Dagur - 17.07.1990, Blaðsíða 16
Kodak
Express
Gæöaframköllun
Tryggðu f ilmunni þinni
k baösta cPedi6myndir~’
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Akureyri, þriðjudagur 17. júlí 1990
Fljót:
Suzuki valt
40 metra
- ökumaður slapp
ómeiddur
Stúlka slapp ótrúlega lítið
slösuð þegar Suzuki-bifreið
sem hún ók valt á að giska
40 metra niður brekku við
Þorfinnustaði í Fljótum sl.
laugardagskvöld.
Stúlkan, sem var ein í
bílnum, mun hafa misst stjórn
á honum í lausamöl og skipti
engum togum að bíllinn fór
fram af veginum. Hann er
gjörónýtur.
Að sögn lögreglunnar á
Siglufirði má telja að bílbelti
hafi bjargað stúlkunni í þessu
tilfelli. Hún skarst lítillega á
höföi, en að öðru leyti mun
hún hafa sloppið án meiðsla.
óþh
Akureyri:
FéUafsvölum
Sextíu og fimm ára gömul
kona féll af svölum húss á
Akureyri aðfaranótt sunnu-
dags og var flutt á slysa-
deild. Ekki fengust upplýs-
ingar í gær um meiðsli kon-
unnar.
Slökkviliðsmenn höfðu nóg
að gera í sjúkraflutningum
aðfaranótt laugardags. Góð-
viðrið gerði það að verkum að
margir fengu sér neðan í því
og hlutust nokkur meiðsli af.
Sjúkrabíll var kvaddur til í að
minnsta kosti fjórum tilfellum
af þessum sökurn. óþh
Tekinn á 135
Einn ökumaður var sviptur
ökuleyfí um hclgina í um-
dæmi lögreglunnar á Akur-
eyri. Hann steig of þétt á
bensíngjöfína norðan Akur-
eyrar og sýndi radarmælir
lögreglunnar 135 km hraða.
Nokkrir aðrir voru kærðir
vegna hraðaksturs um helgina.
f>á var einn ökumaður tekinn
fyrir meinta ölvun við akstur.
óþh
20. Landsmóti UMFÍ lauk í Mosfellsbæ á sunnudagskvöldið. Mótið þótti í heild takast vel þrátt fyrir að veðurguð-
irnir hafi strítt mótshöldurum og keppendum óþyrmilega á köflum. Myndin hér að ofan er frá æsispennandi keppni
í 110 m grindahlaupi karla en þar sigraði Skagfirðingurinn Gísli Sigurðsson, sem er í miðjunni, Hjört Gíslason, sem
er leiigst til vinstri, mjög naumlega. Sjá nánari umfjöllun um Landsmótið á bls. 7-10. Mynd: kl
Dalvík:
Túristar
í ákeyrslu
Ekið var á kyrrstæða bifreið af
Datsun-gerð við hús Söltunar-
félags Dalvíkur sl. föstudags-
kvöld. Sem betur fer skemmd-
ist bifreiðin ekki mikið. Að
sögn lögreglu voru það erlend-
ir ferðamenn sem urðu fyrir
því að keyra á bifreiðina.
Bakkus mun ekki hafa verið
með í för að þessu sinni.
t>á var bifreið af gerðinni
Toyota Corolla ekið út af Ólafs-
fjarðarvegi á móts við afleggjar-
ann niður á Hauganes að kvöldi
sunnudags. Ökumaður mun hafa
ekið bifreiðinni af Hauganesvegi
upp á Ólafsfjarðarveg, en ekki
náð beygjunni. Ökumaður og
tveir farþegar sluppu án teljandi
meiðsla. óþh
Félagsheimilið Miðgarður:
Stuðmenn sluppu ekki við skattinn
Hljómsveitin Stuðmenn lék
fyrir dansi í félagsheimilinu
Miðgarði í Skagafírði sl. laug-
ardagskvöld eftir að hafa aug-
lýst uppákomuna sem tón-
leika. Þar sem um tónleika var
að ræða voru stólar á dansgólf-
inu og ekki selt úr sjoppu á
meðan Stuðmenn spiluðu. En
tæplega 400 ballgestir röðuðu
stólunum saman strax í fyrsta
laginu og tóku til við fímar
fótamenntir. Lögreglan var á
staðnum og fylgdi því eftir að
Stuðmenn borguðu skemmt-
I anaskatt eins og af venjulegum
dansleik og eftir tveggja tíma
^ þref að balli loknu borguðu
Stuðmenn skattinn, en sam-
| kvæmt heimildum blaðsins
ætla þeir ekki að láta þar við
sitja.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
styr stendur um Stuðmenn og
skemmtanaskattinn. Samkvæmt
lögum eru tónleikar, þar sem éin-
göngu er flutt frumsamin tónlist,
undanþegnir skemmtanaskatti og
í viðkomandi tónleikahúsi verða
að vera stólar fyrir áhorfendur.
Stuðmenn hafa hingað til sloppið
við að greiða skattinn og hafa
stólar voru fjarlægðir áður en „ballið“ byrjaði
hártoganir gengið á milli manna
um réttmæti þess.
Áður en „tónleikarnir“ hófust
ætluðu sumir ballgesta að hverfa
frá Miðgarði þegar þeir sáu stóla
á gólfinu, en samkvæmt öruggum
heimildum blaðsins voru það
starfsmenn Stuðmanna sem
sögðu gestunum að stólarnir yrðu
teknir.
Björn Mikaelsson, yfirlög-
regluþjónn á Sauðárkróki, var
staddur í Miðgarði og í samtali
við Dag sagði hann að um leið og
stólarnir voru fjarlægðir gerði
hann Stuðmönnum grein fyrir að
um venjulegan dansleik væri að
ræða. Björn sá síðan til þess að
dansleik loknum að Stuðmenn
greiddu skattinn umrædda.
Eins og áður segir var sjoppan
lokuð á meðan Stuðmenn spiluðu
en hún var opnuð tvisvar á með-
an hljómsveitin tók sér pásu. Var
þá handagangur í öskjunni því
eitthvað þurftu ballgestir að bæta
drykkjum við þá drykki sem þeir
höfðu með sér!
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í
gær tókst ekki að ná tali af fors-
varsmanni Stuðmanna, Jakobi F.
Magnússyni, til að inna hann eftir
þessu máli. -bjb
Kippur í ferðamaimastraum
Feröamannastraumurinn hér
norðanlands tók verulegan
kipp nú um helgina, og urðu
gistinætur á tjaldstæðinu við
Þórunnarstræti 1355, en voru
486 helgina þar á undan. Flest-
ir tjaldgestir voru að sunnan,
en eitthvað mun hafa verið um
útlendinga.
Að sögn lögreglunnar var tals-
verð umferð í bænum um helg-
ina, en mjög rólegt var og ekki
var tilkynnt um nein meiriháttar
umferðaróhöpp. Þrátt fyrir mik-
inn fjölda á tjaldsvæðunum var
allt mannlíf þar gott, en eins og
gengur og gerist á bjartri og heitri
sumarnótt ganga sumir ekki til
náða fyrr en undir morgun.
Að sögn tjaldvarðar var síð-
asta helgi ein sú fjölmennasta
undanfarin ár í Vaglaskógi, en á
laugardeginum var þar 24 stiga
hiti og nánast logn. Allt fór þó
friðsamlega fram og engar
skemmdir unnar á gróðri.
f Ásbyrgi voru um 500 tjöld
um helgina, og var þar fjöl-
skyldufólk á ferðinni, mest frá
Húsavík og Akureyri. Einnig var
talsverð umferð um svæðið og
upp í Jökulsárgljúfur, en gisting
er ekki leyfð þar enn. Lítið var
um útlendinga í Ásbyrgi þessa
helgi.
Síðasta helgi var methelgi í
Reynihlíð hvað varðar tjaldgist-
ingu og umferð, en alls voru þar
415 tjöld þegar mest var, en aðal-
lega voru það Þjóðverjar og
Frakkar sem þar voru, ýmist í
skipulegum hópferðum eða á eig-
in vegum. Mesta aðsókn á árinu
1989 um eina helgi voru 700
tjöld.
Sáralítil nýting hefur verið á
tjaldsvæðinu á Dalvík í sumar,
en um síðustu helgi var dágóð
nýtingu á því, en aðallega voru
það sunnlendingar sem bæði
vildu tjalda utan fjölmennustu
tjaldsvæðanna og einnig fólk sem
ætlaði að nota. sér ferðir SÆ-
FARA til Grímseyjar, en ferjan
hefur viðkomu á Dalvík. GG
Svífandi brúðkaupsgestir:
„Við kynntumst í loftinu“
- sagði Sigurður Baldursson, sem gekk í
það heilaga sl. laugardag
Brúðguminn, Sigurður Baldursson, ásamt nokkrum fallhlífarstökkvurum
sem komu svífandi til brúðkaupsins. Brúðurin sjálf var ekki mætt þegar
myndin var tekin en kom þó að sjálfsögðu á nákvæmlega réttum tíma.
Mynd: SS
Sigurður Baldursson, fallhlíf-
arstökkvari, gekk í það heilaga
síðastliðinn laugardag og fór
það ekki fram hjá neinum
hvaða áhugamál Sigurður og
vinir hans hafa þegar veislu-
gestir komu svífandi til brúð-
kaupsins. Gestirnir komu í
fallhlífum úr háloftunum og
lentu á flötinni fyrir framan
Minjasafnskirkjuna á Akur-
eyri.
Akureyringar kannast flestir
við Sigurð Baldursson svo og allir
landsmenn sem hafa áhuga á fall-
hlífarstökki enda er Sigurður
einn kunnasti fallhlífarstökkvari
landsins og annar íslendingurinn
sem hefur náð 1000 stökkum.
Hann bar sigur úr býtum í lend-
ingarkeppni á dögunum sem
haldin var í tengslum við ÍSÍ há-
tíðina og fékk hann verðlaunin í
hendur að lokinni athöfninni í
kirkjunni.
Blaðamaður Dags hitti Sigurð
fyrir utan Minjasafnskirkjuna
þegar brúðkaupsgestir voru að
streyma á staðinn úr háloftunum
og eftir jarðbundnari leiðum.
Fádæma veðurblíða var þennan
dag og sagðist Sigurður hafa
ákveðið brúðkaupsdaginn í mars
og greinilega valið rétt.
Eiginkona Sigurðar heitir
Sandra og er sænsk, en Sigurður
hefur einmitt dvalið í Svíþjóð að
undanförnu og er nú búsettur
þar. Þau notuðu tækifærið og létu
skíra dóttur sína um leið og þau
gengu í hjónaband. En hvers
vegna komu þau ekki sjálf svíf-
andi til brúðkaupsins?
„Þótt maður hafi dellu getur
maður Iagt hana til hliðar í viss-
um tilfellum. Annars hefði það
auðvitað verið hægur vandi því
við Sandra kynntumst í loftinu,
hún var einn af nemendum mín-
um í fallhlífarstökkinu í
Svíþjóð,“ sagði Sigurður og
brosti mót sólu.
Séra Birgir Snæbjörnsson gaf
brúðhjónin saman og hafði hann
gaman af tiltækinu. Hann kvaðst
þó vera feginn yfir því að hafa
ekki þurft að gefa þau saman í
háloftunum. SS