Dagur - 09.10.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 9. október 1990
Útkall Slökkviliðs Akureyrar
í Skarðshlíð á sunnudag:
SvMjammar brunnu við
nokkurt tjón af völdum reyks
Slökkvilið Akureyrar var kvatt
að fjölbýlishúsinu númer 6 við
Skarðshlíð á Akureyri síðdegis
á sunnudag þar sem mikill
reykur var einni íbúð. íbúðin
reyndist mannlaus og fóru
slökkviliðsmenn milli svala og
inn í íbúðina þar sem sviða-
pottur reyndist vera á fullum
straum en allt vatn uppgufað.
Samkvæmt upplýsingum
Slökkviliðs Akureyrar urðu
skemmdir á íbúðinni sökum
reyks en mikill reykjarmökkur
var í íbúðinni þegar að var
komið. Reyksins varð einnig vart
í næstu íbúð fyrir ofan og í stiga-
gangi fjölbýlishússins.
Slökkviliðið fékk annað útkall
kl. 4.32 í fyrrinótt þegar eldvama-
kerfi íþróttahallarinnar, sem
beintengt er slökkvistöðinni fór í
gang. t>ar var heldur ekki um eld
að ræða en í einum sturtuklefa
rann heitt vatn og var mikil gufa
sem setti kerfið í gang. JÓH
skák
i
Haustmót SA:
Síðasta umferðin
tefld í gærkvöld
í gærkvöld settust menn að
tafli í siðustu umferð Haust-
móts Skákfélags Akureyrar en
úrslit lágu ekki fyrir þegar
blaðið fór í prentun. Þó er Ijóst
að aðeins Arnar Þorsteinsson
og Þór Valtýsson áttu mögu-
leika á fyrsta sætinu.
Staðan fyrir síðustu umferðina
var þannig að þeir Arnar og Þór
höfðu fengið 5 vinninga af 6
mögulegum en næstu menn voru
með 3'/2 vinning þannig að fyrstu
tvö sætin voru frátekin.
Haustmótinu átti að vera lokið
um helgina en sjöundu og síðustu
umferðinni var frestað m.a.
vegna þátttöku nokkurra ungra
skákmanna í móti barna og ungl-
inga í Reykjavík. SS
Barna- og unglingamót:
Góður árangur hjá Örvari
Nokkrir félagar í Skákfélagi
Akureyrar tóku þátt í barna-
og unglingamóti í Reykjavík
um helgina og stóðu sig vel,
eftir því sem Dagur kemst
næst.
Örvar Arngrímsson mun hafa
komist í úrslit og keppt um utan-
landsferð en hann lenti að lokum
í 2. sæti.
Bogi Pálsson og Rúnar Sigur-
pálsson munu einnig hafa staðið
sig vel á mótinu en erfiðlega gekk
að fá fréttir af því í gær. SS
Sjálfstæði Islands - EB-EFTA
Kristín Einarsdóttir þingkona Kvennalistans kemur í
laugardagskaffi 13. okt. kl. 14.00 í fundarsal STAK,
Ráðhústorgi 3, 2. hæð og ræðir um sameinaða Evr-
ópu og stöðu íslands 1992.
Allt áhugafólk er hvatt til að koma.
Kvennalistakonur Norðurlandi eystra!
Komið allar á áríðandi angafund um undirbúning
alþingiskosninga laugard. 13. okt. kl. 11.00 á sama
stað.
fréttir
Hár hönnunarkostnaður mannvirkja á vegum Akureyrarbæjar:
Valda óljósar hugmyndir
óþörfum aukakostnaði?
I umræðum bæjarstjórnar
Akureyrar hefur margsinnis
komið fram að hönnunarkostn-
aður væri hár við mannvirkja-
gerð. Nýlega var greint frá því
hér í blaðinu að starfsmenn
byggingadeildar teldu hönnun-
arkostnað t.d. vegna nýs húss á
Iðavelli vera óljósan. Eiríkur
Jónsson, verkfræðingur hjá
Verkfræðistofu Norðurlands,
segir að næsta auðvelt sé fyrir
verkkaupa að gera sér grein
fyrir hönnunarkostnaði nýbygg-
inga fyrirfram.
Eiríkur segir að frá sínu sjón-
arhorni ætti kostnaðarliðurinn
hönnun í mannvirkjagerð alls
ekki að vera óviss stærð, eins og
ætla mætti af ummælum í frétt í
Degi sl. laugardag vegna Iðavall-
ar. Hönnunarkostnaður af ný-
byggingum væri reiknaður sam-
kvæmt ákvæðum taxta, sem verk-
fræðingar og arkitektar þekktu
vel. Þetta ætti við þegar fyrirfram
væri vitað hver stærð og gerð
byggingarinnar ætti að vera.
„Pegar þetta liggur fyrir er
auðvelt að gefa sér hver efri
mörk hönnunarkostnaðar eru,
þótt hugsanlegt sé að semja um
lægra verð. Þetta eru eins og
hverjar aðrar ákvæðisvinnu-
verðskrár, sem hægt er að fletta
beint upp í eftir stærð húsa. Hægt
er að fá fullhannað hús og tilbúin
útboðsgögn í ákvæðisvinnu, og
fyrirfram er hægt að gefa sér
hvað þetta kostar. Þetta á við um
nýjar byggingar, en þegar um
viðgerðir á eldra húsnæði er að
ræða er einnig um að ræða skoð-
un á vettvangi jafnhliða verkinu,
þ.e. mat á viðgerðinni og
ákveðna forsögn um framkvæmd
verksins. En það er rangt að
segja hönnunarkostnað nýrra
mannvirkja óljósan,“ segir Eirík-
ur.
Eiríkur segir að menn megi
ekki blanda saman kostnaði við
hönnun og byggingaeftirlit.
Byggingaeftirlit er ekki tengt
hönnun, því það er ekki sjálfgef-
ið að þeir sem hanna húsið hafi
neitt um eftirlit að segja á eftir.
Menn þekkja dæmi ákaflega vel
úr skólabyggingum í bænum, t.d.
við Vericmenntaskólann, hver
hönnunarkostnaður er. Þar væri
staðan sú að áður en nokkuð er
teiknað er gerður samningur við
ráðuneytið um húsagerð og stærð
mannvirkis. Þannig liggur allt á
borðinu áður en byrjað er að
teikna. Hjá Akureyrarbæ kæmi
hins vegar oft fyrir að breyta
þyrfti teikningum meira og
minna eftir að fyrsta hönnun fer
fram, en aukakostnaður af þeim
sökum kæmi til sögunnar vegna
óljósra hugmynda viðkomandi
aðila um endanlega notkun
Aðalfundur Bandalags kenn
ara á Norðulandi eystra var
haldinn að Stórutjörnum sl.
fimmtudag. Af málum sem
tekin voru fyrir á fundinum má
nefna að ákveðið var að leggja
tímaritið „Heimili og skóli“
niður.
Á fundinum var samþykkt
ályktun þar sem skorað var á
sveitarstjórnir að standa vel að
skólahaldi í ljósi nýrra laga um
breytta verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga.
Ný stjórn BKNE var kjörin og
tekur Hólmfríður Guðmunds-
dóttir, kennari við Þelamerkur-
skóla, við formennsku af Jóni
Eyfjörð. Varaformaður var kjör-
inn Ólafur Arngrímsson, Litlu-
laugaskóla. Hann verður sjáif-
mannvirkis og nýtingu. Sem
dæmi um þetta mætta nefna
sundlaugina í Glerárhverfi.
Dagur hafði samband við
Ágúst Berg, deildararkitekt
byggingadeildar, og spurði hvað
hann ætti við með því að hönnun-
arkostnaður væri oft óljós þáttur.
„Ég stend við það,“ segir Ágúst
Berg. „Eins og oftast kemur í ljós
þarf að endurskoða og breyta
hönnun eftir að teikningar hafa
verið lagðar fyrir í nefndum og
ráðum bæjarins. Það er ekki
óalgengt að fólk vilji fá að skoða
málin betur. Hvað byggingaeftir-
lit snertir þá hefst ekki eftirlit
með byggingu fyrr en hún er
komin af stað. Ég er að tala um
hönnun á byggingu áður en það
gerist. Hjá okkur er kostnaði við
byggingaeftirlit og hönnun ekki
blandað saman.“ EHB
krafa formaður að ári liðnu sam-
kvæmt reglum bandalagsins.
Aðrir í stjóm eru: Pálmi Jakobs-
son, Barnaskólanum á Húsavík,
Sigríður Kristín Bjarnadóttir,
Gagnfræðaskóla Akureyrar, Ein-
ar Þórbergsson, Framhaldsskól-
anum á Húsavík, Alma Oddgeirs-
dóttir, Síðuskóla, Hóimfríður
Sigurðardóttir, Lundarskóla, og
Sveinbjörn Njálsson, Dalvíkur-
skóla.
Þá voru kosnir tveir nýir full-
trúar í fræðsluráð, þau Birgir
Sveinbjörnsson, Barnaskóla
Akureyrar, og Svanhildur Her-
mannsdóttir, Barnaskóla Bárð-
dæla. Varamenn: Birna Arnþórs-
dóttir, Lundarskóla, og Ánna
Helgadóttir, Grunnskólanum á
Kópaskeri. SS
Aðalfundur BKNE:
Ný stjóm kjörin
bridds
Norðurlandsmótið í tvímenningi í bridds:
Akureyringar í efstu sætunum
- Jón Sverrisson og Reynir Helgason sigruðu með góðum endaspretti
Norðurlandsmótið í tvímenn-
ingi í bridds fór fram í Hamri,
félagsheimili Þórs, á laugardag-
inn. Keppendur komu bæði frá
Norðurlandi eystra og vestra
en sigurvegarar urðu þeir Jón
Sverrisson og Reynir Helgason
frá Akureyri með samtals 391
stig.
Þeir félagar voru í 5.-6. sæti
eftir fyrri umferð mótsins með
172 stig en í þeirri síðari spiluðu
þeir glæsilega, bættu við sig 219
stigum og sigruðu sem fyrr sagði.
Akureyringar áttu einnig þá full-
trúa sem höfnuðu í 2. sæti en það
voru þeir Anton Haraldsson og
Pétur Guðjónsson. Anton og
Pétur höfðu einmitt titil að verja
að þessu sinni en þeir hafa sigrað
á mótinu sl. tvö ár.
Annars urðu 10 efstu pör þessi:
Stig
1. Jón Sverriss./Reynir Helgas., Akureyri 391
2. Anlon Haraldss./Pétur Guðjónss., Akureyri 388
3. Unnar Guðmundss./Erlingur Sverriss., Hvammst. 383
4. Frímann Frímannss./Grettir Frímannss., Akureyri 359
5. -6. Soffía Guðmundsd./Ármann Helgas., Akurcyri 346
5.-6. Jón Sigurbj.son/Asgrímur Sigurbj.son, Sigluf. 346
7. Ragnhildur Gunnarsd./Gissur Jónass., Akureyri 345
8. Ólafur Jónss./Steinar Jónss., Siglufiröi 344
9. Stefán Benediklss./ Inga Jóna Stefánsd., Fljótum 325
10. Jónas Róbertss./Gunnar Berg, Akureyri 322
Keppnisstjóri var Albert Sig-
urðsson. Næsta Norðurlandsmót
verður haldið á Norðurlandi vestra
aðári. -KK
Norðurlandsmeistarar 1990 í tvímenningi, Jón Sverrisson og Reynir Helga-
SOn. Mynd: KL