Dagur - 25.08.1990, Síða 16
Sæplast hf.:
Nýtt hlutafé boðið út
Ákveðið hefur verið að auka
hlutafé Sæplasts hf. á Dalvík
um 10 milljónir. Kaupþingi hf.
hefur verið falið að annast
almennt útboð á því hlutafé
sem núverandi hluthafar í
fyrirtækinu kaupa ekki. Sala
bréfanna á að geta hafíst um
20. september.
Sæplast var gert að almenn-
ingshlutafélagi síðastliðið vor og
hefur félagið fengið heimild fyrir
því að einstaklingum verði veitt-
ur skattaafsláttur gegn hlutafjár-
eign í fyrirtækinu.
Hlutabréfin sem nú verða boð-
in til sölu munu seld á genginu
6,4. Núverandi hluthafar hafa
forkaupsrétt á bréfunum til 5.
september og þá verður ljóst hve
mikið hlutafé verður til sölu á
almennum markaði. JÓH
Bleiki fQlinn sálugi:
Uppboð lausamuna í dag
í dag kl. 14 fer fram nauðung-
aruppboð á lausafé þrotabús
Akursins hf. að Hafnarstræti
100 á Akureyri sem áður var
skemmtistaðurinn Bleiki
fíllinn.
Staðurinn varð sem kunnugt er
gjaldþrota á dögunum. Að kröfu
skiptaréttar Akureyrar verða á
uppboðinu seld húsgögn ýmiss
konar, barborð, hljómflutnings-
tæki, billjardborð, hljómplötur,
ryksugur, ljóskastarar o.fl. JÓH
Kennararáðningar í grunnskólum Akureyrar:
Ennþá vantar herslumuninn
- óvenju mikið um barnsburðarleyfi
síðasta vor og óvenju fámennur
árgangur kemur í staðinn. -bjb
Ennþá vantar í nokkrar stöður
kennara við grunnskólana á
Akureyri. Að sögn Ingólfs
Ármannssonar, skóla- og
menningarfulitrúa bæjarins, er
það einkum vegna barnsburð-
arleyfa fastra kennara að eftir
er að ráða í stöður. „Það vant-
ar herslumuninn ennþá,“ sagði
Ingólfur.
Við Síðuskóla vantar rúmar 3
stöður og ein staða í Glerárskóla
losnar í september vegna barns-
burðarleyfis. Búið var að manna
Lundarskóla að fullu en nýlega
kom það upp að 2A af kennara-
stöðu vantar vegna mikils fjölda
nýnema. Oddeyrarskóli og
Barnaskóli Akureyrar eru orðnir
nær fullmannaðir.
Ingólfur sagði að þessi staða í
kennararáðningum í dag væri
mjög svipuð og í fyrra. „Þá var
komið fram í september þegar
búið var að ráða í allar stöður.
Það er aðallega í sérhæfða
kennslu sem vantar kennara en í
almenna kennslu er búið að
ráða,“ sagði Ingólfur.
Það styttist í að skólarnir
hefjist, 5. september verða 2425
nemendur kallaðir inn í grunn-
skólana fimm. í fyrra voru um
2470 nemendur þannig að þeir
verða eitthvað færri í ár. Munar
þar um mestu að fjölmennur
árgangur lauk grunnskólagöngu
Á réttum kili en röngum stað.
Mynd: Golli
Sviptingar í fiskvinnslunni á Sauðárkróki:
Fískíðjan-Skagfirðíngur
riftir samningi við Skjöld
Fiskiðjan-Skagfírðingur hcfur
nú rift samningi sem hún og
Skjöldur hf. gerðu með sér
þann 7. janúar á þessu ári.
Ástæðuna segir Einar Svans-
son, framkvæmdastjóri FISK,
vera sífelld brot á samningnum
af hálfu Skjaldar. Árni Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Skjaldar, viðurkennir brotin
en segir riftingu samningsins
koma á einkar slæmum tíma
fyrir fyrirtækið og til vinnslu-
stöðvunar komi nema hægt
verði að fá einhvern físk keypt-
an að.
Þessi samningur fól það í sér
að Skjöldur fékk 24,25% alls afla
sem skipin fjögur á Sauðárkróki
fengu. Skjöldur á aðeins eitt af
þeim, Drangey SK 1, en Fiskiðj-
an hin þrjú. Drangey er nú í slipp
og búin með sóknardagana, síð-
an á hún söludag úti í september
svo hún kemur ekki til með að
landa hér á landi næstu sex vik-
Sundlaug Húsavíkur:
Hehningi dýrara að busla
- en ráð var fyrir gert
Nýlega var tekin í notkun busl-
laug við Sundlaug Húsavíkur,
en upphafleg kostnaðaráætlun
rúmlega tvöfaldaðist á fram-
kvæmdatímanum.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp
á rúma eina milljón króna, en
fullfrágengin kostar busllaugin
rúmar tvær milljónir króna. í
kostnaðaráætluninni láðist að
reikna með rafvirkjavinnu, sem
reyndist vera um hálf milljón
króna, og pípulagnir munu hafa
verið snöggtum meiri en gert var
ráð fyrir. GG
urnar.
Astæðan fyrir riftuninni er
samkvæmt bréfi Fiskiðjunnar sú,
að tvær greinar samningsins séu
margbrotnar. Önnur hljóðar upp
á það að skipshöfnin á Drang-
eynni skuli kaupa allan sinn
matarkost af Kaupfélagi Skag-
firðinga en hin segir til um sam-
eiginlega skipulagða veiðitúra
skipsins.
„Það er engin lygi að þessar
greinar hafa verið brotnar, hins
vegar hafa Fiskiðju'menn senni-
lega ekki athugað að þessi samn-
ingsrof koma á versta tíma fyrir
okkur. Drangey á söludag í
Bremerhaven í september og get-
ur því ekki farið að landa hér
heima aftur fyrr en í október og
ef við fáum ekki fisk til að vinna
verður að stöðva reksturinn um
tíma. Ég hef aftur á móti ekkert
upp á Fiskiðjumenn að klaga,-
vegna þess að eitt af samnings-
atriðunum var það að báðir aðil-
ar mættu rifta honum þegar þeim
sýndist án fyrirvara," sagði Árni
Guðmundsson.
En hvernig horfir málið við
framkvæmdastjóra Fiskiðjunnar?
„Menn rifta ekki samningum
nema þeir séu brotnir og eins er
það í þessu tilviki. Framkvæmdin
á þessum samningi hefur gengið
illa og hann verið brotinn af hálfu
Skjaldar í mörgum atriðum. Það
kemur sér ekki síður illa fyrir
okkur að Drangey skuli ekki
landa hér næstu sex vikurnar, því
við yrðum þá að sjá Skildi fyr-
ir afla til vinnslu þann tíma. Það
töldum við okkur ekki fært að
gera og það hafði áhrit á uppsögn
samningsins,“ sagði Einar
Svansson, framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar. SBG
Norðurland:
Veðurguðinn
boðar haust
„Veðurguðinn boðar haust.
Þetta verða alvörulægðir,“
sagði veðurfræðingur Veður-
stofunnar, er hann var spurður
um væntanlegt helgarveður
fyrir Norðurland.
í dag, laugardag, verður í
fyrstu hæg suðaustan átt um allt
Norðurland, en þykknar upp
með mjög vaxandi vindi er líður
á daginn. Aðfaranótt sunnudags
má búast við rigningu, sem helst
til mánudags og jafnvel lengur.
„Veðurguðinn boðar ykkur Norð-
lendingum haust og alvörulægð-
ir,“ sagði veðurfræðingurinn. ój
Strákagöng
holufyllt að
næturlagi
Strákagöng hafa verið lokuð
allri umferð undanfarnar tvær
nætur vegna nauðsynlegs lág-
marksviðhalds í þeim. Hefja
þurfti viðhaldið á því að moka
út aur og leir og síðan að þvo.
Holufylling fylgdi í kjölfarið og
væntanlega fæst malbik í holurn-
ar í næstu viku og má búast við
einhverjum umferðartruflunum
eða jafnvel lokunum meðan á
lagningu malbiksins stendur.
Vegurinn um Siglufjarðarskarð
er fær jeppum eins og stendur,
enda stóð til að fara í meiri við-
gerðir í Strákagöngum en raun
varð á.
Á næsta ári verður skipt um
gólf í göngunum og allar dren-
lagnir endurnýjaðar, þannig að
eftir þá aðgerð ættu bílar að
komast gegnum Strákagöng án
þess að nota rúðuþurrkur. GG
ístess hf.:
Fóðursala eykst stöðugt
- unnið allan sólarhringinn
Byrjað er að vinna allan sólar-
hringinn í fóðurverksmiðju
Istess hf. í Krossanesi að sögn
Einars Sveins Ólafssonar verk-
smiðjustjóra. Sala á fóðri eykst
nú stöðugt vegna aukinnar
fóðurþarfar hjá fískeldisfyrir-
tækjum og verður stigvaxandi
allt fram í októbermánuð.
Aukningin er fyrst og fremst
sala á Færeyjamarkað og fara
Ríkisskip þangað á hálfsmánað-
arfresti með um 300 tonn í hverri
ferð. Skipið fer frá Seyðisfirði til
Þórshafnar og kemur aftur til
Hornafjarðar og tekur ferðin tvo
sólarhringa. Einnig hefur fóður-
þörf Sjöstjörnunnar hf. í Keldu-
hverfi aukist verulega vegna
bleikjueldis.
í fóðurverksmiðju ístess hf.
starfa nú tuttugu og tveir og bætt-
ust 4 nýir starfsmenn við vegna
sólarhringsvaktarinnar og er hver
vakt 8 tíma löng. GG
Kaffi og söngur
- í Samvinnubankanum á Húsavík
Samvinnubankaútibúið á Húsa-
vík varð 25 ára 25. júní sl. og
þá var haldið upp á það með
því að gróðursetja trjáplöntur.
I gær var viðskiptavinum hins
vegar boðið upp á kaffí og
meðlæti og söngsveitin Norð-
austan tólf söng í afgreiðslu-
salnum.
Eins og kunnugt er verður
Samvinnubankinn sameinaður
Landsbankanum á næsta ári og er
verið að samræma bókhaldslykla,
vaxtatöflur og ýmis skipulagsmál.
Núverandi útibússtjóri er Ein-
ar Njálsson sem tekur við starfi
bæjarstjóra á Húsavík 1. sept-
ember nk. og tekur Lára Krist-
jánsdóttir við útibússtjórastarf-
inu, a.m.k. þar til ákvarðanir
liggja fyrir um framtíð bankans.
GG