Dagur - 17.07.1990, Síða 3
fréffir
Þriðjudagur 17. júlí 1990 - DAGUR - 3
l
Verkamannasamband íslands:
Strax verði tekið 100 milljnn króna
lán ta undirbúnings virkjanaframkvæmda
Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambands Islands lýsir
furðu sinni á að ekki skuli
vera búið að ákveða og ganga
frá 100 milljón króna lántöku
til vegagerðar, undirbúnings-
vinnu vegna fyrirhugaðra
jarðganga og byggingu starfs-
mannabúða ef hefja eigi
framkvæmdir við Fljótsdals-
virkjun að vori.
í ályktun stjórnar VMSÍ segir
að hún hefði jafnframt talið
nauðsynlegt að hefja vinnu við
stækkun Búrfellsvirkjunar m.a.
undirbúning á aðstöðu starfs-
manna sem komi til með að
starfa við Búrfellsvirkjun og
Kvíslarveitu. Þessi undirbún-
ingsvinna sé að meirihluta úti-
lokuð í vetur og verði ekki haf-
ist handa um framkvæmdir nú í
sumar muni meginframkvæmdir
á þessum svæðum dragast fram
eftir næsta sumri og gera útilok-
að að nýjar virkjanir verði farn-
ar að skila orku árið 1994. Síð-
an segir í ályktun VMSÍ:
„Stjórn VMSÍ er áhyggjufull
yfir því að nú um hásumarið
gætir víða nokkurs atvinnuleys-
is og sýnist að öllu óbreyttu að á
næsta vetri verði atvinnuleysi
eða Iítil atvinna hlutskipti of
mikils fjölda verkafólks.
Ályktun þessi er gerð í trausti
þess að strax verði tekið a.m.k.
100 milljón kr. lán til undirbún-
ings framkvæmda við virkjanir
og að ríkisstjórnin geri aðrar
ráðstafanir til að afstýra því
aukna atvinnuleysi sem fyrir-
sjáanlegt er að muni stóraukast
strax á haustdögum.“ óþh
Vel heppnað Plús-markaðs rallý:
Rúnar og Jón höfðu sigur
Þeir feögar Rúnar Jónsson og
„gamli maðurinn“ Jón Ragn-
arsson á Escort RS 2000 sigruð
glæsilega í Plús-markaðs rall-
inu, sem fram fór um helgina
og lauk um kl. 17 á laugardag
við Plús-markaðinn á Akur-
eyri. Keppni var jöfn og
spennandi, enda hér um að
ræða keppni sem gefur stig til
keppni um íslandsmeistara.
Þeir félagarnir Ásgeir Sigurðs-
son og Bragi Guðmundsson á
Metró leiddu keppnina lengi vel
en duttu skyndilega út úr keppni
vegna bilaðrar tímareimar. Þá
skutust þeir feðgar Jón og Rúnar
í fyrsta sætið og létu það ekki eft-
ir það af hendi. Meðal annars
voru eknar mjög skemmtilegar
sérleiðir í nágrenni Akureyrar,
t.d. svokallaður Lögmannshlíð-
arhringur og Glerárleið. Kepp-
endur og gestir höfðu á orði að
framkvæmd mótsins hafi verið til
mikillar fyrirmyndar.
í öðru sæti í þessari rally-
keppni urðu Birgir Vagnsson og
Halldór Gíslason á Toyota Cor-
olla, í þriðja sæti Þröstur Reynis-
son og Viktor Sigurgeirsson á
Escort 2000, í fjórða sæti Páll
Harðarson og Witek Bogdanski á
Escort RS 2000, í fimmta sæti
Guðmundur Steinþórsson og
Kristján Kristjánsson á Nissan
RS 240, í sjötta sæti Aðalsteinn
Jónsson og Guðný Úlfarsdóttir á
Toyota Starlet og í sjöunda sæti
Úlfar Eysteinsson og Guðmund-
ur Gíslason á Camaro. óþh
Svarfaðardalur:
Stærsta hesthús
norðan Alpaflalla?
Hestamenn í Svarfaðardal og
Dalvík hafa á undanförnum
vikum verið að ganga frá
samningum við Landsbankann
um kaup á refaskálanum að
Ytra-Holti, sem Landsbankinn
eignaðist eftir gjaldþrot loð-
dýrabúsins.
Hver hestamaður fyrir sig gerir
samning við bankann um kaupin,
og er hvert hólf sem er um 100
ferm. selt á þrjú hundruð þúsund
krónur, en ákvæði er um það í
samningi að fram til ársins 1994
verði eigi fleiri en sjö hross í
hverju hólfi, þó nægjanlegt rými
sé fyrir allt að 12 hross.
Hestamenn hafa keypt um
3900 m2 sem er um 77% af heild-
arrými, en Hestamannafélagið
Hringur mun væntanlega festa
kaup á þeim 1140 m2 sem eftir
eru til að koma upp reiðgerði auk
kaffistofu, fundarherbergis, bað-
aðstöðu og sjúkraherbergis og
aðstöðu fyrir dýralækni auk þess
sem möguleikar til unglingastarfs
opnast.
Um leið og endanlega er búið
að ganga frá kaupunum, verður
hægt að byrja á að hólfa skálann
sundur og innrétta, en nokkrir
hestamenn hafa í hyggju að hýsa
hesta sfna í þessu nýja sameigin-
lega hesthúsi í vetur.
Frestur sá sem Bæjarstjórn
Dalvíkur gaf hestamönnum til að
fara með hesta úr bæjarlandinu
rann út í vor, en allar líkur er á
því að frestur til flutninga verði
framlengdur til vorsins 1991, en
nánast allir hestamenn á Dalvík
eru kaupendur að hólfi í hinu
nýja sameiginlega hesthúsi að
Ytra-Holti.
Helgarblaðmissir:
Áskrifendur, afsakið!
Áskrifendur Dags á Sauðárkróki
eru beðnir innilega afsökunar á
þvf að síðasta helgarblað kom
ekki til þeirra fyrr en í gær.
Ástæðan var mannleg mistök í
flutningi sem betur fer eru fátíð.
Vonandi olli blaðaleysið ekki
miklum óþægindum, en afsökun-
arbeiðni er hér með komið á
framfæri.
Slökkvilið Akureyrar:
Kvatt að nýbyggingu Hagkaups
Slökkvilið Akureyrar var kvatt
að nýbyggingu Hagkaups á
Akureyri laust fyrir hádegi í gær.
Þar hafði farið í sundur raf-
magnskapall sem leiddur er úr
Hagkaupshúsinu út í grunninn.
Við það að kapallinn fór í sundur
urðu töluverðar eldglæringar og
neistaflug og var óttast að eldur
hefði læst sig í veggklæðningu
Hagkaupshússins. Ein veggplata
var fjarlægð, en sem betur fer olli
þetta óhapp engum skemmdum á
húsinu. óþh
0PIÐ A LAUGARD0GUM
í HELLUDEILD
AFGREIÐSLA OKKAR ER OPIN
ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 8.00-17.00
OG NÚ EINNIG Á LAUGARDÖGUM
FRÁ KL. 8.00-16.00.
ALLAR GERÐIR AF HELLUM OG STEINUM
TIL Á LAGER.
SÖGUM ALLAR GERÐIR AF HELLUM.
MÖL & SANDUR HF
V/Súluveg • Pósthólf 618 • 602 Akureyri • Sími 96-21255 §