Dagur - 09.10.1990, Page 6

Dagur - 09.10.1990, Page 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 9. október 1990 Friðland Enn hafði ég „Yrkju" á milli handa, hún var í bókahillunni hjá íslenskri menningu, 1. bindi, en aldrei komu út 2. og 3. bindi þótt heitið væri. Hér er gott hvílurúm sem „Mál og menning" með Sig- urði Nordal ætlaði að fylla í, en aldrei varð. Ofar á veggjum ættir Pingeyinga fjögur bindi, þar sem vantar enn meira í til að loforð standist. Fara þá að verða helstu vonir í virðisaukaskattslausum bókum, sem metnar yrðu . til vorkunnar af þjóðmerkingum. Líkt og konungar réttu forðum dýra bauga af sverðsoddi yfir langelda og gat varðað virðingu, metnað ellegar líf manns, þá ger- ist slíkt enn, samanber heiðurs- verðlaun bókmenntadómara, þar sem reynslan ein er þó hlutlaus- ust um hver lifir, svo að lengi endist. Fyrir mörgum áratugum reis mikil ræktunaralda, með hugsjón Landnáms ríkisins bundna í lög- gjöf og síðar í framkvæmdum. Þá gaf tíu hektara túnstærð frumbýl- ings á nýbýli hans vissa teg- und fullveldis, ef fast var sótt fram til sömu áttar. Skurðgrafan æddi um landið, undir stjórn og yfirstjórn hinna mætustu manna, og var fagnað á hverjum bæ. Senn mátti ganga þurrum fótum víðáttulönd, sem verið höfðu friðland fugla með söng og fjaðrabliki, en urðu töðuvellir. Búféð breiddi senn hvíta kápu með dekkri dílum um hlíð og grund. Hinir hamingjusömu frumbýlingar, sívinnandi, tóku dráttarhestinn í tamningaeldi en Fergusoninn að bensínbrjósti Essosmurstöðvarinnar. Feður og mæður, afar og ömmur sáu oki létt af yngri kynslóð, en voru komin með gerviliði og gleraugu sjálf. Jórunn Sveinsdóttir ritar sög- una í Yrkju um smáralandið, þar sem fjögurralaufa smárinn grær, en því fjær og lengur sem til hans er sótt, því fyrr fer menn að langa aftur heim. Hinn sjálfsáni „vitaðsgjafi“ Hinn 8. september 1972 staðfesti menntamálaráðherra reglugerð fyrir friðland Svarfdæla, sem sett var á laggirnar samkvæmt lögum um náttúruvernd. í 24. grein þeirra laga sem fjallar um friðlýs- ingu náttúruminja segir: „Land- svæði, sem mikilvægt er að varð- veita, sakir sérstaks lands og gróðurfars eða dýralífs, getur náttúruverndarráð friðað í heild og nefnast þau landsvæði friðlönd. Má þar ekki raska náttúrufari eða gera mannvirki sem spilla svip landsins." Stofnun friðlands Svarfdæla var byggð á þessu lagaákvæði en sérstaða svæðisins felst í votlendinu á sléttum, hallalausum dalbotnin- um, og því auðuga fuglalífi sem þar þrífst. Votlendi af þeirri gerð sem þarna er nefnist flæðimýri. Um flæðimýri segir Steindór Steindórsson grasafræðingur í bókinni Gróður fslands: „Flæði- mýrin hefir frá öndverðu verið harla mikilvæg í íslenskum land- búnaði. Má kalla að hún sé sjálf- sáin vitaðsgjafi þeirra jarða er hún finnst á, land sem aldrei bregst." Allt, sem hér er vitnað til, er sótt í merkilega ritgerð, „Dagatal fuglanna," eftir Hjört E. Þórar- insson, bónda á Tjörn í Svarfað- ardal. Ritgerðin er í bókinni Yrkju, og var það síst ólíklegt að frá því bændaóðali bærist vís- indaleg umhyggja og háttvísi, og sú nærgætna virðing fyrir landinu og lífi þess sem þetta einstaka fuglatal geymir. Um er að ræða fagran hljóm meðal misjafnra tóna í einni bók, en ritgerðin eykur gildi hennar að mun og máske við heiður forsetans, sem á þessa afmælisgjöf. Lfka kann svo að fara að einhverjum aukist trú og von á elleftu stundu, og að til séu nógu margir til sterkir menn á varðbergi vegna lands og þjóðar, svo harkalalega sem að hvoru tveggja er sótt. Mestu varð- ar þó um fólk, - ungt fólk í skól- um og fólk í skemmtistöðum sem tröllríða svo efnahag þess og ástríðuhag að til ófarnaðar leiðir. Hvað mestu þó það unga fólk sem kastað hefir trú sinni á úrræði og úrræðamenn, sem verða að metast eftir atvikum, en eru þó kjörnir til vissra verka. Vinningstölur laugardaginn 6. okt. ’90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 1 5.493.316.- 2. 11 52.795.- 3. 4af5 279 3.590.- 4. 3af 5 7446 313.- Heildarvinningsupphæö þessa viku: 9.406.269.- UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 Svo bregðast krosstré sem önnur tré Á nýafstöðnum landsfundi bændasamtakanna var samþykkt að „reikna með fækkun sauðfjár um 30-40% á næstu þremur til fimm árum, og við það leggjast væntanlejga af á annað þúsund störf. “ A sama fundi er bætt við: „Hófs sé gætt í beit á viðkvæmum gróðursvæðum, og gróskumiklu landi sé ekki spillt beitarálagi.“ Svo mjótt er bilið milli friðlands, og friðlands sem með friði er sótt að. Og ennþá virðist Sturlungaöld „Hér skal ég að vinna,“ eru fræg orð frá Sturlungaöld, og máske rétt eftir höfð, þar sem ósjálf- bjarga leitaði sér hlés undir garði gegn stríði, og beið þar bana- höggs. Ekki ganga menn ætíð fúsir til slíkra verka, og má oft varla á milli sjá hvort til glötunar leiðir ellegar gæfu. Þegar það högg svo varðar lífsafkomu stétt- ar og þjóðaratvinnu um aldir, opnast orðabók hinna lærðu manna. Þar segir: Þjóðrækni er að rækja siði og menningu þjóðar sinnar. Hversu stutt er þá til bú- fjárhalds bóndans og umhyggju hans um óðal sitt og jarðargróða og þeirrar þjóðrækni sem fastar tengir fólk að ættjörð sinni en þjónustubúðir, þótt lofaðar séu í anda ritninganna: „Það, sem þér viljið að aðrir gjöri yður,“ getur verið í anda þess jafnaðar, sem eitt sinn var á dögum Jóns Bald- vinssonar, ég þá á unglingsárum, en orðabækur kalla „krata“ nú í dag, og telja nútímaorð. Menn óttast það sem þeir ekki þekkja Það er fleira ólesið en af bók eða blaði þegar áramót óttans ennþá nálgast, því ekki er víst að „frið- arhugsjón kristindómsins færi svo hratt til hjálpar heimi með jafn- rétti og bræðralagi að undrum sæti,“ þótt sr. Sigurður Haukur orði það svo úr predikunarstóln- um. Ráðherrar, sem eiga sér ekki vísa nema eins vetrar dvöl í embætti, biðja sér friðlands þar sem heitir að Keilisnesi, og kjósi sér þann stað fyrir álver, úr því það er þeirra átrúnaður. Þeir vilja ræða málin sem einangrað- astir frá almenningi. Máske dettur einhverjum í hug að sú umræða sem fram hefur farið væri síst til þess fallin að auka hróður manna með svo óskýrt málfar. Þá er nú loks lík- legast að sömu mönnum detti í hug að stórvirkjanir íslendinga þurfi að vera meira en atvinnu- leysisbótavinna, ellegar greiðslu- kortaviðskipti með erlent fjármagn. Ef orkustöðvarnar fyr- ir austan og norðan sem eiga að leggja til þá einustu mjólkurkú sem metandi er til verðs, sem hefur málmmjólk úr spenum, væri gaman að fara að setja mjaltavél- arnar á, jafnvel þótt nærri sé svínabúinu á Suðurnesjum. Væri þá skammaminnst að hinn skammtímaráðni umhverfismála- ráðherra leysi málin með titrandi hendi á skjálfandi skaganum - hvort sem semst eða ekki semst við nýtt „útlendingaeftirlit." Frjálslyndi í sjötíu ár Ég var að vona að framsóknar- mennirnir mínir ættu geymt en ekki gleymt málefni það sem dr. Bragi Árnason flutti um fræði- lega ræðu á kjördæmisþingi fyrir nokkrum árum. Um var að ræða vetni til stóriðju á íslandi. Kannski verður það höfuðmál kvenna ásamt mýkri málunum á komandi vori, þegar Eyfirðingar og Þingeyingar eru máske úr hættu í bráð með sín heilbrigðu framleiðsluhéruð. Og aftur er farið að borga í menningarsjóði. Kannski var það í hillingum tæra vatnið sem Árnljótur Sigurjóns- son á Húsavík vildi miðla þyrst- um erlendis. Kannski eru það líka hillingar, vatnið sem verður að brennsluefni bíla við orku- stöðvar Austurlands. Sé svo hafa íslendingum horfið fleiri hilling- arnar, og er kannski eins um úlf- inn og lambið sem léku saman í Paradís - ellegar þá um góðbýli í Ameríku hvar bóndinn deilir vinnu sinni til hagræðis og hagn- aðar með álveri og mjólkur- búskap. Einn læðist grunur með bæjum að mikils þurfi með af því sem heitir gjaldeyrir í dálkum fjár- málaráðherra Ólafs Ragnars Grímssonar, þegar forsetar fara flestir eða ráðherrar á milli heimsálfa, og þurfi þá helst að gæta, að ekki rekist á munaður eða mungát livað menning heit- ir þó, heima eður erlendis. „Kvíddu ekki næsta degi því fyrir er séð,“ segja klerkarnir - matur og menning verða frumþarfirnar Nú vantar ekki hitann, jafnvel ekki í Köldukinn, en gott til að vita að matur og menning virðast nútímans frumþarfir á íslandi, og eiga greiða leið til kynningar erlendis ef skynsamlega er á haldið. Það er ekki sannað að ættjörð vorri sé ávinnungurinn einn af útrýmingu hagalambsins eða síð- ar fjallalambsins feita, sem áður snapaði skófir og hinsta kvistinn úr brunasandi, en fá í staðinn síbreiðu fjallagæsa ellegar örtröð ferðamannaslóða. Áfram knýr á spurningin sem hávaðamenn reyn að þagga: Hvar er friðland að finna? 20. september 1990, Jón Jónsson, Fremstafelli Höfundur er bóndi á Fremstafelli II í Köldukinn. Akureyri: „Fullkomin grafíkpressa breytir öllu“ - segir listakonan Anna G. Torfadóttir Alltaf fjölgar þeim myndlist- armönnum á Akureyri, sem koma sér upp eigin vinnustofu meö tækjum og búnaöi til list- sköpunar. Grafíklistakonan Anna G. Torfadóttir hefur hreiðrað um sig í gömlu húsi í Fjörunni og vinnur þar að list sinni, en nýverið fékk hún stóra og fullkomna grafík- pressu, sem breytir öllu í list- sköpun hennar. Anna G. Torfadóttir kom frá námi í myndlist 1987 og hún hef- ur unnið allar götur síðan að myndlist á Akureyri. „Nýja grafíkvinnustofan og pressan gefa mér alhliða aðstöðu til að fást við grafík þ.e. ætingu, Iitógrafíur, dúk- og tréristur. Mest vinn ég við ætinguna núna, er að vinna verk sem fara á stóra sýningu grafíklistamanna í Reykjavík," sagði Anna, þar sem hún var á kafi við að sýrubaða Isink- og koparplötur. ój

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.