Dagur - 27.07.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 27. júlí 1990
Húsbyggjendur
Verktakar
Öll starfsemi fyrirtækjanna
verður í lágmarki vikuna
6.-12. ágúst vegna sumarleyfa
MÖL&SANDUR HF.
STRENGJA-
STETRANHF
-i
fréttir
í-
Miðstjórn ASÍ ályktar:
Leita verður leiða til að veija
þaun árangur sem hefur náðst
Fundur miðstjórnar ASÍ haldinn
25. júlí 1990 ályktar eftirfarandi:
„Þjóðarsáttin svokallaða sem
ASÍ, BSRB og atvinnurekendur
beittu sér fyrir með kjarasamn-
ingum frá 1. febrúar sl. hefur
vakið vonir margra landsmanna
um að tekist hafi frekar en áður
að hemja verðbólguna og þannig
skapa raunhæfari kjarabætur en
ella hefði orðið.
Niðurstaða félagsdóms um
4,5% hækkun launa BHMR fólks
frá 1. júlí sl. og samningsbundinn
réttur BHMR til þess að fá kaup-
hækkun til jafns við það sem
samið verður um hjá öðrum hóp-
um setur af stað víxlhækkun sem
Veldu aðeins ðað besta
begar bú ferð út að bnrða
Með þvíað kaupa einn poka afljúffengu lambakjöti á lágmarksverði getur þú
farið 16 sinnurn út að borða á landsins fínasta veitingastað -útiíguðsgrænni
náttúrunni-fyriraðeins2S02krónur*. Veldu aðeinsþað besta ágrillið ísumar.
Veldu lambakjöt á lágmarksverði. Pað kostar aðeins 417krJkg.
UltllM
íiíWJt
l'Í
óröðu upp rc.,ngum seu>
sPaugstofunng jíe'Pmtunum
tókuþáttí ‘ SUlr>ar 0g
'ondinni-'f^'ír'aðiéttnstu8
keppn^^hltttíað
tega og rann bar vifniSkemmti-
b,r^ropjnberZgL Tlu brandanirAno <rnní,/dáöa
^róna vía.,^1.- &a °g fá sendendur h u8s°£Ur verða
UKVM^rrtLVND;
6kg. pokimeðhálfum lambsskrokk úr l.fl. A, snyrtum ogsneiddum ágrillið.
ekki verður séð fyrir endann á.
Sú víxlhækkun gengur svo lengi
sem allir aðilar halda sínu til
streitu. Aukinn kaupmáttur næst
ekki með þeim hætti aðeins aukin
verðbólga.
Allir launamenn hafa notið
ávinninganna af þeim samning-
um sem gerðir voru í vetur og
það skiptir alla launamenn miklu
að árangurinn verði ekki eyði-
lagður. Því verður að leita allra
leiða til þess að verja þann árang-
ur.“
Ályktun fulltrúa aðild-
arfélaga BSRB:
Launáækkun tíl
félagsmanna BHMR
komi einnig tíl
félagsmanna BSRB
Á fundi fulltrúa aðildarfélaga
BSRB sem haldinn var í gær, var
samþykkt eftirfarandi ályktun:
„BSRB leggur áherslu á að sú
launahækkun sem ber að greiða
félagsmönnum BHMR samkvæmt
samningi og úrskurði félagsdóms
komi einnig til allra félagsmanna
BSRB ella eykst launamisræmi á
meðal opinberra starfsmanna.
BSRB fer fram á að viðræður um
framkvæmd þessa verði teknar
upp þegar í stað.
BSRB hefur jafnan lagt áherslu
á að ágreiningur um kjarasamn-
inga verði leystur með samkomu-
lagi. Þess vegna ber ríkisstjórn-
inni og BHMR að axla ábyrgð á
því að leysa með samkomulagi
víxilverkunarákvæði samninga
sem felast í kjarasamningi þess-
ara aðila. BSRB leggur áherslu á
að ekki verði hvikað frá þeim
markmiðum kjarasamninga
BSRB sem fela í sér aukinn
kaupmátt kauptaxta.“
Lögreglan á Sigló:
Klippurnar
koma á loft
Lögreglan á Siglufírði er þessa
dagana með klippurnar á lofti
og mega ökumenn sem trassað
hafa að láta skoða bílinn sinn
passa sig.
Skoðunarmaður frá Bifreiða-
skoðun íslands var nýlega á
Siglufirði að skoða bíla og komu
þá margir ökumenn með „fáka“
sína. En samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar eiga nokkrir öku-
menn eftir að láta skoða, sumir
hafa trassað það frá því í fyrra.
Bifreiðaskoðun íslands verður
ekki næst á ferðinni á Siglufirði
fyrr en í september og að sögn
lögreglunnar munu skapast
óþægindi vegna þess. „Á Sauðár-
króki fá ökumenn aðvörun og
frest til að láta skoða innan
tveggja daga, en slíkan frest get-
um við ekki veitt hér, við verð-
um bara að klippa,“ sagði lög-
reglumaður á Siglufirði í samtali
við blaðið, en sem kunnugt er, er
skoðunarstöð á Sauðárkróki.
-bjb