Dagur - 29.08.1990, Qupperneq 1
Ólafsfjarðarmúli:
Vörubifreið bakk-
aði á fólksbifreið
Fólksbitreið skemmdist tölu-
vert í Ólafsfjarðarmúla í gær
þegar vörubifreið sem þar var
að vinna bakkaði á hana. Eng-
in slys urðu á fólki.
Óhappið vildi til í gær austan
Múlans þar sem unnið er að gerð
nýs vegar í framhaldi Ólafsfjarð-
arganga. Ökumaður vörubifreið-
arinnar sá ekki fólksbifreiðina og
bakkaði á hana.
Að sögn lögreglunnar í Ólafs-
firði var allt með kyrrum kjörum
í hlíðum Ólafsfjarðarmúla í gær,
þrátt fyrir gífurlegt úrhelli fyrri-
partinn í gær og fyrrinótt. Hins
vegar er töluverð drulla á vegin-
um, enda mikil umferð vöru-
bifreiða með þung hlöss um
veginn. óþh
Akureyri:
Um 40 þúsund
fjár lógað í haust
Sláturfjárloforð bænda hjá
Sláturhúsi KEA á Akureyri
eru um 4% færri nú en í fyrra.
Slátrun hefst í húsinu þann 12.
september næstkomandi og
verður slátrað þar 42.300 fjár í
haust.
Óli Valdimarsson, sláturhús-
stjóri, segir að slátrun muni
standa um 6 vikna skeið og við
hana vinni um 120 manns. Að
jafnaði vinna um 40 manns í hús-
inu árið um kring þannig að bæta
þarf við um 80 manns yfir þennan
tíma. Óli segir að eftirspurn eftir
vinnu sé mikil og vart verði vand-
kvæðum bundið að manna húsið
yfir þennan tíma.
Aðspurður segir Óli að birgðir
af kindakjöti í húsinu séu nú
nálægt 50 tonn. Um mánaðamót-
in lýkur sölutímabili á iambakjöti
á sérstöku tilboðsverði og þá
verður gefinn út nýr verðlags-
grundvöllur fyrir kindakjöt. Öli
segist ekki reikna með að kjöt
hækki nú í verði.
„Nei, varla getur verið að kjöt
hækki á meðan þjóðarsátt er hér
í landinu. Verðhækkun á kjöti
yrði væntanlega til að sprengja
íiana þannig að ég get ekki
ímyndað mér annað en að til
komi sérstök aukaniðurgreiðsla á
gamla kjötið til að losna við það
sem fyrst út af markaðinum,"
sagði Oli. JÓH
Eins og viðrað hefur norðanlands síðustu daga hefur pollagallinn komið í
góðar þarfir. Mynd: Goiií
Hótel Húsavík hf.:
Flóð ráðstefna í haust
Talsvert betri herbergjanýting
hefur verið á Hótel Húsavík
það sem af er þessu ári miðað
við síðasta ár.Frá sl. áramótum
hefur Þórdis Hrönn Pálsdóttir
verið hótelstjóri og hún segir
ástæðu aukinnar nýtingar fyrst
og fremst vera þá, að ferða-
hópar sem heimsótt hafa
Húsavík hafa verið fleiri og
stærri á þessu ári.
Hótelstjórinn segist líta með
bjartsýni til haustsins, því all-
margar ráðstefnur eru fyrirhug-
aðar á hótelinu. Má þar nefna
ráðstefnu um málefni fatlaðra;
ráðstefnu umboðsmanna Flug-
leiða á Norður og Austurlandi;
fund fulltrúa norrænna sjón-
varpsstöðva. Einnig verður
Landssamband hestamanna með
fundeina helgi og seinna í haust
verður norrænt þing dýralækna.
Vinsældir Húsavíkur sem ráð-
stefnustaðar hafa verið að aukast
jafnt og þétt á síðustu árum og
það án þess að nein sérstök aug-
lýsingaherferð hafi verið í gangi.
Eigendur Hótel Húsavíkur eru
Húsavíkurbær með tæp 50%,
Flugleiðir, Kaupfélag Þingey-
inga, Fiskiðjusamlag Húsavfkur
og Ferðamálasjóður auk nokk-
urra einstaklinga. GG
Ein yfirstjórn Krossaness og ístéss fyrir bí:
„Ekkert upp á Krossanes að klaga“
Eins og komið hefur fram voru
á sínum tíma uppi hugmyndir
um að sameina yfirstjórn
Krossanesverksmiðjunnar og
ístess hf. og viðræður í gangi í
þeim tilgangi. En eftir að
stjórn Krossanesverksmiðj-
unnar ákvað að ráða fram-
kvæmdastjóra og verksmiðju-
stjóra eru þær hugmyndir fyrir
bí. „Eftir standa ákveðnir
Atvinnuhorfur á Siglufirði:
„Mjög slæmt ástand og
gjörsamlega óviðimandi“
- segir Kolbeinn Friðbjarnarson hjá Verkalýðsfélaginu Vöku
að fá,“ sagði Kol
Atvinnuástand hefur verið
slæmt á Siglufirði allt frá hausti
1988, að sögn Kolbeins Frið-
bjarnarsonar hjá Verkalýðsfé-
laginu Vöku, og ekki er útiit
fyrir neinar breytingar til batn-
aðar í vetur. Um miðjan ágúst-
mánuð voru 43 á atvinnuleysis-
skrá og á umræddu tímabili
hafa alltaf verið frá 20 og upp í
nokkuð á annað hundrað
manns atvinnulausir í bænum.
„Það má segja að frá haustinu
1988 hafi samfellt verið hópur
fólks á atvinnuleysisskrá en
atvinnuleysi var nær óþekkt fyrir-
bæri í fjölmörg ár þar á undan,
eða allt frá 1972 til 1988. Það
kom náttúrlega fyrir að fáein
nöfn voru á skrá en alltaf var
>
Kaffibrennsla Akureyrar: /
Framkvæmdastjóri
ráðirni á næstunni
Nýr framkvæmdastjóri Kaffi-
brennslu Akureyrar verður að
líkindum ráðinn í næstu viku.
Starfið var auglýst laust tii
umsóknar eftir að Helgi Bergs
lét af störfum. '
Magnús Gauti Gautason,
stjóriiarformaður Kaffibrennsl-
unnar sagði í samtali við blaðið
að börist hafi umsóknir um starf-
iðog um þær verði fjallað í stjórn
'fyrirtækisins nú í vikunni.
Akvörðun um eftirmann Helga
geti legið fyrir í næstu viku.
A meðan framkvæmdastjóri
hefur ekki verið ráðinn stýrir
Helgi Örlygsson, skrifstofustjóri
Kaffibrennslunnar, daglegum
störfum í fyrirtækinu. JÓH
næga vinnu
beinn.
Hann sagði að atvinnuleysið
virtist vera orðið viðvarandi
ástand á Siglufirði en þó væru
sveiflurnar nokkrar eins og tölur
yfir atvinnulausa á hverjum tíma
bentu til. Aldrei tekst samt að
hreinsa atvinnuleysisskrána.
„Þetta er mjög slæmt ástand og
gjörsamlega óviðunandi. Því
miður er ekkert útlit fyrir að þaö
batni. Fyrir 1988 var þetta stund-
unt dauft yfir vetrarmánuðina en
menn sáu þó alltaf fram á vinnu
og yfir hábjargræðistímann fengu
allir vinnu, jafnvel börn og ungl-
ingar. Nú er atvinnuleysið við-
varandi," sagði Kolbeinn að
lokum. SS
möguleikar til samstarfs,"
sagði Guömundur Stefánsson,
framkvæmdastjóri ístess, í
samtali við blaðiö og bar til
baka þann orðróm að óánægja
væri innan Istess um ákvörðun
stjórnar Krossaness.
Guðmundur neitaði því ekki
að ístess hafi viljað frekari við-
ræður um sameiginlega yfir-
stjórn, en engar skuldbindingar
höfðu veriö geröar hjá hvorugum
aðila.
„Við hefðum kosið að fara
lengra með málið og athuga bet-
ur hvort ekki væri flötur fyrir
meira og nánara samstarfi. Hins
vegar hefur stjórn Krossaness
ekki hlaupið undan merkjum og
við höfum ekkert upp á þá að
klaga,“ sagði Guðmundur.
Guðntundur sagði að framveg-
is verði samstarf milli fyrirtækj-
anna ekki f þeim niæli sem talað
var um í upphafi. „Það eru ennþá
t.d. möguleikar á að sameina
eignir. rcka saman rannsókna-
stofu og lagcr eða samnýta fast-
eignir og lóðir. Fyrirtæki sem eru
vegg í vegg og eru með álíka
starfsemi komast ekki hjá því að
vinna saman. Ég get ekki ímynd-
að mér annað en að svo verði,"
sagði Guðmundur að lokurn.
-bjb
Aganefnd KSÍ Qallaði í gær um öryggismál á Akureyrarvelli:
KA og Þór sleppa með stranga viðvörun
Aganefnd Knattspyrnusani-
bands Islands komst að þeirri
niðurstöðu á fundi sínum síð-
degis í gær að veita Knatt-
spyrnuráði Akureyrar og
Akureyrarfélögunum KA og
Þór stranga viðvörun vegna
atvika sem urðu á leikjum
KA og Fram og Þórs og IBV
í íslandsmótinu í knattspyrnu
fyrr í sumar. Akureyrarliðin
munu ekki missa síðustu
heimaleiki sína í íslandsmót-
inu, eins og jafnvel hafði ver-
ið búist við. Þessi niðurstaöa
verður kynnt í bréfi frá aga*
nefnd til knattspyrnuráðs og
félaganna einhvern næstu
daga.
Eins og fram hefur komiö
veittist einn áhangenda KA að
Þorvarði Björnssyni. dómara,
að loknum leik KA og Fram í
sumar og kastað var rusli úr
stúku að línuverði í leik Þórs og
ÍBV. Þessi atvik voru litin
alvarlegum auguni og færð í
leikskýrslu.
Aganefnd mun gera kröfu um
það að í kjölfar nefndra atvika
muni öryggisgæsla verða efld
við Akureyrarvöil þannig að
tryggt verði að áhorfendur nái
ekki til leikmanna liðanna eða
dómara og línuvarða. „Málið er
það að Akureyrarvöllur upp-
fyllir engan veginn öryggiskröf-
ur. Augljóslega væri það
albesta í stöðunni að sett verði
upp giröing frá vallarinngangi
að vallarstúku þannig að fólk
komist ekki inn á völlinn,"
sagöi Gísli Gíslason, starfsmað-
ur aganefndar. í samtali viö
Dag í gær.
Fyrir dyrum stendur fyrsti
Evrópuleikur í knattspyrnu á
Akureyrarvelli, leikur KA og
búlgörsku meistaranna CSKA
Sredets Sofia. Gísli segir augljós-
lega mjög mikilvægt að öll örygg-
isatriði verði í lagi á þeim leik.
„Þetta skiptir gífurlegu máli fyr-
ir KA-menn. Eg minni á það að
í Evrópuleik Vals og Wismut
Aue frá Austur-Þýskalandi árið
1987 var kastað áldós inn á völl-
inn og fyrir vikið fékk Valur háa
fjársekt," sagði Gísli. óþh