Dagur - 26.06.1990, Side 9

Dagur - 26.06.1990, Side 9
Þriðjudagur 26. júní 1990 - DAGUR - 9 Sund: Alþjóðleg ráðstefna sundþjáJfara í Grikklandi - Wolfgang Sahr þjálfari Óðins, meðal þátttakenda í byrjun júnímánaðar hélt alþjóðasundsambandið, FINA, sína fyrstu heimsþjálfararáð- stefnu og fór hún fram í ÓI- ympíu á Grikklandi. Hverju aðildarsambandi FINA var heimilt að senda tvo þjálfara og voru íslensku þátttakend- urnir þeir Wolfgang Frosti Sahr, aðalþjálfari Oðins á Akureyri, og Halldór Jökull Ragnarsson, aðalþjálfari 1. deildarliðs UMFA í Mosfells- bæ. Þátttakendur voru ásamt fyrir- lesurum 95 frá 42 löndum og voru margir fremstu þjálfarar heims á meðal þeirra. Landsliðsþjálfarar ýmissa „stórra“ þjóða mættu sem og fulltrúar smærri landa og var að sögn Wolfgangs Frosta fróð- legt að upplifa þá alþjóðlegu stemmningu sem skapast þegar Wolfgang Sahr. íbúar allra heimsálfa hittast. Skapaðist mjög góður grundvöll- ur til að bera saman aðferðir, vandamál og lausnir á þeim og var reynt að finna nýjar leiðir til að efla sundíþróttina enn meira. Ráðstefnan stóð í eina viku og fór fram kennsla í ýmsum þáttum tengdum sundinu og einnig kynn- ing á niðurstöðum nýrra rann- sókna á læknis- og hreyfifræðileg- um sviðum sem og í sálarfræði. Eftir hvern kennslu- eða kynn- ingaráfanga gafst tækifæri til umræðu sem þátttakendur nýttu sér vel. Þarna kom m.a. fram að ald- ursflokkakerfið í sundi sem nú er í gildi í mörgum löndum, m.a. á íslandi, hefur ekki skilað þeim árangri sem menn væntu og sömdu þjálfarar á ráðstefnunni skýrslu til FINA þar sem fram komu breytingartillögur. Greini- legt er að í dag fer fram gríðar- legt rannsóknarstarf á • sviði sundsins og niðurstöður þess koma ekki eingöngu keppnis- íþróttinni til góða heldur einnig sundkennslunni í skólum og á opinberum námskeiðum. Á sama tíma skapa kennslan og nám- skeiðin undirstöðuna undir þjálf- un afreksmanna sem aftur á móti er forsenda fyrir bættum árangri. Af þeim sökum hefur tekist í mörgum löndum gott og náið samstarf milli menntamálayfir- valda og skóla annars vegar og sundsambanda og félaga hins vegar. Wolfgang Frosti telur að slíkt samstarf hljóti að verða eitt af forgangsverkefnum í sundi á ís- landi ef tryggja á áframhaldandi þróun og bætt gæði í þjálfun og kennslu. Fyrirhugað er að halda seinna á árinu námskeið þar sem íslensku þátttakendurnir munu kynna ráðstefnuefnið fyrir íslenskum þjálfurum og sund- kennurum. Borðtennis: Grenvísku landsliðs- mennimir til Bretlands - um mánaðamótin Níu unglingar frá Grenivík hafa verið valdir í unglinga- landslið íslands í borðtennis ásamt 16 öðrum unglingum af suðvesturhorni landsins, og halda þeir til Bretlandseyja um mánaðamótin til keppni. Björn Ingólfsson skólastjóri og „primusmótor" þeirra Grenvík- inga í borðtennisíþróttinni segir krakkana hafa undirbúið þessa ferð fjárhagslega meira og minna í allan vetur m.a. með tombólu og spurningakeppni milli vinnu- staða sem fram hefur farið í skólahúsnæðinu. Einnig hafa ýmsir aðilar í hreppnum gert þetta ferðalag mögulegt með fjárstyrkjum. Borðtennissambandið tekur ekki þátt í ferðakostnaði vegna þessarar ferðar, en ferðakostnað- ur hvers og eins er um 50 þúsund krónur. Kepnni þessi er eins konar skólamót, en auk íslendinga taka írar, Skotar, Walesbúar og ungl- ingar frá eyjunum Gíbraltar, Mön og Guernsey þátt. GG Sætaferðir á leik Þórs og Skagamanna - ef næg þátttaka fæst Knattspyrnudeild Þórs hyggst standa fyrir sætaferðum á leik IA og Þórs í Hörpudeildinni ef næg þátttaka fæst. Leikurinn fer fram á Akranesi á miðviku- dagskvöldið kl. 20 og verður lagt af stað um kl. 15 sama dag ef af sætaferðunum verður. Upplýsingar um ferðina veitir Þorsteinn Arnason á skrifstofu Þórs í síma 22381. Þurfa menn að hafa samband við hann fyrir kl. 16 í dag. LEIFTUR Omar Torfason, þjálfari 31 árs miðvallarleikinaður Friðrik Einarsson 22 ára varnarmaður Geir Hörður Ágústsson Gunnlaugur Sigursveinsson 28 ára miðvallarleikmaður 22 ára miðvallarleikmaður Hannes Páll Víglundsson 19 ára varnarmaður Helgi Jóhannsson 26 ára sóknarmaður Jón S. Helgason 21 árs varnarmaður Hörður Benónýsson 29 ára sóknarmaður Kristján Haraldsson 20 ára miðvallarleikmaður Matthías Sigvaldason 20 ára miðvallarleikmaður Róbert Gunnarsson 30 ára varnarmaður Sigurbjörn Jakobsson Steingrímur Örn Eiðsson 27 ára miðvallarleikmaður 19 ára miðvallarleikmaður Muria Mgntundsson 19 ára miðvallarleikmaður Þorlákur Árnason Þorvaldur Jónsson Örn Torfason 21 árs sóknarmaður 26 ára markvörður 20 ára miðvallarleikmaður

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.