Dagur - 09.10.1990, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 9. október 1990 - DAGUR - 3
Byggingavörudeild og matvörudeild Kaupfélags Eyfirðinga:
Nýir deildarstjórar taka við um áramótiii
Ákveðið hefur verið að aug-
lýsa stöður deildarstjóra bygg-
ingavörudeildar og matvöru-
deildar hjá Kaupfélagi Eyfirð-
inga lausar til umsóknar.
^Reiknað er með að nýir deild-
arstjórar þessara deilda hefji
störf um áramót.
Um áramótin láta Mikael
Jóhannsson, deildarstjóri bygg-
ingavörudeildar KEA, og Brjánn
Guðjónsson, deildarstjóri mat-
vörudeildar, af störfum. Mikael
mun taka við starfi aðstoðar-
deildarstjóra, en Brjánn verður í
hlutastarfi hjá KEA.
Magnús Gauti Gautason, kaup-
félagsstjóri, sagði í viðtali við
Dag að undanfarið ár hefði verið
unnið að endurskipulagningu
byggingavörudeildarinnar, og sú
ákvörðun að auglýsa stöðu deild-
arstjóra nú væri í framhaldi af
þeirri endurskipulagningu. Vænt-
anlegur deildarstjóri mun hafa
með höndum yfirstjórn deildar-
innar og gera breytingar á rekstr-
inum og móta stefnu deildarinnar
í samráði við kaupfélagsstjóra og
stjórn KEA. „Við ætlum okkur
að bæta þennan rekstur, hann
hefur ekki skilað því sem við
höfðum vonast til. Hvað mat-
vörudeildina snertir þá óskaði
deildarstjóri hennar eftir að
minnka við sig vinnu og fara í
hlutastarf, og í framhaldi af
beiðni hans var ákveðið að aug-
lýsa þá stöðu einnig lausa til
umsóknar. Starfshlutverk deild-
arstjóra matvörudeildarinnar
verður endurskoðað, og kemur
til með að breytast nokkuð frá
því sem verið hefur. Nýi deildar-
stjórinn verður t.d. yfirmaður
Samlands.
Að lokum vil ég nota tækifærið
til að þakka þeim Mikael og
Brjáni fyrir vel unnin störf í þágu
KEA sem deildarstjórar," sagði
Magnús Gauti. EHB
Sameiningarkosningin framan Akureyrar:
Nafnið Eyj afl arðarby ggð fékk
mestan stuðning í skoðanakönnun
Samhliða kosningum um sam-
einingu Öngulsstaða-, Hrafna-
gils- og Saurbæjarhrepps á
laugardag fór fram skoðana-
könnun um 14 nöfn á nýja
sveitarfélagið. Atkvæðin í
þessari skoðanakönnun dreifð-
ust mjög og mjótt er á munum
milli þeirra fjögurra nafna sem
flest atkvæði fengu.
Niðurstaða þessarar skoðana-
könnunar verður nú rædd í sveit-
arstjórnunum þremur og þar tek-
in ákvörðun um hvaða nafn skuli
valið. Niðurstaða könnunarinnar
er ekki bindandi og ekki er held-
ur sjálfgefið að það nafn sem val-
ið verður komi af þessum 14
nafna lista. Þó er líklegt að svo
verði, að sögn Sigurgeirs Hreins-
sonar, oddvita Saurbæjarhrepps.
Endanleg ákvörðun um nafnið
er hjá félagsmálaráðuneytinu og
eftir umfjöllun hjá sveitarstjórn-
unum þremur á næstu vikum
verður ráðuneytinu send tillaga
að nafni til staðfestingar.
Leikfélag Akureyrar:
Benni, Gúddi og
Manni senn á svið
Eins og áður segir var áberandi
mest fylgi við þau nöfn sem hefj-
ast á Eyjafjarðar- en Eyjafjarðar-
byggð fékk flest atkvæði í kjör-
inu. Hér á eftir fara nöfnin 14 og
niðurstaða skoðanakönnunarinn-
ar.
Eyjafjarðarbyggð 58
Eyjafjarðarsveit 57
Eyjafjarðarhreppur 52
Grundarþing 49
Staðarbyggð 26
Vaðlaþing 25
Sunnusveit 17
Kristneshreppur 12
Vaðlahreppur 8
Framfjarðarbyggð 5
Helgahreppur 4
Helgamagrabyggð 4
Kerlingarhreppur 2 -
Framfjarðarhreppur 0
EYFJORÐ
Hjalteyrargotu 4 • Simi 22275
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
jStinga ekki
júr fínustu merinóull
jMjög slitsterk
->Má þvo viö 60°C
GÆÐANÆRFÖT
allir sem einn.
Fyrsta verkefni Leikfélags
Akureyrar á þessu leikári er
„Leikritiö um Benna, Gúdda
og Manna“ eftir Jóhann Ævar
Jakobsson, en hann er lærður
málari og er þetta frumraun
hans á sviði leikritunar.
Leikritið verður frumsýnt
föstudaginn 19. október.
Sigurður Hróarsson, leikhús-
stjóri, sagði að æfingar hefðu
gengið mjög vel og væri verkið
langt komið að ytri sem innri
búningi. Leikstjóri er Sunna
Borg, leikmynd er í höndum
Hallmundar Kristinssonar og
Ingvar Björnsson hannar lýsingu.
„Leikritið um Benna, Gúdda
og Manna“ fjallar um þrjá menn
sem hafa orðið fyrir skakkaföll-
um og falla ekki inn í þjóðfélags-
mynstrið eftir það. Verkið dregur
upp átakanlega mynd af lífi utan-
garðsmanna en engu að síður eru
spaugileg atvik á hverju strái.
Þráinn Karlsson, Gestur Einar
Jónasson og séra Hannes Örn
Blandon fara með hlutverk ógæfu-
mannanna og þá kemur Jón Stef-
án Kristjánsson lítillega við sögu.
Leikfélag Akureyrar selur
áskriftarkort á sýningarnar í vet-
ur og að sögn leikhússtjórans eru
slík kort hagstæður kostur fyrir
leikhúsgesti. Auk fyrsta verksins
eru í áskrift gleðileikurinn „Ætt-
armótið“ eftir Böðvar Guðmunds-
son og söngleikurinn „Kysstu
mig, Kata!“ eftir Spewack og
Cole Porter. SS
Dalvík:
Bygging verkamaima-
bústaða hefur tafist
vegna tregðu í kerfinu
Nú er unnið af kappi við undir-
búning byggingar sex íbúða í
verkamannabústaðakerfi á
Dalvík. Að sögn Sveinbjörns
Steingrímssonar, bæjartækni-
fræðings á Dalvík, hefur tafist
úr hófi fram að fá endanlegt
grænt Ijós á byggingu íbúð-
anna frá yfirvöldum húsnæðis-
mála og því hefur ekki verið
unnt að taka fyrr grunn að
íbúðunum.
Þrjú byggingarfyrirtæki á Dal-
DAGUR
Akurevri
0 96-24222
Norðlenskt dagblað
vík skipta með sér byggingu
íbúðanna, sem eru við Böggvis-
braut. Daltré byggir einbýlishús,
en Tréverk og Viðar byggja fimm
raðhúsíbúðir. Sveinbjörn segir
að þessa dagana sé unnið að því
að taka grunn að íbúðunum, en
spurningin sé hvort veðurguðirn-
ir haldi sig í skefjum og leggi
blessun sína yfir að unnið verði
við þær vetur. „Því miður hefur
verið beðið umsagnar um þessar
íbúðir, t.d. stærð þeirra, frá
Reykjavík of lengi og því hefur
dregist úr hófi fram að hefja
framkvæmdir. Um þessar mundir
er verið að sækja um fyrirgreiðslu
frá Húsnæðisstofnun fyrir fram-
kvæmdir á næsta ári, en með
réttu finnst mér að þessi umsókn
ætti að vera fyrir framkvæmdir á
árinu 1992. Með því móti þyrfti
þessi töf á afgreiðslu lána ekki að
endurtaka sig ár frá ári,“ sagði
Sveinbjörn. óþh
Indy Sport
422.700,- st.gr.
Indy Trail Deluxe
542.100,- st.gr.
355.600,-
Björgunarsveitir ath. -
PÓLARIS EINKAUMBOÐ A ÍSLANDI
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTAN
Hvannavöllum 14B - Simi 96-22840
PÓLARIS á Suðurlandi
H.K. ÞJÓNUSTAN
Krókhálsi 3 - Simi 91-676155
Hinir sívinsælu Polarissleðar eru komnir
á sama frábæra verðinu:
HggHgll
Indy 650 RXL
- st.gr.
iriSaí v. gcngi 6.9.’90
574.000,- st.gr.
Indy 500
Indy 650
699.600,- st.gr.
.