Dagur - 25.07.1990, Blaðsíða 3

Dagur - 25.07.1990, Blaðsíða 3
fréttir Miðvikudagur 25. júlí 1990 - DAGUR - 3 f Húsavík: Samæfíng kafara SVFÍ Samæfing kafara úr björgunar sveitum Slysavarnafélags ís- lands var haldin á Húsavík um helgina. I æfíngunni tóku þátt 19 kafarar, víða að af landinu, ásamt aðstoðarmönnum. Kaf- að var í Botnsvatn, Húsavíkur- höfn og í sjó við strönd Skjálf- andaflóa en æfíngin fór fram á föstudagskvöld, laugardag og sunnudag. Þröstur Brynjólfsson á Húsa- vík, sem stundað hefur köfun í fjölda ára, sagði að mjög vel hafi til tekist með æfinguna. „Við erum ánægðir með árangurinn. Það gengu upp þessi verkefni sem mönnum voru sett fyrir og veðrið spillti ekki,“ sagði Þröstur þegar Dagur innti hann eftir hvernig æfingin hefði tekist. Þetta er í annað sinn sem samæfing kafara er haldin, en sú fyrri var hjá Sæbjörgu við Reykjavíkurhöfn í fyrrahaust. „Það er greinilega að koma upp ágætis kjarni af þjálfuðum mönn- um sem hægt er að leita til ef eitthvað ber út af. Á þessum tveim æfingum er komið í ljós að SVFÍ hefur á að skipa um 40 mönnum, alls staðar að af land- inu, sem hægt er að kalla til vegna köfunar," sagði Þröstur. Hann tók þátt í samæfingunni ásamt tveim öðrum köfurum frá Björgunarsveitinni Garðari á Húsavík. IM Sveitarfélög við utanverðan Eyjaflörð: Ráða þau sameiginlegaii félagsmálaMtrúa? A síðasta fundi Bæjarráðs Dalvíkur var santþykkt að auglýsa eftir starfsmanni fé- lagsmálaráðs (félagsmálafull- trúa) I hálft starf. Hér er um nýja stöðu að ræða. Óformlegar umræður hafa farið fram um það í tengslum við umræður um starfsemi Hér- aðsnefndar, að þessi starfsmað- ur yrði einnig starfsmaður fé- lagsmáiaráða nágrannasveitar- félaga Dalvíkur, þannig að þau nýttu hann til jafns á móti Dal- víkurbæ. Sveinn Jónsson oddviti Árskógshrepps segist ekki vera sammála þessum hugmyndum, því hann álíti að starf féiags- málafulltrúa yrði mjög viðalítið í Árskógshreppi, og ráðgjafi á vegum Félagsmálastofnunar ríkisins mundi ieysa úr málum hverju sinni eins og reyndar hefði verið hingað tii. Hins veg- ar sé hugsanlegt verksvið Hér- aðsnefndar á mótunarstigi, og því ekki rétt að falla frá þessari hugmynd að svo komnu máli. GG Konur í Zontakiúbbnum Þórunni Hyrnu á Akureyri, færðu bæjarbúum vandaða trébekki á stálgrind, að gjöf nú í vikunni. Stefnt er að því að koma bekkjunum fyrir á góðum stöðum í bænum, þar sem þeir nýtast bæjarbúnum vel og þá sérstaklega þeim eldri. Það var Arni Steinar Jóhannsson garðyrkjustjóri Akureyrarbæjar sem veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd bæjarbúa en með honum á myndinni eru Zontakonurnar Hrafnhildur Stefánsdóttir formaður, Pat Jónsson og Anný Larsdóttir. Mynd: Goiii Eormóður rammi: Nægur fiskur fyrir dagvinnuna - en ekki brjálað að gera í samtali við Dag vildi Runólf- ur Birgisson hjá Þormóði ramma á Siglufírði bera þær fregnir til baka að allt væri brjálað að gera hjá fyrirtæk- inu. „Til allrar hamingju voru ekki birtar neinar magntölur. Þetta var bara seinunninn karfí sem ákveðinn hópur þurfti að vinna mikið við,“ sagði Run- ólfur, en bætti við að nógur fískur væri til að halda út venjulega dagvinnu. Ekkert sumarstopp verður hjá Þormóði ramma og vegna þess er verið að halda rólegum og jöfn- um dampi í vinnslunni. Runólfur óttaðist hins vegar að lítið yrði til af fiski í þessari viku, en vonaðist til að svo yrði ekki. Sigluvíkin er í slipp á Akureyri um þessar mundir og Stálvíkin aflar á sóknarmarki áður en hún stoppar í ágúst. Runólfur sagði að kvótastaða skipanna væri góð og nóg yrði að gera út árið hjá Þormóði ramma. -bjb Neftidir og ráð á Sauðárkróki 1990-1994 Ný bæjarstjórn á Sauðárkróki kom saman fyrir nokkru, þar sem m.a. var gengið frá kosn- ingum í flest embætti, nefndir og ráð á vegum bæjarins næsta kjörtímabil. Snorri Björn Sig- urðsson verður áfram bæjar- stjóri á Sauðárkróki og forseti bæjarstjórnar var kjörinn Knútur Aadnegaard. Fyrsti varaforseti er Hilmir Jóhannes- son og 2. varaforseti Björn Sig- urbjörnsson. Kosið til eins árs Skrifarar bæjarstjórnar Björn Björnsson og Herdís Sæ- mundardóttir. Varamenn: Björn Sigurbjörns- son og Viggó Jónsson. Bæjarráð Björn Sigurbjörnsson, Knútur Aadnegaard og Stefán Logi Har- aldsson. Varamenn: Hilmir Jóhannesson, Steinunn Hjartardóttir og Herdís Sæmundardóttir. Skoðunarmenn Haraldur Friðriksson og Gutt- ormur Óskarsson. Varamenn: Margeir Friðriksson og Geirmundur Jónsson. Kjörstj. við Alþ.kosn. Reynir Kárason, Gunnar Sveins- son og Jón H. Ingólfsson. Varamenn: Konráð Gíslason, Baldvin Kristjánsson og Sveinn Friðvinsson. Undirkjörstj. á Sjúkrahúsi Friðrik Margeirsson, Sigmundur Pálsson og Guðjón Ingimundar- son. Varamenn: Jón Jakobsson, Helga Hannesdóttir og Egill Helgason. Veitustjórn Hilmir Jóhannesson, Björn Björnsson og Viggó Jónsson. Varamenn: Pétur Valdimarsson, Gísli Halldórsson og Einar Gísla- son. Hafnarstjórn Brynjar Pálsson, Pétur Valdi- marsson, Árni Egilsson, Magnús Sigfússon og Viggó Jónsson. Varamenn: Hartmann Halldórs- son, Valgarð Jónsson, Gunnar Steingrímsson, Jón E. Friðriks- son og Einar Gíslason. Kosið til fjögurra ára Félagsmálaráð Steinunn Hjartardóttir, Sigríður Aradóttir, Eva Sigurðardóttir, Herdís Sæmundardóttir og Gunnar Bragi Sveinsson. Varamenn: Aðalheiður Arnórs- dóttir, Jóney Kristjánsdóttir, Helga Hannesdóttir, Guðrún Sölvadóttir og Guðlaug Gunnars- dóttir. Atvinnumálanefnd Friðrik Jónsson, Steinunn E. Friðþjófsdóttir, Einar Einarsson, Sólveig Jónasdóttir, Örn Kjart- ansson, Guðrún Sölvadóttir og Karl Bjarnason. Varamenn: Pétur Valdimarsson, Dagur Jónsson, Einar Örn Ein- arsson, Þorleifur Óskarsson, Ein- ar Guðmannsson, Hermann Agnarsson og Guðbjörg Guð- mundsdóttir. íþróttaráð Erling Örn Pétursson, Sigmund- ur Pálsson, Björgvin Guðmunds- son, Sigurbjörg Guðjónsdóttir og Gunnar Bragi Sveinsson. Varamenn: Oskar G. Björnsson, Friðrik Jónsson, Rúnar Björnsson, Hjörtur Geirmunds- son og Pétur Ölafsson. ByggÍHgarnefnd Vigfús Vigfússon, Sverrir Val- garðsson, Pétur Valdimarsson, Einar Gíslason og Magnús Sig- fússon. Varamenn: Jóhanna Björnsdótt- ir, Jón Jósafatsson, Eva Sigurð- ardóttir, Pétur Pétursson og Ingi Friðbjörnsson. Skólanefnd grunnskóla Hjálmar Jónsson, Ásbjörn Karlsson, María G. Ólafsdóttir, Ómar Bragi Stefánsson og Jón- ína Jónsdóttir. Varamenn: Jónína Hallsdóttir, Soffía Daníelsdóttir, Björg Jóns- dóttir, Birgitta Pálsdóttir og Pét- ur Ólafsson. Stjórn sjóðs Guðrúnar Sveinsdóttur Óskar Jónsson og til vara Herdís Clausen. Þing Landss. ísl. sveitarfél. Knútur Aadnegard og Stefán Logi Haraldsson. Varamenn: Hilmir Jóhannesson og Herdís Sæmundardóttir. Þing Fjórðungss. Norðlendinga Björn Björnsson, Björn Sigur- björnsson, Stefán L. Haraldsson og Anna Kr. Gunnarsdóttir. Varamenn:. Steinunn Hjartar- dóttir, Hilmir Jóhannesson, Viggó Jónsson og Ólafur Arn- björnsson. Fulltrúaráð Brunabótafél.ísl. Björn Sigurbjörnsson og til vara Guðmundur Guðmundsson. Jarðeigna- og búfjárnefnd Reynir Kárason, Sigurður Sveinsson og Guðmundur Pálsson. Varamenn: Rögnvaldur Val- bergsson, Frosti Frostason og Egill Helgason. Eigendafundur Bifrastar Árni Egilsson, Haukur Þorsteins- son, Dagur Jónsson, Guðlaug Gunnarsdóttir og Pétur Ólafs- son. Varamenn: Erling Örn Péturs- son, Guðlaug Gísladóttir, Frosti Frostason, Hjörtur Geirmunds- son og Sigurbjörg Guðjónsdóttir. Bifrastarstjórn Árni Egilsson og Pétur Ólafsson. Varamenn: Erling Örn Pétursson og Guðlaug Gunnarsdóttir. Húsnæðisnefnd Ólafur H. Jóhannsson, Jón Karlsson og Sveinn Friðvinsson. Varamenn: Sigurður Sveinsson, Sigmundur Pálsson og Guðrún Sölvadóttir. Ferðamálanefnd Vigfús Vigfússon, Helga Hannes- dóttir og Herdís Sæmundardótt- ir. Varamenn: Kristrún Snjólfsdótt- ir, Eva Sigurðardóttir og Jón E. Friðriksson. Umhverfis- og gróðurv. nefnd Steinunn Hjartardóttir, Steinunn E. Friðþjófsdóttir og Pálmi Sig- hvatsson. Varamenn: Aðalheiður Arnórs- dóttir, Jóney Kristjánsdóttir og Jónína Jónsdóttir. Samstarfsnefnd þéttbýlisstaða á N. vestra Hilmir Jóhannesson og Herdís Sæmundardóttir. Varamenn: Steinunn Hjartar- dóttir og Viggó Jónsson. Kjaranefnd Björn Sigurbjörnsson og til vara Pétur Valdimarsson. Starfsmenntunarsjóður Pétur Valdimarsson og til vara Friðrik Jónsson. Umferðarnefnd Atli Hjartarson, Friðrik Jónsson og Einar Guðmannsson. Varamenn: Jóhann Ingólfsson, Bjarney Sigurðardóttir og Pétur Ólafsson. Starfsmatsnefnd Björn Sigurbjörnsson og til vara Pétur Valdimarsson. Héraðsnefnd Knútur Aadnegard, Steinunn Hjartardóttir, Björn Sigurbjörns- son, Hilmir Jóhannesson, Stefán L. Haraldsson, Viggó Jónsson, Herdís Sæmundardóttir og Ólaf- ur J. Arnbjörnsson. Varamenn: Björn Björnsson, Gísli Halldórsson, Pétur Valdi- marsson, Björgvin Guðmunds- son, Gunnar Bragi Sveinsson, Magnús Sigfússon, Einar Gísla- son og Skúli Jóhannsson. í fleiri nefndir var ekki kosið á þessum fyrsta fundi bæjarstjórn- ar og ákveðið að fresta kosning- um í 17 aðrar nefndir vegna þátt- töku í Héraðsnefnd Skagfirð- inga. Þá kom fram tilnefning í nefnd til að endurskoða sam- þykktir bæjarins og þá nefnd skipa Björn Björnsson, Snorri Björn Sigurðsson og Stefán L. Haraldsson. Til vara Steinunn Hjartardóttir, Björn Sigurbjörns- I son og Jón E. Friðriksson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.