Dagur - 18.08.1990, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 18. ágúst 1990
fréffir
i
íþróttahúsið
á Hrafnagili:
Arkitektar
viöurkenna
hönnunar-
gaJla
Hönnuðir nýja íþróttahússins á
Hrafnagili í Eyjafirði hafa fall-
ist á aö galli sé í hönnun húss-
ins frá þeirra hendi en ekki
hefur verið samiö um hvernig
þeir bæta eigendum hússins
skaðann. Húsið var vígt síðast-
liðið haust en í ljós hefur kom-
ið að klæðning á stafnveggjum
salarins er engan veginn nógu
traust. Styrkja þarf því klæðn-
inguna áður en regluleg starf-
semi hefst í salnum í liaust.
Strax á fyrstu starfsviku húss-
ins í haust kom í Ijós að festingar
loftljósa voru veikbyggðar og
þurfti því strax að loka húsinu til
viðgerða. Pegar á leið veturinn
kom í ljós að plötur á stafnveggj-
um í salnum sjálfum stóðust ekki
það álag að knettir lendi á þeim
af fullu afli og því var Ijóst að
stærri viðgerð þyrfti að fara fram.
Annar hönnuða hússins, Orm-
arr Þór Guðmundsson, kom fyrir
skömmu til fundar með forsvars-
mönnum sveitarfélaganna sem
byggðu íþróttahúsið og niður-
staða þess fundar var sú að um
mistök í hönnun sé að ræða en
um bætur hefur hins vegar ekki
verið samið. Viðgerð fer fram á
næstunni og á að vera lokið fyrir
miðjan september þegar húsið
verður opnað á ný. JÓH
Haltur ríður hrossi.
Mvnd: -bjb
Helgarveðrið:
Áfram súld
og svalt
- hlýnar eftir helgi
Norðlendingar losna ekki við
súldina yfir helgina en norðan-
áttin verður saklaus og á
sunnudag er búist við hægviðri
með hugsanlegum skúrum.
Eftir helgina gæti hins vegar
birt til með sunnanátt.
Á laugardag verður róleg
norðanátt með súld út við annes
og strendur en þurrt að mestu
leyti inn til landsins. Svalara
verður en undanfarna daga. hita-
stigið á milli 8 og 10 stig.
Á morgun, sunnudag, verðut
breytileg átt á landinu og skúrir
víða um land. Hægviðri verður
norðanlands og hitastig mun
haldast óbreytt. Á mánudag mun
lægð nálgast suðurströndina með
suðlægum vindi, sem kemur til
með að hlýja Norðlendingum um
hjartaræturnar. -bjb
Netadeilur í Miðfirði:
Ofomileg sáttanefnd leitar lausnar
- ólögleg net segir Tumi Tómasson hjá Veiðimálastofnun
Miðfírðingar eru nú búnir að
stofna óformlega sáttanefnd í
netadeilum þeim sem staðið
hafa yfír í héraðinu vegna sil-
ungsveiða í sjó. Hugmynd að
þessari nefnd kom frá stjórn
Átaksverkefnis V-Hún, en
Átaksverkefnið mun samt ekki
Lögreglan á Akureyri
leitar að óskoðuðum bílum:
Dæmalaus trassa-
skapur bfleigenda
Þessa dagana leitar lögreglan á
Akureyri með logandi ljósi
uppi þá bfla sem eiga að vera
skoðaðir og klippir númerin
miskunnarlaust af. A fímmtu-
dag var klippt af 8 bílum og í
gærmorgun var búið að klippa
af tveim þegar haft var sam-
band við lögreglu.
„Trassaskapurinn í fólki er
alveg dæmalaus, það virðist vera
alveg sama þó fresturinn sé orð-
inn tveir mánuðir að skoða bíl-
ana,“ sagði lögregluvarðstjóri í
samtali við blaðið, þungur á
brún.
Síðdegis á fimmtudag var
smávægilegur árekstur á mótum
Þingvallastrætis og Grundargerð-
is milli tveggja bíla. Bílarnir
skemmdust lítið og farþegar
sluppu án meiðsla. Um miðjan
dag á fimmtudag var einn öku-
maður tekinn á Akureyri með
Bakkus í framsætinu. -bjb
bera neinn kostnað af nefndar-
starfinu. Tilgangurinn er að
sögn Ólafs Óskarssonar,
aldursforseta nefndarinnar, að
reyna að fínna lausn á málinu
sem allir geta sætt sig við, svo
að þessar netadeilur þurfí ekki
að koma upp á hverju ári og
valda ósætti milli manna.
„Petta er tilraun til að kanna
hvort ekki sé hægt að ræða málin
í vetur þannig að þessi hasar
endurtaki sig ekki ár eftir ár. Það
er þó ekkert vitað um það hvort
þeir sem standa í þessum deilum
viðurkenna þennan hóp nokkuð,
en nefndin mun þá geta tekið
breytingum og stækkað, ef meiri
líkur eru á árangri með því
móti," sagði Ólafur í gær, en
fyrsti fundur nefndarinnar var
haldinn sl. fimmtudag. Hún er
skipuð sex mönnum og m.a.
Hótel Kiðagil:
Síðasta hlaðborð sumarsins
Starfsemi Hótel Kiðagils í
Bárðardal lýkur væntanlega
um næstu helgi en hótel hefur
verið starfrækt að Kiðagili um
tveggja mánaða skeið undan-
farin sumur.
Hótelstýrur í sumar eru þær
Þórhildur Þórhallsdóttir og
Henríetta Kristinsdóttir og eru
þær mjög ánægðar með aðsókn-
ina í sumar. Þetta er fyrsta
sumarið sem þær reka hótelið og
hafa því ekki samanburð við fyrri
ár, hvað aðsókn varðar, en að
sögn kunnugra var aðsókn betri
en síðasta sumar.
Hótelið hefur líka boðið upp á
kaffihlaðborð á sunnudögum sem
hefur verið vel sótt af ferðafólki
og öðrum. Á morgun, sunnudag-
inn 18. ágúst, verður einmitt síð-
asta kaffihlaðborð sumarsins og
ekki er að efa að það verður jafn
vel sótt og hin fyrri. -vs
tveimur prestum. Ólafur segir að
þetta sé hópur áhugamanna um
málið og Átaksverkefnið muni
þar ekki hafa hönd í bagga þó að
hugmyndin sé komin þaðan.
Netamálið í Miðfirði stendur
nú þannig að lögreglan á Blöndu-
ósi er með það í framhaldsrann-
sókn og verið er að ganga frá öll-
um gögnum áður en það fer suð-
ur til ríkissaksóknara, en ekki er
búið að finna eigendur að öllum
netunum. Maður frá RLR var
fenginn til að yfirheyra fólk í
sambandi við málið og Tumi
Tómasson hjá Veiðimálastofnun
skoðaði netin sem tekin voru í
vörslu lögreglu og gaf skýrslu um
þau. Tumi sagði í samtali við Dag
að ólögleg net hefðu verið innan
um í þessu sem hann skoðaði.
SBG
Körfuknattleiksdeild Þórs:
Cedric Evans kemur
í stad Relefords
Körfuknattleiksdeild Þórs hef-
ur gengiö frá ráðningu á geysi-
lega sterkum bandarískum
leikmanni, Cedric Evans að
nafni. Sá er 25 ára, 210 cm á
hæð og vegur 110 kfló. Hann er
væntanlegur til Akureyrar nk.
fímmtudag. Ekkert verður af
því að Patrick Releford,
bandaríski leikmaðurinn sem
lék með bikarmeisturum
Njarðvíkinga í fyrra, leiki með
Þór næsta keppnistímabil eins
og til stóð.
Cedric Evans er enginn aukvisi
þegar körfuboltinn er annars
vegar. Hann er frá Alabama í
Bandaríkjunum og hefur leikið
með Alabama State háskólalið-
inu. Síðasta keppnistímabil lék
hann með liði í Kólumbíu og var
að því loknu valinn besti erlendi
leikmaðurinn í kólumbíska
körfuknattleiknum.
Að sögn Kjartans Bragasonar,
formanns körfuknattleiksdeildar
Þórs, fór Sturla Örlygsson, þjálf-
ari og leikmaður Þórsara, vestur
um haf og kynnti sér leikni
Evans. Mun honum hafa vel lík-
að og talið að mikill fengur væri
af honum í raðir Þórsara.
Kjartan segir að persónulegar
ástæður hafi ráðið því að Releford
kom ekki í herbúðir Þórsara og
full eining hafi verið með stjórn
körfuknattleiksdeildar óg Rele-
ford um þá niðurstöðu.
Ljóst er að Þórsarar verða
harðir í horn að taka næsta vetur.
Liðið er komið á fullt með æfing-
ar undir stjórn Sturlu þjálfara, en
keppni í úrvalsdeildinni hefst í
október. óþh
Átak í gróðurvernd og skógrækt:
Tugþúsundir plantna í húsvíska jörð
í sumar hafa verið gróðursett-
ar rúmlega 40 þúsund plöntur í
land Húsavíkurbæjar, og um
mánaðamótin er von á 20 þús-
und plöntum til viðbótar sem
gróðursetja á að stórum hluta í
fjallið og ofan við bæinn.
Gróðursetningin er gerð í sam-
vinnu Húsgulls og Vinnuskóla
Húsavíkurbæjar en helmingur
plantnanna sem settur hefur
verið niður og þær sem eftir
eiga að koma eru fengnar frá
átaki um Landgræðsluskóga
Skógræktar ríkisins og Land-
græðslunnar. Að undanförnu
hafa unglingar í vinnuskólan-
um sáð lúpínu og grasfræi í
bæjarlandið, stungið niður
rofabörð og og borið áburð á
mela.
í fyrrasumar hófst verulegt
átak í ræktunarmálum í landi
Húsavíkurbæjar á vegum Hús-
gulls, hins nýja félags sem beitir
sér fyrir gróðurvernd og upp-
græðslu og stofnað var í fram-
haldi af hugmyndasamkeppni
Iðnþróunafélags Þingeyinga um
átaksverkefni. Settar voru niður
20 þúsund plöntur í bæjarlandið
um sumarið, auk þess sem landið
var girt af og voru þær fram-
kvæmdir á vegum bæjarins og
Landgræðslunnar. Að sögn Héð-
ins Helgasonar, garðyrkjumanns
bæjarins, koma plönturnar nokk-
uð vel undan vetri, nema þær
sem blessaðar kindurnar náðu að
taka upp aftur í fyrra. Miklir
þurrkar voru eftir gróðursetning-
una í fyrrasumar síðan kom vetur
sem var erfiður gróðri, svo Héð-
inn sagði að það væri langt fram-
ar vonum hve vel plönturnar
hefðu staðið sig og teldist útkom-
an mjög góð.
í sumar hefur verið plantað
birki, lerki, sitkagreni og víði-
græðlingum, aðallega alaskavíði.
Mestu hefur verið plantað í
fjallið, mela og illa gróið land,
við golfvöllinn austan Sprænu-
gils, frá Botnsvatni og allt að
Traðagerði og einnig í Höfðann.
Fyrir tveim árum voru gróður-
settar sex þúsund plöntur í bæjar-
landið en í sumar tífaldast sú tala
þegar sextíu þúsund plöntur
verða komnar með rætur í jörð.
Aðspurður sagði Héðinn að tvö
til þrjú ár liðu þar til færi veru-
lega að bera á plöntunum. Birkið
sem gróðursett var í fyrra hefur
vaxið vel í sumar og lerkið fer að
taka við sér næsta sumar.
Héðinn sagðist vona að rækt-
unarátakið tækist vel, samkvæmt
veðurspájn sem miðaðar eru við
sólblettakenninguna hefði sl. vet-
ur átt að vera sá versti um sinn,
og veður að fara skánandi næstu
20 árin.
Kannski það líði ekki mjög
mörg ár þar til farið verður að
tala um Húsavíkurskóg. IM