Dagur - 09.10.1990, Side 8

Dagur - 09.10.1990, Side 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 9. október 1990 Handknattleikur, 2. deild: Völsungar meö tvö stig úr fyrstu leikjunum Handknattleikslið Vöisungs fékk tvö stig úr fyrstu tveimur ieikjum sínum um helgina í 2. deild íslandsmótsins í hand- knattleik. Liðið lék í Keflavík á laugar- daginn og sigraði 22:20 en tapaði síðan stórt fyrir HK daginn eftir, 29:14. Völsungar byrjuðu vel í Keflavík og voru yfir framan af fyrri hálfleik. Keflvík- ingar sóttu hins vegar í sig veðrið þegar á leið, skoruðu 3 síðustu mörkin í hálfleikn- um og höfðu forystu í leikhléi, 11:9. Seinni hálfleikur var í járnum lengst af en í lokin náðu Völsungar að jafna og tryggja sér tveggja marka sigur. Prátt fyrir sigur léku Völsungar ekkert sérstaklega vel. Þá voru dómararnir, Guðjón Sigurðsson og Hákon Sigurjóns- son, afar harðir og vísuðu Völsungum alls 9 sinnum út af í tvær mínútur. Par af fengu tveir leikmenn liðsins þrjár brottvísanir sem jafngildir útilokun frá leiknum. Markahæstir Völsunga urðu Ásmundur Arnarsson með 9 mörk, Vilhjálmur Sig- mundsson með 5 og Jónas Grani Garðars- son með 3 mörk. Um leikinn á sunnudeginum þarf ekki að hafa mörg orð. Hann var einstefna frá upphafi og HK-ingar höfðu náð 5 marka forskoti þegar flautað var til hlés, 13:8. Heimamenn juku síðan forskotið jafnt og þétt þar til 15 marka sigur var í höfn. Völsungar virkuðu hálfhræddir og báru of mikla viröingu fyrir HK-ingum en það þarf ekki að koma á óvart þar sem um var aö ræða fyrstu leiki þcirra í 2. deild. Marka- hæstir urðu Haraldur Haraldsson og Ásmundur Arnarsson með 4 mörk hvor og Helgi Helgason með 3 mörk. „Eg er alls ekki ósáttur viö að fá tvö stig út úr tveimur fyrstu leikjunum sein þar að auki voru á útivelli. Ég átti ekki von á sigri gegn HK en heldur ekki svona stóruni skelii. Nú einblína menn bara á leikinn gegn Pór á miðvikudaginn og bíða spennt- ir eftir honum," sagði Arnar Guðlaugsson, þjálfari Völsungs. Ásmundur Arnarsson skoradi flest mörk Vðlsungs. íþróttasamband fatlaðra: Sambandsþing íþróttasambands fatl- aðra fer frani á Hótel Höfn í Hornafirði dagana 13. og 14. október nk. Sam- bandsþingið fer með æðsta vald í málefnum ÍF og þingið sitja fulltrúar kjörnir af þeim íþróttafélögum sem starfa innan vébanda ÍF. Síðast var Sambandsþing ÍF haldið á Húsavík en lögð hefur verið áhcrsla á að velja þingstað utan höfuðborgarsvæðisins þar sem það stuðlar aö aukinni kynningu á starfsemi ÍF út um land auk þess sem það stuðlar að aukinni samheldni og samvinnu þeirra er þingiö sækja. Þingið verður sett laugardaginn 13. október kl. 9.30 á Hötel Höfn í Horna- firði. Handknattleikur, 1. deild: „Synd að tapa þessum leik“ - sagði Erlingur Kristjánsson eftir 22:23 ósigur KA gegn Val KA-menn töpuðu naumlega fyrir Val í Reykjavík á laugar- daginn í VÍS-keppninni í hand- knattleik, 22:23. KA hafði for- ystuna í leikhléi, 12:10. „Það var synd að tapa þessum leik sem var mjög jafn,“ sagði Erl- ingur Kristjánsson, þjálfari KA, að leik loknum. KA-menn hófu leikinn af krafti og skoruðu fyrsta markið. Jafnt var á flestum tölum en KA- menn ætíð fyrri til að skora. Þeg- ar 7 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik var staðan 8:8 en þá kom Erlings kafli Kristjánssonar. Hann skoraði 3 mörk í röð og varð það til þess að norðanmenn höfðu sanngjarna forystu í leik- hléi, 12:10. KA hélt forystunni fyrstu 10 mínútur seinni hálfleiks eða þar til Valur jafnaði og komst yfir, 16:15. Þá kom slæmur leikkafli KA-manna og Valsmenn bættu við mörkum, mest úr einföldum hraðaupphlaupum. KA-menn gáf- ust þó ekki upp og þegar 5 mínút- ur voru eftir var staðan jöfn, 19:19. Valur náði tveggja marka forystu, 22:20, en KA-menn minnkuðu muninn og þegar ein Sigurpáll Árni Aðalsteinsson átti ágætan leik gegn Val og skoraði 7 mörk. Mynd: KL mínúta var eftir jafnaði Erlingur leikinn. Allt í járnum en eftir langa sókn, þegar nokkrar sek- úndur voru til leiksloka skoruðu Valsmenn sigurmarkið og KA- menn höfðu of lítinn tíma til að jafna í síðustu sókninni. Sigurpáll Aðalsteinsson átti góðan leik fyrir KA og vert er að geta Jóhannesar Bjarnasonar sem tókst lengi vel að halda Jakobi Sigurðssyni í skefjum. Þá varði Axel oft vel í markinu á mikil- vægum augnablikum. KA-liðið lék reyndar ágætlega í þessum mikla baráttuleik en það sem reið baggamuninn voru hraðaupp- hlaup Valsmanna. Bestu menn þeirra voru Valdimar Grímsson og Einar Þorvarðarson, sem varði m.a. tvö víti. Dómarar voru Gunnar Kjart- ansson og Árni Sverrisson og voru þeir ekki sannfærandi. Mörk Vals: Valdimar Grímsson 10/2, Brynjar Harðarson 4. Jakob Sigurðsson 4, Finnur Jóhannesson 1, Júlíus Gunn- arsson 1, Theodór Guðfinnsson 1, Dagur Sigurðsson 1, Jón Kristjánsson 1. Mörk KA: Sigurpáll Aðalsteinsson 7/1, Erlingur Kristjánsson 4, Hans Guð- mundsson 3, Andrés Magnússon2, Pétur Bjarnason 2, Guðmundur Guðmundsson 2, Jóhannes Bjarnason 2. -bjb Evrópuleikur CSKA og KA: Blaðaumíjöllun í Búlgaríu yfirleitt vinsamleg í garð KA - en CSKA ekki talið líklegt til stórafreka Þrátt fyrir að CSKA Sofia hafi tryggt sér sæti í 2. umferð Evr- ópukeppni nieistaraliða í knattspyrnu með 3:0 sigri á KA-mönnum sl. miðvikudag voru búlgarskir blaðamenn ekkert yfir sig ánægðir með leik liðsins. í flestum blöðum var því haldið fram að CSKA hefði leikið illa og þyrfti ekki að eiga von á góðu gengi í framhaldinu. KA-liðið fékk yfírleitt hlýlegar umsagnir, blöðin sögðu liðið leika furðu góða knattspyrnu miðað við aðstæður í heimalandi þess. Vegna þjóðfélagsástands í Búlgaríu um þessar mundir fjalla fjölmiðlar yfirleitt lítið sem ekk- ert um knattspyrnu. Sýndur var 25 mínútna langur kafli úr leikn- um í búlgarska sjónvarpinu en eftir miðnætti sem ekki getur tal- ist besti útsendingartími. Dag- blöðin snúast að mestu eða öllu leyti um stjórnmál og prentað mál um íþróttir er yfirleitt ein- göngu að finna í sérstökum íþróttablöðum sem sjaldnast eru gefin út daglega. Öll blöðin sem um leik CSKA og KA fjölluðu, töldu sigur CSKA eðlilegan en þó heldur lít- inn miðað við allar aðstæður. Flest þeirra töldu KA-liðið hafa staðið sig furðu vel, sögðu liðið að vísu ekki leika góða knatt- spyrnu en þó furðulega góða miðað við hversu stutt keppnis- tímabilið á íslandi er. Þá var á mörgum stöðum tekið fram að hitinn hefði verið meiri en leik- menn KA ættu að venjast. ítarlegustu umfjöllunina um leikinn var að finna í íþróttablað- inu Sport sem gefið er út daglega. Þar var mynd úr leiknum á for- síðu og á henni mátti m.a. sjá KA-mennina Steingrím Birgis- son og Hauk Bragason. Fyrir- sögnin á forsíöunni var „Á þriðja farrými til Evrópu," sem táknaði að CSKA hefði komist áfram í keppninni með þriðja klassa leik. Inni í blaðinu var nokkuð ítarleg frásögn af leiknum og þar var fyrirsögnin „Samkvæmt áætlun í Sofia.“ Þar sagði að KA-menn hefðu leikið ákaflega stífan og lokaðan varnarleik til að byrja með en smám saman sótt í sig veðrið og tekið meiri áhættu. Liðið væri ekki sterkt en hefði leikið furðulega góða knatt- spyrnu á köflum. Greinin var í heild sinni jákvæð í garð KA- manna en því neikvæðari í garð CSKA og sagt að með slíkum leik ætti liðið ekkert erindi í Evr- ópukeppni. í lok greinarinnar var vitnað í Stefán Gunnlaugsson, formann knattspyrnudeildar KA, og var haft eftir honum að hann væri ánægður með sína menn en sigur CSKA hefði samt sem áður verið sanngjarn. Forsíðumyndin á búlgarska blaðinu Sport fimmtudaginn 4. október. „Á þriðja farrými til Evrópu,“ segir í fyrirsögninni

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.