Dagur - 26.06.1990, Side 16

Dagur - 26.06.1990, Side 16
Akureyri, þriðjudagur 26. júní 1990 Kodak Express Gæöaframköllui ★ Tryggðu f ilmunni þinni UoA ^ ^ fbesta ^PedíSmyndir . Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324. Vegagerð ríkisins: Kjalvegur opnaður í gær Kjalvegur var opnaður í gær og er ástand á honum bara nokkuð gott að sögn vegagerð- arinnar á Blönduósi. Þar er aðeins leyfð umferð jeppa og eru menn varaðir við því að reyna fara hann á minni bílum því að töluvert er um stórgrýti á stöku stað og eins eru óbrú- aðar ár margar á leiðinni. Vegagerðin á Blönduósi fór og kannaði ástand og lagfærði Kjal- veginn nú fyrir helgina og sögðu þeir sem þar voru að bæði ástand vega og gróðurs væri ekkert mik- ið verra þarna uppi en niðri í byggð. . Vegurinn um Þverárfjall milli Sauðárkróks og Skagastrandar er lokaður enn og að sögn vega- gerðarinnar á Sauðárkróki verð- ur hann ekki opnaður næsta hálfa mánuðinn. Á honum eru ennþá allt að tveggja metra þykkar fannir og ekkert þýðir að moka meðan leysingavatn er enn til staðar. Vegurinn er samt farinn að þorna á köflum og verður trú- lega í góðu ásigkomulagi þegar opnað verður. I fyrra var hann opnaður 11. júlí og verður opn- unardagurinn á svipuðu róli í ár. SBG „Golfl)rú5kaup“ áAkureyri Menn hugsuðu ekki bara um golf á Arctic Open golfmótinu sem haldið var á Akureyri um helgina. Ritstjóri Golf Illustrated Weekly, Neil Elsey, notaði tækifærið og gekk að eiga Elisa- beth Bateman. Jón E. Baldvins- son, sendiráðsprestur í Lundún- um, gaf brúðhjónin saman í Minjasafnskirkjunni á laugar- dagsmorgun og hélt síðan áfram að spila golf með þeim árangri að hann fór holu í höggi og vann 1200 þús. kr. Opel bíl fyrir vikið. Nánar er fjallað um mót- ið á íþróttasíðum blaðsins. SS/Mynd: KL Ólafsflarðarmúli: Mikið gijóthnm um helgina - en engin óhöpp Mikið grjóthrun var í Ólafs- fjarðarmúla um helgina og seinni partinn á sunnudag var hann nær lokaður á meðan vinnuvélar hreinsuðu grjótið burtu af veginum. Þar til síð- degis í gær höfðu engin óhöpp orðið í Múlanum vegna grjót- hrunsins, eða frá því á föstu- dagsmorgun þegar grjótskriða féll yfir Þjóðverja í húsbíl. Mikið rigndi um helgina og héldu ferðalangar að sér höndum ef ferð fyrir Múlann var á dagskrá. Vitað er um fólk sem ætlaði frá Ólafsfirði til Dalvíkur um Múlann, en fór yfir Lágheið- ina í staðinn. Það er lenging á leiðinni um rúma 200 kílómetra! Vegna dansleiks í Ólafsfirði á laugardagskvöldið með Stjórn- inni vinsælu, óttaðist lögreglan mikla umferð um Múlann en hún varð minni en ætlað var. Aðkomnir ballgestir komu flestir yfir Lágheiði. Á sunnudag voru símalínur hjá lögreglunni í Ólafsfirði glóandi, þar sem fólk var að spyrja um ástand Múlans. Þetta sýnir að fólk fer með gát, sem er vel, en líklega verður minna um álag á símalínum lög- Miklar framkvæmdir í sumar við Ólafs@arðarhöfn: Samþykkt að semja við heimamenn 8. maí sj. samþykkti Hafnar- stjórn Ólafsfjaröarbæjar að Ieita eftir því viö bæjarstjórn að farið verði í svæðisbundið útboð vegna fyrirhugaðrar byggingar grjótgarðs við Ólafs- fjarðarhöfn. í bókun hafnarstjórnar segir: „Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að kanna hjá heimamönnum til- boð í verkið á samkeppnisverði. Gangi það ekki eftir verði farið í svæðisbundið útboð á verkinu. Þetta verði gert í fullu samráði við Hafnamálastofnun ríkisins." Þorsteinn Björnsson bæjar- tæknifræðingur Ólafsfjarðarbæj- ar segir að rætt hafi verið við heimamenn um þetta verk, og þeir hafi síðan skilað inn tilboði á grundvelli þeirra gagna sem Hafnamálastofnun vann fyrir Ólafsfjarðarbæ. Á fundi hafnar- stjórnar sl. þriðjudag var síðan samþykkt að ganga til samninga við Árna Helgason, sem er verk- taki á staðnum. Samningsverðið er kr. 20.438.51X) eða 85,8% af áætlun Hafnamála- stofnunar sem hljóðaði upp á kr. 23.828.000. Þessi nýi garður mun ganga inn í höfnina, og kyrra eða minnka til muna allar hreyfingar í henni. Einng verður byggður annar grjótgarður til að verja norðurgarðinn, en í hann þarf mjög stóra steina, eða allt að 8 tonnum. Einnig þarf í tengslum við þessa framkvæmd að rífa gamla trébryggju. í sumar er einnig fyrirhuguð viðgerð á svokölluðum loðnu- kanti sem eru nokkuð viðamiklar framkvæmdir, en við þennan kant er loðnu landað og hann notaður sem viðlegukantur fyrir togarana, en í sumar er áætlað að framkvæma viðhald fyrir 4 millj- ónir króna. Þær framkvæmdir verða unnar af heimamönnum, en framkvæmdin er styrkhæf frá Hafnamálastofnun, og fylgjast fulltrúar þeirrar stofnunar með framkvæmdum. Fyrirhugað var að hefja fram- kvæmdir við grjótgarðinn um mánaðamótin, en enn er snjór í námunni sem er í 4 km fjarlægð vestan megin í firðinum í landi Garðs. Áætlaður framkvæmda- tími er 3 mánuðir, þannig að verkinu verði skilað í lok sept- embermánaðar. Bæjarstjórn Ólafsfjarðar á eft- ir að samþykkja tilboð Árna Helgasonar, en fyrir iiggur bréf frá Hafnamálastofnun þar sem hún fellst á tilboð Árna Helga- sonar. Verktakar við þessa fram- kvæmd eru nánast þeir sömu og voru við síðustu grjótvarnargerð, en Hafnamálastofnun hafði þar verkstjórn á hendi. GG Landsmót UMFÍ 1990: Norðlendingar með 1000 skráningar - svipaður flöldi og á Húsavík ’87 Það styttist óðum í Landsmót UMFÍ, sem haldið verður í Mosfellsbæ 12.-15. júlí nk. Að sögn Ómars Harðarsonar, framkvæmdastjóra mótsins, stendur lokaundirbúningur yfir og búist er við góðri þátttöku. Frá norðlenskum ungmenna- félögum liggja fyrir 1002 skráningar, en félögin hafa frest til 4. júlí að tilkynna endanlegan keppendafjölda. Bensíndæla tengd í Grímsey, bfleigendum til ánægju: „Þetta er orðið memiingarlegt“ „Þessi dæla hefur staðið hér í fjögur eða flmm ár án þess að vera tengd. Bensínið hefur verið afgreitt í brúsum og hellt á bílana eins og hjá molbúum. Það stóð bara á því að grafa niður tankinn og tengja dæl- una og þetta gerðum við. Þetta er því orðið menningarlegt núna,“ sagði Sigurður Bjarna- son í Grímsey en hann tengdi á dögunum bensíndælu fyrir Olíufélagið hf. Esso í eynni. Nú eru milli 10 og 20 bílar í Grímsey og því var orðið tíma- bært að koma upp afgreiðslubún- aði á eldsneyti. Til stendur einnig að tengja olíudælu við hlið bens- índælunnar og á vegum Olíufé- lagsins er í athugun að koma á sjálfsafgreiðslu á olíu fyrir bátana og verður sú afgreiðsla á bryggj- unni. í tengslum við frágang bens- índælunnar voru fengin 15 tonn af hörpumöl frá Þverá í Önguls- staðahreppi í Eyjafirði og hún send með Ríkisskipum til Gríms- eyjar. Malarsendingin fór nokk- urn krók því skipið fór frá Akur- eyri til Húsavíkur og komst ekki til Grímseyjar vegna veðurs á sunnudag eins og til stóð. Á síðasta landsmóti, á Húsavík ’87, voru 363 keppendur frá ungmennasamböndum af Norðurlandi, og búist við að sú tala nálgist 400 í ár. Svipaðar skráningartölur eru hjá ungmennasamböndunum frá síðasta landsmóti, mesta aukn- ingin verður líklega hjá UÍÓ, Ungmenna- og íþróttabandalagi Ólafsfjarðar. Þá tekur nýstofnað Ungmennafélag Akureyrar (UFA) í fyrsta þátt á landsmóti, er með 47 skráningartilkynning- ar. Ef litið er yfir skráningarnar, þá er USVH með 100, USAH með 163, UMSS með 127, UÍÓ 58, UMSE 205, UFA 47, HSÞ 270 og UNÞ 32 skráningar. Af þessum tölum má sjá að líklega verða Þingeyingar fjölmennastir Norðlendinga í Mosfellsbæ. Formlega hefst landsmótið 12. júlí en kvöldið áður hefst undankeppni í körfubolta og fót- bolta kvenna. Að sögn Ómars er reiknað með 8-15 þúsund gestum á mótið, fer allt eftir veðri, og keppendur og starfsmenn verða um 5000 talsins. -bjb reglunnar þegar Múlagöngin komast í gagnið. -bjb Veiðidagur fjöl- skyldunnar á Nl.-vestra: Heim með öngul í rassi Leiðindaveður var að venju á veiðidegi fjölskyldunnar á Norðurlandi vestra. Virðist það vera orðin föst hefð hjá veðurguðunum að steypa yfir menn regni og roki á þessum árlega degi og hindra fólk í því að veiða. StangveiðiféLögin á Siglufirði, Sauðárkróki og í Austur-Húna- vatnssýslu buðu fólki að koma í veiði og grillveislu á sunnudag- inn var, í tilefni veiðidags fjöl- skyldunnar. Svo fór þó að ekkert veiddist og urðu menn að halda heim með öngulinn í rassinum að þessu sinni. Á Sauðárkróki mættu milli 40 og 50 manns til veiða í Vesturósi Héraðsvatna að morgni sunnu- dagsins. Ætlunin var að grilla pylsur og hafa það huggulegt, en vegna veðurs varð varla nokkurs fisks vart né unnt að grilla. Sömu sögu er að segja frá Stangveiði- félagi Austur-Húnvetninga, hjá þeim mættu um 80 manns og lítil veiði. Þeir voru samt svo forsjálir að hafa tvo yfirbyggða vörubíla undir veitingar svo að hægt var að grilla og snæða innandyra þó að úti væri votviðri. Hjá Stangveiðifélagi Siglu- fjarðar átti að veiða í Miklavatni í Fljótum, en vegna veðurs varö ekkert af því og héldu fjölskyldur sig frekar heima við heldur en fara að kasta í vitlausu veðri og vonlausri veiði. SBG Baldur EA-108: Seldur til Namibíu? Dalvíkurtogarinn Baldur EA-108, sem legið hefur bundinn við bryggju síðan snemma í vor eftir að KEA keypti lilut Dalvíkurbæjar í Útgerðarfélagi Dalvíkinga hf., er nú á söluskrá hjá enskum skipasölum. Skipasmíðastöðin í Flekke- fjord í Noregi sem m.a. hefur smíðað nokkra íslenska tog- ara, hefur verið að kanna mögulcika á sölu á Baldri gegnum enska skipamiölara, og helst hafa verið taldir möguleikar á að selja skipið til Chile, Kanada eða Namibíu. Namibískir útgerðarmenn hafa á undanfömum misserum keypt nokkur evrópsk skip til veiða á botnfisktegundum (,,skítfiskveiðar“), og borgað mjög gott verð fyrir þau. Togarinn Björgvin sem gekk upp í kaupsamning á nýju skipi með sama nafni hjá Flekkefjord skipasmiðastöð- inni haustið 1988, var seldur til Chile, og heiti nú Pelican. GG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.