Dagur - 27.07.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 27. júlí 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, Sl'MI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (fþróttir),
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Hlutverk Akureyrar
í verslun og þjónustu
Akureyri hefur um langan aldur verið stærsta mið-
stöð verslunar og þjónustu á Norðurlandi. Vegna
staðsetningar, samgangna og íbúafjölda hefur
kaupstaðurinn gegnt mikilvægu hlutverki á þessu
sviði. Framþróunin hefur verið hæg, en markviss og
stöðug um áratugaskeið. Nú, þegar tímamót virð-
ast framundan í byggðamálum, er eðlilegt að
staldra við og gera sér grein fyrir framtíðarhorfunum.
Ekki er hægt að fjalla um hlutverk Akureyrar í
verslun og þjónustu án þess að Kaupfélag Eyfirðinga
komi þar við sögu. Akureyringar hafa átt þeirri
gæfu að fagna að KEA hefur verið hornsteinn
atvinnu og framfara í bænum, um áratugaskeið.
Vissulega hafa naprir vindar stundum blásið um
kaupfélagið, eins og flest önnur fyrirtæki hér á landi
undanfarin ár. Rekstrarumhverfið hefur verið óhag-
stætt ýmsum rekstrareiningum félagsins, en þess
eru greinileg merki að vörn hafi verið snúið í sókn,
bæjarbúum öllum og starfsfólki KEA til heilla.
Á Akureyri hefur samvinnurekstur og einkarekst-
ur fléttast saman með margvíslegu móti, áratugum
saman. Gætti þar ákveðinnar verkaskiptingar, sem
enn heldur sér í veigamiklum atriðum. Kaupfélagið
hefur að langmestu leyti með úrvinnslu landbúnað-
arafurða að gera og þjónustu við bændur. Verslun-
arrekstur félagsins er umsvifamikill og afar mikil-
vægur, og löngum hefur kaupfélagið haldið úti
þjónustu sem tap hefur verið á, í hinum dreifðari
byggðarlögum. Þar hefur máttur samvinnuhug-
sjónarinnar verið sýndur ótal sinnum í verki.
Stór hluti af atvinnulífinu á Akureyri grundvallast
á því að til bæjarins sækja nágrannabyggðirnar
mikla, og oft sérhæfða, þjónustu. Mikilvægi bæjar-
ins í verslun fer ekki milli mála, hafnarskilyrði eru
góð og hafa batnað og verslunar- og þjónustufyrir-
tæki standa mörg traustum fótum. Þetta hlutverk
Akureyrar er óumdeilanlegt, en spurningin er sú
hvers vegna því er ekki meiri gaumur gefinn.
Ástæða væri fyrir atvinnumálanefnd bæjarins að
gera úttekt á verslun og þjónustu í bænum, með til-
liti til stefnumótunar til framtíðar í þessum efnum.
Bæjarfélagið getur gert margt til að styðja þjón-
ustustarfsemi, og hún er síst ómerkari en margar
aðrar atvinnugreinar.
Oft hefur verið rætt um fyrirtæki í verslun og
þjónustu sem afætur á grundvallaratvinnuvegun-
um. Margir tala um að slík fyrirtæki skapi engin
verðmæti, eins og sjávarútvegur og landbúnaður
geri. Bæði sjávarútvegur og landbúnaður þurfa þó
margvíslega þjónustu, og sú starfsemi skapar
atvinnu. Svo einfalt er það.
Það er alkunna, að mikið samband er milli bú-
setuþróunar, þéttbýlismyndunar og þjónustustigs.
Krafa almennings er að eiga aðgang að fullkominni
þjónustu á sem flestum sviðum og nýtískulegum
verslunarháttum. Eigi Akureyri að standa undir
nafni, sem miðstöð verslunar og þjónustu, verður
að gaumgæfa þessa þætt vel í nútíð og framtíð. EHB
hvoð er að gerast
Margrét Bóasdóttir, sópran, Prófessor Heinz Markus Göttsche, oregl og Carola Bischoff, sópran, halda sumartón-
leika í þremur kirkjum á Norðurlandi um helgina. Mynd: im
Sumartónleikar í þremur
kirkjum á Norðurlandi
Sumartónleikar í kirkjum á
Norðurlandi, hinir fjórðu í röð-
inni í sumar, verða haldnir um
helgina. Það eru prófessor Heinz
Markus Göttsche, orgel og Car-
ola Bischoff, sópran frá Þýska-
landi og Margrét Bóasdóttir,
sópran sem flytja orgelverk, ein-
söng og dúetta, m.a. eftir Bexte-
hude, Purcell, Monteverdi,
Distler, Kretzschmar, Mendels-
sohn og Bach.
Fyrstu tónleikarnir verða í
kvöld í Húsavíkurkirkju og hefj-
ast kl. 20.30. Tónleikarnir á
morgun laugardag, verða haldnir
í Reykjahlíðarkirkju og hefjast
einnig kl. 20.30. Þriðju og síð-
ustu tónleikarnir þessa helgina
eru í Akureyrarkirkju á sunnu-
dag og hefjast kl. 17.00. Aðgang-
ur er ókeypis.
Prófessor Heinz Markus Gött-
sche f. 1922, hefur verið kirkju-
organisti frá unglingsárum. Hann
stundaði tónlistarnám í Lubeck
og Berlín í orgelleik, tónsmíð-
um, kór- og hljómsveitarstjórn.
Síðan 1960 hefur hann starfað í
S-Þýskalandi, sem kennari, org-
elleikari og stjórnandi. Árið 1968
var hann söngmálastjóri í Pfalz
og stjórnandi „Die Evangelische
Jugendkantorei der Pfalz.“ Hann
er nú starfandi organleikari við
Stiftskirkjuna í Landau. Heinz
Markus hefur haldið tónleika í
það minnsta 11 Evrópulöndum
og gert fjölmargar hljómplötur
með kór- og orgeltónlist.
Carola Bischoff nam einsöng,
kór- og hljómsveitarstjórn við
Tónlistarháskólann í Heidelberg-
Mannheim. Auk þess að vera
kennari í Neustadt/Weinstrasse,
hefur hún yfirumsjón með barna-
kórastarfi kirkjunnar í Pfalz og er
starfandi einsöngvari. Hún
stjórnar unglingakórnum „Pfalz-
ische Kurrende" sem nýlega vann
2.. verðlaun í þýskri keppni ungl-
ingakóra.
Margrét Bóasdóttir og Carola
Bischoff voru samsíða við Tón-
listarháskólann í Heidelberg-
Mannheim og hafa þær oftsinnis
sungið saman í Þýskalandi. Þetta
er 4. sumarið sem sumartón-
leikarnir eru haldnir og sumarið
1988 tóku þau öll þátt í þeim,
ásamt „Die Kantoeri an der Paul-
uskirkche" Neustadt/Hambach
en Carola Bischoff er stjórnandi
þess kórs.
„Fjölskyldudagur Þórs ’90“:
Útiskemmtiin á félagssvæðinu
svæðinu verður ýmislegt til sem mæta að finna eitthvað við
skemmtunar og ættu allir þeir sitt hæfi.
Hrossasölusýning
íþróttafélagið Þór á Akureyri
gengst fyrir fjölskyldudegi á
íþróttasvæði sínu við Glerárskóla
á morgun laugardag. Dagurinn
hefur hlotið nafnið „Fjölskyldu-
dagur Þórs ’90“ og stendur frá kl.
13.00-18.00.
Þessi dagur er tileinkaður öll-
um börnum sem æfa hjá félaginu
og ekki síst foreldrum þeirra og
öðrum velunnurum félagsins. A
Á morgun, laugardag, verður líf
og fjör á Melgerðismelum í Eyja-
firði. Þar verður efnt til sölusýn-
ingar á hrossum og eru allir
áhugamenn velkomnir.
Það er Alda hf. - ferðaþjón-
usta í Melgerði, sem stendur fyrir
sölusýningunni. Hún hefst á
Melgerðismelum kl. 16 á morg-
un.
Akureyri:
Stjórnin í
SjaUamim
Hljómsveitin Stjórnin er stödd á
Akureyri þessa vikuna og stund-
ar m.a. líkamlegar og tónlistar-
legar æfingar fyrir þjóðhátíð
Vestmannaeyja.
Það er síðan í kvöld sem
hljómsveitin leikur í Sjallanum á
Akureyri. - Og loksins segja sum-
ir en þetta verður í eina skiptið í
sumar sem sveitin leikur á Ákur-
eyri.
Stjórnin tekur sér hins vegar frí
annað kvöld og fram á fimmtu-
daginn í næstu viku en þá leikur
hljómsveitin á húkkaraballinu
svokallaða, sem er árlegur
undanfari þjóðhátíðar þeirra
Vestmannaeyinga.