Dagur


Dagur - 25.08.1990, Qupperneq 2

Dagur - 25.08.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 25. ágúst 1990 fréttir Skagaíjörður: Söludagar togaranna - vinnsla út árið Skagfirsku togararnir hafa allir fengið úthlutað söludögum í Bremerhaven í haust nema Skagfirðingur SK 4. Drangey SK 1 á sölu þann 27. septem- ber, Hegranes SK 2 á sölu 17. okt. og 13. desember og Skafti SK 3 selur þann 13. sept. og 7. nóv. Hegranesið var í gær á leið til hafnar á Sauðárkróki með um 145 tonn sem fengust á Pórs- banka. Skagfirðingur liggur við bryggju og Skafti er á veiðum Gísli Svan Einarsson, útgerð- arstjóri FISK, sagðist sjá fram á það að kvótinn entist út árið að þessu sinni svo að trúlega yrði ekkert stopp í vinnslunni hjá þeim. Drangey SK 1 er nú á Siglufirði þar sem verið er að gera upp á henni spilið. Árni Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Skjaldar, sagði að Drangeyin gæti ekki haldið til veiða fyrr en eftir næstu mánaðamót þar sem sóknar- dagarnir væru nú búnir. Hann sagðist hafa frétt af góðu verði á mörkuðum úti og vonaði að það yrði svo í þeim eina sölutúr sent Drangey fékk. Árni bjóst við að kvótinn myndi duga út árið þó að farið væri að saxast á hann. SBG Sauðarkrókur: Ruslagámar komnir í bæinn - urðun næst á dagskrá Ruslagámar eru nú að verða algeng sjón á Sauðárkróki. Bærinn ætlar sér m.a. að hafa gáma fyrir bæjarbúa til að losa sig við rusl í til þess að ekki verði jafn mikil umferð og ver- ið hefur á ruslahauga bæjarins. Þar er einnig ætlunin að hefja urðun á sorpi fljótlcga og hætta þá brennslu. Gerður var samningur við Ómar Kjartansson um sorphirð- ingu í bænum til tveggja ára í þetta skiptið í stað eins áður. Ómar er nú búinn að fá sér bíl til að annast tæmingu á gámunum og alltaf fjölgar þeim fyrirtækjum á Króknum sem leigja sér gám. Bærinn hefur að sögn Snorra Björns Sigurðssonar, bæjar- stjóra, ákveðið að leigja þrjá gáma til að byrja með. Einn þeirra verður staðsettur niðri við höfn og hinir trúlega einhvers staðar úti á Eyri vegna þess að kurr hefur verið í bæjarbúum um staðsetningu inni í íbúðahverf- um. Að sögn Snorra Björns er ver- ið að gera saminga við landeig- anda um land til urðunar sorps þar sem haugarnir eru núna. Með því móti munu þau óþægindi sem fólk hefur haft af haugareyknum hverfa, en einnig gætu þau minnkað mikið með tilkomu gámanna því umgangur fólks, sem sér sóma sinn í að kveikja í rusli, um haugana yrði þá minni. Að sögn manna á Sauðárkróki er það nefnilega ekki einungis sorp- haugamaðurinn sem tendrar þar eld. SBG Sportbúðin Allir sem 1. Nýir eig- endur talið f.h.: Guðmundur Svansson, Ingólfur Guðmundsson og Olafur Torfason afgreiðslu- maður. Akureyri: sportvöruverslun, „Allir sem 1“ Sportvöruverslun hefur verið starfrækt að Strandgötu 6 á Akureyri um skeið undir nafn- inu Sportbúðin, en nú hefur verslunin verið seld nýjum eig- endum, Guðmundi Svanssyni og Ingólfi Guðmundssyni. Verslunin verður starfrækt undir nýju nafni Allir sem 1. „Við nýju eigendurnir munum kappkosta að veita sem besta þjónustu öllum þeim sem við okkur vilja versla. Vöruúrvalið er fjölbreytt. íþróttavörur frá öll- um heimshornum. Merki sem verður lögð áhersla á eru. Nike, Rukanor, Lotto, Nitre, Berry og fleiri. Hér getur íþróttamaðurinn og hinn almenni útiveru- og tóm- stundamaður keypt allan fatnað frá toppi niður í tá, jafnt sumar sem vetur," sagði Guðmundur Svansson, annar eigenda verslun- arinnar Allir sem 1. ój Verslun KÞ á Kópaskeri: Reksturinn réttum megin við núllið Kaupfélag Þingeyinga hefur verið með rekstur matvöru- verslunar á Kópaskeri á leigu af þrotabúi Kaupfélags N.- Þingeyinga frá því í september sl. og að sögn Hreiðars Karls- sonar, kaupfélagsstjóra KÞ, hefur sá rekstur gengið ágæt- lega. Hreiðar sagði að óséð væri um framhaldið, hvort KP verður áfram með reksturinn á Kópa- skeri, og engar samþykktir verið gerðar þar um. Það mun skýrast þegar skipti fara fram í þrotabúi KNP á næstunni. „Þegar leigusamningur var gerður í fyrra þá var rætt um það sem hugsanlegt markmið að frek- ara samstarf eða sameining ætti sér stað á milli KP og KNÞ, ef aðstæður væru til þess en mönn- um var Ijóst þá að þær voru mjög hæpnar," sagði Hreiðar. Að sögn Hreiðars hefur rekst- ur matvöruverslunarinnar á Kópaskeri verið réttum megin við núllið en gróðinn ekki stór. Um leið og KÞ tók verslunina á leigu í fyrra voru frystihús og kjötvinnsla KNÞ einnig tekin á leigu, en eftir að Fjallalamb hf. keypti þau hús mun KÞ hætta afskiptum af þeim. Verslun í Ásbyrgi var einnig inni í þeim leigupakka sem KÞ gerði í fyrra, en rekstur hennar var leigður öðrum aðila um síðustu áramót, þannig að verslunin á Kópaskeri og pakkhús hennar stendur eitt eftir í leigurekstri KÞ á þrotabúi KNÞ. -bjb Meðferð og geymsla eggja í sviðsljósinu: Framleiðandi ber ábyrgð á geymsluþoismerkingu - merktar kælivörur skal geyma sem slíkar í verslunum Ekki eru í gildi nein sérákvæði um merkingu og geymslu eggja heldur gilda almennar reglur sem heilbrigðisráðherra setur. Heilbrigðisnefndir á hverjum stað geta þó þrengt þessar regl- ur og hefur jafnvel verið rætt um að slíkt komi til greina varðandi meðferð eggja í versl- unum á Eyjafjarðarsvæðinu. Valdimar Brynjólfsson, fram- kvæmdastjóri Heilbrigöiseftir- lits Eyjafjarðar, hefur að undanförnu rætt við söluaðila um meðferð þessarar vöruteg- undar. Valdimar var í sumarleyfi þeg- ar Dagur hafði samband við Heil- brigðiseftirlit Eyjafjarðar og varð Alfreð Schiöth fyrir svörum. Hann sagði að eftir könnun Neyt- endafélags Akureyrar og ná- grennis hefði málið verið skoðað nánar og Valdimar hefði rætt við framleiðendur, auk þess sem stefnt væri að fundi með kaup- mönnum. Alfreð gat þó ekki sagt til um hvort væntanlegar væru sérstakar reglugerðir frá heil- brigðiseftirlitinu um meðferð og geymslu eggja. Að sögn Alfreðs eru egg ekki flokkuð sem kælivara en hins vegar er mælst til þess að farið sé nteð þau sem kælivöru. Með þeirri meðferð eykst geymsluþol eggjanna til muna. Framleiðandi getur þó selt egg sem vöru er geymist við stofuhita og takmark- ast þá geymsluþolið. Framleið- andi verður að taka tillit til þess hvort varan er kælivara eður ei þegar hann ákvarðar geymsluþol- ið og ábyrgðin er hans. „Ef verslanir fá vörur sem eru merktar sem kælivörur þá er þeim skylt að geyma þær sem slíkar. Hins vegar hafa menn velt þeirri spurningu fyrir sér hvort þetta þurfi að gilda í sambandi við söíu eggja í stórmörkuðum. Umsetningin er svo hröð, eggin stoppa stutt við og því ef til vill ekki nauðsynlegt að geyma þau í kæli,“ sagði Alfreð. Egg flokkast undir reglugerð um merkingu neytendaumbúða fyrir matvæli og aðrar neysluvör- ur. Á umbúðum skal taica fram nafn og heimili framleiðanda, heiti vörunnar, nettóþyngd, geymsluskilyrði, geymsluþol og innihaldslýsingu. Mest hefur ver- ið rætt um merkingar á geymslu- þoli eggja og skulum við líta á þær reglur. Fyrir kælivörur sem hafa minna en 3ja mánaða geymsluþol skal merkja umbúðir með „Pökkunardagur" og „Síðasti söludagur“. Pökkunardag og síð- asta söludag skal gefa upp sem dag og mánuð. Aðrar vörur sem hafa minna en 3ja mánaða geymsluþol skal merkja með „Síðasti söludagur" og skal þá til- greina dag og mánuð. Fyrir vöru- tegundir sem hafa frá 3ja til 18 mánaða geymsluþol skal merkja umbúðir með „Best fyrir“ og til- greina þá mánuð og ár. Eins og fram hefur komið telja sumir að pökkunardagur eggja gefi ekki rétta mynd af aldri þeirra, betra væri að tilgreina varpdag, en eins og fram kemur í 12. grein reglugerðarinnar ber framleiðandi ábyrgð á geymslu- þolsmerkingum: „Framleiðandi vörunnar skal ákvarða og bera ábyrgð á geymsluþolsmerkingu hennar. Við ákvörðun geymsluþols skal tekið tillit til eðlis vörunnar, flutnings-, dreifingar-, og geymslu- skilyrða. Leiði athuganir í ljós að gæði vörunnar eru ekki í sam- ræmi við merkt geymsluþol, get- ur viðkomandi heilbrigðisnefnd ákvarðað það geymsluþol sem skal gilda fyrir vöruna. Skulu slíkar ákvarðanir tilkynntar Holl- ustuvernd ríkisins. Ef ekki er bætt úr, getur hlutaðeigandi heil- brigðisnefnd stöðvað vinnslu og sölu á vörunni." SS SVARSEÐILL Beiðni um millifærslu áskriftargjalds □ Er áskrifandi □ Nýr áskrifandi Undirritaöur óskar þess aö áskriftargjald Dags veröi framvegis skuldfært mánaöarlega á greiöslukort mitt. Strandgötu 31 Sími 96-24222 Dags. Kortnr.: Gildir út: Nafnnr. ASKRIFANDI: HEIMILI: PÓSTNR.-STAÐUR: SÍMI: UNDIRSKRIFT.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.