Dagur - 20.09.1990, Blaðsíða 15

Dagur - 20.09.1990, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 20. september 1990 - DAGUR - 15 fbróttir Hafsteinn Jakobsson skoraði sigurmark KA-manna með fallegu skoti. Hafsteinn átti frábæran leik, barðist mjög vel á miðjunni og vann mikinn fjölda af skallaboltum. Mynd: ki Óvænt úrslit í fyrstu umferð Evrópukeppni meistaraliða á Akureyrarvelli: KA-menn lögðu CSKA með frábærum leik - Hafsteinn Jakobsson skoraði eina mark leiksins á 16. mínútu voru sigri hrósandi KA- menn sem gengu af Akureyr- arvelli í gær eftir að hafa mætt búlgörsku meisturunum í CSKA Sofia í fyrstu umferð Evrópukeppni meistaraliða. KA-menn léku sinn langbesta leik í sumar og sýndu CSKA, sem verið hefur stórveldi í búlgarskri knattspyrnu um ára- tuga skeið, hvar Davíð keypti ölið með því að sigra 1:0. Sigur KA-manna var sanngjarn, þeir komu Búlgörunum í opna skjöldu með mikilli baráttu- gleði og skynsömum leik og mega gestirnir þakka fyrir að vera ekki nema einu marki undir þegar seinni leikurinn í Sofiu hefst að hálfum mánuði liðnum. KA-menn byrjuðu strax af krafti og kom á óvart hversu yfir- yegaðir ieikmenn liðsins voru þar sem flestir þeirra voru að spila sinn fyrsta Evrópuleik. Búlgar- irnir virkuðu hins vegar tauga- óstyrkir og áttu í vök að verjast fyrstu mínúturnar. Strax á 3. mínútu gáfu KA- menn forsmekkinn. Ormarr Ör- lygsson átti þá sendingu á Jón Grétar sem var í mjög góðu færi en skot hans small í þverslá búlg- arska marksins. KA-menn voru hvergi bangnir og það var fylli- lega í samræmi við gang leiksins þegar þeir náðu forystunni á 16. mínútu. Ormarr vann þá boltann af miklu harðfylgi við endamörk- in, sendi fyrir markið og fékk boltann aftur út. Hann renndi þá út í teiginn þar sem Hafsteinn Jakobsson var mættur og skoraði með fallegu skoti efst í markiö. Á næstu mínútum voru KA- menn tvívegis nálægt þvi' að bæta við mörkum. Kjartan Einarsson átti skot framhjá og annað utan úr teignum sem búlgarski mark- vörðurinn varði af stakri snilld. Síðustu tíu mínútur fyrri hálf- leiks pressaði CSKA nokkuð en náði aldrei að brjóta sterka KA- vörnina á bak aftur. Búlgarirnir voru ákveðnir í upphafi seinni hálfleiks og fengu þá tvö dauðafæri, skot í þverslá og skalla yfir úr opnu færi af markteig. Jöfnunarmark lá í loft- inu en KA-tnenn létu ekki bugast og náðu smátt og smátt yfirhönd- inni á ný. Þeir fengu þrjú dauða- færi í röð í sömu sókninni en markvörður CSKA bjargaði vel eftir að Árni Hermannsson átti skot í stöng. Endaspretturinn var KA-manna sem fögnuðu mikið þegar flautað var til leiksloka. KA-menn léku þennan leik mjög skynsamlega. Þeir vörðust vel og sóttu af mikilli yfirvegun. Spilið var betra en áður hefur sést í suntar og sóknarleikurinn hvass og ógnandi. Liðið í heild átti góðan dag, Haukur traustur í markinu, vörnin sterk, miðju- mennirnir yfirvegaðir og sóknar- mennirnir gerðu varnarmönnun- um oft lífið leitt. Búlgarirnir eru ntjög fljótir og leiknir en KA-mcnn náðu að brjóta spil þeirra á bak aftur. Bestir voru Georgi Georgiev, geysilega leikinn og útsjónarsam- ur, og markvörðurinn Apostolov sem bjargaði þeim frá stærra tapi. Liö KA: Hiiukur Bragason. Ormarr Örlygsson, Jón Grctar Jónsson, Bjarni Jónsson (Árni Hcrmannsson á 68. mín- útu). Hcimir Guðjónsson. Kjartan Ein- arsson (t'örður Guðjónsson á 7.3. mín- útu). Stcingrímur Birgisson. Halldór Halldórsson, Hafstcinn Jakohsson, Hall- dór Kristinsson. Gauti Laxdal. I.ið CSKA: Apostolov. Dimitrov. Ivanov. Vitanov, Mladenov. Yanchcv, Donev. Bakalov, Marashlicv, Georgiev, Bachev (Anton Dimitrov á 58. mínútu). Gult spjald: Mladenov. Dómari: Kurt Sörensen frá Danmörku. Línuverðir: Arnc Hanscn og Lars Gcrncr. Ormarr Örlygsson, sem hér leikur á einn varnarmanna CSKA, átti góðan leik og lagði upp sigurmark leiksins. Mynd: Golli Sagt eftir leikinn Asparouh Nikodinov, þjálfari CSKA: „KA-liðið spilaði vel og þetta var þeirra leikur. Ég er meö sex nýja menn í liðinu og það spilaði illa. Hvað leikinn úti varðar þá eiga bæði lið möguleika en við erum reynslumeiri og ég held að við eig- um tneiri möguleika." Guöjón Þóröarson: „Við spiluðum agaðan leik og unnum verðskuldaðan sigur. Miðað við færi hefðu eðlileg úrslit allt eins getað orðið 3-4:1. Við vörðumst vel, sóttum hvasst og þetta gekk upp. Þetta var ánægjulegur sigur og sýnir að það býr meira í liðinu en árangurinn í sumar bendir til. Leikurinn úti verður mjög erfiður og ég á ekki von á að þetta eina mark nægi.“ Hafsteinn Jakobsson: „Það var góð tilfinning að skora. Ég er búinn að bíða eftir þessu í allt sumar og það var ekki verra að skora í svona leik. Ég er ánægð- ur með liðið, við spiluðum skynsamlega allan tímann." Haukur Bragason: „Þetta er meiriháttar og skemmtileg sárabót eftir sláppt sumar. Ég átti satt að segja ekki von á sigri en úr því sem kornið var hefði verið gaman að taka þá stærra. En róðurinn úti verður erfiður." Steingrímur Birgisson: „Sigurinn er sætur en það var verst að skora ekki fleiri mörk fyrst við fengum færin til þess. Það var allt annar andi í hópnum en verið hefur og við spiluðum vel. Þeir eru hins vegar mjög erfiðir og við sáum að við máttum ekki byrja að elta þá. Við biðum þess vegna og lokuðum svæðum og það gekk upp.“ Jón Grétar Jónsson: „Frábært - þetta bjargar alveg tímabilinu. Við sönnuðum fyrir sjálf- um okkur að við getum þetta. Þeir voru ekki eins sterkir og ég átti von á. Verst að við skoruðum ekki fleiri mörk.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.