Dagur - 20.09.1990, Síða 11
Fimmtudagur 20. september 1990 - DAGUR - 11
ÖG
St|ÖÍ?NUMERKIN
Hörpuútgáfan:
Ástinog
stjörnumerkin
Út er komin hjá Hörpuútgáfunni
ný bók „Ástin og stjörnumerkin"
eftir Jonathan Sternfield. í frétt
frá útgáfunni segir m.a.: Ungir
sem aldnir spá í framtíðina og
leita til þess ólíkra leiða. Margir
telja sig fá svör með því að lesa
úr gangi himintungla.
Stjörnuspekin er gömul fræði-
grein, sem á seinni árum hefur
þróast með nútímalegum aðferð-
um. Það er ekki síst ástin með
allri sinni óvissu og fjölbreytni
sem leitar sífellt nýrra spurninga.
„Hverjir eru möguleikar þínir i
ástamálum? Hvernig finnurðu
þinn eina rétta - eða þína einu
réttu? Úr hvaða stjörnumerki
ættirðu að leita þér maka?" Ástin
og stjörnumerkin er bók sem
svarar þessum spurningum.
Bókin er 184 bls. unnin að öllu
leyti í prentsmiðjunni Odda hf.
Þýðinguna annaðist Gissur Ó.
Erlingsson.
Lítil atvinna hjá leigubifreiðastjórum:
„Sumarið var lélegt“
- sögðu leigubifreiðastjórarnir á BSO
Tuttugu og fímm leigubifreiða-
stjórar stunda akstur á Akur-
eyri, en leyfi er fyrir 27 leigu-
bifreiðum í bænum. Sumarið
hefur verið með afbrigðum
lélegt þrátt fyrir ört vaxandi
fjölda ferðamanna, sem gista
bæinn yfír sumarmánuðina.
„Já, hér er mjög lítið að gera,"
sögðu leigubifreiðastjórarnir á
BSO, hvar þeir sátu að spilum
eða lásu nýjustu dagblöðin.
„Sumarið var lélegt og raunar
er helgaraksturinn það eina sem
gerir okkur kleift að stunda þessa
atvinnugrein. í sumar var mikið
um ferðamenn, en þeir komu
ekki inn hjá okkur. Raunar virð-
ist stefnan vera, að flytja ferða-
mennina sem fyrst úr bænum
austur á bóginn í rútum.
Hér stunda 25 bifreiðastjórar
atvinnuakstur og nýliðun hefur
flokks hráofni
+reyndir matreiðslumenn +úrvals hráefni=
Tilboð X Tilboð X Tilboð
verið töluverð. Á tveimur síðast-
liðnum árum hafa tíu nýir bifreiða-
stjórar hafið störf á stöðinni, en
þeir gömlu hafa látið af störfum.
Hér er vakt allan sólarhringinn,
en það verður að segjast, að
bæjarbúar nýta sér næturþjónust-
una mjög lítið. Nú fer vetur í
hönd, en veturinn með rysjóttu
veðurfari og ófærð eykur gjarnan
aksturinn hjá okkur," sögðu
BSO. ój
DAGUR
Akurcvri
0 96-24222
Norðlenskt dagblað