Dagur - 17.07.1990, Blaðsíða 13

Dagur - 17.07.1990, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 17. júlí 1990 - DAGUR - 13 Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið: Ný reglugerð um hækkun frítekjumarks Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra hefur sett reglugerð um hækkun frítekjumarks almanna- trygginga. I samræmi við loforð ríkis- stjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga fyrr á þessu ári verður frítekjumark nú mismun- andi eftir því hvaðan viðbótar- tekjur elli- og örorkulífeyrisþega koma. Frítekjumark þeirra sem ekki hafa lífeyrissjóðstekjur hækkar um 15,6%. Frítekjumark þeirra sem eingöngu hafa lífeyris- sjóðstekjur til viðbótar tekjum almannatrygginga hækkar um 48,4%. Þeir sem hafa blandaðar tekjur njóta hlutfallslega hækk- unarinnar sem verður á hækkun frítekjumarks vegna lífeyris- sjóðstekna. Elli- og örorkulífeyrisþegar sem hafa til viðbótar lífeyri almannatrygginga aðrar tekjur, þó ekki lífeyrissjóðstekjur, mega hafa kr. 177.600 á ári eða kr. 14.800 á mánuði án þess að tekjutryggingin skerðist. Hjá hjónum eru þessar upphæðir kr. 248.640 á ári eða kr. 20.720 á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar sem hafa til viðbótar lífeyri almannatrygginga tekjur úr líf- eyrissjóði mega hafa kr. 228.000 á ári eða kr. 19.000 á mánuði án þess að tekjutryggingin skerðist. Hjá hjónum eru þessar upphæðir kr. 319.200 á ári eða kr. 26.600 á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar sem hafa blandaðar tekjur njóta hlutfallslega þeirrar hækkunar sem verður á frítekjumarki þeirra sem hafa tekjur úr lífeyris- sjóðum. Áður en til útreiknings tekjutryggingar þeirra kemur skal draga frá lífeyrissjóðstekjum viðkomandi kr. 50.400 á ári eða kr. 4.200 á mánuði (kr. 19.000- 14.800) hjá einstaklingum og kr. 70.560 á ári eða kr. 5.800 á mán- uði (kr. 26.600-20.720) hjá hjónum. Þessar nýju reglur um frítekju- mark taka gildi frá og með júlí- greiðslu bóta almannatrygginga. Við útreikninga er stuðst við framtalsgögn. Þess má vænta að einhver brögð séu að því að skattframtöl hafi ekki verið rétt útfyllt þannig að lífeyrissjóðs- tekjur hafi skráðst sem almennar tekjur. Slíkar villur munu valda þvf að viðkomandi einstaklingar njóta ekki þess hagræðis sem hækkun frítekjumarks vegna líf- eyristekna á að hafa í för með sér. Það er því mjög mikilvægt að elli- og örorkulífeyrisþegar kanni gaumgæfilega greiðsluseðla sína er þeir berast í byrjun þessa mán- aðar og komi athugasemdum á framfæri við lífeyristrygginga- deild Tryggingastofnunar ríkisins telji þeir að leiðréttinga sé þörf. Hestamannafélagið Léttir: Mikið um að vera hjá yngsta hostafólkinu um næstu helgi Dagana 20.-22. júlí n.k. verður mikið um að vera hjá yngsta hestafólkinu. Unglingaráð Léttis í samvinnu við Kolbrúnu Kristjánsdóttur, unglingafull- trúa LH, hyggst standa fyrir æskulýðsmóti á Melgerðismel- um þessa daga. Öðrum hesta- mannafélögum á Norðurlandi hefur verið boðin þátttaka í mótinu. Aðstaða á Melgerðismelum er öll hin ágætasta en rétt hjá er gisti- og ferðaþjónustan Melgerði þar sem krakkarnir fá gistingu í smáhýsum eða herbergjum. Þar er einnig eldunaraðstaða og aðstaða til að geyma hross. Gert er ráð fyrir að foreldrar sem koma með börnum sínum og annað áhugasamt fólk geti gist í tjöldum á svæðinu. Gert er ráð fyrir að börnin mæti á svæðið á 'föstudagskvöld. Krakkar frá Akureyri fara vænt- anlega öll saman ríðandi á Mel- gerðismela. Á laugardagsmorgni verða ýmis konar námskeið í hestaljósmyndun, hindrunar- stökk o.fl. Eftir hádegi hefst keppni í hinum ýmsu greinum, flestum óhefðbundnum, en grímutölt, þrautakeppni, tölt- keppni og parakeppni verða meðal keppnisgreina sem boðið er upp á. Að kvöldi laugardags verður vegleg grillveisla, leikir og söngur. Sunnudagur hefst með kynn- ingu á þátttakendum og sýningu á því sem þau lærðu á námskeið- unum daginn áður. Mótið endar með sameiginlegum reiðtúr út Eyjafjarðarárbakka og endar á Kaupangsbakka þar sem leiðir skiljast fyrir flesta þátttakendur. Allir krakkar yngri en 16 ára geta tekið þátt í þessu móti svo fram- arlega sem þau hafa hest til um- ráða. Ekki er skilyrði að vera í hestamannafélagi. Skráning er hjá Guðrúnu í síma 23862 og þarf að skrá sig sem allra fyrst. Þrítugsaímæli Bmdindismótsins fagnað í Galtalækjarskógi um verslunarmannahelgma Um verslunarmannahelgina 3.-6. ágúst nk. verða 30 ár liðin frá því fyrsta Bindindismótið var haldið á frídegi verslun- armanna. í áranna rás hefur Bindindis- mótið unnið sér fastan sess sem ein fjölmennasta fjölskylduhátíð sumarsins. Með þaulvönum starfs- mönnum og afbragðsgóðri aðstöðu í Galtalækjarskógi (fjöldi vatnssalerna, fjölbreyttum leiktækjum á þar til gerðu leik- svæði fyrir börn, Ævintýralandi, allri heístu þjónustu, s.s. veiting- um o.þ.h.) hefur jafnan farið vel um 5-7000 mótsgesti hverju sinni. Þá hefur áhersla verið lögð á fjölbreytta og vandaða dagskrá við allra hæfi. Þess hefur verið vandlega gætt að börnin fái sér- staka barnadansleiki við undir- leik hljómsveitar, leiksýningar, grín o.fl. Unglingum er boðið upp á hljómleika og dansleiki með áhugaverðum hljómsveit- um. Sem dæmi má nefna að Greifarnir, Bjarni Ara o.fl. stigu sín fyrstu frægðarspor á Bindind- ismótinu í Galtalækjarskógi. Síð- an er einnig séð um að fullorðið fólk fái veglega dagskrá með dansleikjum, leiksýningum og fl. Uppistaðan í dagskrá Bindindis- mótsins er þó ávallt blandað efni fyrir alla fjölskylduna. Nú er frumundirbúningur fyrir Bindindismótið í Galtalækjar- skógi 1990 á lokastigi. Sigurður B. Stefánsson er mótsstjóri og verið er að leggja síðustu hönd á plóginn með frágang á dagskrá. Þegar er fullfrágengið að meðal skemmtikrafta verða hljómsveit- irnar Greifarnir, Busarnir, Hljómsveit Ingimars Eydals, Elsku Unnur, Raddbandið o.fl., revíuleikhús, eftirhermur, Halli Og Laddi O.fl. (Fréttatilkynning.) AHUGAFOLK UM FERÐAMÁL Munið þriðjudagsfundinn í dag kl. 13.00 í Alþýðuhúsinu 4. hæð. ©) IDNÞRÓUNARFÉLAG J EYJAFJARÐAR HF. Ættarmót Niðjar hjónana Halldórs Jónssonar og Þórunnar Gunnlaugsdóttur frá Bjarnargili, Austur-Fljótum, halda ættarmót dagana 10. og 11. ágúst 1990 að Sólgörðum í Fljótum. Vinsamlega tilkynnið þátttöku og fáið upplýsingar í síma 95-36583, Alda og 95-37429, Sigrún, fyrir 3. ágúst. Fjölmenniðl Tilkynning til launa- skattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að eindagi launaskatts fyrir júní er 16. júlí. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga. Launaskatt ber launagreiðandi að greiða til innheimtu- manns ríkissjóðs, í Reykjavík, tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. AKUREYRARBÆR Kartöflugeymslur Aku rey rarbæjar Vinsamlegast athugið að hreinsun úr kart- öfluhólfum þarf að vera lokið fyrir 1. ágúst. Eftir þann tíma verður geymslan tæmd. Kartöflugeymslan verðuropin kl. 13.00-17.00, frá 23.-31. júlí. Umhverfisdeild. STEINUNN DAVÍÐSDÓTTIR, frá Stóru-Hámundarstöðum, sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 13. júlí verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 20. júlí kl. 13.30. Árni M. Rögnvaldsson, Hákon Árnason, Bertha Sigtryggsdóttir, Ingibjörg Árnadóttir, Hrafn Bragason, Gerður Árnadóttir, Stefán Ólafsson og barnabörn. Útför, PÁLS H. JÓNSSONAR, frá Laugum, verður gerð frá Húsavíkurkirkju föstudaginn 20. júlí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á Minning- argjafasjóð Dvalarheimilis aldraðra Húsavík eða Hjartavernd. Fanney Sigtryggsdóttir, Sigríður Pálsdóttir, Þórhallur Hermannsson, Aðalbjörg Pálsdóttir, Þórsteinn Glúmsson, Dísa Pálsdóttir, Heimir Pálsson, Guðbjörg Sigmundsdóttir, Páll Þ. Pálsson, Jóhanna Magnúsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.