Dagur - 29.08.1990, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 29. ágúst 1990
Eyfírsk matvæli opna hverfisverslun á Akureyri:
Fólkið í hverfinu vildi fá búðina aftur
- segir Bjami Ingvason
„Okkar ætlun var aldrei sú að setja hér upp versl-
un heldur ætluðum við að leggja allt húsnæðið
undir vinnsluna. Þegar við vorum komin af stað í
breytingunum fór strax að verða þrýstingur frá
fólkinu í hverfínu um að opna litla verslun og það
má segja að við höfum orðið við þessum óskum,“
segir Bjarni Ingvason, matreiðslumaður og aðal-
eigandi Eyfírskra matvæla hf. sem á morgun opnar
formlega nýja verslun í Ránargötu 10 á Akureyri.
Með þessu er endurvakin ein af hverfísbúðunum í
bænum en í þessu húsnæði rak Kaupfélag Eyfírð-
inga verslun þar til um mitt síðasta ár.
Eyfirsk matvæli hf. var stofnaö
fyrir fjórum árum og hefur starf-
að næsta óslitið síðan. Bjarni hef-
ur rekið fyrirtækið með fjöl-
skyldu sinni, í fyrstu í húsnæði
iðngarða Akureyrarbæjar í Gler-
árhverfi og síðan um tíma í
Skipagötu 14. í janúar síðastliðn-
um var hafist handa við breyting-
ar á húsnæðinu í Ránargötunni
og í apríl fór starfsemin á fullt á
nýjan leik eftir að hún hafði legið
mikið til niðri á meðan á breyt-
ingum stóð.
Engin útþenslustefna
Eyfirsk matvæli hf. var stofnað
sem fyrr segir árið 1986. Bjarni
segir að frá byrjun hafi fyrirtækið
framleitt pizzur og saíat, jafn-
framt því að selja út smurbrauð,
snittur, köld borð og þorramat.
Auk þess var í byrjun gerð tilraun
með framleiðslu á ýmsum skyndi-
réttum fyrir örbylgjuofna en
margt varð þess valdandi að frá
henni var horfið. Mest er að gera
í kjötvinnslunni á haustin þegar
slátrun stendur sem hæst og segja
má að strax að þeirri törn lokinni
sé farið að huga að næstu törn,
nefnilega þorramatnum vinsæla.
Bjarni segir að framleiðsla
fyrirtækisins sé seld í verslunum á
Eyjafjarðarsvæðinu og á nokkr-
um öðrum stöðum á Norðaustur-
landi. í fyrstu hafi verið reynt að
byggja upp dreifikerfi út um land
en slíkt borgi sig vart fyrir ekki
stærra fyrirtæki og meiri fram-
leiðslu.
Nýja húsnæðið í Ránargötunni
er um 150 fm að stærð sem vart
telst mikið rými fyrir vinnslu sem
Bjarni við hluta tækjanna í vinnslu Eyfirskra matvæla. Húsnæðið er um 150
fermetrar og þarna vinna 6 manns.
Fyrir framan Ránargötubúðina. Þessi verslun varð til fyrir óskir nágrann-
anna sem lögðu hart að Bjarna að endurvekja hana.
Bjarni Ingvason og starfsfólk í Eyfirskum matvælum og Ránargötubúðinni samankomin við afgreiðsluborðið. Opn-
un þessarar hverfisbúðar hefur verið vel tekið af íbúunum. Myndir: Goiii
þessa. Bjami segir það enda
augljóst að fyrirtækið geti aldrei
orðið stórfyrirtæki við þessar
aðstæður og það sé heldur ekki
ætlunin. „Við höfum verið að
móta þetta fyrirtæki frá því við
stofnuðum það. Við erum að
skapa okkur fyrirtæki sem við
getum lifað af og þetta á að hald-
ast lítið. Á þessu er því ekki
útþenslustefna, það eru nógu
margir sem fara um koll á svo-
leiðis hugsunarhætti,“ segir
Bjarni.
Fleirí járn í eldi
Bjarni kvaddi ekki eldamennsk-
una algerlega þegar hann stofn-
aði Eyfirsk matvæli. Á sínum
tíma rak hann veitingastaðinn
Brekku í Hrísey og vinnur þar
enn stöku helgi. Þá er hann einn
þeirra sem reka veitingahúsið
Fiðlarann á Akureyri en þann
stað tóku þeir nokkrir félagar á
leigu.
„Við erum allir að gera þetta
fyrir sjálfa okkur og það er mjög
gaman að fást við þetta. Hjá mér
hefur það alitaf verið kappsmál
að láta þessi aukastörf ekki spilla
fyrir rekstrinum á Eyfirskum
matvælum og taka þann tíma sem
fyrirtækið þarf. En maður er í
þessari eldamennsku fyrir ánægj-
una enda er þetta mikið áhuga-
mál hjá manni,“ segir Bjarni.
Stórmarkaðirnir og
gamla fólkið
Þó að á morgun sé formlegur opn-
unardagur verslunarinnar í Rán-
argötu 10 hefur búðin verið opin
um mánaðarskeið. Bjarni segir
að viðskiptin hafi farið vaxandi
og sér í lagi sé eldra fólkið ánægt
með að fá þarna á ný búð með
helstu nauðsynjavörur. En er
nauðsynlegt að setja þessa búð á
stofn? Þjóna stórmarkaðir bæjar-
ins og aðrar matvöruverslanir
þessu bæjarfélagi ekki sem
skyldi?
„Það má jú segja að sam-
keppnin sé of mikil,“ svarar
Bjarni. „Við Akureyringar erum
búnir að ganga í gegnum fækkun
versiana og breytingar yfir í stór-
markaðina. Hver er hagurinn af
þessu? Jú, til dæmis hefur gamla
fólkið orðið utanveltu í þessari
þróun. Hér er til dæmis ekkert
kerfi strætisvagna sem miðar að
því að koma gamla fólkinu í stór-
markaðina og frá þeim aftur.
Þess vegna tekur þetta fólk því
vel þegar hverfisbúðirnar koma
aftur og við ætlum að bjóða hér
uppá heimsendingarþjónustu
þannig að þetta fólk þurfi ekki að
rogast heim með pokana í snjón-
um í vetur. Tíminn verður svo að
leiða í ljós hvernig þessari þjón-
ustu verður tekið.“ JÓH
Dalvík:
Ellefu nýjar íbúðir í byggingu
- enn slegist um hverja íbúð á leigumarkaðinum
Það sem af er þessu ári hafa
sex nýjar íbúðir verið afhentar
á Dalvík, allar innan félagslega
íbúðakerfisins. Þá eru alls 9
félagslegar íbúðir nú í bygg-
ingu á Dalvík og verða ein-
hverjar þeirra afhentar eigend-
um fyrir áramót.
Þessar íbúðir eru allar í rað-
húsum en sem stendur er engin
blokk í byggingu á Dalvík. Þessu
til viðbótar eru tveir einstakling-
ar með einbýlishús í byggingu og
þar með eru upptaldar fram-
kvæmdir við byggingar íbúðar-
húsnæðis í bænum í ár.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins gætir lítið breytinga á leigu-
markaðinum á Dalvík þrátt fyrir
að nýjar íbúðir bætist við. Nánast
er slegist um hverja íbúð sem
losnar, sérstaklega yfir vetrar-
mánuðina, enda koma þá til
bæjarins nemendur við stýri-
mannabraut Dalvíkurskóla sem
auka á eftirspurnina eftir hús-
næði.
Aðrar byggingaframkvæmdir á
Dalvík nú eru breytingar á Fóö-
urstöðinni í skipaafgreiðslu fyrir
Kaupfélag Eyfirðinga. Þá standa
yfir framkvæmdir við byggingu
Tæknideild Húsnæðisstofnun-
ar hefur nú til umsagnar teikn-
ingar og verðhugmyndir bygg-
ingaverktaka á Dalvík vegna
byggingar 6 íbúða fyrir stjórn
verkamannabústaða sem áætl-
að er að hefja byggingu á í
haust.
Sveinbjörn Steingrímsson,
bæjartæknifræðingur á Dalvík,
segir að vonir standi til að tekið
verði jákvætt í umsóknina og
hægt verði að hefja byggingu á
þessurn íbúðum í haust. Hann
segir að leitað hafi verið eftir til-
safnaðarheimilis við Dalvíkur-
kirkju og byggingu nýja grunn-
skólans. JÓH
boðum í þessar 6 íbúðir frá fyrir-
tækjunum Tréverki, Viðari og
Daltré. Þau tvö fyrrnefndu bjóði
raðhúsaíbúðir en Daltré lítið ein-
býlishús.
Sveinbjörn segir ekki ljóst á
þessari stundu hvar þessar íbúðir
verði en allt cins geti þær orðið á
fleiri en tveimur stöðum í
bænum. Miðað er við að þessar
íbúðir komi til afhendingar á
næsta ári. „Þetta er það sem við
höfum heimild fyrir eins og er, en
hvað við fáum að byggja á næsta
ári kemur ekki strax í ljós," sagði
Sveinbjörn. JOH
Verkamannabústaðir á Dalvík:
Ætlunin að byrja
á 6 íbúðum í haust