Dagur - 30.06.1990, Síða 7
Laugardagur 30. júní 1990 - DAGUR - 7
bílar
Skoda Favorit 136 LS
AKUREYRINGAR & NA-
GRANNAR ATH.!
BÓKHALDSNÁM
Einn af fyrstu bílunum sem ég
man eftir að hafa ferðast í sem
ungur drengur var Skoda 1200,
öðru nafni „blöðruskodi“. Þetta
hefur verið á árunum 1955-1958
og því mögulegt að minningarnar
séu örlítið litaðar rósrauðum
bjarma æskuáranna. En þó svo
væri mun engu að síður rétt vera
að „blöðruskodinn“ reyndist
ágæta vel við íslenskar aðstæður.
Síðar fylgdu í kjölfarið Skoda
Oktavia og síðan Skoda 1000 MB
sem síðar varð Skoda 105, 120 og
130.
Þeir síðastnefndu eru Skodarn-
ir sem við þekkjum best síðustu
tvo áratugina. Sú gerð var með
vél í skottinu og afturdrif og var
barn síns tíma þegar spara átti í
framleiðslu smábíla víða um lönd
með því að byggja saman vél,
gírkassa og drif aftur í bílnum (a
la Volkswagen). Skodinn með
„rassmótorinn“ hafði hins vegar
varasama aksturseiginleika vegna
þyngdarinnar aftur í sem auk
þcss lá hátt í bílnum, svo og
vegna hjóla- og fjaðrabúnaðar á
afturhjólunum. Eiginleikar bíls-
ins bötnuðu þó í tímans rás en
aldrei varð þó þessi bíll sérlega
rásfastur og stöðugur á vegi,
enda erfitt að flýja frá 20 ára
gamalli hönnun hans.
fíönnuðir hinna fornfrægu
Skodaverksmiðja tóku því til við
hönnun nýs Skoda fyrir nokkrum
árum og hófst framleiðsla þessa
1 nýja bíls haustið 1988 undir nafn-
; inu'Skodá Favorit 136. Útflutn-
ingurhófst á síðasta ári og fyrstu
bflarnir komu til íslands á miðju
síðasta ári. Ég átti þess kost að
grípa f nýja gerð af þessum
tékkneska vagni fyrir skömmu,
en þessi nýja LS gerð er nokkuð
i betur búin en L-gerðin sem hing-
að til hefur verið á markaðinum.
Fyrst er þess að geta að hinn
ítalski Bertone kom nokkuð við
sögu er útlit Skoda Favorit var
ákveðið og það eitt er trygging
fyrir ágætis árangri. Innréttingin
í er svipuð og gengur og gerist í
öðrum evrópskum og japönskum
| bílum í þessum stærðarflokki.
í Stjórntæki og mælar eru ágætlega
' staðsett og þægilegt er að ná til
allra þýðingarmestu hluta.
Útsýni er ágætt úr bílnum og
rýmið nokkuð gott fyrir farþega,
en farangursrýmið er lítið en gott
að komast að því. Það má þó
stækka með því að leggja niður
aftursætið í tvennu lagi (l/3:2/3).
Sætin eru á hinn bóginn heldur
lin og veita Íítinn stuðning við
lærin og til hliðanna. Frágangur á
innréttingu og áklæði og plastefni
í henni eru alllangt frá því sem
gengur og gerist í bílum frá V.-
Évrópu og Japan.
Vélin í Skoda Favorit er 1,3
Stjórntæki og mælaborð eru ágætlega staðsett.
Tölvuskóli Reykjavíkur ætlar nú í sumar að halda
bókhaldsnámskeið á Akureyri. Þetta er sama námskeið
og kennt var í Reykjavík í vetur og naut þar mikilla
vmsælda.
Markmið námsins er að þátttakendur verði fullfærir
um að starfa sjálfstætt við bókhaldið og annast það
allt árið.
Boðið er uppá sérstakt grimnnámskeið fyrir þá sem
ekki hafa kynnst bókhaldi áður.
Á námskeiðinu verður eftirfarandi kennt:
* ítarleg bókhaldsverkefni
* Launabókhald
* Virðisaukaskattur (reglur og uppgjör)
* Víxlar og skuldabréf (vaxta og verðbótareikningur)
* Bókhaldslög og reglugerðir
* Afstemmingar
* Raunhæf verkefni og flokkun fylgiskjala
* Tölvubókhald
Námskeiðið er 72 klst. og kostar kr. 48.800.- stgr.
með öllum námsgögnum.
Allar nánari upplýsingar og skráning er í síma 91-687590
hjá Jóhanni Kristjánssyni.
Tölvuskóli Reykjavíkur hf.
Borgartúni 28 105 Reykjavík s: 91-687590
Hinn ítalski Bertone kom við sögu þegar Favorit var hannaður.
Umsjón:
Úlfar
Hauksson
veifur. Skodinn er svo sem ekki
sérstakur „götutryllir" en alveg
þokkalega lipur í akstri. Gír-
skiptingin er þó það sem kemur
skemmtilega á óvart í Skodan-
um, en luin er nær óaðfinnanleg,
sem er meira en búast má við í bíl
í þessum verðflokki. Skodinn
rennur léttilega milli gíranna cn
þó með nákvæmni. Sama má eig-
inlega segja um stýrið, það er
nákvæmt og nægilega létt þótt ekki
sé það vökvastýri. Bremsurnar
eru líka góðar.
Að öllu samanlögðu er því
Skoda Favorit 136 LS bíll sem má
að mörgu leyti jafna við bíla sem
eru miklu dýrari. Ef frá er talin
hávær og dálítið gamaldags vél
og frágangur sem ekki er alveg
upp á það besta, þarf Skodinn
ekkert að skammast sín meðal
bíla í þessum stærðarflokki og
verðið er 250-300 þús. kr. lægra.
lítrar og er í aðalatriðum áþekk
þeirri sem var í Skoda 130. Hún
er þó öll úr áli, en hefur undir-
liggjandi knastás sem skilar sér í
hávaðasömum og nokkuð gróf-
um gangi. Vélin er nægilega
kraftmikil svo Skodinn virðist
ekkert slappur, en hávaðinn gef-
ur e.t.v. til kynna meiri árangur
af bensíngjöfinni en raun ber
vitni.
Allt sem hægt er að segja um
Skoda Favorit til viðbótar þessu
er af hinu góða og satt að segja
kom þessi bíll mér talsvert á
óvart. Má þar nefna ágæta
fjöðrun, sem margir dýrari bílar
frá ónefndu landi í Asíu gætu
verið stoltir af, og ekki síður það
hve hljóðlátur bíllinn virðist á
malarvegi. Þar er vélarhljóðið
ekki eins áberandi og veghljóð er
mjög lítið samanborið við marga
aðra bíia af þessari stærð. Einnig
kom á óvart að ekkert skrölt eða
tíst er í innréttingunni enda þótt
frágangurinn gæti gefið tilefni til
þess.
Sama er að segja um aksturs-
eiginleikana, sem eru ágætir.
Favorit undirstýrir sterklega en
er ágætlega viðráðanlegur og ger-
ir ökumanni ekki óvæntar skrá-
Gerð:
Skoda Favorit 136 LS, 5-dyra
fólksbíll, vél að framan, fram-
hjóladrif.
Vél og undirvagn:
4-strokka, fjórgengis bensín-
vél, vatnskæld, slagrými 1289
cm\ borvídd 75,5 mm, slag-
lengd 72,0 mm, þjöppun
9,7:1, 62 hö við 5000 sn/mín.,
100 Nm við 3000 sn/mín., tvö-
faldur blöndungur.
Drif á framhjólum, 5 gfra
gírkassi.
Sjálfstæð fjöðrun að framan
með þríhyrndum örmum að
neðan og McPherson gorm-
legg-
Að aftan tengdir langsarmar
með gormlegg.
Tannstangarstýri, aflhemlar,
diskar að framan, skálar að
aftan, handbremsa á afturhjól-
um.
Hjólbarðar 165/70 R 13 T, elds-
neytisgeymir 47 lítra.
Mál og þyngd:
Lengd 381,5 cm; breidd 162,0
cm; hæð 141,5 cm; hjólahaf
245,0 cm; sporvídd 140,0/
136,5 cm; eigin þyngd ca. 870
kg; hámarksþyngd 1.290 kg.
Framleiðandi: Skoda
(AZNP), Mladá Boleslav.
Innflytjandi: Jöfur hf., Kópa-
vogi.
Umboð: Bifreiðaverkstæðið
Skálafell hf., Akureyri.
Verð: Ca. kr. 530.000.