Dagur - 09.10.1990, Side 5

Dagur - 09.10.1990, Side 5
Þriðjudagur 9. október 1990 - DAGUR - 5 kvikmvndarvni Theresa Russell, lögreglukona í sálarkreppu. Þrumugnýr Borgarbíó sýnir: Þrumugný (Impulse). Leikstjóri: Sondra Locke. Aöalhlutverk: Theresa Russell og Jeff' lahey. Warner Bros 1990. í okkur öllum er lítill öfugugga- púki sem berst við að komast út, segir Theresa Russell; Þrumu- gnýr er um baráttu lögreglukon- unnar (sem Russell leikur) við púkann. Hennar aðalstarf er að leika vændiskonu og leggja snör- ur fyrir borgarbúa og saklausa túrista er sækjast eftir holdsins lystisemdum. Það fer ekki á milli mála að Russell á við töluverða sálræna kvilla að stríða, umfram aðra er það þó tortryggnin sem er að ríða henni á slig. Einnig er gefið í skyn, samanber upphafs- setninguna um púkann, að kynlíf hennar sé í þann veginn að le'iða hana út á braut öfuguggans. Og því verður raunar ekki neitað að vergirni Russell kemur henni í slæma klípu en hitt er álitamál hvort þar sé um að kenna öfug- uggahætti eða eðlilegri forvitni. Er það endilega pervismi þó að flögri að konu, sem leikur skækju en gengur þó aldrei alla leið, að fullkomna verkið? Þrumugnýr er að nafninu til glæpamynd, og vissulega sýnir hún skúrka að verki og blóðug dráp, - Þrumugnýrer þó fyrst og fremst kvennamynd; barátta Russell við sjálfa sig er í brenni- lesendahornið Framboðsmál sjálfstæðismanna á Norðurlandi eystra: Verður Halldór áfram í fyrsta Jósavin Arason bóndi í Arnar- nesi í Arnarneshreppi hafði sarn- band við Dag vegna framboðs- mála hjá Sjálfstæðisflokknum á Norðurlandi éystra og hafði þetta að segja: sætinu? það mikið happ að Halldór verði í fyrsta sæti og ef af því verði fækki atkvæðum flokksins til muna.“ punkti. Tortryggni kvenmannsins í garð karla skín alls staðar í gegn, hin blíða náttúra konunnar víkur og hörfar í sífellu fyrir grófu og ruddalegu eðli karlsins. Nánast engu púðri er eitt í að útskýra orsakir brynjunnar sem Russell hefur íklæðst - væmnu karlasögunni um dráp vinar er ekki hleypt upp á dekk. Brynj- unni fylgir þó ekkert skírlífisbelti en vandkvæði konu sem ber grunsemdarhug til karla og að- hyllist ekki eigið kyn eru töluverð þegar kemur að fullnægingu kyn- hvatarinnar. Hin blíða vera vill blíðu en ekki að takturinn sé sleginn upp í þrjá, stunið, hysjað upp um sig, kvatt og knúið dyra næst þegar náttúran kallar. En hversu langt er hin blíða vera viljug að ganga til að fá eðlis- drauma sína uppfyllta? Mun hún fórna sjálfum Mammoni fyrir eðli sitt? Russell er knúin til að gefa svar en skyldi það vera algilt fyrir kynsystur hennar? Þrumugnýrer ekki ýkja spenn- andi tryllir, hún einblínir á Russ- ell á meðan stór-glæpurinn verð- ur hreint aukaatriði. Engu að síð- ur finnst mér Þrumugnýr athygl- isverð mynd, kannski les ég held- ur mikið út úr henni eða jafnvel eintóma vitleysu - en það er þá bíófarans að bölva og mitt að hiksta. EFÞU ERTAÐFAR Brúð; air, margar gerc tinnig bíla og vei brúðkaupinu. Opiðlaugardag; sunnudaga í Hal kl. 9-16 ög lÖ-H í Sunnuhlíð laugard. kl. 10-1 Póstsendum. í Næg bílastæði. Menntamálaráðuneytið Laus staða Timabundin lektorsstaða til þriggja ára í upplýsinga- og merkjafræði við rafmagnsverkfræðiskor Háskóla íslands er laus til umsóknar. Kennslusvið lektorsins er á sviði hliðrænnar og staf- rænnar rásafræði (síur), mótunar- merkja- og upplýs- ingafræði. Rannsóknasvið skal vera á ofanreindum sviðum og aðstaða veitt í Upplýsinga- og merkjafræðistofu Verk- fræðistofnunar Háskóla Islands. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsfer- il og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 5. nóvember n.k. Æskilegt er að lektorinn geti hafið störf í byrjun vor- misseris 1991. Menntamálaráðuneytið, 5. október 1990. Nauðungaruppboð Þriðjudaginn 16. október 1990 kl. 14.00 fer fram nauðungaruppboð á lausafé á lóð Dreka hf. v/ Draupnisgötu á Akureyri. Selt verður að kröfu Jóns Kr. Sólnes, hrl., o.fl. eftir- talið lausafé: 1. Saltkrabbi af gerðinni Piner. 2. Bifreið, Volkswagen kleinbus árg. 1969. Ávísanir eru ekki teknar gildar sem greiðsla, nema með samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Uppboðsskilmálar eru til sýnis hjá uppboðshaldara. Bæjarfógetinn á Akureyri, 4. október 1990. Arnar Sigfússon, ftr. „Nú hefur verið ákveðið að ekki verði efnt til prófkjörs vegna uppröðunar á lista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar, held- ur verði kjördæmisráði falið að gera tillögur að framboðslista. Flest bendir til að að Halldór Blöndal verði áfram í fyrsta sæti og mér er spurn hvort ekki sé kominn tími til að að skipta um mann í því sæti eða ætla sjálf- stæðismenn að sætta sig við að ná ekki inn manni í kosningunum? Ég hef heyrt á andstæðingum Sjálfstæðisflokksins að þeir telja Barna- og fullorðinsskíðasamfestingar, verð frá 7.275.- ★ innanhússíþróttaskór, verð frá3.675.- ★ Joggingskór frá Nike, verð frá7.250.- Bolir, stuttbuxur, töskur, gallar og margt fl. Dömur komið og skoðið leikfimisfötin frá DANSKIN, góðir litir. er íþróttavöruverslun í hjarta bæjarins Strandgötu 6 • Akureyri • Sími 27771 Opið frá kl.09.30-18.00 aila virka daga, laugard. frá kl. 10.30-12.30. Nóg af bílastæðum

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.