Dagur - 27.04.1990, Síða 5

Dagur - 27.04.1990, Síða 5
Föstudagur 27. apríl 1990 - DAGUR - 5 fréffir í- Islandsmót fatlaðra hefst í íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld: 150 íþróttamenn frá 11 félögum mæta til leiks Islandsmót fatlaðra í boccia, borðtennis, bogfimi og lyfting- um hefst í íþróttahöllinni á Akureyri í dag og stendur til sunnudags. Mikill fjöldi íþróttamanna tekur þátt í mót- inu. Til mótsins eru skráöir 150 íþróttamenn frá 11 íþróttafé- lögum víðs vegar af landinu. Meö hópunum koma um 50 fararstjórar. Lionsklúbburinn Hængur á Akureyri sér um framkvæmd mótsins, en klúbburinn hefur á undanförnum árum staðið fyrir fjölmennum íþróttamótum fyrir fatlaða, að sögn Haraldar Árna- sonar formanns mótsnefndar. „Þetta er í tólfta sinn senr hald- in eru íslandsmót í ofangreindum íþróttagreinum, en fyrstu Islandsmótin voru haldin á Akur- eyri árið 1979,“ sagði Haraldur. Ár hvert hafa Hængsfélagar staðið fyrir íþróttamóti fatlaðra, Hængsmótinu, en það er stærsta verkefni þeirra Hængsfélaga ár hvert. I ár fellur Hængsmótið inn í íslandsmótið og þetta er í annað skiptið sem Hængsfélagar sjá um íslandsmót. Mótssetning verður í íþrótta- höllinni kl. 19.45 í kvöld og keppni hefst þar strax á eftir. Á morgun laugardag hefst keppni kl. 9.30 og keppni lýkur þann daginn með bogfimi kl. 17.30. Á sunnudaginn 29. apríl hefst keppni í opnum flokki karla og kvenna í borðtennis kl. 9.00 og síðasta grein mótsins er sveita- keppni í boccia, úrslit, kl. 16.00. Lokahóf hefst síðan á Hótel KEA kl. 19.00 og þar fer m.a. fram verðlaunaafhending. „Það er von okkar félaga í Lions- klúbbnum Hæng, að mót þetta megi fara sem best fram og öllum til sóma. Jafnframt viljum við þakka öllum þeim sem hafa veitt okkur stuðning við undirbúning mótsins og látið okkur eftir aug- lýsingar í mótsskrá, en með því er mótið fjármagnað," sagði Har- aldur að lokunr. ój Soroptimistar með landsfund: Konur streyma til Akureyrar Konur munu streyma til Akur- eyrar um helgina því lands- fundur Soroptimistasambands Islands hefst í Alþýðuhúsinu á laugardaginn. Búist er við um 150 konum frá öllum lands- hlutum. Feröaskrifstofan Nonni hefur skipulagt komu kvennanna og munu þær gista á Hótel Norðurlandi, Hótel Stefaníu og gistiheimilum. En hvers lags fyrirbæri eru Sor- optimistaklúbbar? Helena Dejak hjá Ferðaskrif- stofunni Nonna er félagi í Sor- optimistaklúbbi Akureyrar, sem stofnaður var árið 1982. Hún sagði að fyrsti Soroptimista- klúbbur á íslandi hefði verið stofnaður 1960 en upphaf þessar- ar hreyfingar má rekja allt aftur til ársins 1869. Þetta er alþjóðleg- ur félagsskapur. Að sögn Helenu eru markmið Soroptimista eftirfarandi: 1. Að gera miklar kröfur til siðgæðis í athafnalífi. 2. Að vinna að mann- réttindum og einkum að því að auka réttindi konunnar. 3. Að efla vináttu og einingu meðal Soroptimista allra landa. 4. Að auka hjálpsemi og skilning meðal manna. 5. Að stuðla að auknum skilningi og vináttu á alþjóða vettvangi. „Margir virðast ekki vita hvað Soroptimistar eru, en í stuttu máli sagt þá erum við að reyna að búa okkur betri heirn til að lifa í. Eru ekki allir að stefna að því? Þetta eru mannræktarsamtök og verkefni okkar á Akureyri hafa mikið tengst öldruðum," sagði Helena. í Soroptimistaklúbbi Akureyr- ar eru um 26 konur. Þær hafa m.a. fært öldruðum og öryrkjum bækur, en þessi heimsendingar- jrjónusta er sameiginlegt verkefni klúbbsins og Amtsbókasafnsins. Þá liafa þær gefið Seli tækjabún- að, keypt öryggishnappa og gefið öldruðum og gefið FSA sónar- tæki, svo eitthvað sé nefnt. Fé til þessara gjafa safna konurnar nt.a. með því að selja kerti og servíettur fyrir jól, kökur og fleira. SS Bygging dýraspítala á Akureyri: Fjársöfnun hefst í dag I dag hefja dýravinir á Eyja- Ijarðarsvæöinu fjársöfnun til byggingar dýraspítala á Akur- eyri. Aöstandendur söfnunar- innar segja þörfina fyrir slíkt sjúkrahús á Norðurlandi brýna, þar sem engin slík að- staða er fyrir hendi. Þeir sein þurfa á þjónustu dýraspítala að halda fyrir dýr sín þurfa því að leita suður yfir heiðar, með ærnum tilkostnaði og fyrir- höfn. Aðstandendur söfnunarinnar hafa stofnað höfuðbók í Búnað- arbanka íslands á Akureyri og eru áhugamenn um málefnið hvattir til að láta fé af hendi rakna. Reikningsnúmerið er íbúðir aldraðra við Víðilund: Frestad var uppsetningu sjálhirks opnunarbúnaðar Dagur hafði samband við Bjarna Reykjalín, arkitekt, vegna aðgengis fatlaðra að fjölbýlishúsum aldraðra við Víöilund. Bjarni segir að vegna kostnaðar hafi verið ákveðið að fresta uppsetningu á rafdrifnuni opnunarbúnaði við hurðirnar. Bjarni Reykjalín segir að vegna umræðna um þessi mál í Bæjarstjórn Akureyrar vilji hann benda á að við hönnun húsanna hafi verið gcrt ráð fyrir rafdrifn- um opnunarbúnaði á anddyris- og forstofuhurðum, til að auð- vclda aðgcngi fatlaðra. Af kostn- aðarástæðum hafi síðan verið ákveðið, í samráði við bygginga- nefnd húsanna, að fresta upp- setningu búnaðarins þar til þörf krefði og lcita þá eftir styrk frá Tryggingastofnun ríkisins til að fjármagna hann. Að öðrum kosti hefðu íbúarnir sjálfir þurft að greiða búnaðinn, sem kæmi inn í stofnkostnað. í máli Bjarna kom ennfremur fram að í rafmagnshönnun hafi verið gert ráð fyrir slíkum bún- aði, og væru allar lagnir til staðar. „Varðandi hurðapumpur á innihurðum vil ég taka fram að óvenju strangar eldvarnakröfur cru gerðar í umræddum húsum, og þar af leiðandi eru hurða- pumpur í öllum anddyrishurðum, en gert er ráð fyrir sjálfvirkúm opnunarbúnaði að öllum þessum hurðum. Teikningar voru á sín- um tíma kynntar í ferlinefnd, og fengu þær góða umsögn,“ segir Bjarni Reykjalín, arkitekt. EHB 0303-26-2119. Búnaðarbankinn mun gefa gíróseðla til söfnunar- innar og liggja þeir frammi í póst- húsum, bönkum og sparisjóðum á svæðinu. Ábyrgðarmenn söfnunarinnar eru Þorsteinn Jónasson, Rósa Júlíusdóttir og Fanney Gunnars- dóttir á Akureyri og Margrét Magnúsdóttir á Dalvtk. Aætlað er að söfnunin standi yfir í einn tnánuð. Stjórnarformaður SH á aðalfundi: Útvegsmenn eru réttmætir handhafar kvótans Aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna fyrir árið 1989 hófst á Hótel Sögu í gær og lýkur í kvöld. Fram kom á fundinum að á síðasta ári nam heildarverðmæti útflutn- ings SH alls 14,8 inilljörðum króna fyrir 96 þúsund tonn af fiski. „Magnaukning SH milli ára er 21% en 42% aukning í krónutölu miðað við 1988. Af einstökum félagsaðilum inn- an SH var inest framleitt hjá Útgerðarfélagi Akureyringa hf., eða 9.400 tonn að verö- mæti 1.480 millj. króna mið- að við útborgunarverð,“ sagði Jón Ingvason, stjórn- arformaður SH in.a. í ræðu sinni á fundinum í gær. Að undanförnu hafa verið reifaðar hugmyndir um að gera SH að hlutafélagi, svo og SÍF og Sjávarafurðadeild Sambands- ins. Einnig er rætt um að þessir aðilar taki upp formlegt sam- band sín á tnilli, en slíkar við- ræður eru á hyrjunarstigi. Um það að breyta SH í hlutafélag sagði Jón: „Af og til hefur verið um það rætt hvort núverandi félagsform sé það heppilegasta. Ekki skal það fullyrt hér hvort rétt sé eða skynsamlegt að breyta Sölumið- stöðinni t.d. í hlutafélag. Þaö eru ótal fletir á því máli og best að slá engu föstu í þeim efnum fyrr en nákvæm skoðun og mat liggur fyrir." Friðriki Pálssyni, forstjóra SH, var tíðrætt um sameiningu íslenskra útflutningsfyrirtækja í ræðu sinni. „Við ættum að steypa öllum stórum fyrirtækj- um saman í eitt, fylkja okkur bak við eitt ÍCELANDIC vöru- rnerki og freista þcss að ná undirtökum á öllum þeim mörkuðum sem við sjáum ástæðu til að hasla okkur völl," sagði Friðrik. Umdeilt kvótafrumvarp bar einnig á góma í ræðum Jóns og Friðriks. Jón sagði aö útvegs- menn væru réttmætir handhafar kvótans. „Fiskur verður ekki sóttur f sjó nema með skipum. Því hlýtur að vera nærtækast að tengja handhöfn veiðileyfa við þá sem skipin eiga," sagði Jón. Friðrik vildi ekki blanda sér um of í umræðuna um kvótafrum- varpið, en honum fannst þó margt benda til þess að það sem átti að ná fram meö kvótanum hafi ekki náðst. -bjb Iisti fijálslyndra á DaJvík Listi frjálslyndra við hæjar- stjórnarkosningarnar á Dal- vík 26. maí nk., sein væntan- lcga hlýtur listabókstalinn F, liefur veriö birtur. Hann skipa: 1. Haukur Snorrason, skrif- stofumaður, 2. Snorri Snorra- son, skipstjóri, 3. Ósk Finns- dóttir, húsmóöir, 4. Siguröur Haraldsson, skipstjóri. 5. Sigurvin Jónsson, verkamaður, 6. Anton Gunnlaugsson, útgerð- armaður, 7. Ósk Sigríður Jóns- dóttir, nemi, 8. Guðbjörg Stefánsdóttir, húsmóðir, 9. Anton Ingvason, sjómaöur, 10. Svcrrir Sigurðsson, múrari, 11. Aðalbjörg Snorradóttir, skrif- stofumaður, 12. Magnús Jóns- son, verkstjóri, 13. Viöar Valdi- marsson, matreiðslumaður og 14. Jóhann Gunnarsson. fisk- eftirlitsmaður. óþh Fóðurstöðin á Dalvík: Úrskurðuð gjaldþrota Fóöurstöðiii á Dalvík hefur verið úrskurðuð gjaldþrota. Sýslumannsembættið í Eyja- fjarðarsýslu samþykkti beiðni stjórnar Fóðurstöðvarinnar um gjaldþiotaskipti. Gunnar Sól- ncs hrl. hefur verið skipaður bústjóri þrotabús Fóðurstöðv- arinnar. óþh

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.