Dagur - 29.08.1990, Blaðsíða 4
flUOAO ~ OGÍM fóUGC .GS lURBDU>tiVO!lW
s -
4 - DAGUR - Miðvikudagur 29. ágúst 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÚLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR PÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Ungkratar vilja
aðild að EB og ál-
ver á Keilisnes
Á þingum stjórnmálasamtaka þykir góður siður að
semja stjórnmálaályktun áður en þingfulltrúar
halda heim á leið. í slíkri ályktun er gjarnan fjallað
um ýmis dægurmál stjórnmálabaráttunnar og
stefnumið viðkomandi flokks eða samtaka í helstu
þjóðþrifamálum. Þessari gullvægu reglu fylgdu
ungkratar dyggilega um síðustu helgi er þing Sam-
bands ungra jafnaðarmanna var haldið í Hvera-
gerði. Sú stjórnmálaályktun sem þar var samþykkt
hefur hins vegar vakið meiri athygli en gengur og
gerist með slíkar samþykktir — og ekki að ósekju.
í stjórnmálaályktun sinni kynna ungkratarnir
m.a. afstöðu sína til tveggja stærstu og þýðingar-
mestu mála sem nú eru til umræðu í þjóðfélaginu.
Annars vegar er um að ræða stöðu íslands í samein-
aðri Evrópu og hins vegar byggingu nýs álvers á
íslandi. Afstaða ungkratanna til hvors tveggja er
sannast sagna með endemum.
Ungir jafnaðarmenn segja hispurslaust að þeir
„telji ekkert því til fyrirstöðu að íslendingar sæki
um inngöngu í Evrópubandalagið að því tilskildu að
Evrópubandalagið viðurkenni brýnustu hagsmuna-
mál íslendinga, “ eins og það er orðað í ályktuninni.
Á sama stað eru þeir, sem varað hafa við afleiðing-
um þess fyrir sjálfstæði og sjálfsforræði íslensku
þjóðarinnar að ganga í Evrópubandalagið, kallaðir
„einangrunarsinnar sem af fullkomnu ábyrgðarleysi
tala um endalok sjálfstæðisins við það eitt að taka
upp samstarf á jafnréttisgrundvelli í hinni nýju
Evrópu." Það er með ólíkindum að setningar þessar
sé að finna í ályktun frá þingi ungkrata. Svo virðist
sem ungir jafnaðarmenn geri sér enga grein fyrir
þeim skilyrðum sem fylgja fullri aðild að Evrópu-
bandalaginu.
Sá hluti ályktunarinnar sem fjallar um byggingu
nýs álvers á íslandi er álíka „gáfulegur" og EB-
hlutinn. Þar er hvatt til þess að álver verði byggt á
„hagkvæmasta staðnum" og síðan segir: „Allarlík-
ur benda til að þessi staður sé Keilisnes á Vatns-
leysuströnd, og fái Atlantal-fyrirtækin ekki að
byggja það þar er stórkostleg hætta á að þau muni
fremur taka tilboðum frá Kanada um að reisa fyrir-
tækið þar.“ Skilaboð ungkratanna til þjóðarinnar
eru einfaldlega þau að reisa eigi álverið á Suður-
nesjum. Ekki er ólíklegt að afstaða ungkratanna í
þessu máli ráðist af því að enginn fulltrúi frá lands-
byggðinni sat þing ungra jafnaðarmanna um helg-
ina, í það minnsta eru allir þeir sem kosnir voru í
framkvæmdastjórn SUJ á þinginu búsettir í Reykja-
vík og nágrannabyggðum. Það eitt út af fyrir sig
hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir unga jafnaðar-
menn á landsbyggðinni. Degi er það mjög til efs að
þeir séu reiðubúnir til að skrifa undir stjórn-
málaályktun þá sem Samband ungra jafnaðar-
manna sendi frá sér um helgina. BB.
Neytendafélag Akureyrar og nágrennis:
Enn um meðferð eggja
„í júlímánuöi kannaði Neytenda-
félag Akureyrar og nágrennis
meðferð eggja í eyfirskum versl-
unum.
Sú könnun leiddi í ljós að mjög
víða væri pottur brotinn varðandi
merkingu umbúða og geymslu
eggjanna. Vegna þessarar niður-
stöðu hér á Eyjafjarðarsvæðinu,
þótti Neytendasamtökum ástæða
til að kanna hvort ástandið væri
slæmt víðar á landinu, og gekkst
því fyrir annarri könnun dagana
20. og 21. ágúst.
í seinni könnuninni varð sú
ánægjulega niðurstaða að ástand-
ið í umdæmi Neytendafélags
Akureyrar hafði batnað, og í öll-
um meðalstórum og litlum versl-
unum á svæðinu frá Ólafsfirði til
Grenivíkur sem könnunin náði
til, var einungis verslunin Síða
sem ekki hirti um að hafa eggin í
kæli, þrátt fyrir merkingu á
umbúðunum þar að lútandi.
Af stærri verslunum var hins
vegar allt aðra sögu að segja, ein-
ungis KEA Nettó hafði sín egg í
kæli, á meðan Hagkaup, Hrísa-
lundur, Matvörumarkaðurinn og
Plúsmarkaðurinn höfðu sín egg
frammi á gólfi í stofuhita þrátt
fyrir að á umbúðum flestra eggj-
anna stæði skýrum stöfum að þau
ætti að geyma á köldum stað.
Nú halda kaupmenn því fram
að eggin stoppi aldrei nema 2-3
daga í verslununum, og því skaði
það vöruna einungis óverulega
að geymast við stofuhita. En þeg-
ar tekið er tillit til þess að sum af
þessum eggjum eru a.m.k. 2-3
mánaða gömul og hafa þar að
auki verið geymd utanhúss um
lengri eða skemmri tíma, er það
stórkostlegur ábyrgðarhluti að
geyma þau ekki stöðugt í kæli.
í KEA Byggðavegi voru egg
sem höfðu verið í búðinni 2-3
vikur þannig að fullyrðingar um
2-3 daga hámark eru léttvægar.
Kaupmenn hafa haldið því
fram að engar reglur séu um
merkingu og geymslu eggja,
þetta er rangt því í giidi er reglu-
gerð sem tekur af allan vafa í
þessum efnum. Framleiðendur
geta valið um, hvort þeir vilja
láta meðhöndla eggin sem kæli-
vöru eða ekki. Hvorn kostinn
sem þeir velja, eru skýrar reglur
um viðeigandi merkingar, og eft-
ir þessum merkingum framleið-
enda ber kaupmönnum að fara.
Á fundi sem fulltrúi Neytenda-
félagsins átti fyrir 3 vikum með
heilbrigðisfulltrúa og einum
eggjaframleiðenda varð það að
samkomulagi að heilbrigðisfull-
trúi boðaði fund með fulltrúum
framleiðenda og kaupmanna þar
sem kynnt yrði væntanleg sam-
þykkt heilbrigðisnefndar Eyja-
fjarðar um meðferð eggja. Til
þessa fundar hefur enn ekki verið
boðað, en umræddur framleið-
andi hefur þó bætt merkingar sín-
ar á eggjaumbúðum sem fram að
þeim tíma höfðu einungis tíund-
að verð. Það hlýtur þó að teljast
vafasöm hagræðing á staðreynd-
um að merkja eggin sem kæli-
vöru ef þau hafa verið geymd úti
undir beru lofti um lengri eða
skemmri tíma."
Neytendafélag Akureyrar og
nágrennis.
Helgi Kristinsson, framkvæmdastjóri Tölvufræðslunnar: Námskeið að hefjast á Tálknafírði og Flateyri auk Akur-
eyrar. Mynd: Golli.
Tölvufræðslan Akureyri:
Vetrarstarfið að
Tölvufræðslan Akureyri var með
opið hús um síðustu helgi þar
sem starfsemi fyrirtækisins á
komandi mánuðum var kynnt.
Að sögn Helga Kristinssonar,
framkvæmdastjóra Tölvufræðsl-
unnar, var aðsókn góð og sagði
hann að kynningin hefði í alla
staði tekist vel. Helgi sagði að
ráðgert væri að fara af stað með
ný námskeið í skrifstofutækni í
næsta mánuði. Boðið væri upp á
þrjá mismunandi tíma til nám-
skeiðahaldsins, þ.e. á morgnana,
eftir hádegið og á kvöldin.
„Skráning stendur yfir og það
ræðst af þátttöku hvort við förum
af stað með alla hópana þrjá,“
sagði Helgi. Um er að ræða 256
klukkustunda löng námskeið og
auk þess geta nemendur á nám-
skeiðunum sótt æfingatíma í
tölvustofu fyrirtækisins sér að
kostnaðarlausu. Auk skrifstofu-
tækninámsins býður Tölvufræðsl-
an Akureyri upp á alhliða tölvu-
hefjast
nám og ýmis sérhæfð námskeið
fyrir starfsfólk fyrirtækja.
Að sögn Helga eru á næstunni
að hefjast tvö námskeið í skrif-
stofutækni á vegum fyrirtækisins
utan Akureyrar, þ.e. á Tálkna-
firði og Flateyri. Bæði námskeið-
in væru fullskipuð nemendum en
hins vegar hefði gengið nokkuð
erfiðlega að fá kennara á Vest-
fjörðum, en stefna Tölvufræðsl-
unnar væri sú að fá kennara á
viðkomandi stöðum til að ánnast
hluta kennslunnar.