Dagur - 20.09.1990, Qupperneq 1
I
Útnes á Kópaskeri:
Kvótínn
á þrotum
- skreiðarbirgðir
óseldar
Fyrir skömmu var fiskveiði-
kvótinn hjá Þingey ÞH-51 á
þrotum og báturinn tekinn í
slipp á Akureyri. Þar með
stöðvaðist vinnsla hjá
Útnesi hf. á Kópaskeri.
Auðun Benediktsson,
útgerðarmaður, sagði í sam-
tali við Dag að fátt væri
framundan hjá Útnesi fram
til áramóta.
„Það er varla um annað að
ræða en að Ioka og hætta
þessu þegar ekkcrt hráefni er
að fá. Kvöti er ófáanlegur á
því verði scm eitthvert vit er í
að borga fyrir hann. En þetta
er sama staða og verið hefur
hjá mér undanfarin ár,“ sagði
Auðun.
Hjá Útnesi var nokkuð mikil
skreiðarvcrkun á síöasta ári og
á enn eftir að selja þriðjung
skreiöarinnar. Hún hefur ekk-
ert hreyfst. f ár var stærstur
hluti aflans verkaður í saltfisk
en einnig var töluvert fryst af
roðflökum.
Fiskvinnslan var auglýst til
sölu í sumar og sagöi Auðun
að hún væri enn til sölu ef ein-
Itver vildi kaupa á viðunandi
verði.
Ingunn St. Svavarsdóttir,
oddviti Presthólahrepps, sagði
fyrir nokkru að brýnt væri að
auka kvótann á Kópaskeri,
bæði botnfisk- og rækjukvóta.
Auðun tók í sania streng.
Hann sagði að fiskvinnsluhús-
ið myndi standa tómt fram yfir
sláturtíð cn vinnsla færi aftur í
gang ef hráefni fengist. Aukið
hráefni væri hins vegar ekki í
sjönmáli. SS
KA-menn gerðu sér lítið fyrir og sigruðu búlgarska stórveldið, CSKA Sofía, 1:0 í fyrstu umferð Evrópukeppni mcistaraliða á Akurcyrarvclli í gærkvöld. KA-
menn voru betri aðilinn í lciknum og óheppnir að vinna ekki stærri sigur. Á myndinni sést Hafsteinn Jakobsson skalla boltann en hann skoraði eina mark
1 leiksins í fyrri hálfleik. Sjá nánar um leikinn á bls. 15. Myml: Kl.
Akureyri:
Vörubflstjórar sjá fram á erfiðan vetur
- áratugir síðan atvinnuhorfur þeirra hafa verið eins slæmar
Félagar í vörubílstjórafélaginu
Val á Akureyri hafa þungar
áhyggjur af atvinnuhorfum í
haust og vetur. Aldrei áöur
hefur útlitið verið jafn slæmt
hjá þeim, og minna er um
verkefni en nokkru sinni áður.
Víkingur Guðmundsson, for-
maður Vals, skrifaði bæjaryfir-
völdum á Akureyri bréf fyrir
nokkru, þar sem bent er á
ýmislegt sem miður fer, að
mati bílstjóranna.
Meginefni bréfsins er á þá leið
Ný hlutabréf í Sæplasti á markað í dag:
Reiknað með að fyrirtækið skili
37,5 milljóna króna hagnaði í ár
- nýja hlutaféð á að standa undir kaupum á Plasteinangrun
I dag fara ný hlutabréf í Sæ-
plasti hf. á Dalvík á markað.
Bréfin eru að nafnvirði 6 millj-
ónir króna. Búast má við að
eftirspurn eftir þessum bréfum
verði mikil þar sem rekstur
Sæplasts hefur gengið vel á síð-
ustu árum og fyrirtækið borg-
að 10% arð til hluthafa á
hverju ári, ef frá er talið fyrsta
starfsárið.
Á aðalfundi Sæplasts hf. í sum-
ar var samþykkt að auka hlutafé
um tæpar 19 milljónir en í síðasta
mánuði ákvað stjórn fyrirtækisins
að bjóða út 10 milljónir af þessu
nýja fé. Hluthafar nýttu hluta af
forkaupsrétti sínum en 6 milljón-
ir fara nú á almennan markað og
verða bréfin til sölu hjá Kaup-
þingi í Reykjavík og Kaupþingi
Norðurlands á Akureyri.
Samkvæmt útboðslýsingu hef-
ur stjórn fyrirtækisins ákveðið að
nýja hlutaféð verði notað til fjár-
festingar í framleiðslutækjum.
Félagið hefur nýlega keypt 95%
hlutafjár í Plasteinangrun hf. á
Akureyri og mun hlutaféð notað
til að standa undir þeim kaupum.
Að því er segir í útboðslýsing-
unni mun nýtt hlutafé styrkja
grundvöll félagsins og gera því
fært að halda áfram uppbyggingu
þess í ljósi þeirra breytinga sem
væntanlega eru á efnahagskerfi
Evrópu.
Afkoma Sæplasts hefur verið
góð á síðustu árum og uppgjör
fyrsta ársfjórðungs þessa árs
bendir til þess sama. Á fyrstu
fjórum mánuðum ársins nam
hagnaðurinn um 27 milljónum
króna fyrir skatta. Rekstraráætl-
un hefur verið yfirfarin eftir
kaupin á Plasteinangrun hf. og er
nú miðað við að heildarhagnaður
ársins verði um 37,5 milljónir
króna fyrir skatta en Sæplast á
ójafnað skattalegt tap frá fyrri
árum og mun því ekki greiða
tekjuskatt af þessum hagnaði.
JÓH
að Akureyrarbær geri nánast
ekkert til að halda uppi vinnu hjá
bílstjórum á stöðinni. Önnur
sveitarfélög, t.d. Dalvík og
Húsavík, leggja að sögn for-
manns Vals mikla áherslu á að
halda bílavinnu eingöngu fyrir
heimabílstjóra, og Dalvíkurbær
rekur t.d. ekki vörubíla eins og
Akureyrarbær gerir. Víkingur
bendir á að bæjarfélagið eigi í
samkeppni við atvinnubílstjóra,
sem skaði báða aðila. Einnig
standi fyrir dyrum endurnýjun á
vörubílum bæjarins, og þá sjái
atvinnubílstjórar fram á óbreytta
stefnu bæjarins í þessum málum
hjá bænum.
Stefán Stefánsson, bæjarverk-
fræðingur, sagði í samtali við
Dag að hann skildi sjónarmið bíl-
stjóranna vel, bæði hefði vinna
dregist saman undanfarin ár og
verktökum fjölgað. Bréf þeirra
til bæjarins yrði afgreitt á næst-
unni. Bæjarráö hefði beðið um
upplýsingar um úthlutun vinnu
o.tl. atriði. Stefán sagðist efast
um að bærinn gæti veitt bíl-
stjórunum mikla úrlausn í erfið-
lcikum þcirra.
Hvaö það atriöi snertir aö
Akurcyrarbær væri að endurnýja
bíla sína segir Stefán að aðeins
hafi verið um eitt slíkt tilvik að
ræða, þ.e. nýjan kranabíl hjá
Vatnsveitunni. Á móti væru lagð-
ir niður tveir bílar, gamli vatns-
veitubíllinn og einn vörubíll hjá
Hitaveitunni. Ekki verði um
frekari endurnýjun að ræða á
þessu ári, og sú endurnýjun sem
er í aösigi, t.d. hjá gatnagerðinni,
myndi verða á svipuðum nótum,
þ.e. aö hafa frekar færri bíla en
fleiri.
Sjá bréf formanns Vals til
Akureyrarbæjar á bls. 6. EHB
Sérleyfisbílar Akureyrar:
Metsumar í fólksflutnmgum
Sumarið, sem nú er greinilega
liðið, var mjög hagstætt fyrir
Sérleyfísbíla Akureyrar og
töluverð aukning varð í fólks-
flutningum frá fyrri árum.
Gunnar M. Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Sérleyfís-
bíla, hafði ekki tölur yfír far-
þegafjölda en hann taldi víst
að um aukningu hefði verið að
ræða.
„Þetta var besta sumarið hjá
okkur. Að vísu fór ferðamanna-
straumurinn heldur seint af stað
og var fremur rólegt hjá okkur
fram undir miðjan júní, en eftir
það var mikið að gera alveg út
ágúst,“ sagði Gunnar.
Eins og aðilar í ferðaþjónustu
á íslandi þekkja vel er ferða-
mannatímabilið stutt og sam-
þjappað og í júlí kemur toppur
sem erfitt er að ráða við. Gunnar
sagði að þá hefði verið meira en
nóg að gera hjá Sérleyfisbílum
Akureyrar og þeir hefðu stund-
um lent í vandræðum vegna
fólksfjöldans. Hann sagði að slíkt
ástand skapaðist alltaf í júlímán-
uði hjá þeim sem selja ferðir og
gistingu.
Hvað komandi vetur snertir
kvaðst Gunnar vera bjartsýnn en
hann vonaðist eftir hagstæðu tíð-
arfari. Dýrt væri að láta bílana
standa óhreyfða vikum saman.
Hann sagði að starfsemi Sérleyf-
isbíla Akureyrar yfir vetrarmán-
uðina byggðist á akstri skóla-
krakka, íþróttahópa og annarra
hópa, svo og ferðum upp í
Skíðastaði. SS