Dagur - 30.06.1990, Síða 18

Dagur - 30.06.1990, Síða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 30. júní 1990 Stiv Bators aJlur Uppboð á eigum Buddy Holly LedZeppelin Fyrst minnst er á Led Zeppelin og umboðsmann hennar Peter Grant þá er ekki úr vegi að geta þess að ennþá einu sinni eru kviknað- ar sögusagnir þess efnis að þeir þrír eftirlifandi meðlimir sveitar- innar, John Paul Jones, Robert Plant og Jimmy Page ætli að endurreisa hana við fjórða mann, sem væntanlega yrði þá Jason Bonham sonur trommarans látna Johns Bonham. Herma sögusagn- irnar ennfremur að ætlunin sé að hljómsveitin fari í heljarmikla tón- leikaferö um Ameríku á næsta ári og af því tilefni sé nú þegar búið að smíða risastórt svið og að þeir Plant og Page liggi yfir hönnun á Ijósakerfi fyrir það. En allt eru þetta sögusagnir og til þessa hefur þeim öllum verið vís- að á bug, en eins og bent hefur veriö á þá er þetta oft spurning um peninga og ef vel er boðið þá er aldrei að vita. Þær fregnir berast nú frá Frakk- landi að einn af frumherjum pönksins, söngvarinn Stiv Bators hafi látist af völdum umferðar- slyss í París. Það virðist þó vera eftir þessum fyrstu fregnum að dæma, að um ótímabæran dauðdaga söngvarans hafi verið að ræða. Var atburðarásin á þann veg að Bators og kærasta hans Caroline voru í verslunarleiðangri og er Caroline kom út úr einni búðinni fann hún Bators liggjandi á gangstéttinni illa á sig kominn og ruglaðan. Hafði bíll ekið á hann en að athuguðu máli taldi hann sig ekki það slasaðan að ástæöa væri að fara á sjúkrahús og fór því heim ásamt Caroline. Seinna um dag- inn fór honum að líða illa og Umsjón: Magnús Geir Guðmundsson ákvað að leggja sig, en var látinn þegar Caroline kom að líta eftir honum um miðnættið. Stiv Bators var eins og áður sagði einn af frumherjunum í pönkinu en sem slíkur kom hann fram með hljómsveitinni The Dead Boys árið 1976. Var sú hljómsveit illræmd í meira lagi en með henni hljóðritaði Bators eina plötu sem hét Young, loud and Snolty. Bators flutti til Lundúna frá New York og þar stofnaði hann árið 1982, hina bráðskemmtilegu sveit Lords of the New Church ásamt Steve Jones fyrrum gítar- leikara Sex Pistols og öörum. Ferill hennar var ærið skrykkjótt- ur og mótaðist hann af sífelldum mannabreytingum og öðrum vandræðum. Leysti Bators hana uþp á síðasta ári eftir sjö ára starf og einar fjórar eða fimm plötur. Er dauðinn knúði dyra hjá Bators var vinnu að mestu lokið við nýja plötu þar sem Bators naut aðstoðar ýmissa tónlistar- manna og poppsíðan hefur skýrt frá áður. Mun platan væntanlega B/CNDURI í heystrekkifílmu skipta gæðin öllu máli Stiv Bators horfinn yfir móðuna miklu. Hitt og þetta Brían Eno Brian Eno sem var eitt sinn með- limur í gáfumannapopphljóm- sveitinni Roxy Music en nú á seinni árum þekktastur fyrir störf sín sem upptökustjóri, er nú aftur kominn á fullt sem tónlistarmað- ur. Ekki er hægt að segja annað en Eno hafi brett upp ermarnar því það er ekki ein plata í vinnslu hjá honum heldur tvær og er áætlað að þær báðar komi út með haustinu. Er annars vegar um að ræða hreinræktaða sóló- plötu en hins vegar plötu í sam- starfi við John Cale fyrrum meðlim Velvet Underground Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem þeir tveir vinna saman því umsjónarmann þoppsíðunnar rekur minni til aö Eno hafi verið upptökustjóri á plötu Cales sem út kom í fyrra eða fyrir tveimur árum. Malcolm McLaren Malcolm McLaren sem eitt sinn var umboðsmaður pönkgoðanna Sex Pistols en nú á seinni árum tónlistarmaður sjálfur, er nú önn- um kafinn við að skrifa handrit fyrir kvikmynd um umboðsmann Led Zeppelin sálugu Peter Grant. Var Grant þessi litríkur persónu- leiki og áður en hann snéri sér að umboðsstarfinu hafði hann unnið fyrir sér sem fjölbragðaglímu- kappi auk þess aö koma fram í kvikmyndum sem áhættuleikari eða aukaleikari. verða gefin út bráðlega, en með þeirri breytingu að fyrrum gítar- leikari The Dead Boys, Cheetah Chrome, mun koma fram á henni til heiðurs minningunni um Bators. \>/ o /' \ Skarð höggvið í raðir gamalla pönkara: poppsíðon HEILDVERSLUN aoCdlc^DODŒicp G8(södMi[jLi©©®[rí] Við Hvannavelli • Sími (96) 21344 • Pósthólf 158 • 602 Akureyri Nú bráðlega verður haldið í New York uþpboð á ýmsum merkum hlutum sem í eigu voru eins af rokkátrúnaðargoðum sjötta ára- tugarins Buddy Holly. Er búist við mikilli ásókn í þessa hluti en þeirra á meðal er t.d. Fender Stratocaster rafmagnsgítar sem talið er að muni fara á um sextíu til sjötíu þúsund dollara eða í kringum fjórar milljónir íslenskra króna.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.