Dagur - 27.07.1990, Síða 12

Dagur - 27.07.1990, Síða 12
Fjölbreytt kaffihlaðborð alla sunnudaga frá kl. 15-17. Hægt aÖ sitja úti ef veÖur leyfir. Áætlunarstaðir flugfélaga á Norðurlandi: Sætanýting í meðaflagi í sumar - stöðugt minnkandi til Blönduóss hjá Arnarflugi Samkvæmt upplýsingum frá flugfélögum sem stunda áætl- unarferðir til og frá stöðum á Norðurlandi hefur sætanýting í flestum tilfellum í sumar verið í ágætu meðallagi, hvorki betri né verri en árið áður. Þetta má segja að gildi um öll þau flug- félög sem haft var samband við, þ.e. Flugleiðir, Flugfélag Norðurlands og Arnarflug. Hjá FN var það að frétta að ágætlega hafi gengið það sem af er sumri. Sætanýting hefur verið svipuð og í fyrra og engin flugleið sem sker sig þar úr. „Ef eitthvað er þá er sætanýtingin ívið verri í ár, en árið í fyrra var gott ár hjá okkur, þannig að þetta er í með- allagi hjá okkur,“ sagði starfs- maður FN í samtali við blaðið. Mikið hefur verið að gera í leiguflugi hjá FN, jafnvel meira en nokkru sinni. Arnarflug flýgur til Blönduóss og Siglufjarðar frá Reykjavík og hefur sætanýting til Siglufjarð- ar verið góð í sumar. Sæta- nýtingin til Blönduóss hefur stöðugt farið minnkandi og er komin niður í um 30 prósent. Arnarflug flýgur daglega til Siglufjarðar og hefur sætanýting- in verið í kringum 55%. Arnar- flug hefur tekið nýja Dornier-vél í notkun og styttir það flugleiðina Reykjavík-Siglufjörður um rúm- ar 20 mínútur, tekur nú um 45 mínútur í stað 65 áður með Twin-Otter vélum. Hjá Flugleiðum hefur sætanýt- ing til og frá Akureyri verið vel í meðallagi í sumar og sagði Gunn- ar Oddur Sigurðsson að aukning hafi verið á erlendum ferða- mönnum en eitthvað minna um íslendinga í loftinu. Sætanýting hjá Flugleiðum til Húsavíkur hef- ur verið nokkuð góð í sumar, sér- staklega eftir að hlýindin byrj- uðu, þegar ferðamenn tóku að streyma austur. Eftir mikla aukn- ingu á flugi til Sauðárkróks sl. háfíð á Leiruvegi og Veganesli á morgun laugardag ESSO Veganesti kl. 11-14 Kynnum RC Cola Allir fá dós af RC Cola og skyggni Stóra útigrillið í gangi: Kjötiðnaðarstöðin kynnir nýjar rækjupylsur í ferðalagið og grillveisluna Kynningarverö á staðnum 10% afslóltur af sumarhúsum og garðverkfœrum ó meðan ó hótíðinni stendur. ESSO Leiruvegi kl. 14-18 Stóra RC Cola dósin á lofti Stóra grillið í gangi Kynningarverð á nýju rækjupylsunum Hjólamarkaður 10-25% afsláttur af hjólum fyrir alla fjölskylduna. Sýnum 5 gerðir af gasgrillum og veitum 10% afslátt af Royal Oak grillkolum Drekkið RC Cola og gerið góð kaup í stórum pakkningum fyllið geymsluna, búrið og sumarbústaðinn Cola NESTIN vetur datt nýtingin nokkuð niður í sumar og hefur verið dræm. -bjb Vaglaskógur: Mikið tjaldað að undanfómu - opið um verslunar- mannahelgina Eftir að kuldakastið sem gekk yfir Norðurland kvaddi, hefur aðsókn ferðamanna að tjald- stæðunum í Vaglaskógi aukist mikið. Mikið hefur verið af tjöldum í skóginum síðustu tvær helgar og óvenjumikið á virkum dögum. Sigurður Skúlason, skógar- vörður, segir að 50-200 tjöld hafi verið í skóginum um nætur undanfarið og mun fleiri virka daga en í fyrra. Óhagstæð veður- skilyrði framan af sumri, og dræm aðsókn sökum þeirra, geri það samt að verkum að ekki næð- ist sami fjöldi yfir sumarið og í fyrra. Törnin undanfarið hafi þó verið góð og vonaðist Sigurður til, að hún stæði fram yfir mán- aðamót. Um verslunarmannahelgina verða tjaldsvæðin í Vaglaskógi opin eins og aðrar helgar. Engar skipulagðar uppákomur verða þó í skóginum þessa margumræddu helgi en öllum er velkomið að tjalda, svo lengi sem landrými leyfir. Að sögn Sigurðar verður reynt að skipta svæðinu og afmarka fjölskyldusvæði og mun fjölskyldufólk væntanlega geta verið í ró og næði fyrir þeim sem vilja frekar hafa fjör í kringum sig. -vs I loftbelg. Mynd: IM Ferðamálaár Evrópu 1990: Loftbelgsflug við Mývatn Rétt fyrir miðnætti á þriðju- dagskvöldið sveif 20 metra hár loftbelgur, með 1950 m3 af heitu lofti í belgnum og þrjá karla í körfu, upp frá bökkum Mývatns. Loftbelgurinn var um klukku- tíma á lofti og lenti skammt frá veginum að Kröflu. Ferð þessi var farin til að vekja athygli á Ferðamálaári Evrópu 1990, en í sumar eru tveir hópar lofbelgja- flugmanna á ferð um Evrópu og munu þeir fljúga belgjum sínum á 29 stöðum í 18 löndum í tilefni Ferðamálaársins. Það varð átta tíma bið á því að hentug skilyrði sköpuðust til loft- belgjaflugs í Mývatssveit á þriðjudaginn, ekki vegna skorts á lofti í sveitinni heldur vegna of mikils aðstreymis þess í formi golu. En það lygndi um Iágnættið og síðar birtir Dagur fleiri myndir og segir frá þessu fyrsta loft- belgsflugi við Mývatn. IM Fyrstu greiðslu vaxtabóta af íbúðaröflun flýtt: Bætumar koma um mánaðamótin Fjármálaráðherra hcfur ákveðið að vaxtabætur verði greiddar út 1. ágúst, á sama tíma og húsnæðisbætur og barnabætur, þótt lög heimili að draga greiðslur til 1. sept- ember. Vinna við útreikning og frágang vaxtabótanna hefur gengið betur en áætlað var og var því ákveðið að greiða þær út á sama tíma og aðrar bætur, þrátt fyrir nokkurt vaxtatap ríkissjóðs af þeim sökum. Vaxtabæturnar voru ákveðnar með lögum í fyrra í tengslum við upptöku húsbréfakerfisins og greiðast þeim sem byggja eða kaupa íbúðarhúsnæði í fyrsta Hrossarækt: Krístni hafiiað á héraðssýningu Héraðssýning á kynbótahross- um verður á Vindheimamelum um verslunarmannahelgina eins og undanfarin ár og hefur Dagur öruggar heimildir fyrir því að hrossaræktendur í Skagafirði hafi farið fram á það við Búnaðarfélag Islands að tilnefna oddamann dóm- nefndar, en hafna Kristni Hugasyni sem dómara eða starfsmanni dómnefndar. Eftir því sem heimildamaður Dags hermir voru hrossarækt- endur í Skagafirði upphaflega að hugsa um að hætta við héraðssýn- ingu vegna þeirrar reynslu sem þeir fengu af dómurum í vor. Fundur var haldinn um málið og samþykkt að hafa héraðssýningu, en óska jafnframt eftir því við Búnaðarfélagið að tilnefna Krist- in Hugason hvorki sem dómara né starfsmann dómnefndar. SBG sinn. Þær miðast við hverja fjöl- skyldu, eru tekju- og eignatengd- ar og eiga því að stuðla að jöfn- uði í þjóðfélaginu. Eldri hús- næðisbætur voru hins vegar föst upphæð á hvern einstakling í sex ár. Þeir sem hafa fengið greiðslur úr því kerfi, geta valið um hvort þeir halda sig við það eða skipta yfir í það nýja. Vaxtabæturnar fyrir yfirstand- andi ár nema um 1,4 milljarði króna og munu um 10 þúsund hjón, rúmlega 1500 einstæðir for- eldrar og tæplega 3.500 ein- hleypingar njóta þeirra. Meðal- bætur hjóna eru um 100.000 krónur, einstæðra foreldra um 80 þúsund og einhleypinga um 60 þúsund. Bæturnar geta þó ekki orðið hærri en 174 þúsund til hjóna, 140 þúsund til fjölskyldu einstæðs foreldris og 107 þúsund til einhleypings. Framlög til þessa nýja vaxta- bótakerfis eru um 20% hærri að raungildi miðað við vaxtaafslátt og húsnæðisbætur samanlagt í fyrra. -vs

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.