Dagur


Dagur - 25.08.1990, Qupperneq 4

Dagur - 25.08.1990, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 25. ágúst 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGAFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 96-24222 SÍMFAX: 96-27639 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON. RITSTJ.FULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON. UMSJ.MAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON. BLAPAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþr.),_______ SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSM.: KRISTJÁN LOGASON. PRÓFARKAL.: SVAVAR OTTESEN. ÚTLITSH.: RlKARÐUR B. JÓNASSON. AUGLÝSINGASTJ.: FRlMANN FRlMANNSSON. DREIFINGARSTJ.: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791. FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL. PRENTUN: DAGSPRENT HF. Stigminnkandi halli ríkissjóðs Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu er allt útlit fyrir að afkoma ríkis- sjóðs á þessu ári verði svipuð og reiknað var með í fjárlög- um. Þar var gert ráð fyrir að hallarekstur ríkissjóðs næmi rúmum 3,6 milljörðum króna en samkvæmt endurskoðaðri áætlun fjármálaráðuneytis- ins gæti hann orðið tæpum 400 milljónum króna meiri í árslok. Gangi þetta eftir er merk- um áfanga náð í ríkisfjármál- unum. Um langt árabil hefur ríkissjóður verið rekinn með umtalsverðum halla, jafnt í harðæri sem góðæri og halla- reksturinn hefur aukist ár frá ári. Með öðrum orðum hefur ríkið jafnan eytt um efni fram og safnað skuldum til að brúa bilið. Svo er reyndar enn, þótt nú stefni í minni umframeyðslu en oft áður. Því hefur verið haldið fram að naumast sé hægt að snúa við á þessari braut og reka ríkis- sjóð án halla, svo mjög hafi ríkisbáknið þanist út á undanförnum árum. Sá árangur sem núverandi ríkis- stjórn hefur þegar náð í bar- áttunni við að draga úr ríkis- útgjöldum sýnir að þessi full- yrðing á ekki við rök að styðjast. Aukið aðhald í ríkis- rekstri er þegar farið að skila umtalsverðum árangri, þótt betur þurfi að gera til að ná jafnvægi milli tekna og gjalda ríkissjóðs. Síðustu þrjú ár hefur halli ríkissjóðs farið stigminnk- andi. Hann var 2,8% af vergri landsframleiðslu 1988, árið eftir lækkaði hlutfallið í 2,1% og ef niðurstaða sérfræðinga fjármálaráðuneytisins á afkomuhorfum í ár reynist rétt verður halli ríkissjóðs sem hlutfall af vergri lands- framleiðslu einungis 1,2% í ár. Það er betri útkoma en fengist hefur um langt árabil. Hér er um mjög háar upp- hæðir að ræða þyí árið 1988 var rekstrarhalli ríkissjóðs 7,2 milljarðar króna og um 6 milljarðar króna í fyrra. Ef takast á að reka ríkissjóð með enn minni halla á næstu árum - jafnvel með tekju- afgangi - þarf að grípa til enn róttækari aðgerða en þegar hefur verið gert. í því sam- bandi er mikilvægt að ná tök- um á þeim útgjaldaþáttum ríkisins, sem hafa nokkurs konar sjálfvirka þenslu inn- byggða og ómögulegt er að ráða við að óbreyttu. Þar er til dæmis átt við hlut ríkisins í lyfjakostnaði en hann vex jafnt og þétt þrátt fyrir aðhaldsaðgerðir af hálfu hins opinbera. Þannig er talið að íslendingar muni kaupa lyf fyrir um 5 milljarða króna í ár og þar af er hlutur ríkisins um 2,6 milljarðar króna. Þetta er mun hærri tala en gert var ráð fyrir í fjárlögum, tala sem hækkar ríkisútgjöld til muna. Ef fram heldur sem horfir mun kostnaður ríkis- sjóðs vegna lyfjanotkunar landsmanna halda áfram að aukast um ókomna tíð og sprengja allar áætlanir sem gerðar verða. Sjálfvirkni af þessu tagi í útgjöldum ríkis- sjóðs verður að stöðva með einhverjum ráðum ef ekki á illa að fara. Full ástæða er þó til að fagna þeim árangri sem þeg- ar hefur náðst við að halda ríkisútgjöldum í skefjum. BB. úr hugskotinu Heil Saddam Það hefur aldeilis vcrið vertíð hjá því liði sem sér um erlendu fréttirnar á fjölmiðlunum okkar. Svo sannar- lega engin gúrkutíðin þar. Ástæðan: Austur við Persa- flóa hafa heilu þjóðirnar allt í einu tekið upp á því að þyrpast í kringum einhvern liðsforingjatitt, með að því er manni skilst svona fremur takmarkaða greind eins og gjarnan gerist með atvinnuhermenn, en nokkuð klókur sýnist manni samt þessi náungi vera. Að minnsta kosti berast nú alla leið hingað norðureftir ómur af gamalkunnu hrópi lýðsins, komnu reyndar allt frá tímum Barrabasar. Heil Saddam! Olía er málið Þannig hafa svona fyrirbrigði alltaf öðru hvoru skotið upp kollinum í sögunni og á stundum náð alveg ótrú- lega langt sakir grandaleysis þeirra sem heiminum hafa stýrt. Að þessu sinni virðast menn þó, að minnsta kosti í augnablikinu, ætla að taka í taumana. Því mið- ur hefur maður á tilfinningunni að það sé ekkert endi- lega vegna þess að menn hafi nú loksins lært af lexíum sögunnar, heldur virðast aðrir hlutir fremur vera inni í myndinni. Olía er málið. Það er nefnilega ómögulegt að segja til um hvað gerst hefði, hvaða stefnu málin hefðu tekið, hefði nú litli Hitlerinn þarna fyrir austan haft vit á því að fara að selja Vesturlöndum olíuna sína á sprottprís. Miklar líkur eru á því að undir slíkum kringumstæðum hefði honum liðist að kokgleypa hvert það Kúvæt sem hann hafa vildi og gerast þannig, jafnvel með aðstoó hins „siðmenntaða“ heims, sá Nebúkadnesar sem hann er sagður dreyma um að verða. En auðvitað hafði hann ekki vit á þessu heldur tók að okra á olíunni sinni, svo afleiðingar hafði um heimsbyggð alla, jafnvel hér norður á fslandi. Eldfímt efni Þetta tiltæki arabahöfðingjans hefur nefnilega sett Kjaranúllið, sjálfa þjóðarsáttina, í meiri hættu en allir heimsins BHMR liðar til samans. Því eins og hvert mannsbarn veit þá er olía einkar eldfimt efni, reyndar það besta fóður sem hugsast getur fyrir verðbólgubál þjóðarinnar. Það má þó teljast nokkuð athyglisvert að í þetta skiptið voru það ekki olíufélögin sem byrjuðu á því að rotta sig saman um hækkanir eins og vaninn hefur verið, heldur voru það ferðaskrifstofurnar sem fyrstar gerðu tilraun til þess að taka hækkanir út á olíubrask arabanna og alþjóðlegra auðhringa sem ávallt eru fljótir til að nýta sér svona tilvik. Græða reyndar margir ótæpilega á því að við völd, einkum í ýmsum þróunarlöndum, sitja á stundum allskyns furðufuglar, sem í besta falli halda þjóðum sínum við eða undir hungurmörkum og í versta falli eru glæpamenn gegn mannkyni. Ekki skal hér lagður neinn dómur á réttmæti þeirra hækkana sem ferðaskrifstofurnar tilkynntu. Það má sjálfsagt færa ýmis rök fyrir þeim, auk þess sem æði stór hluti þess fólks sem í sólarlandaferðir fer getur án efa tekið á sig þessar hækkanir, þó svo að það eigi að vísu því miður ekki um margt af því fólki sem tekju- lægst er í þjóðfélaginu og sem í mjög mörgum tilfell- um hefur ef til vill mesta þörf fyrir það að komast í slíkar ferðir. En um þá hlið mála má, ef viljinn er fyrir hendi, finna einhverja félagslega lausn í samvinnu ríkisvalds, samtaka aldraðra og öryrkja, verkalýðs- hreyfingar og ferðaskrifstofa. Hitt er svo annað mál, að mikið finnst manni það nú alltaf hvimleitt þegar fyrirtæki, hverju nafni sem þau nefnast, taka upp á þeim ósið að velta hverri kostnað- arhækkun sem þau verða fyrir yfir á neytandann. Ótta- lega finnst manni nú eitthvað hlálegt það markaðskerfi þar sem fyrirtæki hafa samráð um hækkanir. Verðlags- yfirvöld hafa án efa gert rétt í því að efast um lögmæti þessa samráðs aðila sem aukinheldur eru, sumir hverj- ir að minnsta kosti, vel þekktir af undirboðum. En nú ættu þessi sömu verðlagsyfirvöld að vera sjálfum sér samkvæm og setja hnefann í borðið þegar olíufélögin koma. Þar tíðkast nefnilega miklu hættu- legri samráð og þar eru sko undirboðin alls ekki uppi á teningunum. Eiginlega er þetta dæmi með olíufélög- in ennþá meira lýsandi en hitt með ferðaskrifstofurnar um það hversu asnalegt íslenskt markaðskerfi er. Eig- inlega getur enginn furðað sig á því hversu bág lífskjör íslendinga eru miðað við þjóðartekjur þegar það er haft í huga hvílíkum firna upphæðum þjóðin eyðir í þann lúxus að hafa þrjú olíufélög seljandi sömu olíuna á sama verðinu og jafnvel með höfuðstöðvarnar í þrem háum höllum við gott ef ekki sömu götuna. Reynir Antonsson skrifar Lífskjaravandmál Það hlýtur annars að verða helsti höfuðverkur stjórn- málamanna í þessu landi á næstu mánuðum hvernig hægt er að koma í veg fyrir það að lífskjör fólks, sem eru að minnsta kosti ekki jöfn hvort sem þau eru góð eður ei, skerðist ekki sakir tiltekta einhverra geðsjúkl- inga úti í heimi, einhverra kalla sem ekki virðast víla fyrir sér að svipta kornabörn mjólkinni sinni svo hún megi nýtast fullhraustum dátaskríl. Og þetta verk kann að verða erfitt, þar sem auðsætt er að viðskipta- kjör munu versna vegna stígandi olíuverðs. En við getum sitthvað gert til að draga úr þessum vanda . Það má til að mynda mikið draga úr bensínnotkun. Manni finnst þanng til dæmis ekkert tiltökumál þó að full- frískir karlmenn fari gangandi til vinnu sinnar eða noti almenningsfarartæki þar sem vegalengdir keyri úr hófi. Einnig mætti draga úr þessum eilífu blikkbelju- auglýsingum eða dýrkun á þeirri „karlmennsku" sem felst í því að eyða dýrmætu bensíni í að aka allskyns bíldruslum upp á moldarhauga, ellegar niður í drullu- svöð, og helst velta þeim í leiðinni. Og maður spyr sig líka stundum að því hvort aldrei megi hafa neitt annað en bíla í vinninga hinna ýmsu happdrætta. Hinu er svo ekki að leyna að ýmis ávinningur kann að geta hlotnast af þessu ástandi. Líklegt er að rafork- an okkar verði verðmætari og einnig að matvæli hækki í verði komi til stríðsástands. Og það er nú eins og mann minni að blessaðir friðarsinnarnir íslensku hafi ekki alltaf verið yfir það hafnir að græða á styrjöldum. Mikils er um vert, að við berum nú loksins gæfu til þess að nota slíkan gróða ef til hans kemur til að bæta kjör, ekki síst þeirra sem minna mega sín í þessu þjóð- félagi, í stað þess að láta allan gróðann lenda í hönd- um fámenns sérréttindaaðals eins og á sínum tíma gerðist til dæmis með aðalverktaka. Mest væri þó um vert ef við íslendingar bærum gæfu til þess að hafa for- ystu fyrir því á alþjóðavettvangi að almenningi yrði hlíft eftir föngum við efnahagslegum og félagslegum afleiðingum þess þegar allskyns furðufuglar og geð- sjúklingar ná völdum í einhverju landinu. Að þeir auðhringar sem hingað til hafa á þessu hagnast verði loksins látnir fara að borga brúsann.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.