Dagur - 30.06.1990, Side 8
8 - DAGUR - Laugardagur 30. júní 1990
Kvikmyndasíðan
Jón Hjaltason
KvikmyndaMúbbur stofnaðiir á Akureyri
Hinn 12. maí síöastliðinn boðuðu
nokkrir áhugamenn um kvik-
myndir til stofnfundar kvik-
myndaklúbbs á Akureyri. Geng-
ið var frá formlegri stofnun
félagsins, stjórn kosin og mark-
miðin sett. Samþykkt var ein-
róma að nafn félagsins yrði Kvik-
myndaklúbbur Akureyrar.
Félagsmenn hafa nú hafist handa
um að afla kvikmynda til sýninga
næsta haust. Áformað er að
ganga til samninga við forráða-
menn Borgarbíós um sýningarað-
stöðu og hafa klúbbmeðlimir
einna helst augastað á mánudög-
um með það í huga að færa
Akureyringum „mánudagskvik-
myndamenningu1' bíóhúsanna í
Reykjavík.
Þorgrímur P. Þorgrímsson,
fjölmiðlafulltrúi félagsins, segir
þó fleira vaka fyrir félagsmönn-
um en það eitt að sýna kvik-
-ALLT LIFID-
Aldrei aftur
í megrun
Á vegum GRONN eru haldin
helgarnámskeið fyrir ofætur
(bæði karla og konur) sem
vilja hætta ofáti. Ofát getur
falist í því að borða of mikið
of lítið eða bara of óreglu-
lega. Þessi námskeið eru
byggð á reynslu tugþúsunda
karla og kvenna um allan
heim sem hafa nýtt sér
þessa leið til varanlegs heil-
brigðis og hamingju.
Kynningar-
fyrirlestur
á Hótel KEA, þriðjudags-
kvöldið 3. júlí kl. 21.00.
Aðgangur ókeypis og öllum
opinn.
Námskeið
á Hótel KEA, Akureyri, laug-
ardaginn 7. og sunnud. 8.
júlí kl. 9.00-17.00.
Þátttökugjald er kr. 6.000,-
Skráning á námskeiðið fer
fram á fyrirlestrinum og
nauðsynlegt er að væntan-
legir þátttakendur nám-
skeiðsins mæti á fyrirlestur-
inn til að fá fulla nýtingu út úr
námskeiðinu.
Leiðbeinandi:
Axel Guðmundsson.
Upplýsingar í s. 985-22277.
Kannski fáum vift, fyrir atbeina hins nýstofnaða kvikmyndaklúbbs, aft sjá einhverja af myndum Richards „Cheech“
Marins - jafnvel þá nýjustu, Born in East L.A., þar sem villst er á honum og ólöglegum mexíkóskum innflytjanda.
Fyrir vikift er hann fluttur nauðugur til Mexíkó og á síftan í hinu mesta basli við að komast heim til sín aftur.
Andlit í fjöldanum
- leikur á móti Sean Connery
myndir er að öðrum kosti myndu
trauðla koma norður yfir heið-
ar: „Markmið félagsins er að afla
og miðla upplýsingum um flesta
þætti kvikmyndalistarinnar og
auka þannig áhuga og þekkingu
almennings á listforminu.“
Fleira er á döfinni hjá félaginu
og hefur stjórn þess boðað til
fundar laugardaginn 30. júní
næstkomandi klukkan 14.00 á
Hótel Norðurlandi til að taka
nánari ákvarðanir þar um. Eru
allir áhugamenn um kvikmyndir
hvattir til að mæta og að sögn
Þorgríms skiptir ekki máli hvort
menn eru þegar orðnir félagar í
klúbbnum, hyggja á þátttöku eða
eru á báðum áttum - allir eru
velkomnir.
Sumir leikarar eru aðeins andlit í
fjöldanum. Bíófarar kannast við
svipinn en ekki nafnið. John
Mahoney er eitt þessara nafn-
lausu en þó kunnuglegu andlita. í
Moonstruck var hann ástfangni
kennarinn, í Tin Men einn álselj-
andinn, í Betrayedofstækisfullur
smábóndi og í Eight Men Out
framkvæmdastjóri Chicago
White Sox.
Mahoney er þó í ýmsu frá-
brugðinn öðrum nafnlausum
Hollywoodleikurum. Fyrir það
fyrsta er hann alls ekki banda-
rískur heldur breskur, frá
Manchester á Englandi. Hann
var orðinn fullra 19 vetra þegar
hann steig fæti á bandaríska
mold. Þá gæti sumum virst að
Mahoney væri einn fjöldamargra
misskildra og vanmetinna stór-
leikara er neyðast, í krafti snilli-
gáfu sinnar, til að gefa Holly-
wood langt nef. En hann hefur
alls ekki eytt ævinni á litlum svið-
um sveitabæja eða kröftunum í
vonlausar sápuóperur. Sann-
leikurinn er sá að Mahoney byrj-
aði ekki leikferil sinn fyrr en
hann var kominn töluvert á
fertugsaldurinn. Þangað til hafði
hann reynt fyrir sér í einu og
öðru, meðal annars verið ritstjóri
læknablaðs nokkurs í Chicago.
Það var fyrst 1985 að Mahoney
vakti athygli sem sviðsleikari - og
árið 1990 eða ’91 gæti orðið
happaár hans í kvikmyndaheim-
inum. Áður en þetta ár er á enda
mun hann birtast á hvíta tjaldinu
sem faðir Jeff Daniels í Love
John Mahoney mun á yfirstandandi ári leika í að minnsta kosti tveimur stór-
myndum. Kannski mun þá nafnlausi leikarinn breytast í nafnkunnan leikara.
Hurts og með Sean Connery og
Michelle Pfeiffer í kvikmynd
gerðri eftir sögu John Le Carres
The Russia House.
Væntanlegar kvikmyndir
Fear No Evil
Loksins leggur Hollywood til
atlögu við 6. áratuginn og
McCarthy-ismann. Þetta er
frumraun framleiðandans Irw-
ins Winklers (Raging Bull,
Rocký) sem leikstjórnanda.
Robert De Niro leikur leik-
stjóra sem á í miklu sálarstríði
vegna kommúnistaveiða Mc-
Carthys þingmanns.
Warner Bros 1991.
L.A. Storv
Steve Martin gerist rómantískur
í fylgd með kærustunni (þeirri
raunverulegu) Victoriu
Tennant. Handrit er eftir Mart-
in sjálfan en leikstjóri er Mick
Jackson.
Tri-Star/Columbia, veturinn
1990.
Mortal Thoughts
Góðkunningjarnir Demi Moore
og Glenne Headly reyna í
örvæntingu að breiða yfir morð.
Bruce Willis er í aðalhlutverki
sem landeyða og eiginmaður
Headlys.
Columbia Pictures, haustið
1990.
Shattered
Þá er það enn ein „minnislausa
myndin“. Tom Berenger lendir
í vondum málum, missir minnið
GÚMMÍHELLUR
HLOÐUM
GEYMA
GEYMATEST
A GANGSTETTINA KYNNIÐ YKKUR VERÐIÐ
GÚMMÍVINNSLAN HF., RÉTTARHVAMMI 1, 600 AKUREYRI, SÍMI 96-26776
en áttar sig þó fljótlega á því að
eitthvað í fortíðinni kallar á
morð í nútíðinni. Wolfgang
Petersen leikstýrir en meðal
mótleikara Berengers eru Bob
Hoskins, Greta Scacchi og
Corbin Bernsen.
Warner Bros, veturinn 1991.
Three Men And
A Little Baby
Þá er það jólamyndin frá
Touchstone. Allir muna vand-
ræði þeirra þriggja, Toms
Sellecks, Teds Dansons og
Steves Guttenbergs, þegar
kornabarnið settist upp hjá
þeim. Þetta er framhald þeirrar
myndar og segir frá ekki minni
vandræðum þeirra félaga þegar
barnið, fimm árum síðar, yfir-
gefur þá í faðmi iðrandi móður
sem Nancy Trevis leikur. Leik-
stjóri er Emile Ardolino.
Too Much Sun
Erid Idle og Andrea Martin
gera sitt ýtrasta til að uppfylla
óskir deyjandi föður síns um
barnabarn. Sá gamli er marg-
milli og því til nokkurs að
vinna. Vandinn er bara sá að
bæði hneigjast að eigin kyni
þegar kemur að fullnægingu
kynhvatarinnar. Þetta er víst
það sem kaninn kallar grátt
gaman.
New Line 1990.