Dagur - 10.08.1990, Blaðsíða 11

Dagur - 10.08.1990, Blaðsíða 11
 Föstudagur 10. ágúst 1990 - DAGUR - 11 4. ílokkur - undanúrslit: Matthías skoraði tíu gegn Gróttu - í 16:1 sigri KA KA-menn byrjuðu undanúr- slitin í 4. flokki karla giæsilega þegar þeir unnu Gróttu með hvorki meira né minna en sext- án mörkum gegn einu á Akur- eyri í fyrradag. Miðvallarleik- maðurinn efnilegi í KA-liðinu, íþróttir Knattspyrna Föstudagur 2. deild: Tindastóll-Leiftur kl. 19 Selfoss-KS kl. 19 3. deild: Völsungur-Þróttur R. kl. 19 4. dcild E: HSP b-Narfi kl. 19 Laugardagur 2. deild kvenna: Völsungur-KS kl. 14 3. deild: Dalvík-Próttur N. kl. 14 TBA-BI' kl. 14 Einherji-Reynir Á. kl. 14 4. deild D: Prymur-Geislinn kl. 14 Hvöt-Kormákur kl. 14 4. deild E: SM-UMSEb kl. 14 Magni-Austri kl. 14 2. flokkur A: UBK-Þór kl. 17 2. flokkur B: Hveragerði-Völsungur kl. 14 Sunnudagur 1. dcild: KR-Þór kl. 16 KA-Fram kl. 19 2. deild kvenna: Sindri-Einherji kl. 14 2. flokkur A: Fram-Þór kl. 14 2. flokkur B: KR-Völsungur kl. 14 2. flokkur C: KS-Snæfell kl. 14 Mánudagur 1. deild kvenna: KA-Þór kl. 19 2. deild: Leiftur-UBK kl. 19 ÍBK-Tindastóll kl. 19 KS-Fylkir kl. 19 Að auki fara fram um helgina undanúrslit í 3., 4. og 5. flokki karla og úrslit f 2. og 3. flokki kvenna. Undanúrslitin í 4. flokki karla fara fram á Menntaskólavellinum og Þórs- vellinum á Akureyri. Golf Laugardagur Sveitakeppni GSÍ, L, 2. og 3. deild í Grafarholti, Hafnar- firði og Borgarnesi. Opna KEA-mótið í Ólafsfirði. Sunnudagur Sveitakeppni GSÍ (frh.). Opna KEA-mótið (frh.). Olís-mótið á Skagaströnd, 18 holur. Handknattleikur Föstudagur Haukar-Þór kl. 20 Laugardagur Grótta-Þór kl. 14 Matthías Stefánsson, gerði sér lítið fyrir og skoraði tíu mörk í leiknum. Sama dag gerðu Austri og Þór V. jafntefli, 1:1, en Breiðablik, sem er flmmta liðið í undanúrslitunum, sat hjá. Úrslitin í leik KA og Gróttu segja allt sem segja þarf, yfir- burðir KA-manna voru ótrúlegir. Eins og fyrr segir skoraði Matt- hías tíu mörk, Þórhalllur Hin- riksson skoraði þrjú og Óli Björn Ólafsson, Gauti Reynisson og Markús Högnason eitt hver. „Þetta var mjöggaman en ger- ist nú ekki oft. Áður hafði ég mest skorað fjögur mörk í einum leik," sagði Matthías Stefánsson í samtali við Dag. Hann hefur æft knattspyrnu frá sex ára aldri og alltaf með KA. Það sem vekur kannski mesta athygli við þetta afrek hans er að hann leikur á miðjunni en ekki í fremstu víg- línu. En hvað segja sóknar- mennirnir við þessu? „Þeir segja nú lítið. Ég held að þeir hafi bara verið ánægðir með þetta,“ sagði Matthías. Hann sagðist hafa talið mörkin og vitað hvað hann hafði skoraði mörg þegar flautað var til leiksloka. Þess má geta að staðan í leikhléi var 5:0 og hafði Matthías þá skorað fjögur. KA-liðið sat hjá í gær en í dag mætir liðið Austra kl. 18, á morg- un Breiðabliki kl. 10 og á sunnu- daginn Þór V. kl. 11.15. Allir leikirnir fara fram á Mennta- skólavellinum. Þórsarar sækja hér að niarki UBK en markvörðurinn horfir á eftir boltanum afturfyrir. Mynd: jhb 1. deild kvenna: Breiðablik sigraði Þór í jöfnum leik Matthías Stefánsson var í miklum ham gegn Gróttu. Mynd: jhb Breiðablik sigraöi Þór 1:0 í 1. deild kvenna á Þórsvellinum í Þorvaldur skoraði þrjú í Svíþjóð Þorvaldur Örlygsson hefur byrjað vel með liði sínu, Nott- ingham Forest, eftir sumarfrí- ið. Forest lauk nýlega viku keppnisferð um Svíþjóð þar sem liðið spilaði fimm leiki og var Þorvaldur í byrjunarliðinu í fjórum leikjum og skoraði þrjú mörk í þeim. Forest var með alla sína bestu menn í ferðinni nema í fyrsta leiknum en þá voru landsliðs- mennirnir ókomnir úr fríi. Þor- valdur lék vel í leikjununt fjórum og ekki spilltu mörkin þrjú fyrir. í gær átti Forest að spila góð- gerðarleik í London en um helg- ina fer liðið til Ítalíu þar sem það tekur þátt í sterku fimm liða móti. Meðal liða sem taka þátt eru þrjú ítölsk 1. deildarlið og er eitt af þeim hið geysisterka lið Napolí sem knattspyrnugoðið Maradona leikur með. Hörpudeildin af stað - KA-Fram og KR-Pór á sunnudag Hörpudeildin fer af stað um helgina eftir stutt hlé. KA- menn fá bikarmeistara Fram í heimsókn á Akureyrarvöll á sunnudaginn kl. 19 og sama dag kl. 16 leika KR og Þór í Reykjavík. Dagur spjallaði við Nóa Björnsson, fyrirliða Þórs, og Hauk Bragason, markvörð KA, en hann lék áður með Frömurum. „Þetta veröur örúgglega mikill baráttuleikur. Við mætum endur- nærðir til leiks eftir fríið og ætl- um okkur að hefna fyrir útreiðina sem við fengum hjá Frömurum í fyrri leiknum," sagði Haukur. „Nú er hver leikur úrslitaleikur og Framararnir verða grimmir því þeir eigá möguleika. En þetta er allt á réttri leið hjá okkur, Ormarr verður væntanlega með og það er feykilegur styrkur fyrir okkur. Ég vil ekki spá um tölur en ég er klár á að við vinnum." „Þetta hlýtur að fara að ganga upp hjá okkur. Það er nú eða aldrei," sagöi Nói. „Næstu tveir til þrír leikir hafa gífurlega þýð- ingu. Ef við fáum ekki þrjú til fjögur stig úr næstu leikjum held ég að megi afskrifa okkur. Við höfum unnið KR í Reykjavík og nú leggjum við allt í sölurnar. Þeir rændu af okkur sigrinum í fyrri umferðinni og við ætlum að bæta fyrir það. Við höfum hins vegar ekki skoraði í fimm leikj- um í röð og það þarf að breyt- ast,“ sagði Nói Björnsson. fyrrakvöld. Leikurinn var mjög jafn en Blikastúlkurnar náðu aö skora eina mark leiks- ins í síöari hálfleik þegar Asta María Reynisdóttir braust upp kantinn og renndi undir mark- vörð Þórs. Blikarnir fengu reyndar annað dauðafæri í seinni hálfleiknum sem fór forgörðum. Þórsarar fengu einnig sín færi, það besta þegar Soffía Frímannsdóttir komst ein innfyrir vörn Breiða- bliks en Blikar náðu að bjarga á síðustu stundu. Sigurmarkið var skorað þegar um 15 mínútur voru til leiksloka. Þess má geta að Sigurði Páls- syni, þjálfara Þórs, var vísað af svæðinu í fyrri hálfleik eftir að hann hafði gert heldur hressileg- ar athugasemdir við dómgæsluna og verður hann því í banni í næsta leik. Handknattleikur: „Gerum okkar besta“ - segir Jan Larsen um aukakeppnina sem hefst um helgina Nú uin helgina hefst auka- keppni fjögurra liða um tvö 1. deildarsæti í handknattleik. Þórsarar eru eitt af þessum lið- um en hin þrjú eru Haukar, Grótta og HK. Þórsarar leika gegn Haukum í Hafnarfirði í kvöld og Gróttu á Seltjarnar- nesi á niorgun. „Við gerum okkar besta í þess- ari keppni. Þetta kemur á heldur óheppilegum tíma fyrir okkur, eitthvað af mannskapnum kemst ekki í keppnina þar sem hann er í fótbolta og við höfum lítinn tíma haft til undirbúnings," sagði Jan Larsen, þjálfari Þórs. „Þessi leikir verða mikilvægir fyrir okkur, við fáum dýrmæta reynslu úr þeim sem ætti að vera búin að skila sér þegar mótið hefst í haust. Ég þekki ekkert til hinna liðanna og get því ekkert sagt til um möguleika okkar en við mun- um berjast og reyna að spila góð- an handbolta og svo sjáum við hvað kemur út úr því,“ sagði Jan Larsen. 4. deild E: Dýraiæt stig til HSÞ-b eftir sigur á UMSE-b - HSÞ-b einu stigi á eftir toppliði Magna HSÞ-b hlaut þrjú dýrmæt stig í toppbaráttunni í E-riðli 4. deildar þegar liðið sigraði UMSE-b 3:1 á heimavelli þeirra síðarnefndu á miðviku- dagskvöldið. UMSE-b réði gangi leiksins lengst af en tvö mörk HSÞ-b á upphafsmínút- um leiksins gerðu útslagið. HSÞ-b er í öðru sæti riðilsins, stigi á eftir Magna, en UMSE- b er í þriðja sæti, fímm stigum á eftir HSÞ-b. Þegar fimm mínútur voru liðn- ar var staðan orðin 2:0 fyrir HSÞ- b. Viðar Sigurjónsson náði for- ystunni og Pálnti Steinar Skúla- son bætti öðru marki við strax á eftir. UMSE-b lék á móti nokk- urri golu en sótti samt stíft í fyrri hálfleik en án árangurs. Að vísu fékk liðið vítaspyrnu þegar um 15 mínútur voru til hlés en Haukur Grettisson skaut í stöng. í seinni hálfleik jafnaðist leikurinn en UMSE-b sótti þó áfram heldur meira. Þrátt fyrir það skoraði Ari Hallgrímsson fyrir HSÞ-b áður en Ásgrímur Reisenhaus minnkaði muninn fyrir UMSE-b. 2. flokkur A: Stjaman sigraði KA Stjurnan sigraöi KA 1:0 í 2. flokki á Akureyri í fyrrakvöld. KA-menn voru heldur sterkari þegar á heildina er litið en fengu á sig klaufainark í fyrri hálfleik og náðu ekki að svara fyrir sig. Fyrri hálfleikur var góður hjá KA-liðinu og var það sterkari aðilinn. Þeir fengu ágæt mark- tækifæri en það voru þó Stjörnu- menn sem skoruðu eina markið þegar sóknarmaður þeirra plat- aði bæði varnar- og markmann KA langt úti í teig og renndi í markið. Leikurinn jafnaðist í síðari hálfleik en þá náði hvorugt liðið sér á strik. 2. flokkur C: Markalaust hjáKS og Fylki KS og Fylkir gerðu markalaust jafntefli í C-riðli 2. flokks á Siglufírði í fyrrakvöld. Úrslitin voru sanngjörn þegar á heildina er litið. Éylkismenn voru meira með boltann og fengu vítaspyrnu sem Magnús Benónýs- son, markvörður KS, varði. Önn- ur hættuleg færi komu í hlut KS en sóknarmenn liðsins fengu fjögur til fimm dauðafæri sem ekki nýttust.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.