Dagur


Dagur - 27.07.1990, Qupperneq 3

Dagur - 27.07.1990, Qupperneq 3
tréttir Föstudagur 27. júlí 1990 - DAGUR - 3 Akureyri: Hraðskákmót í göngu- götmmi í dag Útihraöskákmót veröur haldið í göngugötunni í dag kl. 16.00. Keppendur verða 12 og tefla fullorðnir og unglingar saman í einum flokki. Umhugsunar- frestur fyrir hverja skák er 5 mínútur fyrir hvern keppanda, og tefla Jlir við alla. Svipað mót hefur verið haldið undanfarin sumur af Skákfélagi Akureyrar, og hafa ýmis fyrir- tæki styrkt það t.d. með með því að gefa verðlaunin. Að þessu sinni verður keppt um nýjan far- andbikar sem Stefán Jónasson hjá Bókaverslun Jónasar gefur, og er með því vonandi gefinn tóninn um það að þetta mót verði árlegur viðburður í sumarlífinu í göngugötunni. GG Aðaldalur: tilefni afmælishátíðarinnar á Hólmavík, bruggaði Sana á Akureyri sérstak- an drykk sem hlaut nafnið; Bjartur í afmælisskapi. í gær var mjöðurinn sett- ur á bíl á Akureyri og fluttur til Hólmavíkur þar sem honum verður skolað niður um helgina. Mynd: KL Fjárhús, hey og hlaða eyðilögðust í eldi Fjárhús og hlaða við bæinn Brekku í Aðaldal eyðilögðust af eldi síðdegis á þriðjudag. 100 ára afmæli verslunarréttinda á Hólmavík: Þriggja daga afinælishátíð hefst í dag Afmælishátíð þeirra Hólmvík- inga, í tilefni eitt hundrað ára verslunarréttinda staðarins hefst í dag og stendur fram á sunnudag, eins og reyndar kom fram í Degi í gær. Mikil undirbúningsvinna hefur þegar verið unnin og framkvæmda- stjóri hennar er Örn Ingi Gíslason myndlistarmaður á Akureyri. Af þessu tilefni verður stofnað til menningarlegs og félagslegs sambands við Raufarhafnarbúa sem munu fjölmenna til Hólma- víkur um helgina. Þá mun Átt- hagafélag Strandamanna í Reykja- vík taka þátt og einnig er í undir- búningi þátttaka Hvammstanga- búa. Pá er þess vænst að byggða- lög og þéttbýli á Norðurlandi sendi fulltrúa til þess að taka virkan þátt í hátíðinni og mæti helst á staðinn í stað þess t.d. að senda heillaóskaskeyti. Myndlistarmenn munu dvelja í hálfan mánuö á Hólmavík fyrir hátíðina og hafa aðstöðu í Grunnskóla Hólmavíkur. Sýning á verkum þeirra verður opnuð í dag, föstudaginn 27. júlí, í skólanum. Félagar úr leikfélög- um á Norðurlandi munu einnig dvelja á staðnum yfir hátíðina til þess að undirbúa leiksmiðju í samvinnu við heimamenn og Framleiðsla DNG á miðunarstöðvum: Hlýtur mjög góðar viðtökur Framleiðsla og sölumálin hjá DNG-rafeindaiðnaði hf. við Lónsbakka í Glæsibæjarhreppi hafa gengið þokkalega, en þau eru samkvæmt áætlun fyrstu sex mánuði ársins, þannig að góður hugur var í Kristjáni Jóhannessyni framkvæmda- stjóra fyrirtækisins þegar Dag- ur leitaði frétta. Salan innanlands hefur gengið ágætlega, en einnig hefur nokkur sala verið til Bretlands og á vest- urströnd Bandaríkjanna og Kan- ada. DNG hefur tekið þátt í sjáv- arútvegssýningum bæði í Seattle og Glasgow á þessu ári þar sem framleiðslan hefur verið kynnt og hlotið lof. Framleiðslugetan er helmingi meiri en það sem selt er í dag, og uppi eru vissar vonir um að hægt verði að auka framleiðsluna og nýta þar með betur það húsnæði og tæki sem fyrir eru. í vor var hafin framieiðsla á miðunarstöðinni sem fengið hef- ur mjög góðar viðtökur á mark- aðnum, en þar er um verkefni að ræða scm unnið var fyrir Flug- málastjórn, en utan þess ramma hefur verið mikill áhugi en raun- verulcga er hér ekki um neina tækninýjung að ræða heldur nýja útfærslu á gömlu tæki sem hefur orðið útundan í tæknibylting- unni. Þetta tæki mundi bæði flýta og auðvelda alla leit að gúmmí- björgunarbátum á opnu hafi ef það væri í öllum skipum en stað- setningar frá gervitunglum eru oft orðnar of gamlar. í dag starfa 17 manns hjá DNG-rafeindaiðnaði hf., við Lónsbakka. GG veröur hún í gangi meira og minna sanifellt alla hátíðina. Dagskrá hátíðarinnar verður fjölbreytt, iðulega óvænt og að mestu samfelld. Útvarpsstöð hóf starfsemi á Hólmavík viku fyrir hátíðina og sendir út alla hátíðar- dagana. Tvö svið verða byggð og er annað á báti úti á höfninni. Úti- kaffihús verður rekið af Hótel Matthildi og Vertshúsið á Hvammstanga mun sjá um að kitla bragðlaukana í geysistóru sjávarréttaveitingahúsi sem verð- ur við höfnina. Það verður því margt að gerast á Hólmavík og vafalítið að skemmtilegt verður að baða sig í fjörugu mannlífi og sólskini sem aðstandendur hátíðarinnar eru að sjálfsögðu búnir að panta sér- staklega. -KK Einnig brann talsvert magn af úrvals rúllubundnu þurrheyi sem hirt var í síöustu viku og einangrunarrör sem hitaveitan í Aðaldal geymdi í húsunum. Mesta mildi er talin að enginn skyldi slasast af völdum eldsvoð- ans og að eignatjón varð ekki enn meira en raun varð á. Slökkvilið- ið í Aðaldal og bændur úr ná- grenninu börðust við eldhafið og stóðu síðan vakt við húsarústirn- ar þar til í gærmorgun, en af hús- unum standa aðeins uppi steyptir veggir. Eldsupptök eru ókunn. Þrjár konur og þrjú börn voru gestkomandi á bænum er eldur- inn kom upp og höfðu börnin verið að leik útivið áður en elds- ins varð vart. Á milli útihússins og íbúðarhússins stóðu tveir vörubílar og tvær dráttarvélar sem slökkviliðsmönnunum tókst að forða frá eldinum. Fjárhúsin og hlaðan hafa ekki verið í notk- un undanfarin ár vegna þess að fé á Brekku var skorið niður eftir að riðuveiki gerði vart við sig. Heyið í hlöðunni var eign ábúenda á næsta bæ, Miðhvammi, sem hófu búskap í fyrrahaust en verulegur hluti af fyrsta heyfengnum þeirra eyðilagöist í brunanum. IM Þjónustuskilti við bæjarmörk Akureyrar: í endumýjun hjá JC-Akureyri Þeir sem ekið hafa Hörgár- brautina inn í bæinn í sumar hafa kannski ekki tekið eftir því, en þjónustuskilti sem þar stóð af Akureyri, rétt innan bæjarmarkanna, hefur ekki staðið þar lengi. Astæöan fyrir því er sú að félagar í JC-Akur- eyri hafa verið að endurnýja skiltið, og að sögn Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, forseta JC- Akureyri, er stefnt að því að koma skiltunum upp nú um helgina. Ófyrirsjáanlegar tafír urðu á verkinu, þar sem málning flagnaði af skiltunum og pússa varð allt upp á nýtt og mála. JC-Akureyri hefur haft þjón- ustuskiltin við bæjarmörkin norðan- og sunnanmegin í sinni umsjá í gegnum tíðina og vegna þess hve umrætt skilti norðan- megin var illa farið var ákveðið að taka það niður og setja upp nýtt. Hlutar af skiltinu sunnan- megin, við Drottningarbraut, voru einnig teknir niður til endurnýjunar, en kort af bænum var látiö standa þai. Sveinbjörn sagði í samtali við Dag að skiltiö við Hörgárbraut hafi verið illa farið, allt sundur- skotið bæði mcð riffil- og hagla- skotum. „Það er aldrci hægt að sjá þcssi skilti í friði. Ég gct ekki sagt hvers vcgna. cn þctta var orðiö óþolandi," sagði Svcin- björn, og vonaði að nýju skiltin fái að standa uppi í friði fyrir skemmdarvörgum. -bjb Þessi grind við Hörgárbraut hefur ekki komið fcrðainönnuin að miklu gagni í sumar, en skiltið á liana er á leiðinni að sögn forseta JC-Akureyrar. Mynd: bjb Allt tíl útivistar Tjöld, svefnpokar, bakpokar, vindsængur, kælitöskur, pottasett, sóltjöld, sólstólar, tjaldborð EYFJÖRÐ HJALTEYRARGÖTU 4 SÍMI 96-22275

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.