Dagur - 10.08.1990, Page 1

Dagur - 10.08.1990, Page 1
73. árgangur Akureyri, föstudagur 10. ágúst 1990 151. tölublað Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Ðansað í lauginni. Mynd: Golli Óánægja meðal sjómanna ÚA: Kreljast hækkunar á flskverði - tveir undirskriftarlistar komnir og a.m.k. tveir eru á leiðinni Áhafnir tveggja togara Út- gerðarfélags Akureyringa hafa sent framkvæmdastjórum og stjórn félagsins bréf þar sem kraflst er „skjótra og réttlátra leiðréttinga“ á því misræmi sem þeir telja að sé varðandi skiptaverð hjá félaginu. Allir áhafnarmeðlimir skrifa nöfn sín undir bréfin. Von er á bréf- um frá a.m.k. tveimur áhöfn- um til viðbótar. í bréfinu sem áhafnir Harð- baks og Kaldbaks hafa sent, er vitnað í skýrslu LÍÚ um aflaverð- mæti skipa fyrstu fjóra mánuði ársins, þar sem fram kemur að skiptaverðið sé talsvert lægra en meðalskiptaverð allra ísfiskskipa á landinu. Hvað Kaldbak varðar er þessi munur 10,34 krónur á kíló, segir í bréfinu. „Þykir okk- ur þetta afar ranglátt og förum fram á hækkun á fiskverði. Ósk- um vér skjótra og réttlátra leið- réttinga á þessu misræmi, án þess að aðgerða af okkar hálfu sé þörf,“ segir síðan í bréfinu frá áhöfn Kaldbaks. Aliir skipverjar á togurunum tveimur skrifa undir bréfin og vitað er að áhafnir Sval- baks og Hrímbaks íhuga að senda sams konar bréf. „Það er auðvitað alveg óviðun- andi að svona sterkt og gott fyrir- tæki sjái sér ekki fært að greiða sjómönnum sínum nema það allra lægsta,“ sagði Sveinn Hjálmarsson skipstjóri á Kald- baki í samtali við Dag. í sama streng tók Sæntundur Friðriksson 1. stýrimaður á Hrímbaki. „Við eigum ekkert að líða fyrir það að búa á Akureyri og fá þess vegna miklu lægra fiskverð en nánast allir aðrir,“ sagði hann. Óánægja hefur lengi verið meðal sjómanna hjá Útgerðarfé- laginu vegna fiskverðs. Frá ára- mótum hefur verið rætt um að gera eitthvað í málunum en það hefur dregist. Ein ástæðan er að menn vildu bíða eftir skýrslu LÍÚ en að sögn Sæmundar hafði það einnig slænt áhrif á menn þegar einn forsvarsmanna Útgerðarfé- lagsins lýsti því yfir opinberlega að hann hefði ekki orðið var við óánægju meðal sjómanna félags- ins. „Ég held að það séu allir jafnóánægðir," segir Sæmundur. Vilhelm Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélagsins sagði að forráðamenn félagsins væru alltaf tilbúnir til viðræðna en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Pétur Bjarnason stjórn- arformaður hafði ekki fengið bréfið í hendur og taldi því ekki rétt að tjá sig um málið. ET Steinullarverksmiðj an: Hagnaður í fyrsta sinn Steinullarverksmiðjan á Sauö- árkróki sýndi í fyrsta sinn hagnað á uppgjörstíinabili, þegar sex fyrstu mánuðir þessa árs voru skoðaðir. Einar Ein- arsson, framkvæmdastjóri, Norðlenskt skiptaverð lægra en annars staðar: Samstaða meðal togarasjómanna um aðgerðir - ákvörðunar verðlagsráðs beðið með eftirvæntingu Sú óánægja sem nú er komin í Ijós meðal sjómanna hjá Útgerðarfélagi Akureyringa, er ekkert sem bara á við þá. Mikillar óánægju gætir meðal áhafna allra þeirra togara sem selja físk á verðlagsráðsverði eða þar um bil, og virðist sem samstaða sé að nást um að- gerðir til að krefjast hækkaðs verðs. mörgum norðlenskum skipum. Að sögn Vigfúsar Jóhannes- sonar skipstjóra á Björgvin EA frá Dalvík eru menn búnir að fá sig fullsadda á því að horfa upp á þann mikla mun sem er á því skiptaverði sem gengur og gerist hjá norðlenskum ísfisktogurum annars vegar og togurum annars staðar á landinu hins vegar. Vig- fús telur að talsverð samstaða sé um það meðal sjómannanna að krefjast leiðréttinga og aðgerðir Akureyringanna séu bara það fyrsta. „Við viljum engan hasar og við erum heldur ekki að krefjast þess að fá toppverð. Við erum hins vegar að athuga það gaumgæfi- lega nú með hvaða hætti við get- um náð fram rétti okkar,“ segir Vigfús. Hann segir að sjómenn bíði þess nú með mikili eftirvænt- ingu að verðlagsráð komi saman og nýtt fiskverð liggi fyrir 1. des- ember. „Við viljum varla trúa því að fulltrúar sjómanna og útgerð- armanna standi að því aftur að ákveða fiskverð sem er helmingi lægra en markaðsverð. Við ætl- um hins vegar að láta reyna á það áður en við gerum nokkuð í mál- inu,“ segir Vigfús. ET segir ástæðuna fyrst og fremst vera stöðugt gengi íslensku krónunnar og hagstæða þróun erlendra gjaldmiðla. Sala verksmiðjunnar janúur- júní á innanlandsmarkaði var svipuð og í fyrra, um 1300 tonn. A erlendum markaði var hins- vegar nokkur aukning miðað viö síðasta ár og seldust núna 1000 tonn úr landi á þessum sex mán- uöum. Niðurstöðutala þessara mánaðanna sýndi 26 milljón króna hagnað og ntiöað við sarna áframhald verður þetta fyrsta árið sem verksmiðjan skilar hagnaði. Einar segir að þess beri þó að gæta að hinar stóru sveitlur sem eru í íslensku efnahagslífi geri það að verkum að erfitt sé aö horfa á stutt tímabil, jafnvel heilt ár. Um mánaðamótin maí-júní var byrjað á þrískiptum vöktum í verksmiðjunni og aö sögn Einars hefur það gefið góða raun og framleiðslan aukist. SBG Að sögn sjómanna sem rætt hefur verið við, eru norðlenskir togarar að verða í algjörum sér- flokki hvað varðar skiptaverð, eftir að útgerðir og sjómenn á Vestfjörðum náðu samkomulagi sem tryggir sjómönnum hærri hlut. Gífurlegrar óánægju gætir vegna þessa máls meðal áhafna á Ástand öryggismála í landbúnaði: Læra menn ekki af reynslunni? Starfsmenn Vinnueftirlits rík- isins á Akureyri eru nýlega byrjaðir í árlegu eftirliti með landbúnaðartækjum í nokkr- Silfurstjarnan hf. í Öxarfirði: Samnmgar um sölu á eldisbleikju í höfii - verðið er gott segir Björn Benediktsson í Sandfellshaga Eins og sagt var frá í blaðinu í gær var gengið frá samningum um sölu á eldisbleikju frá Silf- urstjörnunni í Öxarfírði til Caviar Petrossian A.S. í Frakklandi. „Áhugi Frakka á bleikjunni byggist helst á því að fólk er orðið meðvitað um þá sjúkdóma sem hrjá laxaeldi í nær flestum löndum og eins er þeim kunnugt um hve vatn- ið er gott sem við notum til eldisins. Bleikjan er fískur norðurhafanna og þeir sjá hreinleikann í henni sem þeir sjá ekki í laxinum,“ sagði Björn Benediktsson hjá Silf- urstjörnunni. „Bleikjan hjá okkur er ekki nema á öðru kílóinu, en Petrossi- an setur harðar stærðarkröfur og miðar við tvö kíló. Því er ákveðið að hefja nú strax á haustdögum, í september og október, markaðs- kynningu í Frakklandi og í New York meðan fiskurinn er að ná stærð. Upplýsingar um vöxt bleikjunnar verða sendar mánað- arlega til Frakklands, en samn- ingar eru um að þeir fá hana þeg- ar hún hefur náð réttum þunga og stærð og verðið er gott,“ sagði Björn. ój um hreppum í þeirra umdæmi, þ.e. Norðurlandi eystra. Farið er í fjóra hreppa að þessu sinni og að sögn Helga Haraldsson- ar, eftirlitsmanns, er ástand vélbúnaðar á nokkrum bæjum mjög slæmt og svipaða sögu er að segja víða hérlendis. Helgi sagði að vélbúnaður til sveita þyrftu að vera undir árlegu eftirliti, líkt og vélar í öðrum fyrirtækjum, en mannfæð hjá Vinnueftirlitinu kæmi í veg fyrir svo stöðugt eftirlit. í sumar verða þrír hreppar teknir fyrir í Þing- eyjarsýslu, Hálshreppur, Bárð- dælahreppur og Ljósavatns- hreppur, og um þessar mundir stendur yfir eftirlit í Saurbæjar- hreppi í Eyjafirði. Helgi sagði að ástandið væri misjafnt hjá bændum, en víða allt of slæmt varðandi öryggisbúnað vélanna. Vinnueftirlitið hefur aðallega með skoðun dráttarvéla að gera og öryggisbúnaðar þeirra, og síðan eftirlit með öll- um driftengdum heyvinnsluvél- um. Helgi sagði að algengast væri að öryggis- og veltigrindur vant- aði á dráttarvélarnar og hlífar yfir drifsköftin. En notkun á grindarlausum vélum er bönnuð. „Þau alvarlegu slys sem hafa orð- ið til sveita síðustu misseri virðast ekki hafa næg áhrif á menn. Það er eins og þurfi eitthvað annað og meira til að bændur taki sig sam- an í andlitinu og komi sínum vél- um í lag,“ sagði Helgi. Á síðasta ári var stefnt á að skoða 700 býli á landinu og tókst þá að skoða 572 þeirra. I ár er ætlunin að skoða 1000 býli og sagðist Helgi gera ráð fyrir að um 140 býli verði skoðuð á Norður- landi eystra. -bjb

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.