Dagur - 25.07.1990, Side 11

Dagur - 25.07.1990, Side 11
Miðvikudagur 25. júlí 1990 - DAGUR - 11 íþróttir i Sundmeistaramót íslands: Akureyringar þrisvar á verðlaunapafl Átta manna hópur frá Sundfé- laginu Óðni á Akureyri tók þátt í Sundmeistaramóti Is- lands sem fram fór í Laugar- dalnum í Reykjavík um helg- ina. Akureyringarnir náðu ekki að blanda sér alvarlega í toppbaráttuna enda óvanir að keppa í 50 m laug en þó náðu þeir ellefu sinnum að verða meðal átta efstu. Bestum árangri náðu þau Pét- ur Pétursson og Elsa María Guðmundsdóttir. Elsa María varð í 2. sæti í 200 m bringusundi á 2:52.96 og 3. sæti í 100 m bringusundi á 1:21.81. Pétur varð í 3. sæti í 200 m baksundi á 2:26.98 og 4. sæti í 100 m bak- sundi á 1:09.15. Hinir Akureyringarnir á mót- inu voru Birna H. Sigurjónsdótt- ir, Þorgerður Benediktsdóttir, Sonja S. Gústafsdóttir, Svava H. Magnúsdóttir, Hlynur Tuliníus og Ómar Þ. Árnason. Mótið fór fram í 50 m braut- inni í Laugardal og voru kring- umstæður nokkuð erfiðar þar sem rigning og kuldi hrjáði kepp- endur. Pess má geta að 50 m braut er eina alþjóðlega viður- kennda laugarstærðin fyrir sund- keppni og er því einu keppnis- hæfu laug landsins að finna í Laugardalnum. Akureyrarsund- laug er einungis 25 m. 2. deild: Blikar unnu Tindastól U.B.K. kom til Sauðárkróks sl. mánudagskvöld og vann gestgjafana Tindastól 1:0 í þóf- kenndum leik þar sem barátta einkenndi spilið. Það var Grét- ar Steindórsson sem skoraði sigurmarkið með ágætum 2. deild: Jaftit hjá KS og Leiftri KS og Leiftur skildu jöfn þegar liðin mættust á Siglufirði á mánudagskvöldið. Úrslitin urðu 1:1 og voru bæði mörkin skoruð í nokkuð líflegum fyrri hálfieik. Segja má að jafntefli þetta hafi komið liðunum frek- ar illa þar sem bæði þurftu nauðsynlega á sigri að halda. Leiftursmenn eru nú í næst neðsta sæti deildarinnar, hafa hlotið 7 stig eins og Grindvík- ingar en hafa betra marka- hlutfall. KS er í 7. sæti með 10 stig og fjarri því að vera laust við falldrauginn. Leiftursmenn byrjuðu leikinn betur og sóttu meira fyrsta hálf- Þór-ÍBV á mánudag Eins og komið hefur frarn þurfti að fresta leik Þórs og ÍBV sem fram átti að fara á Akureyri á mánudagskvöldið þar sem ekki var flugfært frá Eyjum. Ákveðið hefur verið að leikurinn fari fram mánudaginn 30. júlí og hefst hann kl. 20. Einherji-TBA: Araar skor- aði tvö Vegna bilunar í símkerfi tókst ekki að afla upplýsinga á réttum tíma um markaskorara Einherja í leik liðsins gegn TBA um helg- ina. Það tókst í gær og mun Arn- ar Gestsson hafa skorað tvívegis og Helgi Már Þórðarson og Bald- ur Kjartansson eitt mark hvor. Leiknum lauk með sigri Ein- herja, 4:2. Leiðrétting I blaðinu í gær var sigurvegari í kvennaflokki á Opna Húsavíkur- mótinu í golfi, Halla Arnarsdótt- ir, rangfeðruð og sögð Arnar- dóttir. Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem þessi mistök eru gerð. Er beðist velvirðingar á þessu. tímann en þá jafnaðist leikurinn. Það voru ekki liðnar nema 11 mínútur þegar Leiftur náði for- ystunni en þá skoraði Hörður Benónýsson eftir sendingu frá Kristjáni Haraldssyni. Heimamenn komust ágætlega inn í leikinn síðustu 15 mínútur hálfleiksins og jöfnuðu á 44. mín- útu. Þar var að verki Hafþór Kol- beinsson eftir ágæta sendingu frá Birni Sveinssyni. Litlu munaði síðan að KS næði forystunni þeg- ar Þorvaldur Jónsson, markvörð- ur Leifturs, skaut í varnarmann en boltinn hrökk af honum rétt framhjá markinu. Síðari hálfleikur var daufari og lítið um færi. Þó komst Leifturs- maðurinn Þorlákur Árnason í ágætt færi á 33. mínútu en skot hans fór framhjá. Þá sluppu KS- ingar með skrekkinn þegar Hörð- ur Bjarnason bjargaði á marklínu skömmu síðar. Þegar á heildina er litið áttu Leiftursmenn heldur meira í leiknum en úrslitin geta þó vart talist ósanngjörn. Hlynur Eiríks- son var bestur í liði heimamanna en Hafþór og Björn léku einnig ágætlega og Mark Duffield var sterkur í vörninni að vanda. Kristján Haraldsson og Hörður Benónýsson léku vel hjá Leift- ursmönnum og Þorvaldur var góður í markinu. ÁS/JHB 2. deild Urslit í 9. umferð: ÍBK-Víöir 0:2 Tindastóll-UBK 0:1 Fylkir-Grindavík 6:0 Selfoss-IR 1:0 KS-Leiftur 1:1 Fylkir 9 6-2-1 22: 6 20 UBK 9 6-2-115: 6 20 Víðir 9 5-3-1 12: 8 18 Selfoss 9 4-1-4 17:12 13 ÍR 9 4-0-5 12:17 12 ÍBK 9 3-1-5 7:10 10 KS 9 3-1-5 11:15 10 Tindastóll 9 3-1-5 8:15 10 Leiftur 9 1-4-4 6:12 7 Grindavík 9 2-1-6 11:20 7 Markahæstir: Grétar Einarsson, Víði 7 Grétar Steindórsson, UBK 6 Izudin Dervic, Selfossi 6 Hafþór Kolbeinsson, KS 5 Kristinn Tómasson, Fylki 5 skalla á 34. mínútu leiksins. Leikurinn hófst af krafti hjá báðum liðum og á 3. mínútu skapaðist hætta í teig Breiðabliks og Guðbrandur Guðbrandsson skoraði. Markið var þó dæmt af vegna rangstöðu. Strax á næstu mínútu komust Blikarnir í ágætt færi og Grétar Steindórsson átti skalla sem fór yfir Stefán Arnars- son, en í þverslána og út. Á 9. mínútu átti síðan Gústaf Ómars- son gott skot að marki Tindstóls, en beint á Stefán markvörð. Nú fór leikurinn að einkennast af meiri baráttu og liðin skiptust á sóknum sem lítið bit var í. Á 34. mínútu tókst þó Grétari að koma Blikunum yfir. Breiðablik fékk aukaspyrnu við vítateigshornið sem Hilmar Sighvatsson tók og boltinn kom í boga yfir teiginn, þar sem Grétar kom og skallaði boltann í netið. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks sóttu Stólarnir nær látlaust og reyndu að jafna, en það tókst ekki. Fyrstu 14 mínútur seinni hálf- leiks áttu Blikarnir algjörlega, en á þeirri 15. komst Guðbrandur í ágætt færi í teig þeirra sem ekkert varð þó úr. Sama baráttan kom nú í leikinn og í fyrri hálfleik og sóttu liðin á víxl. Oft sköpuðust nokkuð hættuleg færi sem engum tókst þó að nýta. Arnar Grétars- son átti þ.á.m. tvö góð skot að marki Tindastóls og oft var hætta inn í teig Blikanna þegar boltinn barst þangað. Síðasta færi leiks- ins átti svo Jón Gunnar Trausta- son sem kom inn á sem varamað- ur fyrir Tindastól, en ekkert varð úr því og leikurinn endaði með sigri Breiðabliks, einu marki gegn engu. SBG Lilja María Snorradóttir hefur unnið til þrennra silfurverðlauna á Heiins- leikunum. Heimsleikar fatlaðra: Góður árangur íslendinganna - Ólafur með heimsmet Árangur íslensku keppcnd- anna á Heiinsleikum fatlaðra í Assen í Hollandi hefur verið mjög góður til þessa. Norð- lendingar eiga tvo fulltrúa á leikunum, Rut Sverrisdóttur frá Akureyri og Lilju Maríu Snorradóttur frá Sauðárkróki og hafa þær báðar staðið sig vel og unnið til verðlauna. Lilja María hefur unnið til þriggja silfurverðlauna, í 200 m skriðsundi á 2:35.05, 100 m bak- sundi á 1:22.30 og 50 m skrið- sundi á 33:07. Þá hafnaði hún í 7. sæti í 200 m fjórsundi og 8. sæti í 100 m flugsundi. Rut hcfur unnið til einna silfur- verðlauna og einna bronsverð- launa. Hún varð önnur í 100 m flugsundi á 1:26.10 og þriðja í 200 m brir.gusundi á 3:29.21. Þá hafnaði hún í 4. sæti í 100 m bringusundi og 6. sæti í 200 m skriðsundi. Árangur Ólafs Eiríkssonar ber þó hæst en hann hefur hlotið þrenn gullverðlaun og gerði sér Norðurlandamót unglinga í golfi: Erfitt hjá landanum íslenskir kylfingar áttu ekki góðu gengi að fagna á Norður- landamóti unglinga í golli sem fram fór á Álandseyjum í Finnlandi uin helgina. I sveita- keppninni höfnuðu íslensku sveitirnar í neðsta sæti, bæði í karla- og kvennaflokki og í einstaklingskeppninni urðu ís- lendingarnir einnig aftarlega á merinni. Tveir Akureyringar voru meðal þátttakenda, Andrea Ásgrímsdóttir og Þór- leifur Karlsson, og gekk þeim báðum illa. Fimm sveitir tóku þátt í hvor- um flokki og voru þrír kylfingar í kvennasveitunum og sex í karla- sveitunum. Röð þjóðanna varð sú sama í báðum flokkum, Sví- þjóð sigraði, Danmörk varð í öðru sæti, Noregur í þriðja, Finn- land í fjórða og ísland rak lest- ina. Norðurlandameistari karla varð Christian Rosenstrand frá Danmörku á 291 höggi. Þórður Ólafsson frá Akranesi náði best- um árangri íslensku piltanna, varð í 16. sæti á 316 höggum og Hjalti Nielsen, einnig frá Akra- nesi, varð í 17. sæti á 317 höggum. Hinir fjórir íslending- arnir röðuðu sér í neðstu sætin, Ástráður Sigurðsson, GR, varð í 27. sæti á 336 höggum, Haukur Óskarsson, Nesklúbbnum, í 28. sæti á 337, Ólafur Ágústsson, Keili, í 29. sæti á 344 og Þórleifur Karlsson, GA, í 30. sæti á 362 höggum. Norðurlandameistari kvenna varð Ulrika Johanson frá Svíþjóð á 297 höggum. Herborg Arnar- dóttir, GR, varð í 12. sæti á 360 höggum, Andrea Ásgrímsdóttir, GA, varð í 14. sæti á 362 höggum og Rakel Þorsteinsdóttir, GS, varð í 15. sæti á 363 höggum. jafnframt lítið fyrir og setti nýtt heimsmet í sínum flokki í 200 m skriðsundi þegar hann synti á 2:13.21. HJÁ OKKUR ER ALLTAF BÍLASÝNING VOLVO e OPEL /manÍ ISUZU □AIHATSU ' ' þÓRSHAMARHF. Við Iryjtgvahraui Akureyn • Simi 227U)

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.