Dagur - 25.07.1990, Síða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 25. júlí 1990
myndlist
Myndlistaskólinn á Akureyri:
í
Fjölbreytt sumarsýning
fjögurra listamanna
Það fer yfirleitt lítið fyrir
myndlistarmönnum yfir
sumarmánuðina en nú stendur
þó yfír samsýning í hinu ágæta
húsnæði Myndlistaskólans á
Akureyri við Kaupvangsstræti,
sjálfu Listagilinu eins og sumir
sjá Grófargilið fyrir sér í fram-
tíöinni. Sumarsýning er yfír-
skrift sýningarinnar og er hún
vel viðeigandi.
Sumarsýningin var opnuð 14.
júlí sl. og stendur hún fram til 6.
ágúst. Sýningin er opin daglega
frá kl. 14-17. Yfir 50 verk eru á
þessari samsýningu fjögurra
myndlistarmanna á Akureyri, allt
ný verk.
Kristinn G. Jóhannsson sýnir
olíumálverk og er náttúran yrkis-
efni hans, nánar tiltekið mosi og
steinar í mildum sumarlitum.
Jón Laxdal Halldórsson sýnir
veglega syrpu sem hann kallar
Dagbókarblöð. Þetta eru nýjar
klippimyndir (collage).
Helgi Vilberg býður upp á
formfagrar vatnslitamyndir og
eru tvær þeirra unnar á japansk-
an pappír. Helgi sýnir einnig
möppu með þrykktum vatnslita-
myndum.
Guðmundur Ármann Sigur-
jónsson er fulltrúi grafíkur á
þessari sýningu. Hann sýnir
dúkristur sem eru allar hliðstæð-
ar að formi, nokkurs konar hálf-
hnettir.
„Við skemmtum okkur
vel“
Þegar blaðamenn Dags kynntu
sér sumarsýninguna skömmu eft-
ir opnun einn virkan dag voru
listamennirnir fjórir á staðnum
og báru þeir sig vel í sumarblíð-
unni. Aðsókn hefur verið mjög
góð og hafa bæði Akureyringar
og ferðamenn tekið sumarsýning-
unni vel.
Helgi Vilberg sagði að það
væri fremur óvenjulegt að halda
myndlistarsýningar yfir sumar-
tímann en þeir fjórmenningarnir
hefðu ákveðið að prófa þetta og
viðtökurnar hefðu verið mjög
góðar.
„Við notum ólíkar aðferðir
enda var markmiðið að skapa
fjölbreytta sýningu. Ég held að
það hafi tekist því fólk hefur lýst
yfir ánægju með sýninguna.
Menn hafa yfirleitt notað veturna
Listamennirnir Helgi Vilberg, Jón Laxdal, Guðmundur Ármann og Kristinn G. á rölti í sýningarsalnum. Mynd: kl
til sýninga en sumarsýning er góð
tilbreyting. Við skemmtum okk-
ur vel og sýningargestir vonandi
líka,“ sagði Helgi.
Flestar myndanna eru unnar á
síðustu mánuðum en nokkrar eru
frá 1989. Helgi og Guðmundur
eru með vinnustofur í Lista-
skálanum, bak við Myndlista-
skólann, Kristinn er með stofu í
Brekkugötu og Jón vinnur í
Gamla barnaskólanum. Almenn-
ingi gefst nú kostur á að kynnast
afrakstrinum og var ekki annað
að sjá en að margir hafi gripið
tækifærið til að njóta myndlistar
að sumarlagi.
Sumarsýningin er sem fyrr seg-
ir opin daglega kl. 14-17 fram til
6. ágúst. SS
fasteignamarkoðurinn
Mjög mikil eftirspurn er eftir einnar hæðar raðhúsum en stærstu og dýrustu eignirnar eru tregastar i sólu.
Akureyri:
Eftirspurn meiri en framboð
- fasteignaverð þokast upp
Á Akureyri er staðan þannig á
fasteignamarkaðinum að eftir-
spurn er mun meiri en
framboð. Á þetta við um flest-
ar eignir nema stór einbýlis-
hús. Þegar hús eru komin í 12-
15 milljónir verða þau hæg í
sölu, en mest er eftirspurnin
eftir einnar hæðar raðhúsa-
íbúðum.
Það vantar tilfinnanlega einnar
hæðar raðhús á skrá hjá fast-
eignasölunum og telja sölumenn
allt of lítið byggt af þessari gerð
íbúða. Þá vantar líka lítil einbýl-
ishús á söluskrá og einnig hæðir,
2ja-5 herbergja.
Þótt stærri eignir séu tregar í
sölu á það sérstaklega við um
nýleg hús. Nokkuð er um það að
fólk fjárfesti í eldra húsnæði á
tveimur hæðum í gamalgrónum
hverfum á Akureyri.
Eftirspurn er mikil og vilja
margir þakka húsbréfakerfinu
það. Ljóst er að margir vilja
flytja til Akureyrar frá Reykjavík
og er nokkuð um íbúðaskipti. Þó
staldra menn við atvinnumálin og
álversumræðan hefur gert marga
tvístígandi. Þá fá fasteignasölur á
Akureyri dálítið af húsum í ná-
grannabyggðarlögum á skrá en
þar er minni hreyfing.
Fasteignaverð hefur þokast
upp á við síðustu mánuðina og
mest er hækkunin á eftirsóttustu
eignunum, s.s. einnar hæðar rað-
húsum. Ekki er þó um neina
verðsprengingu að ræða. SS
F asteignaauglýsingar:
/
/
tagi til sölu
Þegar gluggað er í fasteigna-
auglýsingarnar má.sjá að það
er ýmislegt fleira til sölu en
íbúðarhúsnæði þótt vissulega
séu íbúðirnar mest áberandi.
Menn eru líka að auglýsa
atvinnuhúsnæði, verslanir og
sumarbústaði.
Á fasteignamarkaði Dags í
síðasta miðvikudagsblaði var
t.d. auglýst 1200 fermetra
atvinnuhúsnæði við Dalsbraut
sem selst í einu eða tvennu lagi.
Þá var söluturn til sölu svo og
knattborðsstofa, tískuvöru-
verslun og sumarbústaður
skammt frá Akureyri.
Nokkuð var um húsnæði til
sölu utan Akurcyrar, s.s. íbúðir
og einbýlishús á Dalvík, íbúðar-
hús í Eyjafirði, einbýlishús á
Hauganesi og Kópaskeri, íbúðir
á Svalbarðseyri og grunnur að
einbýlishúsi, raðhúsaíbúð á
Sauðárkrókiog einbýlishús á
Grenivík svo eltthvað sé
nefnt. SS
Húsbréfakerfið:
Gengur ekki eins
hratt og til stóð
Er húsbréfakerfíð strax farið
að hiksta? Samkvæmt upplýs-
ingum sem við höfum fengið
þarf fólk stöðugt að bíða leng-
ur eftir fasteignaverðbréfunum
og er ástæðan mikill fjöldi
umsókna í kerfínu. Ferli sem
tók ekki nema nokkra daga í
vor tekur nú upp í fímm til sex
vikur.
„Þetta virðist ekki ganga eins
hratt fyrir sig og efni stóðu til og
það veldur vandræðum.
Umsóknirnar eru fleiri en þeir
geta annað, en maður bjóst ekki
við að það þyrfti að dragast svo
lengi að ganga frá fasteigna-
verðbréfum þégar búið er að
senda inn samþykktan kaup-
samning," sagði sölumaður hjá
fasteignasölu á Akureyri.
Þessi biðtími kemur sér illa fyr-
ir fólk. Það gengur frá kaup-
samningi og gerir sínar áætlanir
en síðan verður það að bíða eftir
verðbréfunum sjálfum. Af þess-
um sökum er nokkur titringur á
markaðinum og menn spá einnig
í afföll bréfanna.
Annars er greiðslufyrirkomu-
lag fasteigna mjög flókið um
þessar mundir. Fólk áttar sig ekki
alveg á nýja húsbréfakerfinu,
gamla húsnæðiskerfið er enn í
gangi, seljendur bjóða margs
konar kjör og útborgunarhlutfall
er mismunandi. Fasteignir sem
eru með áhvílandi lánum frá
Húsnæðisstofnun eru vinsælastar
og rjúka strax út, enda eru þau
lán talin hagstæðust.
Kaupendur og seljendur íbúða
eru hvattir til að skoða vel allt
sem viðvíkur greiðslufyrirkomu-
lagi og fá ráðleggingar hjá hlut-
aðeigandi aðilum. SS