Dagur - 25.08.1990, Side 7

Dagur - 25.08.1990, Side 7
Laugardagur 25. ágúst 1990 - DAGUR - 7 Kvikmyndasíðan Jón Hjaltason Hoflywood gerir upp reikninga sumarsins - og spáir í framhaldið Harrison Ford er á bekk hinna ákærðu í Presumed Innocent. Raul Julia og Bonnie Bedilia hafa augsjáanlega áhyggjur af verferð Fords. Seint í maí halda Bandaríkja- menn hátíðlegan svokallaðan Memorial Day eða Minningar- dag. Þá minnast þeir allra landa sinna er fallið hafa í styrjöldum. Um þetta leyti eru stóru kvik- myndafélögin vön að skella nýj- um kvikmyndum á markaðinn. Og í ár voru menn venju fremur kokhraustir eftir sérlega góða vertíð í fyrra. Sumartekjurnar einar slógu þá öll fyrri met með Batman og Indiana Jones and The Last Crusade í fararbroddi. Þessar tvær kvikmyndir gáfu tón- inn og virtust festa í sessi tvær uppáhaldsreglur Hollywoodstjór- anna í ár; það kostar mikið fé að græða mikla peninga og - ef dæmið gekk upp einu sinni leiktu þá sama leikinn aftur. Afleiðingar þessa eru þær að stjórarnir hafa ekki vílað fyrir sér að eyða rúmum þremur ntilljörð- um íslenskra króna til að senda Tom Cruise hring eftir hring á kappakstursbraut í Days of Thunder, tæpum fjórum millj- örðum í að skjóta Arnold Schwarzenegger út í geintinn í Total Recall og rúmum fjórum milljörðum til að gefa Bruce Willis færi á að bjarga umsetinni flugstöð í Die Hard 2. Allt er þetta gert í því skyni að slá fyrri hagnaðarmet. Forstjórana í Hollywood dreymir ekki lengur um það eitt að hagnast, það er þeim ekki nóg að reka arðvæn- legt fyrirtæki. Kvikmyndir þeirra verða að slá fyrri gróðamet annars er metnaði þeirra ekki fullnægt og allt er lagt undir til að ná þessu marki. En hvernig hefur þá dansinn í kringum gullkálfinn gengið fyrir sig þetta sumarið? Eitt cr víst, hann er ekki eins fjörugur og í fyrra. Það er þó ekki útlit fyrir gjaldþrot hjá neinu stóru kvik- myndaveranna og vissulega hafa taxtar leikstjóra, leikara og hand- ritshöfunda stigið verulega á árinu en bíófarar hafa ekki stigið dansinn af sömu ákefð og í fyrra. Einstaka mynd hefur þó gefið þokkalega af sér. Total Recall er enn sem komið er í I. sæti topp- gróðalistans með rúma 6 millj- arða í tekjur. Ekki er talið ósennilegt að Dick Tracy og Die Hard 2 muni einnig ná þessu tekjumarki áður en haustið geng- ur í garð. Fjöldi annarra kvik- mynda er hins vegar byrjaður að missa flugið, einkum kostnaðar- samar framhaldsmyndir eins og Another 48Hrs., RoboCop 2, Gremlins 2: The New Batch og Back to the Future, Part III. Engin regla án undantckninga - hvers er að vænta Óvænt tíðindi hafa einnig orðið í ár. Einstaka kvikmyndaframleið- andi veðjaði á snemrnbornar myndir. I mars, en sá mánuður er langt því frá að vera í uppáhaldi hjá Hollywoodfurstum, var Pretty Woman, Tccnagc Mutant Ninja Turtles og The Hunt for Red Oktober hleypt af stokkun- um. Og það er skemmst frá því að segja að hver þcirra hefur hal- að inn yfir 6 milljarða sem þykja allgóðar sumartekjur í Holly- wood. Pretty Woman, ævintýrið frá Disney-fyrirtækinu, þykir nú líkleg til að fara í spor Blazing Saddle's (1974) og verða arðbær- asta mynd ársins þrátt fyrir að hún hafi ekki verið sett á markað um sumar eða jól - og það þykja sannarlega tíðindi þar veslra. Um þetta segir David Katzen- berg stjórnarforseti Walt Disney versins, að það sé hreinlega úr tísku að halda kvikmyndaárið skiptast í 12 gullnar sumarvikur og aðrar tvær um veturinn. „I dag erum við í þessu allar 52 vikur ársins." Það er ljóst að rándýru has- armyndirnar sem komu út í júní ætla ekki að gefa aðstandendum sínum jafn mikið í aðra hönd og vonir stóðu til, sumar ætla jafnvel að verða til mikilla vonbrigða. Það er því engin furða þó að framleiðendur horfi með nokkr- um vonaraugum á kvikmyndirnar sem nú eru að koma út. Augijóst er að bíófarar eru að leita að ein- hverju nýju og ef til vill munum við finna eitthvað við hæfi. Pres- umed Innocent, sem Alan J. Pak- ula leikstýrir, er ætlað að ná til þeirra btófara er vilja ekki cin- tómt léttmeti fyrir peningana sína. í myndinni fer Harrison Ford með hlutverk ríkislögmanns sem ákærður er fyrir morð. Arnold Schwarzenegger i Total Kecall, sem gæti orðið skæðasti keppinautur Die Hard 2 um titinn. Myndin byggir á samnefndri metsölubók Scott Turows. Þá hefur David Lynch ruðst inn á sumarmarkaðinn með Wild at Heart, sem ætti að vera okkur íslcndingum kunn jafn mikið og búið er að fjalla um hana. Þessir og fleiri ónefndir, vonast auðvitað allir til að endurtaka hið óvænta er gerðist í fyrra þegar myndir eins og When Harry Met Sally, Dead Poets Society, Par- enthoodog Honey, I Shrunk the Kids, slógu í gegn Hollywood- furstunum til mikillar furðu. En þegar öllu er á botninn hvolft skiptir það ekki neinu meginmáli hvort tiltekin mynd halar inn stórfé á bíóhúsmarkað- inum. Sannleikurinn er nefnilega sá að aðaltekjurnar koma ekki frá bíóunum heldur í gegnum myndbandamarkaðinn. Að vísu verður því ekki neitað að kvik- mynd sem slær í gegn hjá bíó- gestum verður einnig ábatasöm á myndbandamarkaðinum. En tölurnar tala sínu máli. Það er ekki lengra síðan er 10 ár að kvikmyndaverin fengu um 80% heildarhagnaðar síns frá kvik- myndahúsunum. í dag fá þau um 30 þaðan. Og það sem meira er; 30% af kökunni er stærri hluti í dag en 80% voru árið 1980 og er þó reiknað til jafnvirðis. Af þessu leiðir að kvikntyndaframleiðend- ur horfa til lengri tíma og einmitt þess vegna eru þeir tilbúnir að borga 120 milljónir fyrir kvikmyndahandrit og hundruð milljóna til stjarna eins og Sylv- ester Stallones. Það er því ekkert uppgjafarhljóð í kvikntynda- framleiðendum þó ekki hafi gengið jafnvel í ár og seinasta ár að ginna fólk í bíó enda var sumarið 1989 met sumar í sög- unni. Og þrátt fyrir allt cr útlit fyrir að sumarið 1990 verði það annað arðbærasta í sögunni fyrir Hollywood. Bruce Willis í Die Hard 2 sem kannski vcrður önnur af tveimur arðbærustu kvikmyndum ársins 1990.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.