Dagur - 27.07.1990, Page 1
73. árgangur Akureyri, föstudagur 27. júlí 1990 142.
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Löggæsla verður í
lagi í Húnaveri
- segir Jón ísberg sýslumaður
„Löggæslan veröur í lagi, en
fjöldi lögreglumanna fer eft-
ir atvikum. Ef það koma
mjög margir þá verður bara
fjölgað og viö erum búnir að
tryggja okkur heilmikinn
mannskap ef í það fer,“ segir
Jón ísberg, sýslumaður Hún-
vetninga, um löggæslu í tengsl-
um við Húnavershátíðina um
verslunarmannahelgina.
Grenivík:
Mikið að gera
hjá Kaldbak
Mikil vinna hefur undanfarið
verið í frystihúsi Kaldbaks hf.
á Grenivík. Unnið var á laug-
ardaginn um síðustu helgi, en
alla helgina vikuna áður.
Hrafnhildur Áskelsdóttir,
verkstjóri hjá Kaldbak, segir að
milli 50 og 60 manns vinni nú í
frystihúsinu, en það er svo margt
vegna þess að skólafólk sækir
mikið vinnu þangað yfir sumar-
tímann.
Sjöfnin er komin á rækju en
togarinn Frosti er á hefðbundn-
um botnfiskveiðum. í fyrravor
var fremur lítið að gera hjá
Kaldbak, en þó hélst alltaf átta
tíma vinnudagur. Eftir því sem
leið á sumarið varð meira að
gera. í ár er ástandið mun betra,
og mikil helgarvinna hefur verið í
júlímánuði. í fyrra var töluverð
skreiðarvinna hjá Kaldbak, en í
ár er engin skreið verkuð nema
hausar.
„Við höfum fengið mikið af
botnfiski þennan mánuð, júlí-
mánuður hefur verið þannig að
mikið hefur verið að gera, og
útlitið er ennþá gott hérna, hvað
sem verður í haust,“ segir Hrafn-
hildur. EHB
Ekki er nú nema vika þar til
fjörið byrjar í Húnaveri, undir-
búningur stendur yfir og eftir
helgi verður m.a. 16 vatnssalern-
um komið fyrir til viðbótar við
þau 10 sem fyrir eru oggæslu- og
sjúkraaðstaða girt af. I gær var
verið að ljúka við vatnslagnir á
svæðinu að sögn Gests Pálssonar,
húsvarðar í Húnaveri.
Jón ísberg sagði að enginn ótti
væri hjá löggæslumönnum vegna
hátíðarinnar, það hefði gengið
ágætlega í fyrra og vonandi yrði
því eins farið í ár. Að sögn Jóns
var svarti bletturinn á hátíðinni í
fyrra sá, að sorphreinsun brást,
en nú sagði hann aö búið væri að
ganga frá öruggum samningum í
því sambandi.
„Við, þessir aðilar sem unnum
að hátíðinni í fyrra, hittumst eftir
hana og ræddum um hvað hefði
farið úrskeiðis og samkvæmt þvf
gerum við ráðstafanir núna,“
sagði Jón fsberg sýslumaður.
SBG
(Jtför Erlings Davíðssonar, fyrrv. ritstjóra Dags, fór fram frá Akureyrarkirkju í gær. Mikið fjölmenni var við útför-
ina. Ljósmyndari Dags tók myndina er synir og sonarsynir Erlings báru kistuna úr kirkju.
Fjárhagserflðleikar steðja að mörgum
ungum fjölskyldum á Akurevri
- fjölskyldufólk leitar í auknum mæli hjálpar vegna peningamála
þegar það sér ekki fram úr skuldunum
Fjárhagserfiðleikar og hjóna-
skilnaðir meðal ungs fólks
virðast fara vaxandi á Akur-
eyri. Dagur hafði samband við
tvo sóknarpresta á Akureyri,
og telja þeir báðir að vaxandi
erfiðleika gæti hjá mörgum
fjölskyldum vegna peninga-
mála og minnkandi atvinnu hjá
fjölmörgum fjölskyldum í
bænum.
Séra Pétur Þórarinsson, sókn-
arprestur, segir að frá áramótum
fram til vors hafi a.m.k. þrjátíu
pör komið til sín vegna vanda-
mála sem rekja má beint til fjár-
hagserfiðleika. Dæmigert tilvik
eru hjón á þrítugsaldri, sem eru
að missa sína fyrstu íbúð. Stund-
um spilar Bakkus inn í myndina
þegar gripið er til tlöskunnar til
að deyfa áhyggjurnar, og marg-
víslegir harmleikir steðja að fólk-
inu, þegar það sér fram á að ráða
ekki við vanskilin. Pá er það
áberandi að unga fólkið gerir oft
miklar kröfur til lífsins, og margir
vilja t.d. kaupa allt nýtt inn í
íbúðir sínar. Pá virðist það vera
Brunamálastofnun íslands gerir skýrslu um Krossanesbrunann:
Engiim vélstjóri hafði eftirBt með gufukatlinum
Skýrsla Brunamálastofnunar
íslands vegna eldsvoðans í
Krossanesverksmiðjunni um
áramótin hefur ekki enn verið
birt opinberlega. Þar kemur
fram að ekki hafi verið starf-
andi neinn vélstjóri í Krossa-
nesi þegar bruninn varð, en
svartolíukatlar af þeirri gerð
sem eldsupptök voru rakin til
krefjist kunnáttusamlegrar
umhirðu réttindamanna.
Hjá Brunamálastofnun fengust
þær upplýsingar að brunamála-
stjóri væri að vinna við lokafrá-
gang skýrslunnar, en hún verður
birt í haust. Guðmundur Gunn-
arsson, verkfræðingur hjá Bruna-
málastofnun, segir að eldsupptök
hafi verið við svartolíukyntan
gufuketil, eins og áður heíur
komið fram.
Guðmundur segir að óeðlilegt
hafi verið að kynda svartolíuket-
ilinn án þess að hafa starfandi
vélstjóra með réttindi til þeirra
starfa hjá Krossanesverksmiðj-
unni. „Það kom manni á óvart að
það skyldi ekki vera réttinda-
maður sem keyrði ketilinn. Mað-
ur hefur séð það í mörgum tilvik-
um að þessir katlar eru mjög
hrekkjóttir, og það þarf vana vél-
stjóra til að reka þá, svo eitthvert
öryggi sé í því,“ segir Guðmund-
ur.
EHB
Flutningar ÁTVR til Akureyrar:
Stefiiir fékk vínið og Þóroddur Sana-bjórinn
Gengið hefur verið frá því að
Bifreiðastöðin Stefnir á Akur-
eyri fái flutninga á áfengi og
tóbaki fyrir ATVR á milli
Akureyrar og Reykjavíkur, en
eftir er að skrifa undir samn-
inga. Stefnir bauð lægst í þessa
flutninga, en alls bárust 15
tilboð. Þóroddur Gunnþórs-
son á Akureyri fékk bjórflutn-
inga fyrir Sana til Reykjavíkur,
en í þá flutninga bárust 17
tilboð.
Síðustu daga hafa tilboðin í
vínflutninga til útsölustaða
ÁTVR út um land verið til
skoðunar hjá Innkaupastofnun
og ÁTVR og eftir er að ganga frá
nokkrum stöðum. Meðal þeirra
eru útsölustaðirnir á Sauðárkróki
og Siglufirði, en það skýrist fljót-
lega hvaða aðilar fá flutninga
þangað fyrir ÁTVR. Eitt tilboð
barst á Siglufjörð og tvö á Sauð-
árkrók.
Fram að þessu hefur Sanitas
séð um bjórflutningana á milli
Akureyrar og Reykjavíkur, en
hér eftir verður það Þóroddur
sem sér um það. Friðjón Eyþórs-
son hefur hingað til flutt áfengi
og tóbak í verslun ÁTVR á
Akureyri, en Stefnir kom með
lægsta tilboðið að þessu sinni.
-bjb
alltof fátítt að fólk geri greiðslu-
áætlanir. „Það eru margar ungar
fjölskyldur í greiðsluerfiðleikum
í Glerárhverfi," segir sr. Pétur.
Séra Þórhallur Höskuldsson
hefur svipaða sögu að segja.
Fjöldi fólks leitar til hans vegna
erliðleika sem það sér ekki fram
úr. Sr. Þórhallur hefur undanfar-
in ár haft umsóknareyðublöð um
greiðsluerfiðleikalán á skrifstofu
sinni, og bendir fólki á að leita
sérfræðilegrar aðstoðar. Fjár-
hagserfiðleikar bitna óhjákvæmi-
lega á fjölskyldulífinu og hjóna-
bandinu. Hann segir það skoðun
sína að þjóðfélagið hlúi ekki að
fjölskyldunum í erfiðleikum
þeirra, þvert á móti. Þessir tímar
séu ákaflega erfiðir fyrir margar
fjölskyldur, og margir harmleikir
gerist vegna fjármála. Minnkandi
atvinna og litlir möguleikar á
aukavinnu eða eftirvinnu geri sitt
til að stuðla að þessari þróun.
„Það er erfitt að bera saman
fjölda hjónaskilnaða eða þróun
þeirra. Sem betur fer enda ekki
öll málin með skilnaði, og oft
er hægt að leiðbeina fólki. En
þetta eru ákaflega erfiðir tímar
fyrir marga,“ segir hann.
Dagur hefur fregnað að tölu-
vert sé um að hjón, sem sjá fram
á gjaldþrot, reyni að gera ráðstaf-
anir í tíma til að bjarga því sem
bjargað verður. Dæmi eru um að
hjón geri kaupmála, skilji síðan,
selji sameiginlega eign, t.d. ein-
býlishús, og kaupi tvær minni
íbúðir í fjölbýlishúsi. EHB