Dagur - 09.10.1990, Blaðsíða 7

Dagur - 09.10.1990, Blaðsíða 7
*■ ni Þriðjudagur 9. október 1990 - DAGUR - 7 Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Yfirburðir Þórs gegn Grindavík - lagði Val 91:85 að Hlíðarenda „Þetta sýnir að liðið er betra en í fyrra. Það komu tveir stuttir kaflar í leiknum þar sem við lékum ekki nógu vel en svo aftur lengri kaflar þar sem þeir áttu ekki möguleika gegn okk- ur,“ sagði Gylfl Kristjánsson liðsstjóri Þórs í körfuknattleik, eftir góðan sigur Þórs á Grind- víkingum í fyrsta leik liðanna í úrvalsdcildinni. Leikurinn fór fram í Iþróttahöllinni á Akur- eyri og urðu lokatölur hans 106:89 heimamönnum í vil. „Strákarnir hafa æft mjög vel að undanförnu og að mínu viti er Sturla Örlygsson þjálfari að gera mjög góða hluti með liðið,“ sagði Gylfi ennfremur. Það er ekki hægt að segja ann- að en leikur Þórs gegn Grindvík- ingum lofi góðu um framhaldið. Leikmenn liðsins koma greini- lega vel undirbúnir til leiks, hafa gaman af því sem þeir eru að gera og verður fróðlegt að fylgj- ast með þeim í vetur. Þórsarar skoruðu þrjú fyrstu stigin í leiknum en þá komu sex stig frá gestunum og var það í eina skiptið sem þeir höfðu yfir í leiknum. Þórsarar komust yfir 7:6 og juku síðan forskotið jafnt og þétt fram í miðjan hálfleikinn en þá var munurinn orðin 16 stig, 32:16. Þórsarar gáfu síðan eftir þegar nær dró leikhléi og þegar flautað var til leikhlés, höfðu gestirnir minnkað muninn í tvö stig, 48:50. Á þessum tíma höfðu villuvandræði gert vart við sig hjá Þór og bæði Sturla þjálfari og Cedric Evans Bandaríkjamaður- Knattspyrna: Guðmundur á leið út - æfir með Ekeren og Stuttgart Guðmundur Benediktsson, knattspyrnumaðurinn ungi og efnilegi úr Þór, er á leið til útlanda að líta á aðstæður hjá erlendum félagsliðum og æfa með þeim. Hann fer til Belgíu um næstu helgi þar sem hann dvelur í mánaðartíma hjá 1. deildarliðinu Ekeren og þaðan til Þýskalands þar sem hann verður í hálfan mánuð hjá Stuttgart. Guðmundur sagði í samtali við Dag að enska liðið Everton hefði einnig haft samband við sig en hann hefði síðan ekkert heyrt meira frá því liði. Guðmundur fer út án allra skilyrða og ekki til samningaviðræðna. „Ég er ekki tilbúinn til þess, fer einungis til að kíkja á þetta. Mér líst bara mjög vel á þetta og hlakka til að geta farið að spila fótbolta að vetri til,“ sagði Guðmundur Bene- diktsson. Guðmundur Benediktsson hefur í nógu að snúast á næstunni. inn í liði Þórs urðu að taka sér hvíld. En það var ljóst strax í byrjun síðari hálfleiks að Þórsarar ætl- uöu sér ekkert annað en sigur í leiknum. Þeir juku forskotið jafnt og þétt á ný og voru komnir með 18 stiga forystu um miðjan hálfleikinn. Grindvíkingar reyndu hvað þeir gátu til að jafna en komust næst því að minnka muninn í 10 stig, 82:92. Á síðustu mín. leiksins fóru Þórsarar hins vegar á kostum og juku muninn í 17 stig áður en flautað var til leiksloka. Þórsarar léku þennan leik af miklum krafti, með þá Jón Örn Guðmundsson. Cedric Evans og Konráð Óskarsson sem bestu menn. Einnig átti Sturla þjálfari góða spretti en hann lenti fljót- lega í villuvandræðum og varð að yfirgcfa völlinn með 5 villur undir lokin. Þá var Jóhann Sigurðsson drjúgur á síðustu mín, leiksins. Bandaríkjamaðurinn Antony King lék best í liöi UMFG, leikmaður með stórskcmmtileg- an stíl og einnig átti Guðmundur Bragason ágætan dag. Slig Þórs: Ccdric Evans 34, Sturla Örlygsson IH, Konráð Óskarsson 18, Guöniundur Björnsson 12, Jón Örn Guðmundsson II. Björn Svcinsson 7, Jóhann Sigurösson 6. Stig GMFG: Antony King 29, Guö- mundur Bragason 16, Steinþór Hclgason 13, Jóhanncs Kristbjörnsson 10. Ellcrt Magnússon 10, Svcinbjörn Sigurðsson 8, Marcl Guðlaugsson 3. Dómarar voru Lcifur Garðarsson og Helgi Bragason og dæmdu þeir nokkuö vcl. -KK Cedric Evans smeygir kncttinum Grindavíkur og í körfuna. framhjá Bandaríkjamanninum í liði Mynd: KL Tindastóll byijar vel Tindastóll sigraði Yal 91:85 í sínum fyrsta leik í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik á sunnu- dagskvöldið. Leikurinn fór fram að Hlíðarenda og fjöldi manns lagði leið sína á hann. Ástæðan var einföld: Pétur Guðmundsson. Pétur var að leika á Islandi í fyrsta sinn í langan tíma og er óhætt að segja að koma hans lofi góðu fyrir Tindastólsliðið. Valsmenn byrjuðu betur og höfðu forystuna fyrstu 5 mínút- urnar. Þá komst Tindastóll yfir 16:14. Tindstólsliðið, vel stutt af áhangendum sínum, jók forskot- ið jafnt og þétt og hafði náð 15 stiga forystu þegar blásið var til leikhlés, 51:36. Tékkinn Ivan Jonas átti stórleik í fyrri hálfleik og gerði 20 stig en lenti í villu- vandræðum. Tindastóll hélt 15-20 stiga for- skoti allt þar til 5 mínútur voru til leiksloka en þá voru Jonas og Pétur báðir komnir út af með 5 villur. Gestirnir létu það þó ekki á sig fá og spiluðu skynsamlega. Það var ekki fyrr en alveg í lokin sem einbeitingin minnkaði en munurinn varð þó aldrei rninni en 6 stig. kerfum Tindastóls. „Ég er nátt- úrlega óánægður með villurnar 5 en það tekur tíma að aðlagast nýju reglunum. Ég náði aðeins tveimur æfingum fyrir þennan leik þannig að ég er enn að kynn- ast leikmönnum. Þetta er samt góð byrjun og mér líst vel á fram- haldið. Við munum sýna fólki í næsta leik að sigurinn gegn Val var ekki heppni," sagði Pétur að leik loknum. Ivan Jonas átti góð- an leik auk Einars Einarssonar og Vals Ingimundarsonar. Þá var Pétur drjúgur og vert er að geta Karls Jónssonar sem barðist eins og ljón eftir að Pétur og Jonas voru komnir útaf. Bestir hjá Val voru Magnús Matthíasson og David Grissom. Dómarar voru Kristinn Óskars- son og Jón Guðmundsson. Þeir áttu þokkalegan dag en greinilegt er að nýju leikreglurnar koma stórum leikmönnum ekki til góða. Stig Vals: David Grissom 30, Magnús Matthíasson 26, Ari Gunnarsson 12, Starri Björgvinsson 6, Ragnar Jónsson 5, Matthías Matthíasson 4, Helgi Gústafs- son 2. Stig Tindastóls: Ivan Jonas 22, Pétur Guðmundsson 21, Einar Einarsson 20, Valur Ingimundarson 18, Sverrir Sverris- son 7, Karl Jónsson 3. -bjb Leikurinn var í heild fjörugur og skemmtilegur og virðast liðin koma vel undirbúin til leiks. Pét- ur á greinilega eftir að koma sér í betri leikæfingu og kynnast leik- Ivan Jonas byrjaði frábærlega en lenti í villuvandræðum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.