Dagur - 29.08.1990, Blaðsíða 11
íþróttir
Miðvikudagur 29. ágúst 1990 - DAGUR - 11
l
íslandsmót íþróttasambands fatlaðra:
Aðalsteinn setti met
íslandsmót íþróttasambands
fatlaðra í frjálsum íþróttum
utanhúss fór fram á Yarmár-
velli í Mosfellsbæ laugardaginn
18. ágúst sl. keppendur voru
43 og voru þátttakendur frá 9
aðildarfélögum ÍF. Árangur
varð ágætur á mótinu en einna
hæst bar árangur Aðalsteins
Friðjónssonar, Eik, en hann
stökk 5.03 í langstökki og setti
nýtt íslandsmet.
íþróttafólk úr Eik og ÍFA náði
ágætum árangri á mótinu. Auk
sigursins í langstökkinu sigraði
Aðalsteinn einnig í 1. flokki í
hástökki. Magnús Ásmundsson,
Eik, sigraði bæði í 60 m hlaupi í
2. flokki og langstökki í 3. flokki.
Stefán Thorarensen, ÍFA, varð
annar í 400 m hlaupi í 1. flokki og
þriðji í 60 m hlaupi í 1. flokki.
Matthías Ingimundarson, Eik,
sigraði í langstökki og varð annar
í 60 m hlaupi í 2. flokki. Þá varð
Anna Ragnarsdóttir, Eik, þriðja
í hástökki í 1. flokki.
Keppnisreglur á íslandsmótinu
eru þannig að keppandi færist í
næsta flokk fyrir ofan ef færri en
þrír keppendur eru í hans flokki.
Þetta veldur því að nokkrir kepp-
enda kepptu í ntun sterkari flokki
en þeirra fötlun segir til um.
Evrópuleikurinn gegn Frökkum:
Gunni og Toddi í hópnum
Á blaðamannafundi sem KSÍ
hélt í gær var tilkynnt val á
landsliðinu sem mætir Frökk-
um í undankeppni Evrópu-
keppninnar í knattspyrnu mið-
vikudaginn 5. september.
Norðlendingar eiga þar tvo
fulltrúa, Gunnar Gíslason og
Þorvald Örlygsson. Einnig var
gefið upp U-21 árs liðið sem
mætir Frökkum 4. september
og drengjalandsliðið sem hélt
utan í gær til að leika fyrri leik
sinn gegn Wales i Evrópubik-
arkeppni landsliða. Eiga Norð-
lendingar þrjá fulltrúa í því
liði.
Ef fyrst er vikið að A-landslið-
inu þá eru markverðir Birkir
Kristinsson, Fram, og Bjarni Sig-
urðsson, Val. Aðrir leikmenn
eru: Atli Eðvaldsson, KR, Pétur
Pétursson, KR, Sævar Jónsson,
Val, Porgrímur Þráinsson, Val,
Antony Karl Gregory, Val, Ólaf-
ur Þórðarson, Brann, Gunnar
Gíslason, Hácken, Pétur
Ormslev, Fram, Sigurður Grét-
arsson, Grasshoppers, Þorvaldur
Örlygsson, Nottingham Forest,
Guðni Bergsson, Tottenham,
Ragnar Margeirsson, KR, Arnór
Guðjohnsen, Anderlecht, og
Rúnar Kristinsson, KR.
Leikur Wales og íslands, skip-
Úrslitakeppni 4. deildar:
Magni-Hvöt
í kvöld
2. umferð úrslitakeppni 4. deild-
ar Islandsmótsins í knattspyrnu
fer fram í kvöld. Magni og Hvöt
mætast á Grenivík og hefst
leikurinn kl. 19. Á sama tíma
mætast Grótta og Skallagrímur á
Seltjarnarnesi.
Leiðrétting:
Jón er í GÓs
en ekki GÓ
Á íþróttasíðum blaðsins í gær um
opna Sauðárkróksmótið í golfi
misritaðist skammstöfun golf-
klúbbsins hans Jóns Jóhannsson-
ar, sem lenti í 3. sæti með
forgjöf. Jón er í GÓs (Golf-
klúbbnunt Ós Blönduósi) en ekki
í GÓ (Golfklúbbi Ólafsfjarðar).
Beðist er velvirðingar á þessum
leiðu mistökum.
uðu leikmönnum 16 ára og yngri,
fer fram á morgun. Það lið sem
hefur betur í viðureignunum
tveimur fer beint í úrslitakeppn-
ina sem fram fer í Sviss í maí
1991. Seinni leikurinn fer vænt-
anlega fram 24. september. Liðið
skipa: Árni Arason, ÍA, Egill
Þórisson, Víkingi, Árni Pálsson,
ÍA, Gunnlaugur Njálsson, ÍA,
Pálmi Haraldsson, ÍÁ, Helgi Sig-
urðsson, Víkingi, Guðmundur
Benediktsson, Þór, Brynjólfur
Sveinsson, KA, Jóhann Steinars-
son, ÍBK, Sigurbjörn Hreiðars-
son, Dalvík, Einar Árnason,
KR, Hrafn Kristjánsson, FH,
Orri Þórðarson, FH, Jón Gunnar
Gunnarsson, FH, Lúðvík
Jónsson, Stjörnunni, og Viðar
Erlingsson, Stjörnunni.
Landsliðið U-21 árs skipa:
Ólafur Pétursson, ÍBK, Kristinn
Finnbogason, KR, Þormóður
Egilsson, KR, Jóhann Lapas,
KR, Helgi Björgvinsson, Vík-
ingi, Kristján Halldórsson, ÍR,
Steinar Adólfsson, Val, Haraldur
Ingólfsson, ÍA, Ingólfur Ingólfs-
son, Stjörnunni, Valdimar
Kristófersson, Stjörnunni.
Valgeir Baldursson, Stjörnunni,
Steinar Guðgeirsson, Fram,
Gunnar Þ. Pétursson, Fylki,
Gunnlaugur Einarsson, Grinda-
vík, Ríkharður Daðason, Fram,
og Finnur Kolbeinsson, Fylki.
Þorvaldur Örlygsson er í íslenska
landsliðshópnum sem mætir Frökk-
um á Laugardagskvöldi.
Akureyrarmeistarar Þórs. Efri röð f.v: Luka Kostic, þjálfari, Unnar Jónsson, Bjarni Sveinbjörnsson, Siguróli Krist-
jánsson, Þorsteinn Jónsson, Sverrir Heimisson, Valdimar Pálsson, Júlíus Tryggvason, Sigurbjörn Viðarsson,
aðstoðarþjálfari, og Þorsteinn Árnason, starfsmaður Þórs. Neðri röð f.v: Nói Björnsson, Kjartan Guðmundsson,
Hlynur Birgisson, Friðrik Friðriksson, Sverrir Kagnarsson, Birgir Karlsson og Arni Þór Árnason. Mynd: Golli
Akureyrarmótið í knattspyrnu:
Þórsarar sigruðu KA-menn
í framlengdum úrslitaleik
Þórsarar urðu Akureyrar-
meistarar í knattspyrnu þegar
þeir sigruðu KA 3:1 í fram-
lengdum leik á Akureyrarvelli
í fyrrakvöld. Staðan eftir
venjulegan leiktíma var 1:1 en
í seinni hálfleik framlengingar-
innar skoraði Árni Þór Árna-
son tvívegis og tryggði Þórsur-
um titilinn. Þar með var sig-
urganga KA-manna í mótinu
rofin en fyrir þennan leik
höfðu þeir unnið bikarinn fjór-
um sinnum í röð.
Aðstæður til knattspyrnu-
iðkunar voru ekki með besta
móti í fyrrakvöld. Mikil rigning
var þegar leikurinn hófst og þrátt
fyrir að fljótlega stytti upp var
völlurinn mjög blautur og þungur
og knattspyrnan í samræmi við
það.
Leikurinn var mjög fjörugur á
köflum og bæði lið fengu töluvert
af færum sem þeirn tókst ekki að
nýta. Engin mörk voru þó skoruð
í fyrri hálfleik en hins vegar
fækkaði á vellinum þegar ágætur
dómari leiksins, Magnús Jónatans-
son, sýndi Kjartani Einarssyni,
KA, og Unnari Jónssyni. Þór,
rauða spjaldið eftir ábendingu frá
línuverði sent hafði séð þá lenda í
einhverjum útistöðum.
KA-menn náðu forystunni á
53. mínútu þegar Ormarr átti
Nói og Lárus
Orri í bann
Þórsararnir Nói Björnsson og
Lárus Orri Sigurðsson leika
ekki með liði sínu í leiknum
gegn IA á Akureyrarvelli á
laugardaginn. Þeir verða í leik-
banni þar sem þeir hafa báðir
hlotið fjögur gul spjöld.
Nói og Lárus Orri hlutu báðir
gult spjald í leik Vals og Þórs í
15. umferð, ásantt 5 öðrunt Þórs-
urum. Bannið kemur á slæmum
tírna fyrir Þórsara því þeir verða
að vinna alla þrjá leikina sem eft-
ir eru til að eiga von um áfram-
haldandi veru í deildinni.
skot af 20 m færi. Boltinn fór í
varnarmann og lak innfyrir mark-
línuna. 7 mínútum síðar jafnaði
Valdimar Pálsson með draunta-
marki. Hann skaut af 25 m færi
og hafnaði boltinn efst í mark-
horninu.
Eftir þetta dofnaði heldur yfir
leiknum og dró ekki til tíöinda
fyrr en í seinni hálfleik framleng-
ingarinnar. Þá skaut Árni Þór á
KA-markið af 20 m færi og bolt-
inn fór yfir Ægi Dagsson, sem
stóð alltof framarlega, og í netið.
Nokkrum mínútum síðar innsigl-
Um síðustu helgi fór fram úr-
slitakeppni í 3., 4. og 5. flokki
íslandsmótsins í knattspyrnu.
Þórsarar höfnuðu í 4. sæti í 3.
flokki og 6. sæti í 4. flokki,
KA-menn í 7. sæti í 3. flokki
og 4. sæti í 4. flokki og Völs-
ungur hafnaði í 6. sæti í 5.
flokki.
Úrslitakeppni 3. flokks fór
frant á Akranesi en þar áttu Þór
og KA lið. Þórsarar byrjuðu á
því að sigra Fram 3:2 og töpuðu
svo 2:4 fyrir KA. Þá léku þeir við
Tý frá Vestmannaeyjum og
þurftu Þórsarar að sigra með
tveggja marka mun til að tryggja
sér sæti í úrslitaleiknum. Það
hefði sennilega tekist ef afar slak-
ur dómari hefði ekki verið í aðal-
hlutverki. Hafði hann þrjár víta-
spyrnur af Þórsurum og þar með
sæti í úrslitakeppninni. Þórsarar
unnu leikinn 3:2 og léku til úrslita
um 3. sæti við ÍA og töpuðu 1:2.
Þess má geta að hefðu Þórsarar
komist í úrslitin hefðu þeir leikið
við KR sem þeir sigruöu 8:2 í
undanúrslitum fyrir sköntmu.
KA-menn lentu í söntu dóm-
aravandræöunum þegar þeir léku
við Tý. Var dómgæslan á svipuð-
um nótum og í leik Þórs og Týs
og lauk leiknum með sigri Týs,
aði Árni sigur Þórs þegar hann
fékk sendingu inn í vítateiginn og
renndi boltanum af öryggi í
netið. Varnarmenn KA stóðu
frosnir og töldu Árna rangstæðan
en svo var augljóslega ekki.
Bæði lið stilltu upp flestum sín-
unt sterkustu mönnum í byrjun
en þegar líða tók á leikinn fengu
óreyndari menn að spreyta sig.
Þórsarar léku betur og áttu sigur-
inn skilinn. Verður fróðlegt að
sjá hvort þeim tekst að fylgja
honunt eftir þegar liðin mætast í
íslandsmótinu unt aðra helgi.
2:1. Var það mál flestra að dóm-
gæslan í þessum tveimur leikjum
hefði verið algert hneyksli. KA-
menn sigruðu síðan Þór 4:2 og
töpuðu 1:4 fyrir Fram. Þeir léku
til úrslita um 7. sæti við FH og
unnu 3:1. íslandsmeistari varð
KR.
Úrslitakeppni 4. flokks fór
fram í Garðabæ og Kópavogi og
þar áttu KA og Þór einnig lið.
KA-menn töpuðu 2:5 fyrir KR og
unnu Þór 4:2. Þeir léku til úrslita
um 3. sæti við Tý og töpuðu 4:3.
Þórsarar byrjuðu á stórsigri á
Grindavík, 10:0 og töpuðu síðan
2:4 fyrir KA. Þeir léku til úrslita
urn 5. sæti við Stjörnuna og töp-
uðu 1:3. íslandsmeistari varð
Breiðablik.
Úrslitakeppni 5. flokks fór
fram í Reykjavík og á Seltjarn-
arnesi og þar átti Völsungur lið.
Bæði a- og b-lið tóku þátt og gilti
samanlagður árangur þeirra.
Fyrst mættu Völsungar FH og
tapaði b-liðið 0:5 og a-liðið 2:5.
Næst tapaði b-liðið 1:4 fyrir ÍR
en a-liðið vann 4:1 og b-liðið tap-
aði síðan 1:4 fyrir Gróttu og a-
liðið 0:2. Liðin léku til úrslita urn
5. sæti við KR og tapaði b-liðið
2:3 en a-liðið gerði jafntefli, 3:3.
Völsungur hafnaði því í 6. sæti.
íslandsmeistari varð FH.
Úrslitakeppni yngri flokka í knattspyrnu:
3. flokkur Þórs og 4.
flokkur KA náðu lengst