Dagur - 03.07.1990, Síða 1
73. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 3. júlí 1990
124. tölublað
LACOSTE
Peysur • Bolir
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599^
Hættulegur úrgangur skal til Reykjavíkur:
Ónýtar raflilöður hlaðast
upp á Akureyri og víðar
- sveitarfélögin eiga að greiða flutningskostnaðinn
Á íslandi kveða reglur á um að
hættulegum úrgangi skuli eyða
sérstaklega eða endurvinna og
er þetta í samræmi við alþjóð-
legar reglur. Lítum á rafhlöður
í þessu sambandi. Við eigum
ekki að henda þeim á ösku-
haugana, því efni í rafhlöðum
eru hættuleg þegar þau komast
út í jarðveginn, heldur á að
safna þeim saman og senda til
nánari meðhöndlunar. En
hvernig er þessum málum hátt-
að á Akureyri?
Valdimar Brynjóifsson, heil-
brigðisfulltrúi, sagði að tekið
væri á móti ónýtum rafhlöðum á
öllum bensínstöðvum á Akureyri
og í nokkrum verslunum og raf-
tækjavinnustofum. Þangað ætti
fólk að snúa sér með rafhlöðurn-
ar en ekki henda þeim eins og
hverju öðru rusli, en svo virðist
sem bæjaryfirvöld á Akureyri
hafi lítið gert til að kynna þetta
umhverfisverndarmál.
„I rafhlöðum eru þungmálmar
sem brotna ekki niður heldur
hlaðast upp í náttúrunni og geta
valdið skemmdum. Fólk hefur
heyrt talað um kvikasilfursmeng-
Grunur um ölvunarakstur:
Tveir á sjúkrahús
eftir bflveltu
Á sunnudagsmorgun fór bifreið
út af Ólafsfjarðarvegi við
Skriðuland í Arnarneshreppi
og valt nokkrar veltur utan
vegar. Tveir menn voru í bíln-
um og voru þeir lluttir á
sjúkrahús töluvert mikið slas-
aðir og er ökumaður grunaður
um ölvun við akstur. Bifreiðin
skemmdist mikið og er jafnvel
tálin ónýt.
Þá var bifreið ekið út af vegin-
um í Víkurskarði en ökumaður
slapp ómeiddur frá þessu óhappi
og engar skemmdir urðu á bif-
reiðinni. Ökumaðurinn er hins
vegar grunaður um ölvun við
akstur og þurfti Akureyrarlög-
reglan býsna oft að hafa afskipti
af slíkum tilfellum um helgina.
Lögreglan á Akureyri stöðvaði
nokkra ökumenn fyrir of hraðan
akstur um helgina og þá urðu
nokkur óhöpp í umferðinni. Á
Sveitarstjórastaða í
Skútustaðahreppi:
Fimm umsóknir
laugardaginn urðu t.a.m. tveir
árekstrar í Glerárhverfi, á mót-
um Hlíðarbrautar og Hörgár-
brautar og Austursíðu og Þver-
síðu, en ekki urðu slys á fólki í
þessum árekstrum. SS
un í fjörðum sem kemur fram í
skelfiski. Þetta er svipað og ef
málmarnir komast í lífkeðjuna
þá geta þeir safnast saman þar og
komist í stærri dýr og síðan í
okkur,“ sagði Valdimar um
mengunaráhrif af rafhlöðum í
jarðvegi.
Hann sagði að sorpeyðingar-
stöð á höfuðborgarsvæðinu ætti í
framtíðinni að verða miðstöð fyr-
ir eitraðan og hættulegan úrgang
á landinu. Mönnum er ráðlagt að
senda þangað t.d. leysiefni og
rafgeyma og er tekið við slíku
sorpi gegn greiðslu. Hvað raf-
hlöðurnar á Akureyri varðar þá
er þeim safnað saman en ekki
hefur verið tekin ákvörðun um
framhaldið.
„Það sem strandar á er að
sveitarfélögin hafa ekki tekið
ákvörðun um að leggja í kostnað
við að senda rafhlöðurnar suður,
og það er auðvitað bara byrjunin
því annað mun koma í kjölfarið,
s.s. brotajárn. Sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu þurfa ekki
að leggja í neinn flutningskostn-
að en öðru máli gegnir um lands-
byggðina, en eins og er þá er ætl-
ast til að sveitarfélögin sjái um
flutninginn,“ sagði Valdimar. SS
Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, leggur hornstein að Blöndu-
virkjun með aðstoð Ólafs Jcnssonar, yfirstaðarverkfræðings virkjunarinnar.
Mynd: bjb
Homsteiim lagður að Blönduvirkjun
- á 25 ára afmælisdegi Landsvirkjunar
Forseti Islands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, lagði horn-
stein að Blönduvirkjun að
morgni sl. sunnudags. Athöfn-
in fór fram í iðrum jarðar, nán-
ar tiltekið í stöðvarhússhelli
virkjunarinnar 230 m niðri í
jörðinni, að viðstöddum fjölda
gesta. Þennan dag fagnaði
Landsvirkjun einnig 25 ára
afmæli fyrirtækisins.
Áður en Vigdís lagði horn-
steininn flutti dr. Jóhannes
Nordal, stjórnarformaður Lands-
virkjunar, ávarp, þar sem hann
rakti sögu Landsvirkjunar í
stuttu máli og hvernig Blöndu-
virkjun kom þar inn í. Athöfn-
inni í stöðvarhússhellinum lauk
með því að Halldór Jónatansson,
forstjóri Landsvirkjunar, lýsti
framkvæmdum við Blönduvirkj-
un, sem hófust 1984. Fyrsta vél
virkjunarinnar af þremur verður
gangsett haustið ’91 og haustið
’92 verður Blönduvirkjun komin
alveg í gagnið.
Boðsgestir við athöfnina, sem
voru um 200 manns, fóru næst í
skoðunarferð um virkjunarsvæð-
ið og þaðan var haldið niður á
Húnavelli. Þar bauð Landsvirkj-
un gestum í hádegisverð í tilefni
dagsins. Nánar verður sagt frá
athöfninni í Blönduvirkjun,
framkvæmdum þar
Landsvirkjunar, í
morgun.
og afmæli
blaðinu á
-bjb
Norðurland vestra:
Tíðindalaus helgi
hjá lögreghinni
Helgin var stórtíðindalaus að
sögn lögreglunnar á Blönduósi
og Sauðárkróki, engin slys og
bárust
Umsóknarfrestur um stöðu
sveitarstjóra Skútustaðahrepps
rann út um helgina. Alls bárust
Hmm umsóknir og eru allir
umsækjendur utansveitar-
menn.
Að sögn Sigurðar Rúnars
Ragnarssonar, oddvita Skútu-
staðahrepps, mun hreppsnefndin
koma saman til fundar nú í vik-
unni til að fjalla um umsóknirn-
ar. Eins og kom fram hér að ofan
eru allir umsækjendurnir utan-
sveitarmenn en að öðru leyti eru
umsóknirnar trúnaðarmál.
Stefnt er að því að ráða í sveit-
arstjórastöðuna sem fyrst og
sagðist Sigurður Rúnar vonast til
að það gæti orðið innan hálfs
mánaðar. -vs
Gekk vel þrátt fyrir leiðindaveður
sagði Ásgeir Halldórsson
„Þetta gekk bara vel, þrátt
fyrir leiðindaveður,“ sagði
Ásgeir Halldórsson í Hrísey
en á laugardaginn brá hann
sér yfir Eyjafjörðinn á sund-
skýlu einni fata. Þetta var
upphaHð að áheitaherferð
Ásgeirs sem nefnist Sjósund
’90 og eiga áheitin að renna
til byggingar heitra potta við
sundiaugina í Hrísey.
Frekar slæmar aðstæður voru
þegar Ásgeir synti yfir, norðan
hafgola og undirstraumur og
fyrir vikið bar hann nokkuð af
leið og var 35 mínútur í sjónuni
en við eðlilegar aðstæður er
þetta um 20 mínútna sund, að
sögn Ásgeirs.
Ásgeir ætlar ekki að láta hér
við sitja, þann ætlar að synda í
sjónum víðar um landið í sumar
og safna áheitum. Sundið á
laugardaginn var eins konar
tilraunasund og sagði Ásgeir að
áætlað væri að hann færi næst
vestur á firði. Ekki ætlar hann
þó að synda eins mikið þar, ein-
ungis innan hafnarsvæðis á við-
komandi stað.
Búið er aö stofna ávísana-
reikning í Sparisjóði Hríseyjar,
nr. 300, og geta þeir sem vilja
styrkja þetta framtak komið
áheitum og framlögunt til skila
þar. Einnig taka lionsklúbbar á
Eyjafjarðarsvæðinu við fram-
lögurn, ásamt lionsklúbbum á
hverjum stað þar sem Ásgeir
syndir.
„Ég á eftir að fara aftur hérna
á milli, einhvern tímann seinna
í sumar í góöu veðri. Þetta var
nánast bara tilraun,“ sagði Ás-
geir Halldórsson að lokum. -vs
enginn ölvunarakstur.
Lögreglan á Blönduósi þurfti
lítið að skipta sér af hraða
manna, en eftir því sem þeir
tjáðu Degi er umferð farin að
þyngjast vegna Landsmóts hesta-
manna á Vindheimamelum.
Strax á föstudag var farið að bera
á hestaflutningum og hafa þeir
aukist smátt og smátt fram til
dagsins í dag.
Lögreglan á Sauðárkróki hefur
síðastliðna daga tekið 16 manns
fyrir of hraðan akstur og segir
Björn Mikaelsson, yfirlögreglu-
þjónn, það vera töluvert mikinn
fjölda miðað við það að engar
skipulagðar hraðamælingar hafa
verið í gangi og þykir honum fólk
vera farið að fara óvenjumikið
yfir 110 km hraða á klst. en sá
sem hraðast ók var á 152 km
hraða. í dag hefst síðan gæsla
þeirra í sambandi við Landsmót-
ið og er búið að gera klára fleiri
bíla og fleiri menn. SBG