Dagur - 10.08.1990, Blaðsíða 5

Dagur - 10.08.1990, Blaðsíða 5
Föstudagur 10. ágúst 1990 - DAGUR - 5 hvað er að gerast KFUM og K: Kaffisala að Hólavatni - sunnudaginn 12. ágúst fyrir vel heppnaba veislu Sumarstarfi K.F.U.M. og K. lýk- ur með kaffisölu að Hólavatni næstkomandi sunnudag. Kaffisal- an er liður í fjáröflun fyrir sumar- búðir félaganna og er því mikil- vægur þáttur í starfi þeirra. Kaffi- salan veitir einnig velunnurum starfsins og öðrum kjörið tæki- færi til að koma að Hólavatni, skoða sumarbúðirnar sem eru í mjög fallegu umhverfi, hittast og talast við yfir kaffibolla. Sumarbúðir K.F.U.M. og K. voru vígðar fyrir tuttugu og fimm árum, þann 20. júní 1965. Séra Bjarni Jónsson, þáverandi vígslu- biskup, framkvæmdi vígsluna við Grafíklistamenn og listprentstofur - frönsk farandsýning í Myndlistaskólanum Laugardaginn 11. ágúst kl. 14 verður opnuð í Myndlistaskólan- um á Akureyri við Kaupvangs- stræti, sýning á grafíkverkum eft- ir 26 þekkta listamenn sem eiga það sameiginlegt að hafa unnið verk sín á frönskum listprentstof- um. Á sýningunni verða kynntar ólíkar grafískar aðferðir og fjöl- breytt vinnubrögð sem viðhöfð eru á listprentstofum. Að sýningunni standa Mynd- listaskólinn á Akureyri og sendi- ráð Frakklands, en erlendir styrkt- araðilar eru utanríkisráðuneyti Frakklands og frönsk samtök til eflingar lista („L’Association fra- ncais d’Action Artitique"). Sýningin verður opin daglega kl. 14-17 og lýkur 2. september. Skákfélag Akureyrar: 15 mmútna skákmót Skákfélag Akureyrar heldur 15 mínútna skákmót næstkomandi sunnudag kl. 14.00 í skákheimil- inu Þingvallastræti 18, og verða tefldar 7 umferðir eftir Monrad- kerfi. Segja má að þetta mót sé öðr- um þræði eins kona æfing, en að viku liðinni verður haldið hér á Akureyri Islandsmót í atskák og það fer einnig fram að Þingvalla- stræti 18. í atskák er umhugsun- artími 30 mínútur. Jordan skórnir eru komnir norður yfir heiðar ★ Hafa slegið öll sölumet í USA ★ Lítið fyrst við hjá okkur — það gæti borgað sig Opið kl. 9.30 til 18.00 - Laugard. kl. 10.30 til 12.30. Sportbúðin Strandgötu 6 • Akureyri • Sími 27771 H hátíðlega athöfn að Hólavatni. Að sögn Jóns Oddgeirs Guð- mundssonar, eins af forsvars- mönnum K.F.U.M., liafa þús- undir drengja og stúlkna dvalið þar þessi tuttugu og fimm ár. Margir eigi góðar endurminning- ar og þakki Guði fyrir að hafa fengið að dvelja þar við leik, íþróttir og holla útiveru. Jón Oddgeir sagði að mikil hand- leiðsla og blessun Drottins hefði fylgt starfinu og engin teljandi óhöpp eða slys orðið að Hóla- vatni öll þessi ár. Þórey Sigurðardóttir hefur starfað lengst við sumarbúðirnar en hún hefir verið ráðskona þar öll sumur utan það fyrsta og einn- ig oft starfað sem foringi stúlkna- hópa. Björgvin Jörgenson, kenn- ari var starfsmaður sumarbúð- anna frá upphafi en lét af störfum síðasta sumar og tók Sigfús Ingva- son, guðfræðinemi, þá við starfi hans og hefur verið sumarbúða- stjóri síðastliðin tvö sumur. Aðsókn að búðunum hefur að jafnaði verið góð en síðustu tvö árin dregið úr henni. Kaffisalan að Hólavatni hefur verið mjög vel sótt undanfarin ár og greinilegt er að margir líta á það sem fastan þátt að aka fram Eyjafjörðinn á sunnudagseftir- miðdegi í ágúst og fá sér kaffi að Hólavatni. Kaffisalan verður sunnudaginn 12. ágúst og hefst kl. 14.30 og stendur til kl. 18.00. HÓTEL KEA Jazztríó Ingimars Eydal leikur létta tónlist fyrir matargesti fimmtudags- og föstudagskvöld ★ Á laugardagskvöld sér Níels Ragnarsson um huggulega stemningu meö matnum ★ Á eftir sér hljómsveitin Gautar um fjörið fram eftir nóttu Nýr glæsilegur sérréttaseðill. ★ Borðapantanir fyrir matargesti í síma 22200. Að lokinni messu, þar sem sr. Sigurður Guðmundsson vígslu- biskup predikar og þjónar fyrir altari ásamt fjórum prestum úr Hólastifti, verður hátíðarsam- koma í kirkjunni. Hún hefst kl. 16.30 og boðið er upp á fjöl- breytta dagskrá þar sem m.a. verður sungið, leikið á hljóðfæri og erindi flutt. Mikið um dýrðir á Hólahátíð Að venju verður mikið um dýrðir á Hólahátíð, sem verður haldin nk. sunnudag. Hátíðin hefst með guðsþjónustu í Hóladómkirkju kl. 14. Ekki spyrja 1 + 1 = 2 Segjum frekar „Hvað varstu lengi HEILBRIGD SKYNSEMI! „Ég ók á löglegum á leiðinni ?“ hraða,og eins og Ekki segja ég vil að aðrir geri!“ „Ég var ekki... nema. mIUMFERÐAR wRÁÐ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.