Dagur - 26.06.1990, Síða 8

Dagur - 26.06.1990, Síða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 26. júní 1990 2. deild Úrslit í 5. umferð: IR-Víðir 2:3 ÍBK-UBK 0:1 Leiftur-Grindavík 1:2 KS-Tindastóll 2:0 Selfoss-Fylkir 1:2 Fylkir 5 5-0-0 15: 4 15 UBK 5 4-1-0 11: 3 13 Vííír 5 3-1-1 7: 7 10 Tindastóll 5 2-1-2 5: 5 7 ÍBK 5 2-0-3 4: 5 6 KS 5 2-0-3 6: 9 6 Selfoss 5 1-1-3 7: 8 4 Grindavík 5 1-1-3 7:10 4 Lciftur 5 1-1-3 4: 9 4 ÍR 5 1-0-4 6:13 3 Markahæstir: Grétar Steindórsson, UBK 6 Grétar Einarsson, Víði 4 Guðmundur Baldursson, Fylki 3 Kristinn Tómasson, Fylki 3 Örn Valdimarsson, Fylki 3 3. deild Úrslit í 5. umferð: Dalvík-Þróttur R. 1:3 TBA-Haukar 0:2 ÍK-Þróttur N. 2:3 Einherji-BÍ 3:3 Völsungur-Reynir 1:1 Þróttur R. 5 5-0-0 19: 5 15 Haukar 5 4-0-1 12: 7 12 ÍK 5 3-0-214: 8 9 Þróttur N. 5 2-1-210: 9 7 Reynir 5 2-1-2 9:11 7 Dalvík 5 2-1-2 8:10 7 Völsungur 5 1-2-2 6: 7 5 BÍ 51-1-314:13 4 TBA 5 1-04 2:15 3 Einherji 5 0-2-3 6:15 2 Markahæstir: Óskar Óskarsson, Þrótti R. 8 Jóhann Ævarsson, BÍ 7 Brynjar Jóhannesson, Haukum 4 Garðar NíeLsson, Reyni 4 Hörður Már Magnússon, ÍK 4 Júlíus Þorfinnsson, ÍK 4 Þráinn Haraldsson, Þrótti N. 4 4. deild D-riðill Úrslit í 3. umferð: Korinákur-Geúlian 10:0 Neisti-Þrymur 2:0 Kormákur Ncisti Hvöt Þrymur Geislinn 2 2-0-0 13: 1 6 3 2-0-111: 3 6 2 2-0-0 6: 3 6 3 0-0-3 3: 8 0 2 0-0-2 0:18 0 Markahæstir: Albert Jónsson, Kormáki Magnús Jóhannesson, Neista Hörður Guðbjörnsson, Kormáki Oddur Jónsson, Neista 6 5 4 4 E-riðill Úrslit í 4. umferð: UMSE-b-SM Narfi-HSÞ-b Austri-Magni 1:1 0:8 0:4 HSÞ-b UMSE-b Magni S.M. Austri Rau. Narfi 4 3-1-0 16: 3 10 4 2-1-1 15: 4 7 3 2-1-0 10: 4 7 4 1-1-2 4: 7 4 41-0-3 5:13 3 3 0-0-3 2:21 0 Markahæstir: Viðar Sigurjónsson, HSÞ-b 6 Ásgrímur Reisenhus, UMSE-b 4 Kristján Kristjánsson, Magna 4 Ari Hallgrímsson, HSÞ-b 3 Baldvin Hallgrintsson, UMSE-b 3 Reimar Helgason, Magna 3 Sigurður H. Ólafsson, Austra 3 2. deild: Tindastólsmenn réðu ekki við Hafþór - sem skoraði bæði mörkin í 2:0 sigri KS KS sigraði Tindastól 2:0 í 6. umferð 2. deildarinnar á Siglu- firði á föstudagskvöldið. Leikurinn var afar slakur, sér- staklega fyrri hálfleikur, enda veður leiðinlegt, rigning og kuldi, og aðstæður til knatt- spyrnuiðkunar ekki skemmti- legar. Það var Hafþór Kol- beinsson sem tryggði KS-ing- um sigur með því að skora bæði mörkin í leiknunt. Fyrri hálfleikur var afspyrnu- slakur og er í raun lítið um hann að segja. Leikurinn fór að mestu fram á miðju vallarins og var lítið um áferðarfallegt spil. Tinda- stólsmenn voru þó heldur hættu- legri og áttu tvívegis þokkaleg færi sem ekki tókst að nýta. í seinni hálfleiknum lifnaði aðeins yfir liðunum. KS fékk óskabyrjun þegar Hafþór Kol- beinsson skoraði strax á 50. mín- útu með skoti úr vítateig Tinda- stóls eftir mikla þvögu. KS-ingar voru heldur hressari fyrstu 20 mínútur hálfleiksins en þá náðu Tindastólsmenn yfirhöndinni og sóttu stíft. Þeir fengu nokkur ágæt færi og áttu m.a. gott skot í þverslá KS-marksins. En inn vildi knötturinn ekki og á 88. mínútu bættu Siglfirðingar öðru marki við, þvert gegn gangi leiksins. Þeir náðu þá skyndiupphlaupi og Hafþór Kolbeinsson stakk varn- armenn Tindastóls af og skoraði af öryggi. Eins og fyrr segir var leikurinn lítið fyrir augað og knattspyrnan ekki merkileg. KS-ingar fengu bestu færin í leiknum en Tinda- stóll sótti meira og jafntefli hefði ekki verið ósanngjörn úrslit. Haf- þór var besti maður KS ásamt þjálfaranum Mark Duffield en hjá Tindastól var Guðbrandur ógnandi og Sverrir Sverrisson vann vel á miðjunni. AS/JHB 2. deild: Leiftursmenn daprir - töpuðu fyrir baráttu- glöðum Grindvíkingum Grindvíkingar sigruöu Leift- ursmenn 2:1 í 5. umferö 2. deildar í Olafsfirði á föstudags- kvöldið. Þrátt fyrir að heima- menn hefðu undirtökin fram- anaf leiknum gekk þeim illa að nýta færin sem gáfust og smátt og smátt komust baráttuglaðir Grindvíkingar inn í leikinn og tryggðu sér sigurinn í seinni hálfleiknum. Leikurinn hófst reyndar ekki fyrr en um kl. 20.30, hálfri klukkustundu síðar en til stóð. Ástæðan var hversu seint dómar- arnir mættu til leiks. Ólafsfirð- ingar voru búnir að láta vita að veður væri ekki með besta móti og því þyrfti dómaratríóið að fara í gegnum Akureyri en það kom engu að síður of seint. Þess má geta að Grindvíkingarnir voru mættir á tilsettum tíma. Voru Ólafsfirðingar afar óhressir yfir þessu. Leiftursmenn sóttu mun meira í fyrri hálfleiknum og fengu þá nokkur ágæt færi. Ómar Torfa- son átti þokkalegt skot snemma í leiknum sem var varið og á 33. mínútu átti hann skalla framhjá eftir horn. Hann átti einnig síð- asta orðið í hálfleiknum með skoti í hliðarnetið úr þröngu færi rétt fyrir leikhlé. Grindvíkingar áttu aðeins eitt færi í fyrri hálf- leik, þegar Þórarinn Ólafsson komst inn fyrir Leiftursvörnina en Þorvaldur náði að blaka bolt- anum framhjá á elleftu stundu. Leiftursmenn náðu svo foryst- unni á 50. mínútu. Þeir fengu þá hornspyrnu eftir gott færi og Ómar Torfason stökk hæst í teignum og skallaði í netið. Grindvíkingar hresstust heldur við markið og 10 mínútum síðar jöfnuðu þeir. Þar var Þórarinn að verki með skalla af stuttu færi. Á 30. mínútu fengu Grindvík- ingar að vaða upp allan völl óáreittir af baráttulausum Ólafs- firðingum og lauk þeirri sókn með því að Ólafur Ingólfsson skoraði með skoti frá vítateigs- línunni og tryggði gestunum þrjú stig. Leiftursliðið lék undir getu í þessum leik og ekki verður sagt að neinn leikmanna þess hafi átt góðan dag. Grindvíkingarnir börðust mjög vel og það réði úr- slitum í leiknum. Þórarinn Ólafs- son var þeirra besti maður, mjög ógnandi og duglegur allan leik- inn. Róbert Gunnarsson og félagar náðu sér ekki á strik gegn Grindvíkingum. Hafþór Kolbeinsson var „Stólunum“ erfiður á föstudagskvöldið. Kristján Davíðsson og félagar í Einherja gerðu jafntefli í fjörugum marka- 3. deild: Markaregn á Vopnafirði - þegar Einherji og BÍ gerðu 3:3 jafntefli í flörugum leik Einherji krækti í sitt annað stig í 3. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á föstudagskvöld- ið. Liðið fékk þá BÍ í heim- sókn til Vopnafjarðar og urðu úrslitin 3:3 jafntefli í fjörugum leik. Einherjamenn voru ávallt fyrri til að skora og fyrsta markið skoraði Jón Oddsson eftir 15 mínútur eftir mikinn einleik í gegnum vörn BÍ. Jóhann Ævars- son jafnaði fljótlega fyrir gestina eftir mikil varnarmistök Ein- herjamanna og skömmu síðar fékk Einherji vítaspyrnu sem Gísli Davíðsson tók en skot hans fór yfir markið. Einherjamenn fengu þó annað tækifæri skömmu seinna þegar þeir fengu aðra vítaspyrnu. Að þessu sinni tók hana Kjartan Guðmundsson og hann skoraði af öryggi. BÍ átti svo síðasta orð- ið í fyrri hálfleiknum þegar Kristmann Kristmannsson jafn- aði metin eftir önnur slæm varn- armistök. í seinni hálfleiknum var meira jafnræði með liðunum en enn voru það Einherjamenn sem náðu forystunni með marki Gísla Davíðssonar. Jóhann Ævarsson jafnaði svo fyrir BÍ fyrir leikslok og úrslitin því 3:3, og verða þau að teljast sanngjörn þrátt fyrir að heimamenn hafi verið heldur nær því að sigra.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.