö 500 þús- und í hús skipasmíöastöövar- innar Mánavarar á Skaga- strönd á fyrsta uppboöi, sem haldið var sl. miðvikudag. Norðurland: Ölafur Ragnar efhir til fimda um helgina Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, efnir til þriggja funda á Norðurlandi um helgina. Fyrsti fundurinn verður kl. 16 á Sauðárkróki á morgun, laugardag, en hinir tveir verða báðir á sunnudag, sá fyrri kl. 14 í Víkurröst á Dalvík og sá seinni kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu á Akureyri. í fréttatilkynningu frá fjár- málaráðuneytinu segir að tilgang- ur fundahalda fjármálaráðherra sé að veita upplýsingar um stööu ríkisfjármála og almennra efna- hagsmála, nú þegar erfiðlcika- tímabil undanfarinna missera sé að baki. Einnig fjalli ráðherra um ný viðhorf í íslenskum þjóðmál- um og helstu verkefni næstu ára. Fjármálaráðherra mun svara fyrirspurnum fundargesta um hagþróun, efnahagsmál, ríkis- fjármál. atvinnumál og ný við- horf í íslenskum þjóðmálum. óþh Tekin verður afstaða til til- boðsins fyrir annað og síðara uppboðið sem verður væntan- lega 23. maí nk. Að sögn Sverris Friðrikssonar, fulltrúa sýslumanns á Blönduósi, er eftir að taka afstöðu til tilboða í stóra úretanvél í eigu þrotabús- ins. Um er að ræða stóra og öfluga vél sem samkvæmt mats- verði kostar 6,5 milljónir króna. Sverrir sagöi að nokkrir aðilar hefðu spurst fyrir um vélina, en ekkert væri Ijóst með sölu á henni. óþh upplagt hefði verið að nýta húsin fyrir veiðimenn. Þetta var reynt, en gafst illa vegna mjög slæmrar umgengni og var aflagt. Nú bíð- um við sumars með sól og yl, en þá iðar hér allt af lífi,“ sagði Jón Óskarsson að lokum. ój EyjaQörður: Fjórir nýir ríkisborgarar Frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar var tekið til annarrar umræðu í efri deild Alþingis 10. apríl sl. og er þar lagt til að 43 útlendingar fái ríkisborgararétt. Þar af eru fjórir búsettir í Eyjafírði. Þessir fjórir sem fá íslenskan ríkisborgararétt og búa í Eyja- firðinum eru Dorota Manczyk, tónlistarkennari á Akureyri, Waclaw Lazarz, tónlistarkennari á Akureyri, en þau eru bæði frá Póllandi. Michael John Ryan frá Englandi, sjómaður í Önguls- staðahreppi, og Wolfgang Sahr frá Vestur-Þýskalandi, íþrótta- kennari á Akureyri. í 2. grein frumvarpsins segir: „Nú fær maður, sem heitir erlendu nafni íslenskt ríkisfang með lögum, og skulu þá börn hans, fædd síðan, heita íslensk- um nöfnum samkvæmt lögum um mannanöfn, en hann skal, þá er hann hlýtur íslenskt ríkisfang, taka sér íslenskt eiginnafn - ásamt því sent hann ber fyrir - er börn hans taka sem kenningar- nafn. Honum skal þó heimilt, ef hann kýs heldur, að breyta svo eiginnafni sínu að það fullnægi kröfum laga um mannanöfn.“ SS Blönduós: I’rír listar komnir fram LHMIMUHLlD Kjörbúð KEA, Sunnuhlíð 12 Opid virka daga kl. 9-20, laugardaga kl. 10-20. Listar til bæjarstjórnarkosn- inga á Blönduósi eru komnir fram. Þrír listar eru eins og í seinustu kosningum. Það eru H-listi vinstrimanna og óháðra, D-listi sjálfstæðis- flokks og K-listi Framboð fé- lagshyggjufólks. Hér birtast listarnir og er röð frambjóð- enda eftirfarandi. H-listi H-listi vinstrimanna og óháðra: Vilhjálmur Pálmason múrara- meistari, Sigrún Zophoníasdóttir skrifstofumaður, Pétur Arnar Pétursson fulltrúi, Guðmundur Ingþórsson verkstjóri, Hilm- ar Kristjánsson bæjarfulltrúi, Zophonías Zophoníasson at- vinnurekandi, Ásrún Ólafsdóttir bæjarfulltrúi, Kári Smárason framkvæmdastjóri, Sigríður Bjarkadóttir skrifstofumaður. D-listi D-listi Sjálfstæðiflokks: Óskar Húnfjörð framkvæmdastjóri, Páll Elíasson sjómaður, Einar Flygenring fjármálastjóri, Svan- fríður Blöndal skrifstofumaður, Hjörleifur Júlíusson frám- kvæmdastjóri, Hermann Arason iðnnemi, Sigurlaug Hermanns- dóttir bankamaður, Guðrún Paulsdóttir skrifstofumaður, Guðmundur Guðmundsson versl- unarmaður, Ragnheiður Þor- steinsdóttir húsmóðir, Eggert ísberg framkvæmdastjóri, Albert Stefánsson sjúkraliði, Ólafur Þorsteinsson vélstjóri, Jón Sig- urðsson ráðunautur. K-listi K-Iisti Framboð félagshyggju- fólks: Guðmundur Theodórsson mjólkurfræðingur, Unnur Krist- jánsdóttir iðnráðgjafi, Grétar Guðmundsson trésmiður, Stefán Berndsen deildarstjóri, Hörður Ríkharðsson æskulýðsfulltrúi, Þórhildur Þorleifsdóttir kennari, Ásgeir Blöndal skipstjóri, Baldur Reynisson trésmiður, Ásta Rögnvaldsdóttir bókavörður, Sigríöur Grímsdóttir starfs- stúlka, Ragnhildur Húnboga- dóttir gjaldkeri, Ragnar Guð- jónsson nemi, Vignir Einarsson kennari og Kristín Mogensen kennari. kg Bílaleiga Flugleiða: ir um forstöðu- mannsstarfið Unisóknarfrestur uni stööu forstöðumanns fyrir Bílaleigu Fluglciða á Akureyri er runn- inn út. Rösklega 30 umsóknir bárust. Að sögn Gísla Jónssonar, hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar, verð- ur ráðið í starfið eftir næstu helgi. Viðkomandi mun hefja störf ■ fljótlega enda er ætlunin að bíla- leigan opni um miðjan maímán- uð. Sem kunnugt er verður leigan til húsa gegnt Akureyrarflugvelli, þar sem áður var bílaleigan Örn en hún er nú til húsa við Hvanna- velli á Akureyri. JÓH

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.