Dagur - 18.08.1990, Síða 16
Um helgina verður mikil torfærukeppni haldin austur á Egilsstöðum. Þessi „bílalest" fór frá Akureyri áleiðis austur
í gær, en átökin hefjast þar í dag. Mynd: Golli
Umhverfisáhrif hugsanlegrar 200 þúsund tonna álbræðslu á Dysnesi í Eyjafirði:
Gæti haft áhrif á búskap á 10-
12 bújörðum samkvæmt spá NILU
- samsvarar fullvirðisrétti 3ja-5 meðallbúa
Golfldúbbur Akureyrar:
Unglingameistara-
mót Norðurlanda
næsta sumar
áAkureyri
Stjórn Golfklúbbs Akureyr-
ar samþykkti á fundi sínunt í
gær að taka boði Golfsam-
bands íslands um að halda
Unglingameistaramót Norð-
urlanda í golfi á Jaðarsvelli
27. og 28. júlí næsta sumar.
Unglingameistaramót
Norðurlanda er haldið ár
livert og að þessu sinni var
röðin komin að íslendingum
að halda mótið. Stjórn Golf-
sambands íslands óskaði eftir
því við Golfklúbb Akureyrar
að hann héldi mótið og á fund-
inum í gær ákvað stjórn GA
svo að af þessu yrði.
Aö sögn Gísla Braga Hjart-
arsonar stjórnarmanns í GA
er hér er um mikla lyftistöng
að ræða fyrir íþróttalif á
Akureyri og mikill heiðurfyrir
Golfklúbbinn að fá að halda
mót þetta. Búast má við 70-80
keppendum en það eru kylf-
ingar tuttugu ára og yngri scm
þar keppa.
Að sögn Gísla er ljóst að
ráöist verður í einhverjar
framkvæmdir fyrir mótið sem
fram fer dagana 27. og 28.
júlí. Þar er fyrst og fremst um
að ræða endurbætur á teigum
og flötum, framkvæmdir sem
voru á dagskrá en verður flýtt
vcgna þcssa góða máls. ET •
Bæjarráð Akureyrar fjallaði í
fyrradag um tilboð fjögurra
verðbréfafyrirtækja í skulda-
bréfaútboð fyrir Akureyrarbæ.
Ákveðið hefur verið að ganga
til samninga við Landsbréf hf.
og verður það gert strax eftir
helgi. Ráðgert hefur verið að
boðin verði út skuldabréf fyrir
um 200 milljónir króna og
þetta fjármagn muni skila sér í
bæjarsjóð á næstu 2-4 mánuð-
um.
Tilboð bárust frá Kaupþingi
Norðurlands, Verðbréfamarkaði
íslandsbanka og Fjárfestingarfé-
lagi íslands, auk Landsbréfa hf.
Tvö þessara tilboða voru mjög
áþekk en mestu réði um að til-
boði Landsbréfa var tekið að að
því fyrirtæki á Landsbankinn
Samkvæmt upplýsingum sem
héraðsráð Eyjafjarðar hefur
aflað sér, eru fullyrðingar um
að 60 bújarðir verði ónothæfar
til hefðbundins búskapar,
fjarri öílum sanni. Samkvæmt
athugun á vegum iðnaðarráðu-
neytisins, sem byggist á nýrri
dreifingarspá NILU, norsku
loftmengunarstofnunarinnar,
og miðast við Dysnes í Eyja-
firði, gæti starfræksla 200 þús-
und tonna álvers þar haft áhrif
á búskap á 10 til 12 jörðum.
Þetta kom fram á fréttamanna-
fundi sem héraðsráð Eyjafjarðar
efndi til á Akureyri í gær. Þar
voru kynntar ýmsar upplýsingar
er lúta að hugsanlegri staðsetn-
ingu álbræðslu í Eyjafirði.
Upplýst var að samkvæmt
aðild en hann er viðskiptabanki
Akureyrarbæjar.
Halldór Jónsson, bæjarstjóri,
segir að líklegast verði minnsta
eining í þessum bréfum kr. 100
þúsund. Ljóst sé að sjóðir og
stærri aðilar komi til með að
kaupa þessi bréf frekar en
almenningur en kostnaður við
útgáfu minni eininga ráði því að
þessi leið var farin.
Halldór sagðist mjög ánægður
með tilboð Landsbréfa. Akureyr-
arbær var með skuldabréfaútboð
fyrir tveimur árum og sagði Hall-
dór að þetta útboð muni verða
verulega hagstæðara fyrir bæjar-
sjóð en fyrra útboðið var. Bæði
muni þar á ávöxtunarkröfunni,
en hún verður nú 7%, og á þeirri
þóknun sem greiða þurfi fyrir
skuldabréfasöluna. JOH
nýrri dreifingarspá fyrir álver í
Eyjafirði, sem unnin var af
NILU, verði tíu bújarðir í næsta
nágrenni hugsanlegs álvers á
Dysnesi innan þeirra marka sem
búast má við einhverjum skaða af
völdum mengunar. Tvær jarðir
eru taldar á jaðarsvæði. Á þess-
um 10-12 bújörðum er fullvirðis-
réttur sem samsvarar 3-5 meðal-
búum. Bent var á á fundinum að
flutningur lóðar um einn km til
suðurs muni hafa áhrif á niður-
stöður og því leggi héraðsráð
áherslu á að áhrif á búfé og gróð-
ur verði metin hið fyrsta m.t.t.
nýrrar staðsetningar og á grund-
velli nýrrar dreifingarspár og
niðurstöður verði birtar sem
fyrst.
Héraðsráð Eyjafjarðar telur
nauðsynlegt að fulltrúar NILU,
sem gerði dreifingarspárnar árið
1985 og svo aftur 1990, verði
fengnir til að gera grein fyrir mis-
munandi forsendum þeirra, til
upplýsinga fyrir íbúa Eyjafjarðar
og hagsmunaaðila. Þá er lögð
áhersla á að fulltrúar Atlantsáls
upplýsi nákvæmlega um þá
tækni, sem notuð verði í fyrir-
huguðu álveri á íslandi og veiti
upplýsingar um rekstur slíks
álvers.
í bréfi sem héraðsráð Eyja-
fjarðar hefur ritað iðnaðarráð-
herra er bent á að skortur á nauð-
synlegum upplýsingum sé vatn á
myllu þeirra sem vinni gegn því
að álver verði reist í Eyjafirði. í
bréfinu er þess farið á leit í fyrsta
lagi að birt verði álitsgerð um
áhrif loftmengunar frá 200 þús-
und tonna álveri í Eyjafirði á bú-
fénað og gróður, byggð á nýrri
dreifingarspá NILU. I annan stað
að haldnir verði fundir, að til-
hlutan iðnaðarráðuneytisins og
héraðsráðs Eyjafjarðar, í Arn-
arneshreppi, Glæsibæjarhreppi
og á Akureyri, þar sem allar
nauðsynlegar upplýsingar um
umhverfisáhrif 200 þúsund tonna
álvers verði lagðar á borðið og
sérfræðingar svari fyrirspurnum
héraðsbúa um málið. í þriðja lagi
verði í framhaldi áðurnefndra
upplýsingafunda haldinn fundur
þar sem mengunarsérfræðingur
Atlantsáls veiti upplýsingar um
þá framleiðslutækni, sem fyrir-
tæki þeirra búi yfir og áætlað sé
að nota í fyrirhuguðu álveri.
Fundarboðendur fréttamanna-
fundarins í gær lögðu á það
áherslu að þessi miðlun upplýs-
inga yrði áður en ákvörðun verð-
ur tekin um staðarval álvers hér á
landi.
Fulltrúar í héraðsráði Eyja-
fjarðar leggja áherslu á að nú er
Nú er fulljóst orðið að á næstu
dögum bætist nýtt skip í flota
Útgerðarfélags Akureyringa.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins er það hugmynd forráða-
manna félagsins að gera skipið
út sem frystiskip fram að ára-
mótum en taka þá frystitækin
úr því og nota skipið til hráefn-
isöflunar fyrir frystihúsið eftir
það.
Kaupin á Aðalvík KE af Hrað-
frystihúsi Keflavíkur eru frágeng-
in að öðru leyti en því að hlut-
hafafundur þar syðra á eftir að
staðfesta kaupin. Kaupverð er
eins og fram hefur komið um 450
miljónir.
Aðalvík hét áður Drangey en
þegar skipið var selt til Keflavík-
ur var því breytt í frystiskip.
Breytingarnar fóru fram í Slipp-
stöðinni á Akureyri og er það
skýringin á skuld Hraðfrystihúss-
ins við Slippstöðina, en hún mun
Gæsaveiðin hefst:
„Menn ættu að
fara varlega11
„Já, menn ættu að fara mjög
varlega í upphafi og halda aft-
ur af sér fyrstu 1-2 vikurnar.
Gæsarungar eru enn vart full-
vaxnir og dæmi eru um að gæs-
ir séu enn ófleygar þannig að
skyttur ættu að forðast alla
skotveiði við vötn nú í upphafi
veiðitímans," sagði Gísli
Ólafsson, formaður Skotveiði-
félags Eyjafjarðar.
Félagsfundur var haldinn í
Skotveiðifélagi Eyjafjarðar í
fyrrakvöld þar sem veiðimenn
báru saman bækur sínar og veiði-
tímabil gæsa sem byrjar á mánu-
daginn. Gísli segir að grágæsa- og
heiðargæsastofninn sé sterkur og
ekki hafi annað heyrst en varp
hafi tekist vel í sumar. Hins vegar
ungar vart fullvaxnir enn og það
sé sjálfsögð virðing veiðimanna
við bráðina að fara sér hægt nú í
byrjun. JÓH
verið að ræða um að reisa 200
þúsund tonna álver en ekki 400
þúsund tonna álver. Þeir segja að
ef komi til þess að ósk berist frá
Atlantsál um stækkun álversins í
400 þúsund tonn, verði íslensk
stjórnvöld að veita nýtt starfsleyfi
fyrir slíku iðjuveri. Starfsleyfið
yrði háð sjálfstæðu mati á
umhverfisáhrifum 400 þúsund
tonna álvers og tekið yrði tillit til
þeirrar reynslu sem þá hefði
fengist af nútíma áliðnaði. Fram
kom á fréttamannafundinum í
gær að þessi atriði hefur héraðs-
nefnd fengið staðfest hjá iðnað-
arráðherra og Hollustuvernd
ríkisins. óþh
nema hátt í 50 milljónum króna.
Aðalvík er keypt til þess að
auka heildarkvóta ÚA og afla
frystihúsinu hráefnis. Samkvæmt
heimildum Dags hefur hins vegar
verið ákveðið að gera skipið út
sem frystiskip fram að áramót-
um. Aðalvík er sóknarmarksskip
en fer samkvæmt nýjum reglum á
aflamark eftir áramót. Þá mun
hugmyndin vera að leggja Sól-
baki sem orðinn er mjög úr sér
genginn, en dreifa kvóta hans á
hina ísfisktogarana, þar á meðal
Aðalvík. Útgerðarfélagið þarf
því að ráða eina áhöfn í um fjóra
mánuði og má búast við að pláss-
in í frystiskipinu verði eftirsótt.
Það sem hvað mest spenna rík-
ir um nú er hvað hið nýia skip
kemur til með að heita. Á skrif-
stofu Útgerðarfélagsins er að
finna lista með tugum nafna sem
enda á -bakur og úr þeim lista
þurfa forráðamenn félagsins nú
að velja eitt nafn. ET
Skuldabréfaútboð Akureyrarbæjar:
Gengið til samninga
við Landsbréf hf.
Kaupin á Aðalvík KE:
Hinn nýi -bakur fiysti-
skip fram að áramótum