Dagur - 25.08.1990, Blaðsíða 3

Dagur - 25.08.1990, Blaðsíða 3
Smábátaeigendur í slæmri stöðu - segir Haraldur Jóhannsson hjá Landssambandi smábátaeigenda Haraldur Jóhannsson hjá Landssambandi smábátaeig- enda segir að staða margra smábátaeigenda sé mjög slæm um þessar mundir. Hann bendir á að fjöldi manna sé að láta smíða báta og séu dæmdir frá „kerfinu“. „Það er með eindæmum livernig staðið er að málum. Þessir væntanlegu útgerðarmenn komast ekki inn nema úrelda gantlan bát fyrir þann nýja," sagði Haraldur. Veiðiheimildir til smábáta skiptast í tvennt, að sögn Harald- ar. Annars vegar er uppgefinn kvóti og hins vegar ræður bann- dagakerfið, en þar má báturinn afla eins mikið sem framast er unnt, aðeins ef báturinn er visst marga daga í landi. Banndaga- kerfið gildir fyrir báta upp að tíu tonnum nú til áramóta og útgerð- armenn hafa verið að afla sér góðrar viðmiðunar, samanber Hóll í Kelduhverfi: Hestar og ber auk gistingar Á Hóli í Kelduhverfi er gisti- aðstaða og hestaleiga í tengsl- um við Ferðaþjónustu bænda og að sögn Tryggva ísakssonar hefur sumarið verið gott og veruleg aukning í gistingu. Auk gistingar er boðið upp á morgunverð á Hóli. Tryggvi sagði að ásókn í hesta- leiguna hefði verið svipuð í sum- ar og fyrri sumur. Þjónustan hef- ur mælst vel fyrir en tímabilið í ferðaþjónustunni er stutt. Nú hefur Tryggvi gripið til þess ráðs að auglýsa gott berjaland auk áðurnefndrar þjónustu í því skyni að teygja aðeins á ferða- þjónustutímabilinu. „Það er mjög mikið af berjum núna, bæði bláberjum og kræki- berjum. Það hefur lítið reynt á aðsóknina ennþá enda ekki langt síðan bláberin urðu fullþroskuð, en það er mjög mikið magn af berjum hérna,“ sagði Tryggvi. Ferðamenn hafa verið duglegir við að heimsækja Kelduhverfi í sumar. Aðspurður kvaðst Tryggvi ætla að bjóða upp á ferðaþjónustu fram í september en veðurlag myndi síðan endan- lega stjórna því hve lengi honum væri unnt að halda þessari þjón- ustu úti. SS bátar sent mælast 9,9 tonn, en eru í reynd mu'n stærri og standa vel í kvóta nú. Eftir áramót tekur við nýtt banndagakerfi, sem nær aðeins upp að sex tonnum, þann- ig að bátar undir sex tonnum geta aðeins farið í nýja kerfið. „Hóp- ur báta frá sex til tíu tonna standa nú mjög illa, sérstaklega bátar sem hafa verið á grásleppu. Þeir komast ekki í banndagakerfið, hafa mjög litla viðmiðun í þorski, geta ekki farið í þorsk og bregðist grásleppan einhverra liluta vegna þá sjá menn hvert stefnir. Á þessu verður að taka af röggsemd," sagði Haraldur. Hann segist telja að fjöldi útgerðarmanna ntuni velja afla- vinnslu, selji bát og kaupi annan undir sex tonnum, fari í bann- dagakerfið og hefji upp á nýtt að afla viðmiðunar fyrir næstu tvö árin. „Kvótasala út úr hópnurn er all veruleg," sagði Haraldur. „Þegar búið er að taka múrinn sem var milli tíu tonna bátanna og þeirra fyrir ofan, þar sem voru rýmri eða aðrar veiðiheimildir fyrir neðan, þá er ástandið orðið slæmt. Hópurinn frá tíu tonnum niður í sex tonn er í miklum vanda. Veiðiheimildir til smábáta voru afgerandi en nú dettur þetta upp fyrir um áramót." ój Norrænt knattspymumót samvinnustarfsmanna Um helgina verður haldið í Borg- arnesi norrænt knattspyrnumót samvinnustarfsmanna. Mótið var síðast haldið í Svíþjóð 1987 og lentu íslendingar þá í öðru sæti. Á mótið mæta karla- og kvenna- lið, og verður keppt á malarvelli og grasvelli bæjarins. Mótið hefst í dag kl. 10.00 og verða leiknir 6 leikir í knatt- spyrnu karla á malarvellinum og 6 leikir í knattspyrnu kvenna á grasvellinum. Á morgun fara fram úrslit og hefjast þau kl. 11.00. Að loknum úrslitaleikjum fer fram verðlaunaafhending. Gert er ráð fyrir að um 150 manns taki þátt í þessu móti og gista keppendur í orlofshúsum samvinnustarfsmanna og Hótel Bifröst. Mótið er haldið í sam- vinnu við íþróttaráð Borgarnes- bæjar og Ungmennafélagið Skallagrím. Mótshaldarar vilja hvetja bæjarbúa, nærsveitamenn og aðra að koma á íþróttaleik- vangi bæjarins og fylgjast með spennandi keppni. Mót þetta er styrkt af Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga, Jötni og Verslunardeild og Olíu- félaginu hf. Einar K. Einarsson, gítarleikari: Heldur tónleika á Kópaskeri Raufarhöfti og Þórshöfn Einar Kristján Einnrsson, gít- arleikari, heldur þrenna tón- leika á Norðausturlandi í næstu viku. Hann leikur í Grunnskólanum á Kópaskeri þriðjudaginn 28. ágúst, félags- heimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn miðvikudaginn 29. ágúst og Þórsveri á Þórshöfn ílmmtudaginn 30. ágúst. Allir tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Á efnisskránni eru verk frá Spáni og Suður-Ameríku og „Jakobsstiginn" eftir Hafliða Hallgrímsson. Þá frumflytur Ein- ar Berceuse eftir Áskel Másson. Einar Kristján Einarsson er fæddur á Akureyri og hlaut þar sína fyrstu tónlistarmenntun. Haustið 1977 hóf hann gítarnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og lauk burtfarar- prófi 1982. Einar stundaði fram- haldsnám í Manchester í Eng- landi 1982-1988. Hann hefur auk þess sótt námskeið hjá Alirio Diaz, José-Luis Gonzalez o.fl. Einar hefur haldið tónleika á íslandi, Englandi og Spáni. Hann lauk einleikara- og kennaraprófi frá Guildhall School of Music 1987 og starfar nú sern gítarleik- ari við Tónskóla Sigursveins og Tónlistarskóla Kópavogs. Laugardagur 25. ágúst 1990 - DAGUR - 3 Salan á Hafþóri RE-40: „Ráðherra verður að taka lokaákvörðurana“ - segir talsmaður sjávarútvegsráðuneytisins „Við sendum tilboð til sjávar- útvegsráðuneytisins í Hafþór RE-40 fyrir þrjú fyrirtæki hér á Húsavík, Höfða hf., Úthaf hf. og Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf.,“ sagði Kristján Ásgeirsson aðspurður um hugsanleg kaup Húsvíkinga á togaranum. í fyrradag rann út frestur til að skila inn tilboðum í skipið. Eins og komið hefur fram áður, hefur það lengi verið á dagskrá aö selja togarann Júlíus Havsteen, og ntun þetta tilboð tengjast því máli. „Það verður byrjað á morgun að skoða þau tilboð sem bárust í skipið, en þau eru alls 10. Einn af tilboðsgjöfunum verður í bæn- um á morgun og munum við þá ræða við hann og í næstu viku munum við ræða við alla aðra sem gerðu tilboð. Við munum ekki endilega taka hæsta tilboð- inu, heldur ntunu úrelding og greiðsluáætlanir spila þar stórt hlutverk," segir Gylfi Gautur í sj ávarútvegsráðuneytinu. Eldey hf. í Keflavík mun hafa gert tilboð í skipið en þar mun vanta sjálfa upphæð tilboðsins og þannig ntun einnig vera um ann- að tilboð. í þessum tilboðum mun hins vegar vera áætlun um úreldingu. Einnig verður kannað hversu fjársterkir tilboðsaðilar eru en ekki verður látið uppi hversu há tilboðin eru. Hins vegar mun ekkert skýrast í þessu máli fyrr en í fyrstu viku septembermánaðar, en þá kemur ráðherra til landsins og þá munu starfsmenn ráðuneytisins fara yfir málið með honum og gefa honum skýrslu. „Hér er um það pólitískt mál að ræða bæði á Vestfjörðum og á Suðurnesjum að ráðherra verður að taka ákvörðunina í þessu máli, þ.e. hverjum skipið verður selt, og þess vegna gæti þetta komið til kasta ríkisstjórnarinn- ar,“ sagði Gylfi Gautur að lokum. Tilboð í Hafþór bárust frá öll- um fjórðungunt landsins nema Austfjörðum. GG Stöng í Mývatnssveit: Sumarstarfið gekk vel „Starfsemin hér aö Stöng hef- ur gengið afar vel þ.e. í júlí og ágúst, en nú er farið að draga úr straumi ferðamanna, haust- ið er á næstu grösum,“ sagði Svala Gísladóttir, húsfreyja að Stöng í Mývatnssveit. Sömu sögu er að segja víðar af Norðurlandi. Að sögn Svölu qr starfsemin vel skipulögð fram í tímann, enda gengið frá dvöl að Stöng nteð löngum fyrirvara. „Mikið er um hópa erlendis frá, en útlend- ingar eru aðal viðskiptamenn okkar. Áhugi íslendinga eykst þó ár frá ári, en vegna fyrirframbók- ana útlendinga er lítið hægt að gera fyrir þá. íslendingurinn hagar< för eftir veðri og vindunt og skipuleggur síður sitt ferðalag. Erlendu ferðamennirnir koma á vegum Feröamiðstöðvar Aust- urlands um Keflavík og beina flugiö frá Sviss til Akureyrar. Hópar verða hér af og til í sept- ember, og einn hópur er bókaður í október. Við rckum starfsemina að Stöng allan ársins hring, en venjulcga lokast allt af sjálfu sér þegar veturinn sækir á upp til heiða," sagði húsfreyjan að Stöng. ój Opið liús 24.-26. ágúst Laugardagur 25. ágúst 1000-1700 Sunnudagur 26. ágúst 1300-1700 Kynnt verður starfseini TöhTdræðslunnar á komandi mánuðum t.d. cílirtalin námskeið: ★ Skrifstofutækni ★ PC-grunn ★ MS-DOS stýrikerfið ★ Ritvinnslu ★ Töflurcikni ★ Gagnagrunn ★ Forritun ★ Windows Ásamt mörgum Öðrum áhugaverðum nám- slteiðum. Komið og kynnið ykkur starfsemi Tölvufræðsl unn ar. Imuitmi og upplýsingm- á námskeið vetrarins er hafin í síma 27899. Aiikiii mermtun betri atvimxvimöguleikar Greiðslukjör við allra hæfi. ALLIR VELKOMNIR - VEITINGAR. Tölvufræðslan Akureyri hf'. Glcrárgotu 34, IV. hæð, 600 Akurcyri, sími 27899.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.