Dagur - 29.08.1990, Blaðsíða 2
fréttir
Skipulagsdeild Akureyrarbæjar:
Lausn í sjónmáli með húsnæði
- deildin þarf að víkja fyrir Tónlistarskólanum
Eins og komið hefur fram ósk-
aði Tónlistarskólinn á Akur-
eyri eftir því að fá neðstu hæð
húsnæðisins í Hafnarstræti til
afnota í vetur, en Skipulags-
deild Akureyrarbæjar hefur
verið þar til húsa. Ekki hefur
enn fundist lausn á málinu, en
að sögn Stefáns Stefánssonar,
yfirmanns deildarinnar, má
búast við lausn málsins í næstu
viku.
Roar Kvam, skólastjóri Tón-
listarskólans, sagði í samtali við
blaðið að skólinn væri í miklum
húsnæðisþrengingum. Farið var
fram á að skipulagsdeildin væri
farin út um næstu mánaðamót.
Roar sagði að skólinn myndi
aðallega nota neðstu hæðina und-
ir skrifstofur, en einnig undir
kennslustofur og bókasafn.
Elektro co. hf. á Dalvík hættir
starfsemi sinni í áföngum á
þessu ári, rafeindaverkstæðið
hætti starfseminni sl. mánudag
en verktakastarfseminni verð-
ur ekki hætt fyrr en í október
eða jafnvel um næstu áramót.
„Það hefur staðið til í mörg ár
að skólinn fái þetta húsnæði.
Skrifstofuhaldið hefur nánast
verið niðri í kössum hjá okkur,
þannig að þörfin er mjög brýn,“
sagði Roar.
Uthlutun ur Framkvæmda-
sjóði fatlaðra fyrir árið 1990
hefur i'arið fram. í hlut
Norðurlandssvæðis eystra
komu 13 miljónir og 531
þúsund, sem er 6,7% af heild-
arframlaginu. Ekki fékkst fjár-
Tveir starfsmannanna fara suð-
ur til náms í Tækniskólanum,
einn fer að starfa sjálfstætt og
annar framkvæmdastjóranna,
Þorsteinn Skaptason rafvirki,
hefur tekið við starfi hjá Sæplasti
hf. Óvíst er um framtíð annarra,
en hinn framkvæmdastjórinn,
Helgi Indriðason rafvirkjameist-
ari, segist ekkert vera farinn að
þenkja yfir því hvað hann taki sér
fyrir hendur, en eitthvað ætli
hann sér að „dunda“ áfram.
Með þessari. breytingu verður
aðeins eitt rafverktakafyrirtæki
starfandi á Dalvík, Rafvélar sf.
GG
Stefán sagði í samtali við blað-
ið að ekkert ákveðið húsnæði
væri í sigtinu fyrir skipulags-
deildina, en líklega yrði deildinni
útvegað þak yfir höfuðið í næstu
viku. -bjb
magn til nýframkvæmda.
Framkvæmdasjóður fatlaðra er
sjóður sem starfar samkvæmt
lögum um málefni fatlaðra og
veitir fé til framkvæmda innan
þess málaflokks, að sögn Bjarna
Kristjánssonar, framkvæmda-
stjóra svæðisstjórnar um málefni
fatlaðra á Norðurlandi eystra.
„Norðurlandssvæðið eystra fékk
6,7% af framlagi sjóðsins í ár, en
það er mikið minna en farið var
fram á. Svæðisstjórn um málefni
fatlaðra á Norðurlandi eystra
sótti um kr. 43 miljónir, þannig
að það sem fékkst er aðeins brot
af upphæðinni og slíkt er ekki
nýmæli. Hæsta einstaka upp-
hæðin sem sótt var um var til
byggingar á sambýli fyrir fjölfatl-
aða. Við sóttum um tuttugu
milljónir til þessa verkefnis, en
ekkert fékkst. Umsókn að upp-
hæð kr. 7,5 milljónir til kaupa á
íbúð í fjölbýlishúsi var einnig
hafnað. Annað, sem var skorið
niður, var tii smærri verkefna
sem veitt er fé til, flestra. Því er
hægt að segja að þær fjárveiting-
ar sem fengust fari í að Ijúka
verkefnum sem unnið hefur verið
að undanfarin ár, en ekkert fæst
til nýframkvæmda," sagði Bjarni
Kristjánsson. ój
Dalvík:
Elektro co. hf. hættir
aJlri starfsemi í haust
Framkvæmdasjóður fatlaðra:
Þrettán og hálf mllljón
í hlut Norðurlands eystra
2 - DAGUR - Miðvikudagur 29. ágúst 1990
Akureyri:
Dagvistin HoJtakot
tekin í notkun
Síðastliðinn fimmtudag var ný
dagvist tekin í notkun á Akur-
eyri. Ber hún nafnið Holtakot
og stendur við Þverholt. Ekki
mun Holtakot saxa á biðlista
eftir dagvistarrými í bráð því
börnin sem voru á Iðavelli
munu dvelja þar fyrst um sinn.
Sem kunnugt er voru gerðar
athugasemdir við húsnæði Iðvall-
ar og var dagvistinni lokað. Sig-
ríður Magnea Jóhannsdóttir,
dagvistarfulltrúi, sagði að bæjar-
stjórn Akureyrar hefði ekki tekið
ákvörðun um framhaldið en hún
þarf að endurskoða fjárhagsáætl-
unina því annaðhvort verður að
ráðast í kostnaðarsamar viðgerð-
ir eða byggja nýtt hús eigi
Iðavöllur að komast í gagnið á
ný.
Að sögn Sigríðar er húsnæði
Holtakots mjög fallegt og að-
staða þar góð. Bygging dagvistar-
innar tók 10 mánuði og sagði Sig-
ríður að Holtakot væri gott dæmi
um að hægt væri að byggja slíkar
stofnanir upp á skömmum tíma.
Hún vonaðist til að þetta milli-
bilsástand stæði stutt yfir þannig
að nýja dagvistin yrði sú viðbót
sem gert hafði verið ráð fyrir. SS
- gamli sjúkrahúshlutinn lagaður
Staðan hjá Sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki er svipuð og verið
hefur að sögn Sæmundar Her-
mannssonar, framkvæmda-
stjóra, en reynt hefur verið að
spara og draga saman seglin
yfir sumarið. Útlitið fyrir vet-
urinn er gott og Sæmundur
reiknar ekki með að neyðar-
ástand skapist vegna mann-
eklu.
í sumar hefur gamli hluti
sjúkrahússins verið lagfærður
með það fyrir augum að bæta
aðstöðu bæði fyrir starfsfólk og
sjúklinga. Meðal þess sem lag-
fært hefur verið er aðgengi hjóla-
stólasjúklinga inn á salernin í
gamla hlutanum.
Sæmundur reiknar með því að
reksturinn haldist í núlli eins og á
síðasta ári og vel hefur gengið að
manna stöður í sumarafleysing-
um. Um veturinn sagði hann að
alltaf vantaði eitthvað í skörðin
en ekki væri búist við að neyðar-
ástand skapaðist vegna þess. Á
sjúkrahúsinu er nær eingöngu
íslenskt starfsfólk og þó að aug-
lýst hafi verið erlendis segir
Sæmundur að það hafi ekki borið
árangur. SBG
Sjúkrahúsið á Sauðárkróki:
Ekki mannekia í vetur
Pioneer hljómtækjasamstæða
Ein með öllu
Tilboðsverð kr. 82.500 stgr.
KEYPT PIONEER