Dagur - 18.08.1990, Qupperneq 5
HESTAR
Umsjón: Kristín Linda Jónsdóttir
Hestamannafélög á
Norðurlandi
Hestamannafélög eru starfandi í flestum sveitum og bæjum landsins. Á nýliðnu
Landsmóti hestamanna á Vindheimameium í Skagafírði mættu til keppni hestamenn
frá 37 hestamannafélögum. Þar af eru 15 hestamannafélög af Norðurlandi. Auk þess
starfar eitt hestamannafélag á Norðurlandi utan vébanda Landssambands hesta-
mannafélaga og sendi því ekki keppendur á Landsmótið. Það er hestamannafélagið
Þráinn í Suður-Þingeyjarsýslu.
Þingeyjarsýsla
Hestamannafélagið Feykir starf-
ar í Norður-Þingeyjarsýslu í
Kelduneshreppi, Oxarfjarðar-
hreppi, Presthólahreppi og
Fjallahreppi. Félagið var stofnað
árið 1975 og voru stofnfélagar 27.
Nú eru félagsmenn 57 en um 370
hross eru á félagssvæðinu. For-
maður félagsins er Halldór
Gunnarsson. Hestamót félagsins
hafa verið haldin við Skúlagarð,
en verið er að byggja upp
aðstöðu inni í Ásbyrgi og vissu-
lega verður það glæsilegur móts-
staður.
Hestamannafélagið Grani er á
Húsavík. Félagsmenn eru 68 en
150-200 hross eru á svæðinu.
Hestamót félagsins fara fram á
Húsavík og Einarsstöðum í
Reykjadal. Formaður félagsins
,er Stefán Haraldsson.
Félagssvæði hestamannafélags-
ins Þjálfa er öll Suöur-Þingeyjar-
sýsla og Húsavík. í dag eru félag-
ar Þjálfa úr eftirtöldum sveitum í
Suður-Þingeyjarsýslu, Tjörnesi,
Reykjahverfi, Aðaldal, Reykja-
dal, Ljósavatnshreppi, Bárðardal
og Mývatnssveit. Félagið var
stofnað árið 1959. Félagar eru
131 og hross á svæðinu um 1200.
Keppnisvöllur félagsins er á Ein-
arsstöðum í Reykjadal. Formað-
ur Þjálfa er Ásdís Þórsdóttir
Bergsstöðum í Aðaldal.
Hestamannafélagið Þráinn í
Suður-Þingeyjarsýslu starfar á
Grenivík, Svalbarðsströnd og
Höfðahverfi. Félagar í Þráni eru
tæplega eitt hundrað, formaður
félagsins er Dóra Kristjánsdóttir.
Hestamót félagsins eru haldin að
Áshóli og á Melgerðismelum en
félagið á keppnisvelli og mann-
virki þar ásamt félögunum Létti
og Funa.
Eyjaijarðarsýsla
Hestamannafélagið Funi í Eyja-
firði var stofnað árið 1960. Stofn-
félagar voru 68 og í dag eru
félagsmenn í Funa 80. Funi á
ásamt hestamannafélögunum
Létti og Þráni keppnisvelli- og
önnur mannvirki á Melgerðis-
melum. Fórmaður Funa er Jónas
Vigfússon í Litla-Dal.
Á Akureyri og í nágrenni starf-
ar hestamannafélagið Léttir.
Félagið var stofnað árið 1928 og
er með elstu hestamannafélögum
á landinu. Stofnfélagar voru 14
en í dag eru 276 hestamenn félag-
ar í Létti. Félagið á keppnisvelli
og mannvirki á Melgerðismelum
ásamt hestamannafélögum í
Funa og Þráni. Einnig á félagið
keppnisvelli á Akureyri. Félagar
í Létti eiga nýtt og glæsilegt fé-
lagsheimili í Breiðholti sem er
annað tveggja hesthúsahverfa á
Akureyri. Nú í ár festi félagið
kaup á fimmtán hesta hesthúsi
fyrir unglinga og verður byrjað
að leigja þeim bása í húsinu í
vetur. Innan vébanda Léttis
starfa auk íþróttadeildar bæði
Kvennadeild og Unglingadeild.
Formaður Léttis er Stefán
Bjarnason.
Félagssvæði hestamanna-
félagsins Hrings er Svarfaðardal-
ur og Dalvík. F'élagið var stofnað
1962 og voru stofnfélagar 33 en í
dag eru félagsmenn 106.
Keppnisvellir félagsins eru að
Flötutungum í Svarfaðardal.
Félagar í Hring hafa fest kaup á
geysistórum loðdýraskála á jörð-
inni Ytra-Holti skammt sunnan
Dalvíkur. Þar ætla Hringsfélagar
að byggja upp hestamannapara-
dís en ætlunin er að breyta
skálanum í hesthús, reið-
skemmu, og félagsaðstöðu fyrir
hestamenn. Formaður Hrings er
Ingvi Baldvinsson.
Á Siglufirði starfar hesta-
mannafélagið Glæsir. Félagið var
stofnað 1942, stofnfélagar voru
46 og í dag eru félagar í Glæsi 49.
Keppnisvellir félagsins eru á
Siglufirði.
Hestamannafélagið Gnýfari
starfar á Ólafsfirði, það var stofn-
að árið 1969, stofnfélagar voru 12
og í dag eru félagsmenn 33. For-
maður félagsins er Njáll Sigurðs-
son. Keppnisvellir eru á Ólafs-
firði. Félagið á hesthús sem leigt
er unglingum og byrjendum.
Skagafjarðarsýsla
Á Sauðárkróki og í nágrenni
starfar hestamannafélagið Létt-
feti. Léttfeti var stofnaður árið
1933 og voru stofnfélagar 27. í
dag eru félagsmenn í Léttfeta
151. Keppnisvellir félagsins eru á
Sauðárkróki og þar tóku Létt-
fetafélagar í notkun nýtt og glæsi-
legt félagsheimili á síðasta ári.
Formaður félagsins er Sveinn
Guðmundsson á Sauðárkróki.
Hestamannafélagið Stígandi.
Félagssvæði Stíganda er í fram-
anverðum Skagafirði. Félagið var
stofnað 1945, stofnfélagar voru.
18 en eru nú 217. Keppnissvæði
félagsins er á Vindheimamelum.
Félagið á jörðina Torfgarð í
Seyluhreppi og hefur byggt þar
félagsheimili. Formaður Stíg-
anda er Sigurður Óskarsson í
Krossancsi.
Á Hofsósi í Fljótum og ná-
grenni starfar hestamannafélagið
Svaöi. Svaði var stofnaður árið
1974 og voru stofnfélagar 24 en í
dag eru félagsmenn Svaða 94.
Keppnisvöllur félagsins er á
Hvammkotseyrum við Hofsós.
Formaður félagsins er Símon
Gestsson Barði.
Félagssvæði hestamannafélagsins Hrings er Dalvík og Svarfaðardalur. Hross á beit á Flötutungum, en þar eru
keppnisvellir félaga í Hring. Mynd: GG
Félagar í Létti á Akureyri sýna gæðinga sína á Vetraríþróttahátíð ÍSÍ á
Akureyri síðastliðinn vetur.
Húnavatnssýsla
í Austur-Húnavatnssýslu starfa
hestamannafélögin Neisti, Oðinn
og Snarfari.
Hestamannafélagið Neisti var
stofnað 1943 og voru stofnfélagar
40, félagar í Neista eru 82 í dag.
Formaður Neista er Ragnar Ingi
Tómasson.
Hestamannafélagið Oöinn var
stofnað 1957. Stofnfélagar voru
14, félagar í dag eru 52. Keppnis-
vellir félagsins eru við Húnaver.
Formaður félagsins er Guðmund-
ur Valtýsson á Eiríksstöðum.
Hestamannafélagið Snarfari
starfar í Höfðahreppi, Vindhælis-
hreppi og Skagahreppi í Austur-
Húnavatnssýslu. Félagið var
stofnað árið 1974, stofnfélagar
voru 20, félagar í dag eru 30.
Keppnisvellir félagsins eru í upp-
byggingu hjá Spákonufelli. For-
maður félagsins er Magnús
Jónsson.
Hestamannafélagið Þytur
starfar í Vestur-Húnavatnssýslu.
Félagið var stofnað árið 1950
stofnfélagar voru 27, en í dag eru
félagar í Þyt 129. Keppnisvellir
félagsins eru á Króksstaðamelum
í Miðfirði. Formaður félagsins er
Guðmundur Sigurðsson
Hvammstanga.
Heimildir: Landssamband hestamanna-
félaga og Búnaðarfélag íslands,
Mótsskrá XI Landsmóts hestamanna
1QQÍI
TSTÍTST
Bifhjólamenn
hafa enga heimild
til að aka hraðar
en aðrir!
|| UMFERÐAR