Dagur - 03.07.1990, Page 10

Dagur - 03.07.1990, Page 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 3. júlí 1990 4 Knattspyrna 2. deild: Sætur sigur Siglfirðmga fþróttir F- Siglfírðingar unnu góðan sigur á Grindvíkingum í gærkvöld á Siglufírði með þremur mörk- um gegn tveimur. Þetta var fyrsti leikurinn á grasvelli þeirra Siglfírðinga, sem var blautur mjög og setti mark sitt á leikinn. Eftir ótrúlega slakan fyrri hálfleik færðist mikið fjör í leikinn í þeim síðari. Staðan í hálfleik var 1:0, heimamönn- um í vil. Fyrri hálfleikur var afspyrnu slakur, og það eina sem stendur upp úr er mark Hlyns Eiríksson- ar á 35. mínútu. Hlynur lék á nokkra Grindvíkinga, sendi bolt- ann f hornið á Hafþór Kolbeins- son og fékk hann til baka fyrir markið og svaraði pent fyrir sig með góðu marki. Það lifnaði heldur betur yfir leiknum strax í upphafi seinni hálfleiks. Á 48. mínútu fengu Grindvíkingar víti. Þorsteinn Þormóðsson braut á Þórarni Ólafssyni og Hjálmar Hallgríms- son skoraði úr vítinu fyrir UMFG. Staðan því 1:1 en mín- útu síðar þrumaði Hafþór boltan- um í net Grindvíkinga og kom sínum mönnum yfir. Á 55. mínútu jöfnuðu Grind- víkingar aftur og þar var Páll Björnsson á ferðinni með hálf- gert klaufamark sem markvörður KS-inga átti að taka. En Kristján Karlsson, umræddur markvörð- ur, svaraði fyrir sig á 63. mínútu þegar hann varði glæsilega, skot frá gestunum. fast Sigurmark heimamanna kom á 68. mínútu þegar Þorsteinn Þormóðsson skoraði beint úr aukaspyrnu af 25 metra færi. Það sem eftir lifði leiksins færðist mikil harka í leikinn og dómarinn missti tök á leikmönnum. Leikur- inn var flautaður af þegar 7 mfnútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma! Sigurður Sigurjónsson var bestur í annars jöfnu liði KS-inga og Gunnlaugur Einarsson bestur Grindvíkinga. Dómari leiksins var Egill Már Markússon. ÁS/-bjb Sverrir Sverrisson skoraði glæsilegt mark gegn Fylki á markamínútunni frægu, þeirri 43. Mynd:-bjb 99 Óvæntur 2:1 sigur í Árbænum: Þetta var stórkostlegt 44 sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari Tindastóls „Þetta var stórkostlegt, úr 5:0 tapi í 2:1 sigur gegn efsta lið- inu,“ sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Tindastóls, eftir að TindastóII hafði lagt Fylkis- menn í Árbænum í gærkvöld. Það var fyrst og fremst barátta Tindastólsmanna sem skóp þennan sigur. Með sigrinum vann liðið sig upp úr öldudal, eftir hroðalega útreið gegn Selfyssingum á heimavelli í síð- ustu umferð. Staðan í hálfleik í Árbænum var 1:0 fyrir Tinda- stól. Sigur Tindastóls verður að telj- Knattspyrna 2. deild: Lánlausir Leiftursmenn - markalaust gegn Víði Leiftur og Víðir skildu jöfn í Olafsfírði í gærkvöld, hvorugt lið náði að setja boltann í markið í miklum baráttuleik. Leiftur var ívið sterkari aðilinn í Ieiknum og heimamenn óheppnir að skora ekki mark. Leiftursmenn voru mun ákveðnari en í síðustu leikjum, en það vantaði mörkin, það eru þau sem telja. Leiftur byrjaði leikinn betur og á 3. mínútu átti Hörður Benónýs- son gott skot sem Gísli Hreiðars- son í marki Víðis varði vel. Hörður var aftur á ferðinni á 15. mínútu þegar hann komst einn inn fyrir vörn Víðis og átd skot í stöngina. Þaðan rúllaði boltinn eftir marklínunni en inn vildi hann ekki. Þetta var langbesta færi Leifturs í leiknum. Á 25. mínútu átti Þorlákur Árnason gott skot fyrir Leiftur en Gísli varði í horn. Besta færi Víðismanna í fyrri hálfleik kom á 35. mínútu þegar Vilberg Þor- valdsson átti skot rétt framhjá. Leiftur hélt uppteknum hætti í byrjun seinni hálfleiks, sótti meira, en um miðbik hálfleiksins komst Víðir meira inn í leikinn án þess að skapa sér hættuleg tækifæri. Heimamenn sóttu síðan stíft síðustu mínútur leiksins, en tuðran þráaðist við sem fyrr. Bestu menn Leiftursmanna voru Róbert Gunnarsson og Hörður Benónýsson. í liði gest- anna voru Vilberg Þorvaldsson og Grétar Einarsson mest áber- andi. Dómari leiksins var Gylfi Orrason og fórst það hlutverk vel úr hendi. KH/-bjb Hörður Benónýsson átti ágætan leik fyrir Leiftur og fékk besta færi leiksins gegn Víðismönnum. En inn vildi tuðran ekki og þar við sat. Mynd: kl 2. deild Urslit í 7. umferð: Selfoss-BreiÖablik ÍBK-ÍR KS-Grindavík Leiftur-Víðir Fylkir-Tindastóll 3:2 1:2 3:2 0:0 2:1 Fylkir UBK Víðir Selfoss TindastóII ÍBK KS ÍR Leiftur Grindavík 6 16 6 16 7 12 7 5-1-1 16: 7 5-1-114: 7 3-3-1 7: 7 3-1-3 15:10 10 7 3-1-3 7:11 10 7: 8 9 9:12 7 3-0-4 7 3-0-4 7 3-0-4 10:15 71-2-4 5:11 7 1-1-5 9:13 Markahæstir: Grétar Steindórsson, UBK Grétar Einarsson, Víði Izudin Dervic, Selfossi Páll Guðmundsson, Selfössi Guðmundur Baldursson, Fylki Kristinn Tómasson, Fvlki Örn Valdimarsson, Fylki Þórarinn Ólafsson, Grindavík ast sanngjarn. Þeir byrjuðu leik- inn mun betur og byggðu leik sinn upp með vel útfærðum skyndisóknum og vOru fljótir til baka. Það var á 43. mínútu, þeirri frægu markamínútu, sem Sverrir Sverrisson þrumaði knett- inum í mark Fylkis eftir góða fyrirgjöf frá Ólafi Adolfssyni, gersamléga óverjandi fyrir Pál Guðmundsson, markvörð Fylkis. I síðari hálfleik voru Fylkis- menn meira með knöttinn, en sterk vörn Tindastóls og frábær markvarsla Stefáns Arnarssonar tóku broddinn úr sóknum Árbæ- ingana. Á 65. mínútu bættu Tindastólsmenn öðru marki við, eftir vel útfærða sókn. Þá gaf Guðbjartur Magnason fallega sendingu inn í teig Fylkis á Guðbrand Guðbrandsson, sem sendi boltann viðstöðulaust í net- ið framhjá úthlaupandi markr verði Fylkis. Fylkismenn minnkuðu muninn á 83. mínútu. Þá var Guðfnuridfe Baldursson með fast • skot :fr'á! vítateig, boltinn hrökk af varitár- manni í mark Tindastóls, óverj^ andi fyrir Stefán í markinu. Lið Tindastóls barðist eins og einn maður í þessum leik og erfitt að gera upp á milli manna, Ep einna bestir voru Stefán Arnars- son, Ólafur Adolfsson og Ingvar Guðfinnsson. í liði Fylkis var Guðmundur Baldursson bestur. Leikinn dæmdi Ólafur Svei|is-j son af stakri prýði. Þrír leikménri Fylkis fengu að líta gula glaón- inginn, þeir Finnur Kolbeinssön7 Örn Valdimarsson og Gústaf Víf- ilsson. Óvænt mótspyrna Tind- stælinga fór mikið í taugarnar á Árbæingum og létu þeir skapið hlaupa með sig í gönur. Á meðan spilaði Tindastóll góða knatt- spyrnu og var allt annað að sjá til liðsins en í síðustu tveim leikjum. HB/-bjb Blóðtaka fyrir KA-menn: Ormarr brotinn Ljóst er að Ormarr Örlygsson mun ekki leika með KA- mönnum fyrst um sinn. Orm- arr lenti í harkalegu samstuði við Luka Kostic undir lok fyrri hálfleiks í leik KA og Þórs í gærkvöld með þeim afleiðing- um að hann kinnbeinsbrotn- aði. Þá fékk Kostic skurð á Önnur úrslit 3. deild Einhcrji-Þróttur 3:3 Mörk Einherja: Gisli Davíðs- son, Arnar Gestsson og Örnólfur Oddsson. Mörk Þróttar: Óiafur Viggós- son. Reynir Á-BÍ 4:0 Mörk Reynis: Garðar Níels- son 2, Páll Gíslason, Þórarinn Árnason. ÍK-Þróttur R. 1:0 Mark ÍK: Ómar Jóhannsson. höfuðið. Umrætt atvik átti sér stað inni í vítateig Þórs undir lok fyrri hálf- leiks. Þeir Ormarr og Kostic stukku upp saman méð áður- greindum afleiðingum. Báðir hörkuðu þeir þetta af sér, en skömmu síðar fór Ormarr af leik- velli og upp á Fjórðungssjúkra- hús, þar sem meiðsli hans voru könnuð. Við læknisskoðun kom í ljós að Ormarr er þríkinnbeins- brotinn. Ormarr lá á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í nótt, en talið er líklegt að hann verði fluttur til Reykjavíkur þar sem hann gengst undir aðgerð. Að leik loknum í gærkvöld fór Luka Kostic einnig upp á Fjórð- ungssjúkrahúsið, þar sem gert var að meiðslum hans. Ómögulegt er á þessari stundu að segja til um hversu lengi Orm- arr á í þessum meiðslum. Það pr vissulega mjög slæmt fyrir KA^ liðið að missa hann, því í undan- förnum leikjum hefur hann verjð jafnbesti maður liðsins. óþh

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.