Dagur - 18.08.1990, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Laugardagur 18. ágúst 1990
Nauðungaruppboð
Laugardaginn 25. ágúst 1990, kl. 14.00 fer fram
nauöungaruppboð á lausafé aö Hafnarstræti 100,
Akureyri.
Selt verður aö kröfu skiptaréttar Akureyrar, borö,
stólar, hornsófar, venjulegir sófar, barborö, hljóm-
flutningstæki, biljardborö, eldavél, ryksugur, Ijós-
kastarar, skápar, hljómplötur o.fl. úr þrotabúi Akurs-
ins hf. Hafnarstræti 100, Akureyri (Bleiki fíllinn).
Greiðslu mun krafist viö hamarshögg.
Ávísanir verða ekki teknar gildar sem greiðsla nema
meö samþykki uppboðshaldara.
Uppboösskilmálar eru til sýnis hjá undirrituðum.
Uppboðshaldarinn á Akureyri.
14. ágúst 1990.
Eyþór Þorbergsson, fulltrúi.
poppsíðon
Tónlistarfólk tíðir
gestir í dómssölum
(ttsúto
Útsalan
hefst á
mánudaginn
l
vefnaðarvöruverslun
Sunnuhlíð. Sími 96-27177
E
1
Judas Priest ákærö vegna sjálfs-
morðs tveggja unglinga: Sá við-
burður að tónlistarfólki er stefnt
fyrir dómstóla af ýmsum ástæð-
um gerist nú æ algengari af ein-
hverjum ástæðum. Hér á Popp-
síðunni hefur oftar en einu sinni
mátt lesa um slík mál áður
samanber Madonnu. (Meira um
hennar mál annarsstaðar á síð-
unni). Nú þann sextándajúlí var
síðan settur réttur í því máli sem
hvað mesta athygli hefur vakið af
öllum þessum fjölda dómsmála á
hendur tónlistarfólki. Er hér um
að ræða mál sem fjölskyldur
tveggja unglinga þeirra James
Vance og Raymond Belknap
hafa höfðað á hendur rokkhljóm-
sveitarinnar Judas Priest og
útgáfufyrirtækis hennar CBS
vegna sjálfsmorða piltanna
tveggja. Við réttarhöldin sem
fram fara í borginni Reno í Nev-
adafylki í Bandaríkjunum, hafa
fjölskyldurnar tvær haldið því
fram að orsök sjálfsmorðanna
megi rekja til þess að á plötunni
Judas Priest Stained Class (frá
1978) sem þeir félagarnir höfðu
verið að hlusta á áður en þeir
frömdu verknaðinn, séu duld
skilaboð um hvatningu til sjálfs-
morðs og að eftir þeirri hvatningu
hafi þeir farið. Máli sínu til stuðn-
ings hafa fjölsdkyldurnar fengið
til liðs við sig „sérfræðing" sem
skrifað hefur heila bók um dulin
skilaboð í öllum mögulegum hlut-
um og segir hann að með því að
spila lög af Stained Class aftur-
ábak megi heyra skilaboð eins
og, „Gerðu það, gerðu það,“ og
fleira í þeim dúr. Ekki þarf að fara
mörgum orðum um að ákæran
þykir vægast sagt langsótt enda
hefur komið í Ijós að fjölskyldurn-
ar tvær hafa átt við margþætt
vandamál að stríða þar á meðal
eiturlyfja- og ofdrykkjuneyslu, en
Ljósmyndasamkeppni
í tilefni af 25 ára afmæli Pedromynda á Akureyri efnir fyrirtækið til
Ijósmyndasamkeppni í samvinnu við Dagblaðið Dag.
Takið þátt í Ijósmyndasamkeppninni!
Reglur keppninnar eru einfaldar:
Y? Öllum er heimil þátttaka.
ík Myndefni er þátttakendum í sjálfsvald sett.
■fc Æskileg stærð mynda er 10x15 cm.
☆ Keppnin stendur yfir til 15. september nk.
Tekið er á móti myndum í verslunum Pedromynda
í Hafnarstræti 98 og Hofsbót 4 á Akureyri.
■fa Veitt verða tvenn verðlaun: Annars vegar fyrir „lifandi
myndefni" (menn og dýr) og hins vegar fyrir landslag eða form.
Dagur áskilur sér rétt til að birta þær myndir
sem til álita koma, sér að kostnaðarlausu.
•fa Úrslit verða tilkynnt um miðjan október.
Verðlaunin fyrir bestu mynd í hvorum flokki er myndavél af gerðinni
CHINON GENESIS, með aukahlutum, að verðmæti 30 þúsund krónur.
^Pe.á^Smyndk'
Hafnarstræti 98, simi 23520 Hofsbót 4, sími 23324
Strandgötu 31, simi 24222
Judas Priest, (Rob Halford og Glenn Tipton) svakalegir á sviði, en vart neinir
sjálfsmorðshvetjendur.
staðan er Ijóst að hún og CBS
hafa tapað miklum peningum
vegna málsins því ekki er grund-
völlur fyrir mótákæru á hendur
fjölskyldunum vegna aðstæðna
þeirra. Burtséð frá öllu dóms-
málavafstri sem væntanlega
mun fást botn í innan tíðar sendir
Judas Priest frá sér nýja plötu í
september. Mun hún heita
Painkiller og á henni skartar
hljómsveitin nýjum trommu-
leikara Scott Travis að nafni, en
hann var áður meðlimur í sveit-
inni Racer X, og kemur hann í
stað Dave Holland sem hætti
vegna mikils álags á tónleika-
ferðum Judas Priest sem ávallt
eru langar og strangar.
Umsjón:
Magnús Geir
Guðmundsson
sannast hefur að bæði Vance og
Belknap voru einmitt drukknir og
undir áhrifum eiturlyfja þegar
atvikið átti sér stað. Það verður
því að teljast nær öruggt að
hljómsveitin verði sýknuð af
ákærunni. Þótt sú verði niður-
Hitt og þetta
Madonna
Hér er svo viðbætir við frásögn-
ina af Madonnu frá því í síðustu
viku en óbeint þó. Þannig er
nefnilega að málavafstrið í New
York er ekki það eina sem hún
verður að horfast í augu við
þessa dagana því henni hefur
verið stefnt að fyrirtækinu Nike.
Er stefnan tilkomin vegna þess
að Madonna telur sig eiga hjá
fyrirtækinu rúmar fjórar milljónir
dollara samkvæmt samningi við
það. Nike hefur hins vegar neitað
þessu og segir að enginn samn-
ingur hafi verið gerður og til að
útkljá deiluna hefur fyrirtækið
sem sagt stefnt söngkonunni.
The Ramones
Nú nýlega var gefið út þrjátíu og'
þriggja laga safn með pönksveit-
inni margfrægu fíamones Nefnist
safnið All The Stuff (and more) og
hefur það að geyma lög af tveim-
ur fyrstu þlötum hljómsveitarinn-
ar, fíamones og Leave Home, auk
hljómleikauþþtaka og demoupp-
taka.
Deep Purple
Sú tvífædda rokksveit Deep
Purple hefur lokið vinnu við enn
eina plötuna. Ber hún heitið Slav-
es and Masters og er útgáfudagur
áætlaður þann 1. óktóber. Platan
mun geyma ellefu lög og á henni
þreytir nýi söngvarinn Joe Lynn
Turner frumraun sína með Deep
Purple, en hann kom í stað lan
Gillan fyrr á þessu ári. Er Turner
reyndar ekki alls ókunnur innan-
búðarmönnum í hljómsveitinni
því hann starfaði um árabil með
fíoger Glover bassaleikara (sem
er reyndar líka upptökustjóri á
Slaves and Masters) og fíitchie
Blackmore gítarleikara í hljóm-
sveitinni fíainbow. Að sögn Glov-
ers eru þeir félagarnir ánægðir
með gerð nýju plötunnar og hún
minnir á gamla dýrðartíma þegar
sveitin sendi frá sér meistara-
stykki á borð við In fíock og Mach-
ine Head.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Öldungadeild
Innritun í öldungadeild Verkmenntaskólans á
Akureyri fer fram á skrifstofu skólans 20.-31.
ágúst, alla virka daga kl. 8-16.
Kennsla hefst mánudaginn 10. september.
Skólameistari.