Dagur - 08.05.1990, Blaðsíða 7

Dagur - 08.05.1990, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 8. maí 1990 - DAGUR - 7 Evrópumótið í kraftlyftingum: Helgi krækti í brons - lyfti samtals 317,5 kg Skíði: Sjóður til minningar um Jónas Sigurbjömsson Helgi Jónsson frá Akureyri krækti í bronsverðlaun á Evrópumótinu í kraftlyftingum sem fram fór í Valsheimilinu að Hlíðarenda um helgina. Kolbeinn Pálsson var endur- kjörinn formaður Körfuknatt- leikssambands íslands á árs- þingi sambandsins sem haldið var á Akureyri um helgina. Á þinginu kom fram að sam- bandið var rekið með 1,5 millj- óna kr. tapi á síðasta ári og er það annað árið í röð sem sam- bandið er rekið með tapi. Fjár- hagsáætlun næsta árs hljóðar upp á rúmar 20 milljónir kr. Aðrir í stjórn voru kosnir Ein- ar Bollason, Kristinn Stefánsson og Guðmundur Þorsteinsson. Fyrir voru í stjórninni Kristinn Albertsson, Gunnar Porvarðar- . Sigurður Matthíasson, spjót- kastari úr UMSE, náði um helgina lágmarkinu fyrir næstu Ólympíuleika sem fram fara í Barcelona á Spáni 1992. Sigurður keppti þá á móti í Bandaríkjunum og kastaði 79,52 metra. Sigurður hefur verið á mikilli Helgi, sem keppti í 52 kg flokki, lyfti 115 kg í hné- beygju, 72,5 kg í bekkpressu og 130 kg í réttstöðulyftu, eða samtals 317,5 kg. Kári Elíson son og Jón Pór Hannesson. Lítið var um stórmál á þinginu að þessu sinni. Mikið var þó unn- ið að ýmsum lagabreytingum en fæstar þeirra teljast verulega fréttnæmar. Meðal tillagna sem komu fram var ein sem kvað á um breytt fyrirkomulag á úrslita- keppni Úrvalsdeildar en hún var felld. Þingið nú var merkilegt fyrir þær sakir að þetta var í fyrsta sinn í 30 ár sem það er haldið utan Reykjavíkur. Snæfellingar frá Stykkishólmi buðust um helg- ina til að halda þingið á næsta ári og verður það að öllum líkindum samþykkt. uppleið í spjótkastinu og má segja að hann hafi byrjað að blómstra á síðasta ári en þá náði hann mjög góðum árangri á alþjóðavettvangi eins og menn muna. Virðist hann í góðu formi þessa dagana og verður fróðlegt að fylgjast með hvað hann gerir í sumar. keppti í 75 kg flokki og gerði ógilt í hnébeygjunni og var þar með úr leik og Flosi Jónsson, sem keppti í 100 kg flokki, var langt frá sínu besta. Dómararnir á mótinu voru afar strangir og fengu þeir Kári Elíson og Skúli Óskarsson báðir að kenna á því í 75 kg flokknum. Kári byrjaði á því að lyfta 232,5 kg í hnébeygju og lyfti því létti- lega þrisvar sinnum en dómar- arnir dæmdu allar lyfturnar ógild- ar. Flosi byrjaði á að lyfta 260 kg í hnébeygjunni en mistókst að lyfta 280 kg. Hann lyfti síðan 150 kg í bekkpressu og 260 kg í rétt- stöðulyftu, samtals 670 kg en það er Iangt frá hans besta árangri. Alls hlutu íslendingar 5 verð- laun á mótinu. Jón Gunnarsson náði bestum árangri íslensku keppendanna. Hann keppti í 90 kg flokki og lyfti samtals 817,5 kg sem er hans besti árangur til þessa. Hann lenti í öðru sæti. Hjalti Árnason hafnaði í 3. sæti í + 125 kg flokki, lyfti samtals 895 kg. Guðni Sigurjónsson vann brons í 110 kg flokki með því að lyfta samtals 800 kg og Magnús Ver Magnússon vann einnig brons með því að lyfta samtals 880 kg. Mótið heppnaðist vel og voru erlendu keppendurnir ánægðir með framkvæmdina. Handknattleikur: Erlingur áfiram með KA-Iiðið Erlingur Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildar liðs KA í handknattleik á næsta keppnistímabili. Erling- ur þjálfaði og lék með liðinu í vetur sem kunnugt er en hann segir ekki ákveðið hvort hann muni leika áfram eða snúa sér alfarið að þjálfuninni. Erlingur sagði í samtali við Dag að hann hefði verið tiltölu- lega sáttur við 5. sætið sem liðið hafnaði í á sl. nýliðnu keppnis- tímabili en það hefði mátt fá fleiri stig. „Eftir á að hyggja er maður ekki alveg sáttur. Það er erfitt að nefna einhverja sérstaka stigatölu en við vorum að tapa óþarflega mörgum stigum, sér- staklega á heimavelli." Aðspurður um leik liðsins sagði Erlingur hann hafa verið hálfgloppóttan. „Við spiluðum fáa heila góða leiki en svo komu ágætir kaflar á milli. Þeir hefðu þó að skaðlausu mátt vera fleiri. Sóknarleikurinn var svolítið laus í reipunum, það vantaði aga í leik liðsins,“ sagði Erlingur Krist- jánsson. Á uppskeruhátíð Skíðaráðs og Foreldraráðs um hclgina var upplýst að stofnaður hefur ver- ið sjóður til minningar um Jón- as Sigurbjörnsson sem lést á síöasta ári, langt fyrir aldur frain. Stofnfé sjóðsins er 350 þúsund krónur og er tilgangur hans að efla skíðaíþróttina á Akureyri. Stjórn sjóðsins hefur verið kjörin og hana skipa Brynjólfur Tryggvason fulltrúi Skíðaráðs, Guðmundur Sigurbjörnsson, fulltrúi ættingja Jónasar heitins. Árni Óðinsson og Margrét Baldvinsdóttir sem fulltrúar skíðamanna og Þorsteinn Vil- helmsson sem fulltrúi Samherja hf. og ísbergs hf. Fyrsta verk stjórnarinnar verður væntanlega að semja reglugerð sem sjóður- inn mun starfa eftir. Næstu vikur gefst fólki og fyrir- tæ'kjum tækifæri á að gerast stofnfélagar með því að hafa samband við einhvern nefndar- mann eða leggja fé inn á reikning í Landsbanka íslands en númer hans verður væntanlega auglýst fljótlega. Körfuknattleikur: Sturla þjálfar og leikur með Þór - Kennard kemur ekki aftur Sturla Örlygsson mun þjálfa og leika með Úrvalsdeildar- liði Þórs í körfuknattleik á næsta keppnistímabili. Ekki mun vera búið að skrifa undir samning en Dagur hefur þetta eftir áreiðanlegum heim- ildum. Sturla lék með Tinda- stóli í vetur en áður hefur hann leikiö með Njarðvík auk þess sem hann þjálfaði og lék með ÍR-ingum einn vetur. Frétt þessi hefur ekki fengist staðfest þar sem ekki hefur náðst í Sturlu og Kjartan Braga- son, formaður körfuknattleiks- deildar Þórs, neitaði að segja annað en þetta: „Það verður sterkt lið á Akureyri næsta vetur.“ Þórsarar ætla sér stóra hluti á næsta vetri og að sögn tfðinda- manns Dags stendur til að bæta fleiri mönnurn við. Ljóst er að Dan Kennard mun ekki leika áfram með liðinu en verið er að ræða viö aðra útlendinga og má búast við niðurstöðu úr þeim málum á næstunni. Þá munu fleiri leikmenn vera inni í myndinni hjá Þórsurum en ekk- ert hefur verið ákveðið. Ársþing KKÍ: Tap á rekstrmum annað árið í röð Kolbeinn Pálsson í ræðustól í upphafi þingsins á laugardag. Mynd: kl Spjótkast: Sigurður náði OL-lágmarkinu - kastaði 79,52 metra

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.