Dagur - 30.06.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 30. júní 1990
Ytri-Vík á Árskógsströnd:
Sjóstangveiði á Eyjafirði
Sigurjón Þorvaldsson, frá versluninni
Eyfjörð hf.
Ferðafólki, og öðrum þeim
sem leið eiga um Eyjafjörð,
gefst nú kostur á að fara í sjó-
stangveiði úti á Eyjafirði.
Ferðaþjónustubærinn Ytri-Vík
á Arskógsströnd stendur fyrir
skipulögðum ferðum tvisvar í
viku með 29 tonna fiskibát.
Lagt er upp frá Hauganesi og
verður fyrsta ferðin farin í
kvöld, laugardagskvöld. Auk
þess sem siglt er á fengsæl
fiskimið er farið kringum Hrís-
ey og út undir Olafsfjarðar-
múla.
Fjölmiðlamenn tóku hins veg-
ar forskot á sæluna sl. fimmtu-
dagsmorgun, en þá var þeim
boðið í sjóstangveiði með bátn-
um Níels Jónssyni og ferðaþjón-
ustubændunum á Ytri-Vík, þeim
Hólmari Ástvaldssyni og Erlu
Sveinsdóttur. Veður var hið
besta og ákjósanlegt til veiða.
Þótt ferðin hafi ekki tekið
nema tvo tíma sýndu fjölmiðla-
menn að þeir geta snapað fleira
en fréttir, því alls fengust tæp 100
kíló af fiski, aðallega vænum
þorski. Nánar verður sagt frá
sjóstangveiðinni og fjölmiðla-
ferðinni í blaðinu eftir helgi.
-bjb
fréttir
Sigurjón og Hólmar Ástvaldsson, ferðaþjónustubóndi á Ytri-Vík, gera að aflanum eftir fyrstu ferðina. Myndir: kl
Sauðárkrókur:
Litlir kassar á lækjarbakka
Síðustu vikurnar hefur verið að rísa nýtt íbúðahverfi á Sauðárkróki skamnit
frá Sauðánni sjálfri. Þar eru að verki duglegir krakkar sem veigra sér ekkert
við að byggja hús án þess að taka lán. Þau sveifla bara verkfærum sínum og
hafa gaman af. Mynd: sbg
Vélaverkstæði Jóns og Erlings:
Löndunarkranar á færibandi
Dagskrá Landsmóts hestamanna
Mikið fjör á hestamannamóti á Vindheimamelum árið 1985.
Vélaverkstæði Jóns og Erlings
á Siglufirði hefur framleitt 23
löndunarkrana til notkunar
fyrir smærri báta og trillur, og
hafa kranarnir verið settir nið-
ur víðs vegar við hafnir
landsins.
Löndunarkranarnir eru hann-
aðir af vélaverkstæðinu, og er
lyftigeta þeirra flestra um 800 kg
og eru þeir búnir vökvasnúningi
sem gerir alla notkun þeirra mjög
auðvelda. Verð er um 830.000
krónur, en uppkomnir kosta þeir
um eina milljón króna. Vita- og
hafnamálaskrifstofan hefur veitt
styrki vegna kaupa á þessari gerð
af löndunarkrönum.
Nú eru í smíðum 2 kranar hjá
Vélaverkstæði Jóns og Erlings og
er annar þeirra þegar seldur, en
einnig eru framleidd stöðluð
grandaspil, bómuspil og bómu-
svingar. GG
Það hefur víst ekki farið fram
hjá ncinum að fyrir dyrum
stendur Landsmót hestamanna
á Vindheimamelum í Skaga-
firði. Dagskrá mótsins, sem
hefst á þriðjudag, liggur nú
fyrir.
Mótið hefst kl. 13 á þriðjudag
með dómum kynbótahrossa
(afkv. hr.) og þeim verður fram
haldið á miðvikudag (stóðh.
hryssur) og fimmtudag (hryssur).
Klukkan 9 á fimmtudag hefjast
einnig dómar B-flokks gæðinga
og dómar unglinga (eldri). For-
keppni úrvalstöltara verður á
fimmtudagskvöld kl. 20-24.
Á föstudagsmorgun kl. níu
hefst dagskráin með dómum
unglinga (yngri) og sýningu og
kynningu kynbótahrossa. Þessu
verður fram haldið eftir hádegi,
frá kl. 13 til 15. Klukkan 16 til 18
sama dag hefjast undanrásir
kappreiða. Alþjóðleg keppni
fimmgangur, verður kl. 18.30-
19.30 á föstudagskvöld og kl.
19.45 til 20.45 verður alþjóðleg
keppni, fjórgangur.
Dagskráin hefst á laugardags-
morgun kl. 9 með mótssetningu
og kl. 9.15 verða unglingar yngri
með kynningu og kl. 10 unglingar
eldri. Klukkan 10.45 hefst kynn-
ing B-flokks gæðinga og 11.30
kynning á A-flokki gæðinga. Að
því búnu, eða kl. 12.30 verður
kynbótadómum lýst. Síðdegis,
eða kl. 17, verða úrslit kappreiða
og úrslit alþjóðlegs móts kl.
19.30. Klukkustund síðar hefjast
úrslit í úrvalstölti og dagskrá
laugardagsins lýkur með kvöld-
vöku kl. 21.
Á sunnudag hefst dagskráin
með hópreið, helgistund og
ávörpum kl. 10.30. Klukkan
12.30 verða úrslit í yngri flokki
unglinga og kl. 13.15 verður
verðlaunaafhending í flokki kyn-
bótahrossa. Kl. 15.15 verður sýn-
ing ræktunarbúa og klukicu-
stundu síðar hefjast úrslit í B-
flokki. Klukkan 17.00 verða úr-
slit í eldri flokki unglinga og því
næst úrslit í A-flokki. Mótsslit
eru áætluð kl. 18.30. óþh
Forráðamenn sveitarfélaga 1990-1994
Búið er að kjósa oddvita og
ráða bæjarstjóra og sveitar-
stjóra í öllum sveitarfélögum á
Norðurlandi nema Skútustaða-
hreppi eftir sveitarstjórnar-
kosningarnar 26. maí og 9. júní
sl. Lesendum til glöggvunar
birtum við hér skrá yfír þá sem
halda um stýri sveitarfélag-
anna næsta kjörtímabil. Feit-
letruð eru nöfn þeirra sem eru
nýir í þessum embættum.
Ófeigur Gestsson, bæjarstjóri
Blönduósbæjar.
Snorri Björn Sigurðsson, bæjar-
stjóri Sauðárkróksbæjar.
Björn Valdimarsson, bæjarstjóri
Siglufjarðarbæjar.
Bjarni Kr. Grímsson, bæjarstjóri
Ólafsfjarðarbæjar.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri Dalvíkurbæjar.
Halldór Jónsson, bæjarstjóri
Akureyrarbæjar.
Einar Njálsson, bæjarstjóri
Húsavíkurbæjar.
Þórarinn Þorvaldsson, Þórodds-
stöðum, oddviti Staðarhrepps.
Eggert Pálsson, Bjargshóli,
oddviti Fr. Torfustaðahrepps.
Jón Jónsson, Skarfhóli, oddviti
Yt. Torfustaðahrepps.
Þórður Skúlason, sveitarstjóri
Hvammstangahrepps.
Heimir Ágústsson, Sauðadalsá,
oddviti Kirkjuhvammshrepps.
Agnar Levy, Hrísakoti, oddviti
Þverárhrepps.
Ólafur B. Óskarsson, Víðidals-
tungu, oddviti Þorkelshóls-
hrepps.
Jón B. Bjarnason, Ási, oddviti
Áshrepps.
Björn Magnússon, Hólabaki,
oddviti Sveinsstaðahrepps.
Erlendur G. Eysteinsson, Stóru-
Giljá, oddviti Torfalækjar-
hrepps.
Sigurjón Lárusson, Tindum,
oddviti Svínavatnshrepps.
Erla Hafsteinsdóttir, Gili, odd-
viti Bólstaðahlíðarhrepps.
Valgarður Hilmarsson, Fremsta-
gili, oddviti Engihlíðarhrepps.
Jónas B. Hafsteinsson, Njáls-
stöðum, oddviti Vindhælis-
hrepps.
Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri
Höfðahrepps.
Sveinn Sveinsson, Tjörn, oddviti
Skagahrepps.
Bjarni Egilsson, Hvalnesi, odd-
viti Skefilsstaðahrepps.
Úlfar Sveinsson, Ingveldarstöð-
um, oddviti Skarðshrepps.
Þorsteinn Ásgrímsson, Varma-
landi, oddviti Staðarhrepps.
Sigurður Haraldsson, Grófargili,
oddviti Seyluhrepps.
Elín Sigurðardóttir, Sölvanesi,
oddviti Lýtingsstaðahrepps.
Broddi Björnsson, Framnesi,
oddviti Akrahrepps.
Árni Gíslason, Eyhildarholti,
oddviti Rípurhrepps.
Birgir Haraldsson, Bakka, odd-
viti Viðvíkurhrepps.
Trausti Pálsson, Hólum, oddviti
Hólahrepps.
Jón Guðmundsson, sveitarstjóri
Hofshrepps.
Örn Þórarinsson, Ökrum,
oddviti Fljótahrepps.
Þorlákur Sigurðsson, Garði,
oddviti Grímseyjarhrepps.
Atli Friðbjörnsson, Hóli, oddviti
Svarfaðardalshrepps.
Guðjón Björnsson, sveitarstjóri
Hríseyjarhrepps.
Sveinn Jónsson, Ytra-Kálfs-
skinni, oddviti Árskógshrejips.
Ingimar Brynjólfsson, Ásláks-
stöðum, oddviti Arnarneshrepps.
Hreiðar Aðalsteinsson, Öxnhóli,
oddviti Skriðuhrepps.
Ari H. Jósavinsson, Auðnum,
oddviti Öxnadalshrepps.
Eiríkur Sigfússon, Sílastöðum,
oddviti Glæsibæjarhrepps.
Ólafur Vagnsson, Hlébergi, odd-
viti Hrafnagilshrepps.
Sigurgeir Hreinsson, Hríshóli,
oddviti Saurbæjarhrepps.
Birgir Þórðarson, Öngulsstöðum
II, oddviti Öngulsstaðahrepps.
Jónas Reynir Helgason, sveitar-
stjóri Svalbarðsstrandarhrepps.
Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri
Grýtubakkahrepps.
Jón Óskarsson, Illugastöðum,
oddviti Hálshrepps.
Baldvin Bjarnason, Rangá,
oddviti Ljósavatnshrepps.
Skarphéðinn Sigurðsson, Úlfsbæ,
oddviti Bárðdælahrepps.
Benóný Arnórsson, Hömrum,
oddviti Reykdælahrepps.
Dagur Jóhannesson, Haga II,
oddviti Aðaldælahrepps.
Þorgrímur J. Sigurðsson, Skóg-
um II, oddviti Reykjahrepps.
Kristján Kárason, Ketilsstöðum,
oddviti Tjörneshrepps.
Björn Guðmundsson, Lóni, odd-
viti Kelduneshrepps.
Björn Benediktsson, Sandfells-
haga, oddviti Öxarfjarðarhrepps.
Bragi Benediktsson, Grímstungu
II, oddviti Fjallahrepps,
Ingunn St. Svavarsdóttir, Duggu-
gerði 12, oddviti Presthóla-
hrepps.
Sigurbjörg Jónsdóttir, sveitar-
stjóri Raufarhafnarhrepps.
Jóhannes Sigfússon, Gunnars-
stöðum, oddviti Svalbarðs-
hrepps.
Daníel Árnason, sveitarstjóri
Þórshafnarhrepps.
Kristín Kristjánsdóttir, Syðri-
Brekkum, oddviti Sauðanes-
hrepps.