Dagur - 27.07.1990, Side 11
• - .-V
Föstudagur 27. júlí 1990 - DAGUR - 11
fþróttir
'X' ■
Margir vildu meina að Bjarni Sveinbjörnsson hefði ált að fá vítaspyrnu í
gærkvöld en Guðmundur Maríasson var ekki sammála.
Hörpudeildin:
Framsigur í rislitlum leik
- og Pórsarar áfram í neðsta sætinu
Fram sigraði Þór 1:0 í Laugar-
dalnum í gærkvöld. Leikurinn
var daufur og frekar risiítiil.
Framarar eru nú í þriðja sæti
deiidarinnar, einu stigi á eftir
KR, en Þórsarar eru í neðsta
sæti og er óhætt að segja að
útlitið sé ekki bjart hjá þeim.
Eina mark leiksins kom strax á
13. mínútu. Framarar tóku þá
hornspyrnu og Þórsurum gekk
erfiðlega að koma boltanum frá.
Hann endaði hjá Jóni Erling
Ragnarssyni sem skoraði af
stuttu færi.
Framarar voru mun hættulegri
í fyrri hálfleik og voru t.d. nálægt
því að skora annað mark þegar
Guðmundur Steinsson átti skalla
í stöng.
í upphafi seinni hálfleiks kom
besti kafli Þórsara og þá virtist
dómari leiksins bregðast illa hlut-
verki sínu. Jón Sveinsson felldi
þá Bjarna Sveinbjörnsson innan
vítateigs en dómarinn vildi meina
að brotið hefði verið fyrir utan og
dæmdi aukaspyrnu. Voru flestir
sammála um að það hefði verið
rangt mat.
Framarar tóku nánast öll völd
eftir þetta og áttu mörg ágæt færi
Birgir Karlsson iék sinn fyrsta leik
Hörpudeildinni í sumar.
Mikið um að vera í íþróttalífinu um helgina:
Landsmót í golfi, frjálsar og fótbolti
en þau nýttust ekki. Þórsarar áttu
fjörkipp í lokin en náðu ekki að
jafna þrátt fyrir góð færi.
Besti maður Þórs var Friðrik
Friðriksson markvörður og Lárus
Orri hélt Guðmundi Steinssyni
vel niðri. Jón Erling Ragnarsson
var frískastur Framara.
G.Sv./JHB
Lið Fram: Friðrik Friðriksson, Lárus Orri Sig-
urðsson, Siguróli Kristjánsson, Birgir Pór Karls-
son (Axel Vatnsdal á 64. mínútu), Nói Björns-
son (Unnar Jónsson á 75. mínútu), Þórir
Áskelsson. Þorstcinn Jónsson, Júlíus Tryggva-
son, Bjarni Sveinbjörnsson, Sveinn Pálsson og
Hlynur Birgisson.
Lið Þórs: Birkir Kristinsson, Jón Sveinsson,
Kristján Jónsson, Pétur Ormslev, Viðar Por-
kclsson, Kristinn R. Jónsson, Pétur Arnþórs-
son, Guðmundur Stcinsson (Arnljótur Davíðs-
son á 75. mínútu), Baldur Bjarnason, Steinar
Guðgeirsson og Jón Erling Ragnarsson.
Dómari:Guðmundur Maríasson og var hann
ekki sannfærandi.
Mikið verður að gerast í
íþróttalífinu um heigina. Hæst
ber Landsmótið í goifi sem
fram fer á Jaðarsveilinum á
Akureyri og Bikarkeppni
Frjálsíþróttasambandsins sem
fram fer á þremur stöðum á
landinu. Þá fara fram tveir
mikilvægir leikir í undanúrslit-
um Bikarkeppni kvenna og 2.
flokks karia í knattspyrnu á
Akureyri, úrslitaleikur í B-riðli
2. deildar kvenna á Siglufirði
auk fjölmargra annarra leikja
á íslandsmótinu í knattspyrnu.
Hilmar sló fyrsta höggið
á Landsmótinu
49. Landsmótið í golfi hófst á
Jaðarsvelli á Akureyri í gær með
keppni í 2. flokki kvenna og 2. og
3. flokki karla. 162 keppendur
mættu til leiks í gær og er búist
við öðru eins í seinni hópnum, 1.
flokki karla og kvenna og meist-
araflokkunum, en hann byrjar að
spila miðvikudaginn 1. ágúst.
Þátttakendur á Landsmóti hafa
flestir verið 301 en það var í
Keflavík í fyrra. Þátttakenda-
fjöldi á Landsmóti á Akureyri
hefur mestur orðið um 200
manns, árið 1987.
Keppendur fengu mjög gott
veður á fyrsta degi mótsins, sól
og blíðu en nokkra golu. Það var
hinn skemmtilegi kylfingur Hilm-
ar Gíslason sem sló fyrsta höggið
og var það þráðbeint og á miðja
braut eins og við mátti búast.
Bikarkeppni í frjálsum
Bikarkeppni í frjálsum íþróttum
fer fram um helgina. Keppni í 1.
deild fer fram í Mosfellsbæ og
þar eiga Norðlendingar tvö lið,
UMSE og UMSS. Keppni í 2.
deild fer fram í Aðaldal og þar
eiga Norðlendingar einnig tvö
lið, HSÞ og USAH. Keppni í 3.
deild verður í Borgarnesi og eftir
því sem Dagur kemst næst mun
aðeins eitt lið af Norðurlandi
mæta til leiks en það er Ung-
mennafélag Akureyrar.
Mikilvægir leikir
í knattspyrnunni
Margir mikilvægir leikir í knatt-
spyrnunni fara fram um helgina.
Stúlkurnar í meistaraflokki KA
eru komnar í undanúrslit í Bikar-
keppninni og þær mæta í A á KA-
velli kl. 14 á morgun. 2. flokkur
Þórs er í sömu stöðu og mæta
þeir Frömurum á Þórsvelli á
sama tíma.
ÍA-stúlkurnar leika á sunnu-
deginum gegn Þór í 1. deild
kvenna. Leikurinn fer fram á
Þórsvellinum og hefst kl. 12.00.
Á Siglufirði fer fram úrslita-
leikur í B-riðli 2. deildar kvenna
og eigast þar við lið Dalvíkur og
KS. Dalvík vann fyrri leikinn á
Dalvík 4:0. Leikurinn fer fram á
sunnudaginn og hefst kl. 17.
12. umferð Hörpudeildarinnar
lýkur í kvöld kl. 20 en þá eigast
við KA og ÍA á Akureyrarvelli.
Leikurinn er mjög mikilvægur
þar sem bæði lið eru í fallbaráttu
sem stendur. Á mánudaginn fá
svo Þórsarar ÍBV í heimsókn á
Akureyrarvöll og hefst sá leikur
kl. 20. Þetta er leikur úr 11.
umferð sem var frestað þar sem
ekki var flugfært frá Eyjum og er
hann afar mikilvægur fyrir Þórs-
ara.
Heil umferð fer fram í 2. deild
í kvöld og þá mætast KS og ÍBK
á Siglufirði, Tindastóll og
Grindavík á Sauðárkróki og Sel-
foss og Leiftur á Selfossi.
Leikirnir hefjast kl. 20.
í 3. deildinni hófst 11. umferð
með ieik Dalvíkur og Bí í
gærkvöld. Á morgun eigast við
Einherji og Þróttur R., Reynir og
ÍK og TBA og Völsungur.
Leikirnir hefjast kl. 14.
Boltinn rúllar líka í 4. deild-
inni. í D-riðli mætast Þrymur og
Neisti og Geislinn og Kormákur
á morgun kl. 14. í E-riðlinum
mætast Magni og SM í kvöld kl.
20 og á morgun kl. 14 eigast við
UMSE-b og HSÞ-b og Austri og
Narfi.
Hörpudeild
Úrslit í gærkvöld:
Fram-Þór 1:0
ÍBV-KR 2:2
Stjarnan-FH 0:1
Valur
KR
Fram
ÍBV
FH
Víkingur
Stjarnan
KA
ÍA
Þór
11 8-1-2 19:10 25
12 7-2-3 18:12 23
12 7-1-4 23:10 22
11 5-4-2 18:19 19
12 5-1-6 16:18 16
11 3-6-2 12:11 15
12 4-2-6 14:17 14
11 3-1-7 12:15 10
112-2-7 12:21 8
112-2-7 6:16 8
Dalvík vann BI
Einn leikur var í 3. deild í
gærkvöld. Dalvíkingar fengu BÍ í
heimsókn og sigruðu 3:0. Guðjón
Antóníusson, Sverrir Björgvins-
son og Ágúst Sigurðsson skoruðu
mörkin.
NM drengja í knattspyrnu:
íslendingar byrja
gegn Englendingum
Þrír Norðlendingar eru í
drengjalandsliði íslands í
knattspyrnu, skipuðu leik-
mönnum 16 ára og yngri, sem
tekur þátt í Norðurlandamót-
inu sem hefst í Finnlandi á
nrorgun og lýkur laugardaginn
4. ágúst. Þetta eru þeir Brynj-
ólfur Sveinsson, KA, Guð-
mundur Benediktsson, Þór, og
Dalvíkurinn Sigurbjörn Hreið-
arsson.
Þrjár Norðurlandaþjóðir, auk
íslands, eiga lið í mótinu,
Svíþjóð, Danmörk og Noregur.
Þá munu Englendingar og Frakk-
ar einnig senda þangað lið.
íslendingar leika við Englend-
inga á morgun, Frakka á sunnu-
dag, Dani á þriðjudag, Svía á
miðvikudag og loks Noreg á
föstudag.
Bílasala • Bílaskipti
Vantar notaða bUa í nýjan,
glœsilegan sýningarsal
okkar við Hvannavelli
RlLflSAlfWW
Möldursf.
BÍIASAIA
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.